Skuldir heimilanna hafa nífaldast 26. nóvember 2004 00:01
Íslendingar skulda meira en flestar aðrar þjóðir í heiminum, og hafa skuldir heimilanna nífaldast síðan 1980. BSRB lét hagfræðinga sína, Hildigunni Ólafsdóttur og Ragnar Ingimundarson, gera fyrir sig skýrslu um skuldir þjóðarbúsins. Þar kemur fram að íslenska þjóðarbúið sekkur sífellt dýpra í skuldasúpuna, og nú er svo komið að Íslendingar skulda meira en flestar aðrar þjóðir í heiminum. Þegar litið er til vestrænna ríkja eru það aðeins Finnar og Ný-Sjálendingar sem eru skuldugri en Íslendingar. Ekki er það ríkinu að kenna, samkvæmt BSRB, því dregið hefur úr skuldum ríkissjóðs á undanförnum árum. Mestu munar um að skuldir fyrirtækja og heimila margfaldast. Til dæmis hafa skuldir heimila frá árinu 1980 nífaldast, og eru nú 180% af ráðstöfunartekjum. Skýringin sem hagfræðingar BSRB hafa á þessu er einfaldlega að nú er auðveldara að taka lán en áður, og vextirnir eru lægri. Bjartsýni ríkir í þjóðfélaginu, sem er líka drifkraftur fyrir skuldasöfnun fyrirtækjanna, sem er með því mesta sem gerist meðal vestrænna ríkja. Útlitið er svart að mati skýrsluhöfunda, Íslendingar munu sökkva enn dýpra í skuldasúpuna með enn lækkandi vöxtum og tilkomu nýrra fasteignalána. Stór hluti launþega hefur þegar ráðstafað hluta af launum sínum fyrirfram og því eru kollsteypur í efnahagslífinu líklegri en áður, ef aðstæður breytast til hins verra í hagkerfinu, að mati skýrsluhöfunda BSRB. Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, segir að menn verði að sína fyrirhyggju. Það sé mjög mikilvægt að örva umræðu í þjóðfélaginu um skuldasöfnun þjóðarinnar og fá heimilin til þess að sína varkárni í fjármálum. Það sé rétt að taka gilliboðum bankanna með varúð.
Fréttir Innlent Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent „Þetta er erfiður mánudagur“ Innlent Fleiri fréttir Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Sjá meira