Erlent

Frestuðu för sinni til Parísar

Þrír helstu leiðtogar heimastjórnar Palestínumanna frestuðu í morgun för sinni til Parísar til ráðagerða við lækna Jassers Arafats, sem liggur þar dauðvona, vegna háværra mótmæla Shua Arafat, eiginkonu leiðtogans. Hún sakar leiðtogana um að ætla að fá lækna til að slökkva á vélbúnaði, sem að líkindum heldur lífinu í Arafat, og grafa hann þannig lifandi eins og hún orðaði það. Talsmaður heimastjórnarninnar sagði í morgun að Shua, sem er búsett í Frakklandi, yrði að gera sér grein fyrir því að Arafat væri ekki einkaeign hennar og að hún hafi ekki sést í Palestínu síðan uppreisnin hófst þar fyrir þremur árum. Arafat hefur ítrekað legið undir ámæli fyrir að hafa veitt henni ótæpilegan aðgang að opinberum sjóðum Palestínumanna, sem væntanlega tekur fyrir við fráfall hans.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×