Innlent

70% vill þjóðgarð norðan jökuls

Um 70 prósent landsmanna vilja að stofnaður verði þjóðgarður norðan Vatnajökuls. Þetta er niðurstaða skoðanakönnunar sem Gallup gerði fyrir Nátturuverndarsamtök Íslands. Í sömu könnun kom í ljós að rúm 60 prósent styðja friðlýsingu Jökulsár á Fjöllum. Rúm ellefu prósent landsmanna eru andvíg stofnun þjóðgarðs og rúm fjórtán prósent eru andvíg friðlýsingu Jökulsár. Árni Finnsson, formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, segir niðurstöðuna sýna að umhverfisráðherra beri að fylgja tillögum um stofnun þjóðgarðs norðan Vatnajökuls er taki til alls vatnasviðs Jökulsár á Fjöllum. Þverpólitísk nefnd sem ráðherrann skipaði hafi lagt það til og í rammaáætlun um virkjunarkosti komi fram að Jökulsá á Fjöllum hafa mest verndargildi áa. "Okkur er farið að lengja eftir því að ríkisstjórnin samþykki tillöguna," segir Árni. Hann segir Jökulsá á Fjöllum einu stóru óspilltu jökulána sem eftir sé á landinu. Auk þess séu fleiri merkileg náttúrufyrirbrigði á svæðinu eins og til dæmis Askja.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×