Sjórinn fullur af börnum 29. desember 2004 00:01
Norrænu þjóðirnar eru harmi slegnar, sérstaklega Svíar. Fjórðungur til þriðjungur fórnarlamba hamfaranna við Indlandshaf eru börn. Á vefmiðlum lýsa ættingjar eftir fólki og birta myndir, sagt er frá leit að fólki og birtur tölvupóstur með frásögnum úr þessu "helvíti" á jörð. Netið er notað til hins ítrasta. Óskað er eftir ábendingum í tölvupósti og miðillinn notaður til að sameina fjölskyldur. "Í gær tíndum við ungabörn og börn upp úr sjónum. Og það eru fjöldamörg eftir. Allur sjórinn er fullur af börnum," segir sænskur ferðamaður í tölvupósti til sænska blaðsins Expressen í gær. Ferðamenn og innfæddir virðast hafa safnast upp í fjöllin. Svíi segir frá erfiðum skurðaðgerðum sem þar fara fram við frumstæðar aðstæður, við olíulýsingu með skítugum hníf. Sumir nota viskí til sótthreinsunar. Sænskur faðir leitar að fjögurra og fimm ára sonum. Hann óttast að líkið af konu sinni týnist í líkhúsinu og hefur það með í för. Hann hefur vafið sænska fánanum um kistuna og skrifað nafn hennar. Í Noregi er margra saknað. Í sumum tilfellum er lýst eftir heilu fjölskyldunum. Sænska ríkisstjórnin hefur fengið harða gagnrýni fyrir sofandahátt og þess krafist að Laila Freivalds utanríkisráðherra segi af sér: "Norrænu ríkisstjórnirnar verða að sameinast um að senda neyðaraðstoð í formi flutningavéla til að sækja þá sem eru mest slasaðir. Þetta er áríðandi og má ekki bíða. Hjálpið okkur að fá sænsk stjórnvöld til að skilja að þau verða að bregðast skjótt við," segja sænsk læknishjón í tölvupósti. Þau óskuðu eftir aðstoð í tölvupósti strax í byrjun vikunnar en þau voru stödd í fríi í Taílandi: "Við þurfum bráðaflutning af slösuðum til Skandinavíu. Hér eru margir alvarlega slasaðir, sumir margbrotnir og aðrir með lífshættulega áverka. Við vitum ekki hversu margir deyja á sjúkrahúsinu næstu daga ef þeir fá ekki flutning heim." Finnar gera ráð fyrir að hafa náð öllu sínu fólki heim um helgina en Svíar ekki fyrr en á þriðjudag.
Asía - hamfarir Fréttir Innlent Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Fleiri fréttir Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sjá meira