Viðskipti innlent

Fyrsti snertiposinn settur upp á Bæjarins bestu

JHH skrifar
Haukur Oddsson, forstjóri Borgunar, kynnti fyrsta snertiposann við Bæjarins bestu í morgun.
Haukur Oddsson, forstjóri Borgunar, kynnti fyrsta snertiposann við Bæjarins bestu í morgun. Mynd/Brynjar Gauti
Fyrsti snertiposinn sem tekinn er í notkun hér á landi var settur upp á Bæjarins bestu í Tryggvagötu. Snertiposar eiga eftir að verða mjög áberandi en þeir eru meðal annars forsendan fyrir snjallsímavæðingu í greiðslumiðlun. Snertiposi getur tekið við greiðslu frá snertikorti eða frá snjallsíma með snertitækni.

Í tilkynningu frá Borgun segir að Posi með þessari tækni sé sérstaklega hentugur fyrir sölustaði þar sem afgreiðsla er hröð og upphæðir í lægri kantinum. Í stað þess að stinga kortinu í posann, þarf korthafinn einungis að leggja kortið eða snjallsímann að posanum sem nemur nauðsynlegar upplýsingar á örskotsstundu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×