Tók sjálf þátt í atkvæðagreiðslu 29. desember 2004 00:01
Hansína Ásta Björgvinsdóttir, nýráðinn bæjarstjóri í Kópavogi, tók sjálf þátt í atkvæðagreiðslu um ráðningarsamning sinn í bæjarstjórn. Hún segir að vel megi vera að hún hafi átt að sitja hjá. Fjallað var um starfssamning við Hansínu Ástu Björgvinsdóttur á fundi bæjarstjórnar í gær. Hún mun hafa 570 þúsund í mánaðarlaun auk fastrar yfirvinnu sem eru þrjátíu tímar á mánuði. Samfylkingin í Kópavogi gerir athugasemdir við að Hansína greiddi sjálf atkvæði um samningin við sjálfa sig og bendir á að forveri hennar hafi setið hjá þegar greidd voru atkvæði um samning hans. Samfylkingin segir það umhugsunarefni hvort Hansína hafi ekki verið vanhæf til þess að taka þátt í atkvæðagreiðslunni. Þá segir Samfylkingin í fréttatilkynningu að biðlaunaréttur sem samið var um til eins mánaðar eftir að starfi Hansínu lýkur sé óeðlilegur en í samningnum er ákvæði um að Hansína njóti launa í einn mánuð eftir að hún lætur af störfum. Hansína sagði í samtali við fréttastofu að það megi vel vera að rétt hefði verið að hún sæti hjá við afgreiðslu samningsins í bæjarstjórn. Það hafi hins vegar ekki hvarflað að henni, þar eð ekki væri hún á móti efni hans. Hvað biðlaunin varðar segir Hansína að þau séu hugsuð sem laun fyrir þá vinnu sem hún hefur nú þegar innt af hendi eftir sviplegt fráfall Sigurðar Geirdal heitins, fyrrverandi bæjarstjóra. Hún hafi undanfarin mánuð sinnt ýmsum störfum bæjarstjóra án þess að fá sérstaklega greitt fyrir það.
Fréttir Innlent Mest lesið Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Innlent Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Innlent Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Erlent „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Innlent Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Innlent Fleiri fréttir Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Fresta opnun Sundhallar Reykjavíkur Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Vetur í íslenskri kvikmyndagerð Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Hjartaljósin ekki sloppin „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Stór mál á dagskrá síðasta þingfundar fyrir þingfrestun Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Hvalavinurinn í tunnunni og Kaleo undirbýr Þingvallakonsert Inga ræddi við fulltrúa Tiktok um að hækka aldursmörk Halda í opinbera heimsókn til Færeyja Dómur burðardýrs mildaður Starmer ætlar ekki að láta í minni pokann fyrir Burnham strax Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Ólafur Þ. Harðarson sakaður um fánaslugs „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Tveir á slysadeild eftir eld í Jörfabakka Stefna á að ljúka þingi í dag Sjá meira