Al-Kaída hagnast á upplýsingaleka 9. ágúst 2004 00:01
Tilraunir Bandaríkjastjórnar til að réttlæta viðvaranir við hryðjverkaógn í síðustu viku kom að öllum líkindum í veg fyrir frekari handtökur á meðlimum Al-Kaída hryðjuverkasamtakanna í Bandaríkjunum, Evrópu og Pakistan. 1. ágúst tilkynntu bandarísk stjórnvöld að grunur léki á að Al-Kaída ætlaði að gera árásir á fjármálstofnanir í Bandaríkjunum. Ekki var vitað hvaðan upplýsingarnar komu en nokkrum dögum síðar voru nokkrir grunaðir hryðjuverkamenn handteknir í Bretlandi. Tveimur dögum seinna lá ljóst fyrir að Bretar hefðu fengið upplýsingar um mennina frá Pakistan en í júlímánuði handtóku Pakistanar háttsettan hryðjuverkamann að nafni Mohammed Naeem Noor Khan. Í fórum hans fannst mikið af upplýsingum um aðra hryðjuverkamenn og áætlanir þeirra. Pakistanar héldu lengi vel handtöku Khans leyndri og þeir leyfðu honum að halda áfram að hafa samband við samráðsmenn í von um að fá fleiri upplýsingar um þá. Upplýsingarnar frá Khan komu að gagni og sífellt fleiri nöfn hryðjuverkamanna komu fram. Þegar í ljós kom að Bandaríkjastjórn hefði byggt á fjögurra ára gömlum upplýsingum um árásir á fjármálastofnanir vöknuðu spurningar um hvort viðvarirnar ættu sér pólitískar rætur. Þrýstingur á bandarísk stjórnvöld um að upplýsa ástæðurnar fyrir auknum viðbúnaði jókst og það var þá sem háttettir embættismenn láku því að Khan hefði náðst í Pakistan. Þegar þessar upplýsingar komu fram varð ljóst að ekki væri hægt að nota Khan áfram sem uppljóstrara. Eftir að nafn Khans var komið fram í fjölmiðlum hættu Al-Kaída menn að hafa samband sín á milli. Bretar héldu á sama tíma upplýsingum um handtökurnar í Pakistan leyndum og neituðu að gefa upp hvaðan upplýsingarnar um þrettán grunaða hryðjuverkamenn í Bretlandi hefðu komið. Nokkrir þingmenn í Bandaríkjunum eru æfir yfir því að bandarísk stjórnvöld skyldu láta síkar upplýsingar frá sér fara því fjölmargir hryðjuverkamenn í Evrópu og í Bandaríkjunum kunni að hafa komist undan.
Erlent Fréttir Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Erlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Fleiri fréttir Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Sjá meira