Mannskæðasta árás í mánuð 28. júlí 2004 00:01
Yfir fimmtíu manns létust og að minnsta kosti 70 særðust þegar öflug bílsprengja sprakk í Baqouba í Írak í morgun. Þetta er mannskæðasta sprengjuárás í Írak síðan þeir tóku aftur við völdum fyrir nákvæmlega mánuði. Sprengingin átti sér stað utan við ráðningarstöð lögreglunnar í miðborg Baqouba. Fjöldi manna hafði safnast saman utan við ráðningarstöðina í þeim tilgangi að ganga til liðs við þjóðvarnarlið Íraka, þegar lítil Toyota-rúta sprakk í loft upp á markaðstorginu sem ráðningarstöðin stendur við. Svo öflug var sprengingin að gluggar í nærliggjandi kaffihúsum splundruðust, framhliðar húsa rifnuðu af og eldur kviknaði í fjölmörgum bifreiðum í nágrenninu. Allt tiltækt heilbrigðisstarfsfólk úr nærliggjandi bæjum hefur verið kallað út til þess að huga að hinum særðu. Óttast er að tala látinna eigi eftir að hækka þegar líður á daginn. Síðan valdaskipti áttu sér stað í Írak fyrir mánuði síðan hafa fjölmargar sprengjuárásir átt sér stað í bænum Baquoba, sem er tæpa 50 kílómetra norður af Bagdad. Árásirnar hafa einkum beinst að þjóðvarnarliði Íraka og hersveitum Bandaríkjamanna. Mannfall í Írak í dag takmarkast þó ekki við sprengjuárásina í Baquoba, þar sem 7 írakskir lögreglumenn létust í morgun þegar þeir börðust við skæruliða ásamt pólskum og úkraínskum hersveitum í suðurhluta Íraks að sögn pólska varnarmálaráðuneytisins. 35 skæruliðar létust í bardögunum, en ekki varð mannfall meðal pólskra eða úkraínskra hermanna. 10 lögreglumenn særðust í átökunum og 40 skæruliðar voru handteknir. Aðeins þrír dagar eru þangað til 1000 manna hópur þingmanna og sendifulltrúa kemur saman í Bagdad, til þess að velja sveit 100 manna sem verður nýrri stjórn Íraka innan handar. Óttast er að árásirnar í dag séu skilaboð skæruliða fyrir fundinn í Bagdad.
Erlent Fréttir Mest lesið Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Innlent Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Innlent Fleiri fréttir Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Sjá meira