Arion Banki: Niðurstaðan staðfestir gildi fullnaðarkvittana 19. október 2012 13:36
Dómur Hæstaréttar frá því í gær virðist staðfesta megin niðurstöðu dóms réttarins frá 15. febrúar síðastliðnum um gildi fullnaðarkvittana. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arion banka vegna niðurstöðu Hæstaréttar Íslands í máli Borgarbyggðar gegn Arion banka Lögmaður Borgarbyggðar sagði að með niðurstöðunni hafi lögunum, sem sett voru í tíð Árna Páls Árnasonar, hrundið. Efnisleg niðurstaða dómsins var sú að ekki má reikna vexti á ólöglegum gengistryggðum lánum afturvirkt. Í tilkynningu frá Arion banka segir að í þessu tiltekna máli endurreiknaði Arion banki gengistryggt lán sveitarfélags í samræmi við ákvæði laga Árna Páls. Þau lög voru sett af Alþingi í kjölfar dóms Hæstaréttar frá 16. september 2010 um vexti sem gengistryggð lán ættu að bera. Arion Banki vill meina að samkvæmt dómi Hæstaréttar í gær, standist þau ákvæði laganna, sem lúta að ákvörðun vaxta aftur í tímann, ekki eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar, að því er fram kemur í tilkynningu. Svo segir að „Dómurinn skýrir einhver þeirra álitaefna sem komu upp í kjölfar dóms Hæstaréttar frá 15. febrúar sl. Mörg álitaefni eru þó enn til staðar. Um leið og fyrir liggur hvaða lán falla undir fordæmi dóma Hæstaréttar um fullnaðarkvittanir og hvernig skuli standa að endurútreikningi, þannig að hann standist lög og stjórnarskrá, verður hafist handa við endurútreikning. Arion banki vinnur að því að svo verði sem fyrst, en líklegt er að bera þurfi nokkur álitamál undir dómstóla áður en endurútreikningur getur hafist. Varðandi áhrif dómsins frá því í gær á lánasafn Arion banka og almennt fjárhagsstöðu bankans er rétt að taka fram að í ársreikningi Arion banka fyrir árið 2011 var að fullu tekið tillit til áhrifa dóms Hæstaréttar frá 15.febrúar sl. á lánasafn bankans með 13,8 milljarða króna niðurfærslu lánasafnsins. Dómur Hæstaréttar í gær breytir því engu þar um. Ekki mun þó liggja fyrir hver endanleg niðurfærsla lána verður í kjölfar þessara dóma, en það mun ekki liggja fyrir fyrr en að loknum endurútreikningi. "
Mest lesið Sviptingar í stjórn Amaroq Viðskipti innlent Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Atvinnuleysi fimm prósent í júní Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Fleiri fréttir Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Sjá meira