Árás á Heathrow undirbúin 5. ágúst 2004 00:01
Hryðjuverkamenn ætluðu að gera árás á Heathrow-flugvöll við London samkvæmt upplýsingum frá pakistönsku leyniþjónustunni. Nýjar upplýsingar gefa einnig til kynna að Al-Kaída hafi uppi áform um að gera árásir á flutningaskip. Handtökurnar í Bretlandi síðustu daga voru að öllum líkindum byggðar á upplýsingum sem fengust þegar meðlimur úr Al-Kaída samtökunum, Naeem Noor Khan, var handtekinn í Lahore í Pakistan í byrjun júlí. Khan er tölvunarfræðingur og fjölmörg gögn fengust úr tölvum hans sem benda til að samtökin voru að skipuleggja árásir á Heathrow-flugvöll í Lundúnum. Upplýsingar um mennina tólf í Bretlandi fundust í gögnum Khans að sögn talsmanna leyniþjónustu Pakistans. Talið er að einn af þeim sé háttsettur meðlimur úr Al-Kaída og hugsanlega var hann yfir breskum armi samtakanna. Hann átti líklega þátt í að undirbúa árás á flugvöllinn því hann hafi verið í tölvupóstsambandi við Khan. Leyniþjónustan segir þessa hryðjuverkamenn hafa tengsl um allan heim og ef takast eigi að leita þá uppi, og ekki aðeins hrekja þá frá stöðvum sínum heldur gera þá óvirka, verði að koma á mjög virkri samvinnu milli hagsmunaaðilanna. Nýjar upplýsingar benda einnig til að Al-Kaída hafi ætlað að gera árásir á flutningaskip til að trufla eða hafa neikvæð áhrif heimsverslun en engar upplýsingar fengust um það hvort árásirnar væru bundnar við bresk skip. Ekki hefur fengist staðfest hvort viðbúnaðurinn í Washington og New York í tengslum við hugsanlegar árásir á fjármálastofnanir sé kominn til vegna nýrra upplýsinga frá Pakistan. Myndin sýnir vopnaðan lögreglumann við gæslu á Heathrow-flugvelli í dag.
Erlent Fréttir Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent „Fólk er bara slegið“ Innlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Fleiri fréttir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Sjá meira