Fengju kaupvirðið til baka 22. mars 2007 04:30 Unnið er að áreiðanleikakönnun á Atlas Cold Storage, dótturfélagi Hf. Eimskipafélagsins, vegna sölu á eignum félagsins. MYND/GVA
Hf. Eimskipafélagið gæti fengið nær allt kaupverð Atlas Cold Storage til baka með eignasölu fyrir tæpa 35 milljarða króna. Horft er til kanadískra lífeyrissjóða sem kaupenda. Tap varð af rekstri félagsins á fyrsta ársfjórðungi. Hf. Eimskipafélag Íslands undirbýr sölu fasteigna dótturfélagsins Atlas Cold Storage til erlendra og jafnvel íslenskra fjárfesta með fulltingi Royal Bank of Canada. Fyrirtækið hefur í hyggju að leigja eignir þessa annars stærsta frysti- og kæligeymslufyrirtækis Norður-Ameríku til baka á sem hagstæðustu kjörum. Forstjórinn Baldur Guðnason býst við að sala á fasteignum og lóðum geti skilað félaginu yfir 600 milljónum Kanadadala, tæpum 35 milljörðum, sem er heldur yfir því markaðsvirði sem upphafleg athugun gerði ráð fyrir. Þegar fyrirtækið yfirtók Atlas síðla árs 2006 nam heildarvirði félagsins 630 milljónum Kanadadala að meðtöldum öllum kostnaði vegna yfirtökunnar. „Við förum inn með óbundnar hendur til þessa verkefnis en teljum að kanadískir lífeyrissjóðir gætu verið áhugasamir kaupendur," segir Baldur. Lífeyrissjóðir í Kanada horfa á fjárfestingar til lengri tíma sem felur í sér lægri ávöxtunarkröfu. Einnig kemur til greina að fyrirtækið sjálft taki hlut í félagi utan um eignirnar. Með sölunni léttist á skuldsetningu Eimskipafélagsins og gera stjórnendur þess ráð fyrir að eiginfjárhlutfall samstæðunnar fari úr 29 prósentum í 35. Baldur bendir á að kaup félagsins í Atlas og Daalimpex, einu stærsta frystigeymslufyrirtæki Evrópu, eru öðrum þræði fjárfesting í eignum og lóðum og því fæst sjálfur reksturinn fyrir lítið sem ekkert. Baldur hefur verið ráðinn forstjóri Hf. Eimskipafélagsins en hann var forstjóri dótturfélagsins Eimskips. Félögin tvö munu brátt sameinast undir merkjum Hf. Eimskipafélagsins. Fyrirtækið tapaði sex milljónum evra, um 530 milljónum króna, á fyrsta ársfjórðungi rekstrarársins, sem lauk í janúar. Er þetta jafnan lakasti fjórðungurinn en hagnaður var undir spám greiningardeilda bankanna. Umbreytingar í rekstri settu svip sinn á uppgjörið, til dæmis voru fjármagnsliðir neikvæðir um 1,6 milljarða en þar af féllu til 700 milljónir eingöngu til vegna skulda af Atlas-kaupum. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nam 2.850 milljónum króna. „Ég er ánægður með fjórðunginn, við teljum okkar hafa náð góðum árangri," sagði Magnús Þorsteinsson, stjórnarformaður félagsins á kynningarfundi í gær.
Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Kjörin formaður SÍA Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Sjá meira