Lífið
Rúnar Freyr og Selma saman á ný „Ég hlakka mikið til að troða upp í Hörpu, það er búið að bíða lengi eftir þessu húsi,“ segir Rúnar Freyr Gíslason leikari. Hann mun leika stórt hlutverk í söngleiknum Chess eftir Abba-félagana Björn og Benny og textahöfundinn Tim Rice sem verður frumsýndur í nýju tónlistar- og Lífið 11.10.2010 09:00
Fjölskylduvænir í Turninum - myndband Í meðfylgjandi myndskeiði sýnir Sigurður Friðrik Gíslason framkvæmdastjóri Veisluturnsins hvað hann er með í boði á veitingahúsinu Nítjándu þar sem hann leggur sérstaka áherslu á að sinna ungu gestunum. Það sem athygli vekur er að gestum er boðið upp á alls sextán tegundir af desertum. Börnum stendur til boða sérstakt barnahlaðborð og ævintýralegt barnaleikherbergi þar sem starfsmaður fylgist með börnunum á meðan foreldrar njóta matarins. Í leikherberginu er heill ævintýraheimur fullur af Disney leikföngum, bíó og lesefni. Sjá Disneyheim barnanna hér (myndband á Facebooksíðu Lífsins). Lífið 11.10.2010 08:00
Hélt partí fyrir ömmu Rapparinn Jay-Z hélt veglegt partí fyrir ömmu sína þegar hún varð 85 ára á dögunum. Jay-Z og unnusta hans Beyoncé Knowles sóttu ömmuna á glæsibifreið og fóru með hana í sal með útsýni yfir New York borg. Þar beið fjöldinn allur af gestum og skemmti amman sér hið besta. Lífið 11.10.2010 07:00
Einstök kvöldstund með Yoko Ono Mæðginin Sean og Yoko og þétt skipað Plastic Ono bandið buðu upp á hráa og tilraunakennda tónlistarveislu í Háskólabíó á laugardagskvöldið. Gagnrýni 11.10.2010 07:00
Samdi við risann Macmillan Yrsa Sigurðardóttir hefur samið við bandarískt risaforlag um útgáfu á einni glæpasögu sinni. Útgefendur þar í landi eru að leita að hinum næsta Stieg Larsson. Lífið 10.10.2010 21:00
Rækta hjónabandið með samkvæmisdönsum „Hann er ekkert á tátiljunum þarna. Hann heldur enn þá í karlmennskuna,“ segir Sigurlaug Halldórsdóttir, eða Dillý, flugfreyja og eiginkona leikarans Pálma Gestssonar. Stutt er síðan þau byrjuðu að stunda samkvæmisdansa einu sinni í viku eftir að hafa frestað því í mörg ár. Lífið 10.10.2010 15:00
Flétta á leiðinni Lagið Flétta sem Björk Guðmundsdóttir syngur á íslensku með enska tónlistarmanninum Antony Hegarty kemur út á þriðjudaginn. Lagið er að finna á nýjustu plötu hljómsveitarinnar Antony and the Johnsons, Swanlight. Rólegur píanóundirleikur hljómar undir fallegum röddum Bjarkar og Antonys í laginu, sem á vafalítið eftir að falla vel í kramið hjá aðdáendum þeirra beggja. Björk er þarna að launa Antony greiða frá árinu 2007 er hann söng með henni lagið My Juvenile á plötu hennar Volta. Tónlist 10.10.2010 12:30
Lítið um safarík kvenhlutverk Gwyneth Paltrow segir að það hafi verið erfitt að slá í gegn í Hollywood. Hún óttast að margar ungar leikkonur lendi í vandræðum þegar þeim er stillt upp við vegg í kvikmyndaborginni. „Þegar ég var að hefja ferilinn lagði einhver til að við myndum ljúka fundinum í svefnherberginu,“ sagði Paltrow í viðtali við tímaritið Elle. Lífið 10.10.2010 11:00
Ljósvakaljóð í fimmta sinn Stuttmynda- og handritahátíð unga fólksins, Ljósvakaljóð, verður haldin í fimmta sinn í ár. Ungu fólki á aldrinum 15-25 ára gefst kostur á að keppa um bestu stuttmyndina eða besta frumsamda stuttmyndahandritið. Hátíðin verður haldin föstudaginn 22. október í Norræna húsinu. Lífið 10.10.2010 08:30
LeAnn með leiðindi Sveitasöngkonan LeAnn Rimes á að hafa treyst vinkonu sinni fyrir því að í hvert sinn sem hún lemur í boxpúða í líkamsræktinni ímyndi hún sér fyrrverandi eiginkonu kærasta síns, Brandi Glanville. Lífið 9.10.2010 21:45
Halle fann ástina á ný Leikkonan Halle Berry er farin að slá sér upp með mótleikara sínum, hinum franska Olivier Martinez. Parið kynntist við tökur á kvikmyndinni Dark Tide sem frumsýnd verður á næsta ári. Lífið 9.10.2010 18:15
Ráðist á Kim Kardashian Kim Kardashian, 29 ára, segist vera heil heilsu eftir að kona réðist á hana á bar í New York í gærkvöldi. Ég vil fá að koma því á framfæri að það er allt í lagi með mig eftir þennan slag sem ég lenti í á barnum í gærkvöldi. Það eru allir að spyrja mig hvort ég sé OK," sagði Kim í yfirlýsngu sem hún sendi frá sér á blogginu hennar í gær. Í gærkvöldi fór ég ásamt Kourtney, Scott og Khloe í drykk á bar í New York borg. Drukkinn karlmaður kom upp að mér og bað um að fá að taka mynd. Ég gaf leyfi en kærastan hans, sem var mjög drukkin, missti stjórna á sér, henti glasi í mig og hlutirnir fóru úr böndunum. Sem betur fer voru Scott og Khloe þarna til að vernda mig. Enginn af þeim var að drekka. Þetta var fjölskyldukvöld. Við yfirgáfum staðinn og blönduðum okkur því ekki í dramað hjá parinu. Lífið 9.10.2010 16:15
Í kröppum dansi í Las Vegas „Ég var tekin bak við og haldið þar í klukkutíma. Svo var ég spurð spjörunum úr og allt tekið upp úr öllum töskum mínum. Fyrst vissi ég ekkert hvað var í gangi en þeir útskýrðu svo hvað var í gangi,“ segir fyrirsætan Bryndís Gyða Michelsen. Lífið 9.10.2010 14:15
Svona færðu stinnan bossa - myndband Sigrún Björg Ingvadóttir einkaþjálfari og Tabata kennari í World Class í Kringlunni sýnir okkur heimaæfingar fyrir efri og neðri hluta líkamans sem auðvelt er að framkvæma. Eina sem Sigrún notast við er stóll og teygja. Sjá æfingarnar í meðfylgjandi myndasafni. Lífið 9.10.2010 09:30
Detox dúndur fyrir kroppinn - myndband Solla Eiríks leyfir okkur að kíkja inn í eldhús á veitingahúsinu hennar, Gló þar sem hún gefur okkur einfalda en dúndurgóða uppskrift að detox djús sem inniheldur steinselju, mintu, korianter, sítrónugras sellerí, agúrku, engifer, lime og vatn. Solla sýnir okkur aðferðina og fræðir okkur um hollustu safans í meðfylgjandi myndskeiði. Lífið 9.10.2010 08:00
Hilmir Snær fluttur á sjúkrahús í London „Þetta reyndist vera aðeins meira en mér sýndist í fyrstu,“ segir Hilmir Snær Guðnason leikari. Vesturport varð að hætta við sýningu á Faust fyrir fullu húsi í Young Vic-leikhúsinu á fimmtudagskvöld þegar tuttugu mínútur voru liðnar af leikritinu, vegna skurðar sem Hilmir Snær hlaut. Leikarinn vildi halda áfram en Bretarnir sendu hann rakleiðis upp á sjúkrahús í sjúkrabíl þar sem hann varð að bíða í fjóra tíma eftir að fá aðstoð. „Maður saknaði svolítið íslensku slysavarðsstofunnar þá,“ segir Hilmir. Lífið 9.10.2010 07:00
Spilar Barry White í svefnherberginu Söngkonan Mel B sem er um það bil að hleypa heiminum inn í líf sitt því nú er að hefja göngu sína raunveruleikaþáttur í Bretlandi, sem ber heitið Mel B: It's a Scary World, þar sem fylgst er með Mel, eiginmanni og börnum hennar takast á við daglegt líf. Mel segir að áhorfendur fái að sjá nánast allt sem hún aðhefst nema þegar klukkan er eitt yfir miðnætti og Barry White er settur á fóninn þá krefst hún þess að slökkt verði á kvikmyndatökuvélunum. „Það verða atriði tekin upp í svefnherberginu okkar en ekki eftir klukkan eitt. Þá set ég Barry White tónlist í gang og guð veit hvað gerist spennandi þá," sagði Mel. Lífið 8.10.2010 17:04
Afi er afi Sveppa - myndband Glæný þáttaröð af Algjörum Sveppa hefst í fyrramálið á Stöð 2 í opinni dagskrá. Þetta er þriðja þáttaröðin en síðustu tvo vetur hefur Sveppa sannarlega tekist að vinna hug og hjörtu yngstu áhorfenda Stöðvar 2. Lífið 8.10.2010 16:23
Uppákoma á Kjarvalsstöðum laugardag - myndband Listasafn Reykjavíkur og Skotturnar, regnhlífasamtök kvennahreyfingarinnar á Íslandi hafa ruglað saman reitum og skipulagt dagskrárveislu sem verður nokkurs konar upptaktur fyrir kvennafrídaginn 25. október. Margar af fremstu listakonum landsins koma fram í dagskrá sem fram fer á Kjarvalsstöðum daglega frá kl. 12:30 - 13:00. Í meðfylgjandi myndskeiði segir Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir okkur hvað er framundan í hádegisviðburðarröðinni ásamt og trúðateyminu sem kallar sig Mr klumz og plong en það skipa þær Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttirig og Tinna Thorvalds Önnudóttir sem eru nýútskrifaðar leikkonur úr Rose Bruford College í London. Trúðarnir taka af skarið og skemmta þeim sem vilja á Kjarvalsstöðum á morgun, laugardag klukkan 12:30. Facebooksíða - Fjöldasamstaða kvenna. Listasafn Reykjavíkur (upplýsingar um viðburðina) Lífið 8.10.2010 14:59
Síða fyrir einhleypa slær í gegn - myndband Síða sem stofnuð var á Facebook fyrir einhleypa á Íslandi hefur slegið í gegn. Stofnandi síðunnar Drífa Björk Kristjánsdóttir segir okkur í m eðfylgjandi myndskeiði hvað fékk hana til að opna síðuna og ballinu fyrir þetta samfélag sem hún hefur skapað á skemmtistaðnum Players í kvöld. Hér má sjá síðuna á Facebook. Það er akkúrat ekkert gert á Íslandi fyrir einhleypt fólk. Þetta er lítið samfélag. Fólk er að spjalla þarna inni og þetta er allt hið glæsilegasta og yndislegt fólk sem tekur þátt í þessu og í kvöld ætlum við að vera með ball á Players," sagði Drífa. Lífið 8.10.2010 14:30
Lasagna leið að hjarta mannsins Pussycat Dolls söngkonan Nicole Scherzinger, 32 ára, vill meina að lasagnað sem móðir hennar kenndi henni að gera er lykillinn að hjarta kærastans, Formúlu 1 kappans Lewiz Hamilton. Besta leiðin til að halda lífi í rómantíkinni er að vita hvað elskhuginn elskar að borða. Í mínu tilfelli er það lasagnað sem mamma kenndi mér að gera," sagði Nicole. Lífið 8.10.2010 11:00
Frumsýning Buddy Holly Söngleikurinn Buddy Holly var frumsýndur við mikil fagnaðarlæti gesta í Austurbæ í gærkvöldi. Ingólfur Þórarinsson, best þekktur sem Ingó Veðurguð, fer með aðalhlutverkið, ásamt fjölda hæfileikaríkra söngvara og leikara. Vísir var á staðnum og myndaði prúðbúna gesti fyrir sýningu. Lífið 8.10.2010 09:45
Sniffar á setti Breski leikarinn Russell Brand, 35 ára, þefaði af áfengi við tökur á kvikmyndinni Arthur til að minna sig á hvernig honum leið þegar hann drakk sem mest. Russell hefur farið í áfengismeðferð og barist við eiturlyfjafíkn í gegnum tíðina en í umræddri mynd, sem er endurgerð frá árinu 1981, leikur hann milljónamæring sem er fyllibytta. „Hann sniffar af alkohóli til að fá minninguna fram hvernig hann var hérna áður fyrr þegar hann var sem verstur. russell hefur verið edrú í sjö ár þannig að við þurfum ekki að hafa áhyggjur af honum," sagði leikstjóri myndarinnar Jason Winer. Lífið 8.10.2010 09:00
Sveinn undirbýr matreiðslubók Sjónvarpsþættirnir Fagur fiskur í sjó, þar sem þau Sveinn Kjartansson úr Fylgifiskum og Áslaug Snorradóttir göldruðu fram dýrindis fiskrétti, slógu eftirminnilega í gegn hjá RÚV. Sveinn hyggst fylgja eftir þeim vinsældum með matreiðslunámskeiði og matreiðslubók. Lífið 8.10.2010 09:00
Toni Braxton gjaldþrota Bandaríska söngkonan Toni Braxton hefur lagt fram gjaldþrotabeiðni. Hún getur ekki borgað skuldir sem nema hátt í 50 milljónum dala, eða um 5,5 milljörðum króna. Eignir hennar eru aftur á móti metnar á bilinu hundrað milljónir til einn milljarður króna. Á meðal þeirra sem söngkonan skuldar peninga eru Four Seasons-hótelin, skartgripafyrirtækið Tiffany & Co og bandaríska skattstofan. Þetta er í annað sinn sem Braxton, sem er þekkt fyrir lagið Un-Break My Heart, sækir um gjaldþrotabeiðni. Síðast gerði hún það árið 1998. Lífið 8.10.2010 09:00
Leikna íslenska efnið stendur upp úr „Án þess að ég geti svarað fyrir alla held ég að framleiðsla leikins íslensk efnis, sem hefur verið áberandi á dagskrá Stöðvar 2 frá árdögum, hljóti að standa upp úr,“ segir Pálmi Guðmundsson, framkvæmdastjóri dagskrársviðs 365 miðla. Stöð 2 fagnar á laugardaginn 24 ára afmæli sínu og ætlar af því tilefni að bjóða upp á veglega dagskrá í ólæstri útsendingu frá föstudagskvöldi og þar til Spaugstofunni lýkur á laugardagskvöldinu. Ísland í dag, Logi í beinni og Auddi og Sveppi ætla að fjalla um ævi afmælisbarnsins, hver með sínu nefi en til gamans má geta að tíu ár eru liðin frá því 70 mínútur með þeim Jóa og Simma fóru í loftið. En þeir Auddi og Sveppi ætla að beina sjónum sínum að þeirri sögu. Lífið 8.10.2010 07:00
Ilmvatn úr Eyjafjallajökli „Ég held að þetta sé fyrsta íslenska ilmvatnið sem fer í almenna sölu,“ segir Sigrún Lilja Guðjónsdóttir, oftast kennd við tískuvörumerkið Gyðju. Tíska og hönnun 8.10.2010 06:00
Milljónatjón hjá Munda Ekki eru nema þrjár vikur síðan fatahönnuðurinn Mundi opnaði búð á Laugavegi en þrátt fyrir stuttan líftíma hefur búðin orðið fyrir barðinu á ræningjum tvisvar sinnum. Í vikunni var vetrarlína fatamerkisins hreinsuð af lager búðarinnar og Sigyn Eiríksdóttir, annar eigandinn og móðir Munda, heitir fundarlaunum þeim sem upplýst getur ránið. Lífið 8.10.2010 06:00
Bankahrunið sem pásumerki Grafíski hönnuðurinn Oscar Bjarnason hefur í frístundum sínum búið til afmælismerki fyrir vini og kunningja á Facebook. Núna eru merkin orðin 106 talsins. Á síðasta ári gerði hann merki fyrir eins árs afmæli bankahrunsins og stutt er síðan tveggja ára afmælismerki þess leit dagsins ljós. „Það er með íslenska fánanum og pásumerki. Það er ekkert búið að gerast síðan síðast,“ segir Oscar um ástand mála eftir hrunið. Spurður hvernig hann haldi að þriggja ára afmælismerkið líti út segist hann ekki hafa hugmynd. „Það væri dásamlegt að sleppa því að þurfa að gera það.“ Lífið 8.10.2010 05:00
Forðast tískuárekstra með SMS-um Söngkonan kynþokkafulla Rihanna segir í nýju viðtali að hún forðist tískuárekstra við Lady Gaga og Katy Perry með því að senda þeim SMS og spyrja í hverju þær ætli að vera á viðburðum. Lífið 8.10.2010 05:00