Viðskipti
Átján nýjar íbúðir í Kópavogi Búseti undirritaði í dag samning við verktakafyrirtækið GG-Verk um byggingu 18 íbúða í Austurkór í Kópavogi. Íbúðirnar verða í þremur litlum fjölbýlishúsum. Jafnframt var fyrsta skóflustungan tekin að húsunum en stefnt er að afhendingu fyrstu íbúðanna næsta haust samkvæmt tilkynningu frá Búseti. Viðskipti innlent 19.10.2012 16:11
Frumherji býður upp á hlutlausa fasteignaskoðun Frumherji hf. býður nú upp á hlutlausar fasteignaskoðanir hér á landi. Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að fasteignaviðskipti fari oftar en ekki fram án þess að óháður aðili leggi mat á almennt ástand eignarinnar. Viðskipti innlent 19.10.2012 15:48
Arion Banki: Niðurstaðan staðfestir gildi fullnaðarkvittana Dómur Hæstaréttar frá því í gær virðist staðfesta megin niðurstöðu dóms réttarins frá 15. febrúar síðastliðnum um gildi fullnaðarkvittana. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arion banka vegna niðurstöðu Hæstaréttar Íslands í máli Borgarbyggðar gegn Arion banka Viðskipti innlent 19.10.2012 13:36
Segir ágætis árangur hafa náðst með sínum lögum Árni Páll Árnason, fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra, segir að vaxtalög sem samþykkt voru árið 2010 og eru kennd við hann sjálfan hafi gengið eins langt og hægt hafi verið. "Þau tóku ekki rétt af nokkrum manni, enda skildu allir bankar fordæmi Hæstaréttar á sama veg og Alþingi,“ segir Árni Páll á fésbókarsíðu sinni í tilefni dóms Hæstaréttar í máli Borgarbyggðar gegn Arion banka. Dómurinn var kveðinn upp í gær. Lögmaður Borgarbyggðar segir að með þessu sé lögunum, sem sett voru í tíð Árna Páls hrundið. Efnisleg niðurstaða dómsins var sú að ekki má reikna vexti á ólöglegum gengistryggðum lánum afturvirkt. Viðskipti innlent 19.10.2012 11:46
Icelandair með áætlunarflug til Gatwick í fyrsta sinn Icelandair hóf í gær áætlunarflug til og frá Gatwick flugvellinum í London. Flogið verður tvisvar í viku, á fimmtudagsmorgnum og sunnudagskvöldum. Viðskipti innlent 19.10.2012 10:55
Ballið byrjað að nýju, gengi krónunnar fellur Gengi krónunnar hefur verið að veikjast töluvert undanfarna tvo daga. Þannig hefur gengið fallið um 2% miðað við 8. október þegar það var hvað sterkast í haust. Viðskipti innlent 19.10.2012 10:22
Spáir því að verðbólgan fari í 4,4% Hagfræðideild Landsbankans spáir því að vísitala neysluverðs muni hækka um 0,5% milli mánaða. Gangi spáin eftir mun ársverðbólgan hækka úr 4,3% í 4,4% í þessum mánuði. Viðskipti innlent 19.10.2012 09:40
Byggingarvísitalan lækkar aðeins Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan október er 114,9 stig sem er lækkun um 0,2% frá fyrri mánuði. Verð á innfluttu efni lækkaði um 0,8%, sem skýrir lækkun vísitölunnar. Viðskipti innlent 19.10.2012 09:16
Aflaverðmætið eykst um 13,7% milli ára Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 95,6 milljörðum króna á fyrstu sjö mánuðum ársins 2012 samanborið við 84,1 milljarð kr. á sama tímabili 2011. Aflaverðmæti hefur því aukist um 11,5 milljarða kr. eða 13,7% á milli ára. Viðskipti innlent 19.10.2012 09:12
Vísitala íbúðaverðs hækkaði um 0,7% Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu í september hækkaði um 0,7% frá fyrri mánuði. Þetta kemur fram á vefsíðu Þjóðskrár Íslands. Viðskipti innlent 19.10.2012 07:28
Samkomulag um eitt bankaeftirlit innan ESB Leiðtogar Evrópusambandsins hafa náð samkomulagi um eina eftirlitsstofnun fyrir alla banka í aðildarríkjum sambandsins á toppfundi sínum sem nú stendur yfir í Brussel. Viðskipti erlent 19.10.2012 06:42
Virði Google lækkaði um átta prósent Markaðsvirði Google dróst saman um átta prósent, á skömmu tíma, eftir að uppgjör fyrirtækisins fyrir þriðja ársfjórðung var kunngjört í gær, en hagnaður fyrirtækisins dróst saman um 20 prósent miðað við sama tíma árið á undan. Viðskipti erlent 18.10.2012 22:35
Sigurjón fékk einkalífeyrissjóðinn fluttan í MP banka Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, hefur náð sátt við Landsbankann vegna einkalífeyrissjóðs, sem hann stofnaði fyrir hrun, og flutt vörslu sjóðsins til MP banka. Meðal eigna lífeyrissjóðsins eru skuldabréf í rússneska olíurisanum Gazprom. Viðskipti innlent 18.10.2012 18:30
Launamunur kynjanna kemur verulega á óvart Niðurstaða kjarakönnunar BSRB sem bendir til þess að kynbundinn launamunur sé tæp 19% á Suðurlandi kemur starfsmönnum Vestmannaeyjabæjar verulega á óvart. Að þeirra mati getur varla staðist að launamunurinn sé svo mikill. Viðskipti innlent 18.10.2012 16:04
Árni Oddur og Theo Hoen hringdu inn markaðinn í New York Theo Hoen, forstjóri og Árni Oddur Þórðarson, stjórnarformaður Marel, opnuðu NASDAQ markaðinn á MarketSite, Times Square í New York í dag við hátíðlega athöfn, en Marel fagnar 20 ára skráningarafmæli sínu á árinu. Viðskipti innlent 18.10.2012 14:26
Hætta að gefa út Newsweek á prenti Strax á næsta ári verður hætt að gefa Newsweek út í prentuðu formi, eftir áttatíu ára útgáfu. Síðasta tölublaðið mun koma út 31. desember í Bandaríkjunum. Viðskipti innlent 18.10.2012 14:25
Enn á eftir að þingfesta prófmálin Enn hafa aðeins tvö mál verið þingfest af prófmálunum ellefu sem eiga að svara áleitnum spurningum um gengistryggðu lánin. Til stóð að málin yrðu keyrð á miklum hraða gegnum dómskerfið svo niðurstaða fengist í þetta mikilvæga deilumál sem fyrst en nú er ríflega mánuður liðinn frá því að réttarhléi lauk og staðan er enn sú sama og í vor. Viðskipti innlent 18.10.2012 14:16
Nýta orkuna um helmingi betur Reykjanesbær og Carbon Recycling International skrifuðu í gær undir samstarfssamning um þróun og uppbyggingu umhverfisvæns græns efnavinnslugarðs í Helguvík. Með sérstakri útfærslu er hægt að nýta orkuna allt að helmingi betur og minnka mengun umtalsvert miðað við það sem almennt tíðkast í sömu starfsemi. Viðskipti innlent 18.10.2012 13:18
Hagvöxtur í Kína minnkar milli ársfjórðunga Hagvöxtur í Kína mældist 7,4 prósent á þriðja ársfjórðungi þessa árs, samanborið við sama tíma í fyrra. Ársfjórðunginn á undan mældist hagvöxturinn 7,6 prósent og því er um lítilsháttar minnkun á hagvexti að ræða milli ársfjórðunga. Viðskipti erlent 18.10.2012 13:15
Fyrsti snertiposinn settur upp á Bæjarins bestu Fyrsti snertiposinn sem tekinn er í notkun hér á landi var settur upp á Bæjarins bestu í Tryggvagötu. Snertiposar eiga eftir að verða mjög áberandi en þeir eru meðal annars forsendan fyrir snjallsímavæðingu í greiðslumiðlun. Snertiposi getur tekið við greiðslu frá snertikorti eða frá snjallsíma með snertitækni. Viðskipti innlent 18.10.2012 13:03
Umgjarðir fyrir herra PLUSMINUS OPTIC býður mikið úrval af gleraugum þar sem allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Hönnun gleraugna hefur breyst mikið og möguleikarnir orðnir fleiri. Kynningar 18.10.2012 12:45
Færeyingar bíða fregna af borpallinum Færeyingar bíða nú spenntir fregna af dýrustu og viðamestu olíuborun á landgrunni Færeyja til þessa. Það var þann 17. júní í sumar sem kínverski borpallurinn Cosl Pioneer hóf að bora allt að fimm kílómetra djúpa holu og þá var tilkynnt að borunin tæki 4-5 mánuði. Olíufélögin sem standa að þessari 20 milljarða króna borun hafa, enn sem komið er, ekkert sagt frá gangi mála. Viðskipti innlent 18.10.2012 12:45
Bilun í tölvukerfi Arion banka Bilun varð í tölvukerfi Arionbanka rétt fyrir hádegi og samkvæmt upplýsingum frá viðskiptavinum gekk erfiðlega að eiga viðskipti í netbankanum og í útíbúum. Vandinn var lagaður rétt fyrir klukkan eitt, en hugsanlegt er að viðskiptanir verði varir við einhverjar truflanir í netbankanum í dag. Viðskipti innlent 18.10.2012 11:56
Segja bönkunum frjálst að brjóta á rétti lántakenda Hagsmunasamtök heimilanna telja að sönnunarbyrði hafi verið snúið við í máli þeirra gegn Landsbankanum sem féll í vikunni. Samtökin höfðu krafist þess að lögbann yrði lagt á innheimu bankans á gengistryggðum ólögmætum lánum meðan óvissa ríkir um eftirstöðvar þeirra. Hæstiréttur hafnaði kröfunni. Viðskipti innlent 18.10.2012 11:29
Hæstiréttur Dana þyngir dóm vegna markaðsmisnotkunar Hæstiréttur Danmerkur hefur þyngt verulega dóm vegna markaðsmisnotkunar fyrrum ritstjóra tímaritsins Penge & Privatökonomi. Í Östre Landsret var ritstjórinn dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi en Hæstirétturinn taldi rétt að hann sæti inni í átta mánuði. Viðskipti erlent 18.10.2012 11:01
Velheppnað skuldabréfaútboð hjá Spánverjum Seðlabanki Spánar stóð fyrir velheppnuðu ríkisskuldabréfaútboði í morgun. Alls voru seld bréf fyrir rúmlega 4,6 milljarða evra og voru vextirnir sem buðust mun lægri en í svipuðu útboði í september. Viðskipti erlent 18.10.2012 09:53
Björgólfur Thor spyr hver hafði hag af Icesave grýlunni Björgólfur Thor Björgólfsson spyr í pistli á heimasíðu sinni hver hefði haft hag af því að gera ógnvekjandi Grýlu úr Icesave málinu. Tilefni skrifa Björgólfs eru fréttir um að slitastjórn Landsbankans hefur þegar greitt 677 milljarða króna af forgangskröfum í þrotabú bankans. Upphæðin samsvarar því sem Íslendingar hefðu átt að greiða fyrir síðasta Icesavesamninginn sem gerður var við Breta og Hollendinga. Viðskipti innlent 18.10.2012 09:08
Atlantsolía lækkar verð á bensíni og dísilolíu Atlandsolía lækkaði bensínverðið í morgun um 2,5 kr. á lítrann, og kostar hann nú 254,90 kr, og hefur samtals lækkað um fimm krónur á þremur dögum. Viðskipti innlent 18.10.2012 08:21
Inniskór Marie Antoinette seldir á 8 milljónir Inniskór Marie Antoinette, frönsku drottningarinnar sem hálshöggvin var í frönsku byltingunni í lok 18. aldar, voru seldir á uppboði. Skórnir, sem eru grænir og bleikir að lit, seldust fyrir 50.000 evrur eða um 8 milljónir króna sem var fimmfalt matsverð þeirra. Viðskipti erlent 18.10.2012 08:18
Endurreisn bankakerfisins kostaði 414 milljarða Endurreisn bankakerfisins eftir hrun hefur kostað 414 milljarða króna. Þetta kemur fram á vefsíðu stjórnarráðsins þar sem fjallað er um nýlega skýrslu Ríkisendurskoðunar um kostnað ríkisins við þessa endurreisn. Viðskipti innlent 18.10.2012 08:07