Viðskipti innlent
Engin merki um samdrátt á fasteignamarkaði Heildarútlán innlánastofnana til íbúðarkaupa námu 3,7 milljörðum króna í febrúar sem jafngildir 900 milljóna króna aukningu á milli mánaða. Heildarútlán Íbúðalánasjóðs 4,4 milljörðum króna á sama tíma en það er sömuleiðis aukning á milli mánaða.Greiningardeild Kaupþings segir engin merki um að draga sé úr umsvifum á fasteignamarkaði. Viðskipti innlent 23.3.2007 16:58
Minni hagnaður hjá Samherja Útgerðafélagið Samherji skilaði hagnaði upp á 1.915 milljónir króna á síðasta ári samanborið við 3.104 milljónir króna árið 2005. Þrátt fyrir minni hagnað eftir skatta námu tekjur samstæðunnar 23,7 milljörðum króna sem er 11 prósenta aukning á milli ára. Viðskipti innlent 23.3.2007 14:25
Almenna verkfræðistofan semur við Skýrr Almenna verkfræðistofan hefur samið við Skýrr um kaup og innleiðingu á fyrirtækjagáttinni Microsoft Office SharePoint Server 2007. Þetta er hugbúnaðarlausn sem gefur kost á miðlægu og gagnvirku samskipta- og vinnusvæði á Netinu fyrir aðgang, stjórnun og samnýtingu mikilvægra upplýsinga, skjala, forrita og fólks. Viðskipti innlent 23.3.2007 12:06
Actavis enn í baráttunni um Merck Actavis er enn með í samkeppninni um yfirtöku á samheitalyfjahluta þýska lyfjafyrirtækisins Merck. Orðrómur er uppi um að fyrirtækið hafi dregið sig úr samkeppninni ásamt bandaríska fyrirtækinu Mylan. Þannig greinir fréttavefur Forbes og Economic Times frá í dag. Halldór Kristmannsson, framkvæmdastjóri innri- og ytri samskipta Actavis, vísar því á bug. Viðskipti innlent 23.3.2007 11:34
Atorka eignast um 30% í Clyde Process Solutions Atorka hefur eignast 29,81 prósents hlut í Clyde Process Solutions (CPS) í tengslum við útgáfu á nýju hlutafé hjá félaginu. CPS er skráð á AIM markaðnum í London. Heildarverð kaupanna nemur 9 milljónum punda, jafnvirði 1.180 milljónum króna. Viðskipti innlent 23.3.2007 10:22
Tækifæri í nýjum samningi Evrópska efnahagssvæðið, og þar með Ísland, á ekki aðild að samkomulagi sem Evrópusambandið og Bandaríkin komust að í gær. Í því felst að öllum flugfélögum innan Evrópusambandsins verður, frá 30. mars 2008, heimilt að fljúga til Bandaríkjanna frá hvaða landi innan sambandsins sem er. Hingað til hafa ríki Evrópusambandsins haft sérsamninga um gagnkvæm flugréttindi við Bandaríkin. Viðskipti innlent 23.3.2007 06:15
Harma mismunun þjónustugreina SVÞ vilja að endurgreiðsla virðisaukaskatts til stofnana af aðkeyptri þjónustu nái víðar en til upplýsingatækni. Samtökin héldu aðalfund sinn í gær. Viðskipti innlent 23.3.2007 06:15
Breytt stjórn hjá Bakkavör Sjálfkjörið er í stjórn Bakkavarar sem tekur við keflinu á aðalfundi félagsins sem haldinn verður í dag. Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis, er nýr stjórnarmaður í Bakkavör. Viðskipti innlent 23.3.2007 06:00
Endurspeglar ekki hluthafahópinn Nokkur breyting verður á stjórn Icelandic Group sem verður kjörin í dag á aðalfundi félagsins. Athygli vekur að enginn frá fjárfestingarfélaginu ISP býður sig fram til stjórnar. Félagið, sem er dótturfélag TM, er fjórði stærsti hluthafinn í Icelandic Group. Það heldur utan um 12,4 prósenta hlut í Icelandic Group og ætti því venjum samkvæmt að hafa fulltrúa í stjórn. Viðskipti innlent 23.3.2007 06:00
Shire kærir Actavis Frumlyfjafyrirtækið Shire hefur höfðað mál á hendur Colony Pharmaceuticals, dótturfyrirtæki Actavis í Bandaríkjunum, fyrir brot á einkaleyfi við framleiðslu á athyglisröskunarlyfinu Adderal XR. Halldór Kristmannsson, framkvæmdastjóri innri og ytri samskipta Actavis, segir Shire reyna að hægja á skráningu samheitalyfsins hjá Actavis, sem hefur lagt inn umsókn hjá bandaríska lyfjaeftirlitinu. Viðskipti innlent 23.3.2007 05:15
Baugur opnar verslunarmiðstöð í Stokkhólmi Á morgun opnar fyrsti áfangi SOUK – nýrrar verslunarmiðstöðvar við Drottningagötu í Stokkhólmi í Svíþjóð. SOUK er í eigu Baugs Group. Haft er eftir Åke Hellqvist, forstjóra SOUK, að fyrirtækið líti á verslunarmiðstöðina sem stærstu og djörfustu tískufjárfestinguna í Stokkhólmi í langan tíma. Viðskipti innlent 22.3.2007 17:13
Segir Seðlabankann ná verðbólgumarkmiði sínu á þessu ári Greiningardeild Glitnis gerir ráð fyrir 1,5 prósenta hagvexti á þessu ár og að Seðlabanki Íslands nái strax á þessu ári 2,5 prósenta verðbólgumarkmiði sínu. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri þjóðahagsspá frá greiningardeildinni. Viðskipti innlent 22.3.2007 16:57
Fljótsdalshérað með 246 milljóna rekstrarafgang Fljótsdalshérað var rekið með 246 milljóna króna rekstrarafgangi í fyrra samkvæmt samanteknum ársreikningi fyrir A og B hluta stofnanir sveitarfélagsins, að því er fram kemur í uppgjör héraðsins. Þetta er tæplega 202 milljónum meira en áætlanir sveitarfélagsins gerðu ráð fyrir. Viðskipti innlent 22.3.2007 09:44
Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 22,4% Vísitölu framleiðsluverðs mældist 22,4 prósent á ársgrundvelli í janúar. Verðvísitala afurða stóriðju hækkaði á sama tíma um 42,0 prósent, verðvísitala sjávarafurða hækkaði um 28,6 prósent og verðvísitala matvælaframleiðslu hækkaði um 7,1 prósent, samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands. Viðskipti innlent 22.3.2007 09:36
Deila Finnair og FL Group leyst Skorið hefur verið á hnútinn í deilu stjórnar Finnair og FL Group með þeim hætti að Sigurður Helgason, fyrrverandi forstjóri Flugleiða, tekur sæti í stjórninni. Hannes Smárason, forstjóri FL Group, dregur um leið til baka framboð sitt til stjórnar. Aðalfundur Finnair er í dag. Viðskipti innlent 22.3.2007 09:22
Hvítflibbarnir fara Stjórnendur Eimskipafélagsins stefna að því að selja eignir út úr kæligeymslufyrirtækinu Atlas Cold Storage sem gæti skilað þeim öllu kaupverðinu til baka. Þá er unnið að bæta rekstur Atlas með lækkun rekstrarkostnaðar og hækkun tekna. Viðskipti innlent 22.3.2007 05:30
Kaupa meira í Storebrand Kaupþing keypti 1,9 prósenta hlut í norska fjármálafyrirtækinu Storebrand fyrir 4,9 milljarða króna í gær. Þetta kom fram á fréttasíðunni E24. Þar sem bankinn þarf ekki að tilkynna um þessi viðskipti til Kauphallarinnar í Ósló er óvíst hvort bréfin voru keypt fyrir bankann sjálfan eða fyrir kúnna. Viðskipti innlent 22.3.2007 05:00
Fengju kaupvirðið til baka Hf. Eimskipafélagið gæti fengið nær allt kaupverð Atlas Cold Storage til baka með eignasölu fyrir tæpa 35 milljarða króna. Horft er til kanadískra lífeyrissjóða sem kaupenda. Tap varð af rekstri félagsins á fyrsta ársfjórðungi. Viðskipti innlent 22.3.2007 04:30
Stóðust álagsprófið Íslensku viðkiptabankarnir og fjárfestingarbankinn Straumur-Burðarás stóðust allir álagspróf Fjármálaeftirlitsins. Niðurstöður voru birtar í gær, en eftirlitið framkvæmir slík álagspróf með reglubundnum hætti. Síðast voru birtar niðurstöður fyrir hálfu ári og var eiginfjárhlutfall allra bankanna (CAD-hlutfall) hærra núna en þá. Viðskipti innlent 22.3.2007 04:00
Bankarnir stóðust álagspróf FME Íslensku viðkiptabankarnir og Straumur-Burðarás stóðust allir álagspróf Fjármálaeftirlitsins. Með prófinu er gert ráð fyrir því aðað fjármálafyrirtæki standist samtímis margvísleg áföll án þess að eiginfjárhlutfall þeirra fari niður fyrir lögboðið lágmark. Viðskipti innlent 21.3.2007 15:59
Baugur kaupir í Daybreak 365 hf. hefur selt Baugi Group hf. sautján prósent af atkvæðabæru hlutafé í Daybreak Holdco Limited, móðurfélagi Wyndeham Press Group Limited. Fyrir átti 365 36 prósent af atkvæðabæru hlutafé. Viðskipti innlent 21.3.2007 15:55
Landsbankinn spáir 5,1% verðbólgu Greiningardeild Landsbankans spáir því að vísitala neysluverðs hækki um 0,4 prósent í apríl. Gangi það eftir lækkar verðbólga úr 5,9 prósentum í 5,1 prósent. Til samanburðar birti greiningardeild Kaupþings verðbólguspá sína í gær en deildin gerir ráð fyrir því aðverðbólga fari niður í 5,3 prósent í mánuðinum. Viðskipti innlent 21.3.2007 15:14
Hf. Eimskipafélagið tapaði hálfum milljarði Hf. Eimskipafélag Íslands skilaði tapi upp á 5,6 milljónum evra, jafnvirði tæplega hálfs milljarðs íslenskra króna, á fyrstu rekstrarfjórðungi fyrirtækisins sem lauk í enda janúar. Til samanburðar nam tap fyrirtækisins á sama tíma í fyrra rúmum 8,3 milljónum evra, 739,8 milljónum króna. Þetta er í takt við væntingar, að sögn Magnúsar Þorsteinssonar, stjórnarformanns fyrirtækisins. Viðskipti innlent 21.3.2007 09:37
Launavísitalan hækkaði um 0,3 prósent Launavísitalan hækkaði um 0,3 prósent á milli mánaða í febrúar, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 9,8 prósent. Viðskipti innlent 21.3.2007 09:00
Starfa reynslunni ríkari í tærum sjó Tæknifyrirtækið Industria sem vakið hefur heimsathygli fyrir hugbúnaðarlausnir sínar hefur vaxið hratt síðustu ár og hyggur á enn frekari vöxt og útrás á nýja markaði. Óli Kristján Ármannsson ræddi við Guðjón Má Guðjónsson, stofnanda og framkvæmdastjóra fyrirtækisins, um stöðu þess og framtíð. Viðskipti innlent 21.3.2007 06:30
Kosningasigur FL Goup FL Group á í mesta basli með hlutinn í Finnair, en finnska ríkið vill ekkert af þessum næststærsta hluthafa vita. Sigur hægrimanna í Finnlandi kann að opna nýja möguleika, enda einkavæðing á dagskrá hægriflokka. Það kann þó að vera að tregðulögmál lifi enn. Viðskipti innlent 21.3.2007 00:01
Borið í Bakka-vararlækinn Einhverjir hafa rekið augun í það að lífeyrissjóðirnir hafa verið að auka hlut sinn í Bakkavör. Lífeyrissjóðir eru fyrir býsna áberandi í hluthafahópi fyrirtækisins og hafa fylgst vel með því um árin. Viðskipti innlent 21.3.2007 00:01
Í víngerð er engin rómantík Cal Dennison, yfirvíngerðarmaður Gallo, hélt fyrirlestur á Nordica fyrir helgi og leiddi vínsmökkun á bæði rauðum og hvítum vínum Gallo. Viðskipti innlent 21.3.2007 00:01
Sælir eru kynbættir Kyngreint sæði hefur óveruleg áhrif á framleiðslutengda þætti á kúabúum en hinn fjárhagslegi ávinningur kemur að mestu fram í auknum erfðaframförum. Þetta er á meðal þess sem doktorsnemi sagði í erindi á ársfundi danskra kúabænda á dögunum um kyngreint sæði og efnahagslega þýðingu þess. Viðskipti innlent 21.3.2007 00:01
Stofnandinn var í vinnunni fram á síðasta dag Ernest Gallo, annar af tveimur stofnendum bandaríska vínfyrirtækisins Gallo, lést í bænum Modesto í Kaliforníu í byrjun mánaðarins, rétt tæplega 98 ára að aldri. Sonur hans rekur fyrirtækið í dag, en gamli maðurinn var viðloðandi reksturinn allt fram á seinasta dag. Viðskipti innlent 21.3.2007 00:01