Erlent

Flóttafangarnir fundnir

Tveir fangar sem struku úr öryggisfangelsi í Svíþjóð voru handteknir í gær í bænum Grenna, norður af Jonköping. Fyrr um daginn hafði sá þriðji verið handtekinn en fangarnir struku í síðustu viku. Dagens Nyheder segir fimmtíu lögreglumenn hafa tekið þátt í leitinni. Annar fanginn sem náðist í gær er rúmlega tvítugur og sat inni fyrir ofbeldisfullt rán. Hann strauk reyndar líka í fyrra en náðist þá eftir klukkutíma. Hinn er rúmlega þrítugur og situr inni fyrir morðtilraun, fíkniefnabrot og brot á vopnalögum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×