Viðskipti

Allt fyrir karlmenn á einum stað

Óhætt er að segja að árið 2012 hafi verið eitt besta rekstrarár í sögu Fríhafnarinnar. Í upphafi ársins var opnuð fyrsta Victoria"s Secret verslunin á Íslandi, og reyndar á öllum Norðurlöndunum, sem býður fyrst og fremst vörur fyrir konur.

Kynningar

Björgólfur er viðskiptamaður ársins

Dómnefnd Markaðarins valdi Björgólf Jóhannsson, forstjóra Icelandair Group, viðskiptamann ársins 2012. Árið var enda viðburðaríkt hjá félaginu. Það opnaði hótel við höfnina í Reykjavík og stækkaði hótel sitt á Akureyri. Hryggjarstykki félagsins, Icelandair, jók verulega sætaframboð og hefur flutt tvær milljónir farþega á árinu sem er met. Þá gekk félagið frá kaupum á tólf flugvélum frá Boeing í nóvember.

Viðskipti innlent

Bestu Viðskipti ársins

Kaup bandaríska líftækni- og lyfjafyrirtækisins Amgen á öllu hlutafé móðurfélags Íslenskrar erfðagreiningar fyrir 415 milljónir dala, um 52 milljarða króna, eru viðskipti ársins.

Viðskipti innlent

Bankia er minna en einskis virði

Virði stærsta banka Spánar, Bankia, er talið vera neikvætt um 4,2 milljarða evra, eða sem nemur um 680 milljörðum króna. Eigið fé bankans er neikvætt um fyrrnefnda fjárhæð, samkvæmt gögnum frá sérstökum björgunarsjóði fyrir bankakerfi Spánar, sem breska ríkisútvarpið BBC vitnar til í frétt um málið

Viðskipti erlent

Forstjóri Apple fær 4,2 milljónir dala í laun - lækka um 99 prósent milli ára

Tim Cook, forstjóri Apple, fékk samtals 4,2 milljónir Bandaríkjadala í launabónus vegna starfsemi Apple á þessu ári. Það er upphæð sem svarar til tæplega 550 milljóna króna. Það er smánarupphæð í samhengi við heildarlaun hans í fyrra, en þá var hann launahæsti forstjóri fyrirtækis í heiminum, fékk samtals 378 milljónir Bandaríkjadala í laun, eða næstum 50 milljarða króna. Laun Cook lækkuðu því um næstum 99 prósent milli ára. Stærsti hluti launa Cook í fyrra voru eignarhlutir í Apple, sem stjórn fyrirtækisins ákvað að afhenda honum fyrir vel unnin störf.

Viðskipti erlent

Dómurinn kveðinn upp í Vafningsmálinu á morgun

Dómur verður kveðinn upp í Vafningsmálinu svokallað á morgun, 28. desember. Ákærðir í málinu eru Guðmundur Hjaltason, fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Glitnis, og Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis. Þeir eru sakaðir um umboðssvik, í tengslum við 10 milljarða peningamarkaðslán til Milestone hinn 8. febrúar 2008.

Viðskipti innlent

Hagnaður kvikmyndafyrirtækisins Truenorth 44 milljónir króna

Hagnaður kvikmyndafyrirtækisins True North nam 44,2 millljónum króna á síðasta ári. Þetta kemur fram í ársreikningi fyrirtækisins sem skilað var til ársreikningaskrár rétt fyrir síðustu mánaðamót. Fyrirtækið sérhæfir sig í kvikmyndaframleiðslu og hefur meðal annars þjónustað alla helstu Hollywoodframleiðendur sem hafa komið hingað til lands að undanförnu.

Viðskipti innlent

Gengi krónunnar í algjöru lágmarki

Gengi krónunnar hefur verið að lækka umtalsvert seinustu misseri og allt útlit er fyrir að hún verði lægri þegar markaðir loka í dag, en hún hefur verið á árinu. Jafnframt hefur mikil sveifla verið á genginu í ár og er t.d. um 14% munur á hæsta og lægsta gengi evru á móti krónu árið 2012.

Viðskipti innlent

Skuldir Bandaríkjanna ná hámarki á nýársdag

Timothy Geithner, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, segir að það verði að grípa til róttækra aðgerða til þess að ríkissjóður geti staðið við skuldbindingar sínar og ríkið fari ekki á hausinn. Að kvöldi nýársdags munu skuldir Bandaríkjanna náð 16400 milljörðum bandaríkjadala, en það var það takmark sem fulltrúadeild Bandaríkjaþings hafði sagt að það mætti ná. Fari skuldir ríkissjóðs yfir þetta mark mun ríkið þurfa að grípa til alvarlegra aðgerða sem fela sér niðurskurð og skattahækkanir.

Viðskipti erlent

Toyota greiðir 130 milljarða vegna bilana

Japanski bílaframleiðandinn Toyota hefur samþykkt að greiða 1,1 milljarða dala, jafnvirði um 130 milljarða króna, í sektargreiðslu gegn því að fallið verði frá málsóknum á hendur fyrirtækinu, vegna bilana sem komu upp í nokkrum Toyota-bifreiðum árin 2009 og 2010 sem rekja mátti til galla. Þetta leiddi meðal annars til innkallana á mörg hundruð þúsund bílum frá fyrirtækinu um allan heim.

Viðskipti erlent

Samsung býst við að selja hálfan milljarð síma á næsta ári

Samsung býst við því að selja 510 milljónir síma á næsta ári. Þetta kemur fram á vef The Korea Times. Nái fyrirtækið markmiði sínu verður það um 20% aukning frá árinu sem nú er senn að líða undir lok en talið er að um 420 milljónir síma hafi selst. Talið er að á næsta ári muni um 390 milljónir snjallsíma seljast en um 120 milljónir af ódýrari símum.

Viðskipti erlent

Bílasala í Rússlandi hefur stóraukist á skömmum tíma

Eftir því sem rússneska millistéttin verður stærri og ríkari því mun meira máli er staða efnahagsmála í Rússlandi farin að skipta fyrir heiminn í heild. Mörg af stærstu iðnframleiðslufyrirtækjum heimsins eru nú þegar farin að horfa til Rússlands sem mikils vaxtamarkaðar, ekki síst bílaframleiðendur.

Viðskipti erlent

Chevron veðjar á jarðgasviðskipti í Kanada

Olíurisinn Chevron einblínir nú á viðskiptatækifæri í Kanada, samkvæmt frétt Wall Street Journal frá því í gær. Fyrirtækið hefur keypt sig inn í jarðgasflutninga frá Kanada til kaupenda í Asíu, með því að kaupa tvö fyrirtæki út úr verkefnum þar sem jarðgasið er unnið og flutt til kaupenda. Fyrirtækin sem Chevron hefur keypt út eru Encana og EOG Resources.

Viðskipti erlent

Valdamesta unga fólkið í heiminum - Zuckerberg efstur

Á lista yfir valdamesta fólkið í heiminum er fólk sem hefur afrekað margt þrátt fyrir ungan aldur. Í efsta sæti yfir valdamesta unga fólkið í heiminum er Mark Zuckerberg (28 ára), forstjóri og stærsti eigandi Facebook. Þrátt fyrir að skráning félagsins á markað hafi ekki gengið vel, og eignir Zuckerberg lækkað í virði milli ára um þrjá milljarða dala, eða jafnvirði tæplega 380 milljarða króna, þá verða áhrif Facebook á líf fólks seint ofmetin. Notendur Facebook á heimsvísu fóru yfir einn milljarð í október á þessu ári, og fjölgar þeim stöðugt.

Viðskipti erlent

Rosneft stækkar og stækkar

Rússneska olíuframleiðslufyrirtækið Rosneft, sem er að stærstum hluta í eigu rússneska ríkisins, hyggur á frekari útþenslu og stækkun á næstunni. Fyrirtækið hefur þegar tryggt sér aðgang að 16,8 milljörðum dala, jafnvirði meira en 2.000 milljarða króna, og ætlar að bjóða í TNK-BP, þriðja stærsta olíufyrirtæki Rússlands. Með því yrði Rosneft með stærstu olíufyrirtækjum heims, og fengi auk þess aðgang að rannsóknarleyfum víðsvegar í Rússlandi, þar sem enn er ekki hafin framleiðsla en talið líklegt að olíu sé að finna.

Viðskipti erlent

Krónan veikst nokkuð undanfarið ár

Íslenska krónan hefur veikst frá á sama tíma í fyrra gagnvart vel flestum myntum, sé mið tekið af opinberu gengi íslensku krónunnar á vef Seðlabanka Íslands. Samkvæmt opinberu gengi krónunnar 24. desember 2011 var mögulegt að fá 121,6 krónur fyrir hvern Bandaríkjadal, en nú ári síðar er hægt að fá tæplega 127 krónur fyrir hvern dal. Svipaða sögu er að segja af evrunni. Í fyrra var hægt að fá rúmlega 159 krónur fyrir hverja evru nú ári síðar ríflega 166 krónur. Krónan hefur því veikst nokkuð gagnvart þessum tveimur helstu viðskiptamyntum heimsins, sé horft yfir liðið ár.

Viðskipti innlent

Rybolovlev keypti dýrstu fasteignina í Bandaríkjunum 2012

Rússneski auðmaðurinn Dmitry Rybolovlev borgaði eitt hæsta verð sem greitt hefur verið fyrir fasteign í Bandaríkjunum í febrúar sl., en greint var fyrst frá viðskiptunum í byrjun desember á þessu ári. Hann greiddi 88 milljónir dala, jafnvirði um 11,7 milljarða króna, fyrir íbúð á efstu hæð í fjölbýlishúsi á Manhattan, en seljandinn var fyrrverandi starfsmaður Citigroup bankans.

Viðskipti erlent

Vogunarsjóðirnir höfðu sigur í Grikklandi

Gríska ríkið vildi kaupa skuldir landsins á markaði með miklum afslætti, eða um 28 til 30 sent fyrir hverja evru, og leysa þar með mikinn vanda sem ríkissjóður glímdi við. Vogunarsjóðir, sem voru eigendur ríkisskuldanna, höfðu sett sér það markmið að fá 34 til 35 sent fyrir hverja evru, en þeir keyptu skuldirnar á slikk, með það að markmiði að endurheimta meira en ráð var fyrir gert þegar þeir eignuðust skuldir.

Viðskipti erlent

Stofnandi Go Pro orðinn milljarðamæringur eftir sölu

Raftækjaframleiðandinn Foxconn frá Tævan gekk á þriðjudaginn frá kaupum á 8,8 prósent hlut í myndavélafyrirtækinu Woodman Labs, fyrir 200 milljónir dala, jafnvirði um 25,4 milljarða króna. Fyrirtækið framleiðir vinsælar myndavélar fyrir útvist og íþróttaiðkun, meðal annars snjóbretti og brimbretti, sem kallast Go Pro.

Viðskipti erlent

Brian Dunn versti forstjóri ársins 2012

Brian Dunn, fyrrverandi forstjóri raftækjaverslanakeðjunnar Best Buy, er versti forstjóri ársins 2012, samkvæmt lista Business Week. Gengi Best Buy var slakt á árinu, félagið tapaði markaðshlutdeild, gengi hlutabréfa félagsins hrundi, og erfilega gekk að nútímavæða verslanirnar og auka sölu á vefnum, eins og keppinautarnir gerðu með góðum árangri.

Viðskipti erlent

Beðið eftir nýju tæki frá Google

Fjárfestar í Bandaríkjunum eru sagðir spenntir fyrir nýjustu afurðinni frá Google sem enn er á vinnslustigi, og hefur gengið undir nafninu X Phone. Um er að ræða blöndu af síma og handtölvu, sem á að henta vel fyrir myndatökur, samfélagsmiðla og ýmsa vinnu, að því er segir í frétt Wall Street Journal.

Viðskipti erlent

Fyrirtæki Murdochs tapar 260 milljörðum

Fjömiðlafyrirtækið News Corporation, sem að stærstum hluta í eigu Rupert Murdoch, tapaði 2,1 milljarði dala á síðasta rekstrarári, eða sem nemur ríflega 260 milljörðum króna. Tekjur félagsins minnkuðu um fimm prósent frá fyrra ári, að því er segir í tilkynningu fyrirtækisins til eftirlitsaðila í Bretlandi, en breska ríkisútvarpið BBC greinir tapi félagsins í dag.

Viðskipti erlent