Erlent

Dreifa lyfjum vegna geislunar

Ísraelsk yfirvöld dreifa lyfjum til varnar veikindum vegna geislavirkni í byggðarlögum nálægt kjarnaofnum sínum. Þetta er gert í því skyni ef ofnarnir munu leka. Lyfin hafa hingað til verið í vörslu yfirvalda en ákveðið var að þeir sem búa næst ofnunum eigi að hafa þau við höndina til að stytta viðbragðstímann ef eitthvað kemur upp á. Töflum var dreift í bænum Dimona í gær en þar búa um 200 þúsund manns. Yfirvöld í Ísrael leggja þó ofuráherslu á öryggi við kjarnorkuverin sem þau segja að uppfylli ströngustu öryggiskröfur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×