Vilja afnema 24. ára reglu 7. ágúst 2004 00:01
Héraðsformenn danska Sósíaldemókrataflokksins vilja afnema eða milda svokallaða tuttugu og fjögurra ára reglu í útlendingalögum, þvert á orð flokksformannsins um að sátt sé um stefnu flokksins í innflytjendamálum. Reglan er sams konar og sú sem rædd var hér á landi þegar til umræðu var beyting á útlendingalögum á Alþingi í vor. Líkt og hér er gagnrýnin í Danmörku sú að regla sem kveður á um að erlendir makar verði að vera orðnir 24 ára til að fá dvalarleyfi sé of stíf. Í frumvarpi Björns Bjarnasonar, dómsálaráðherra, um breytingu á lögum um útlendinga, eru nánustu aðstandendur skilgreindir sem makar eldri en 24 ára, börn yngri en 18 og ættingjar eldri en 66 ára. Jyllands Posten segir óeiningu vera meðal Sósíaldemókrata þrátt fyrir að formaðurinn, Mogen Lykketoft, hafi á dögunum beðið flokksfélaga sína um að gagnrýna ekki stefnu flokksins í innflytjendamálum. Héraðsformaðurinn í Ringköbing, Sören Ole Madsen, segir í viðtal við blaðið að hann sé ekki sammála þeim rökum að tuttugu og fjögurra ára reglunni sé eingöngu ætlað að girða fyrir gervihjónabönd, líkt og rætt hefur verið um á Íslandi. Madsen segir ekki sanngjarnt að lög séu sett gegn brotum minnihluta en hafi áhrif á meirihluta fólks. Aðrir héraðsformenn eru sammála flokksformanninum um að reglan skuli standa en vilja að hún verði milduð með einhverju móti. Í skýrslu Evrópuráðsins í sumar kom fram gagnrýni á stefnu Dana í innflytjendamálum og þá sérstaklega tuttugu og fjögurra ára regluna. Þá var einnig gagnrýnd sú regla að fólk þurfi að leggja fram tryggingu sem samsvarar 600 þúsund krónum og að sýna fram á atvinnu til að sanna að viðkomandi geti framfleytt maka sínum.
Erlent Fréttir Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Erlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fleiri fréttir Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Sjá meira