Erlent

Portúgalar biðja um aðstoð

Yfir þúsund slökkviliðsmenn berjast nú við eldana í Portúgal. Það eru héruðin í kringum Algarve og Faró sem hafa orðið verst úti en eldar hafa komið upp í fjórtan af átján héruðum landsins síðustu daga. Mjög heitt er um þessar mundir í Portúgal og hefur hitinn farið yfir 40 gráður. Yfirvöld í landinu hafa beðið önnur Evrópuríki um aðstoð til að ráða niðurlögum eldanna. Spáð er áframhaldandi hita og þurrki í Portúgal og á Spáni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×