Innlent

Heytugga bjargar hrossunum

Hestar geta orðið ákaflega hræddir við flugelda, bæði blossana og hvellina sem af þeim hljótast. Oft gerist það að útigangshross fælast svo að þau taka strikið til fjalla, lenda þar í sjálfheldu eða hlaupa jafnvel fyrir björg. "Mér hefur reynst vel að gefa hrossum á húsi aðeins hálfa kvöldgjöf á gamlárskvöld," sagði Björgvin. "Fara síðan í húsin þegar menn eru búnir að borða sína steik eða jafnvel enn síðar, rétt fyrir miðnætti og gefa hinn helminginn. Átið heldur hrossunum uppteknum, þannig að þau truflast ekki eins." Þá sagði Björgvin, að menn ættu að hafa ljós kveikt í hesthúsunum, útvarp í gangi og helst að byrgja glugga. Það væri ekki mikið mál né dýrt, því nota mætti svarta plastpoka, pappa eða frauðplast. "Í einstaka tilfellum hef ég verið fenginn til að sprauta hross niður," sagði Björgvin en sagði það ekki gert nema þau "færu gjörsamlega á límingunum í flugeldahríðinni."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×