Lífið

Björgvin klár í risahelgi

Björgvin Halldórsson býður upp á sannkallað jólalagahlaðborð í Laugardalshöllinni þegar einvalalið jólagesta hans treður upp á fernum tónleikum. Búist er við tólf þúsund gestum.

Lífið

Nafnið bara passaði

Signý Kolbeinsdóttir og Helga Árnadóttir reka saman hönnunar­fyrirtækið Tulipop. Signý sér um að hanna vörurnar en Helga sér um viðskiptahlið fyrirtækisins.

Tíska og hönnun

Stórskotalið á styrktartónleikum

„Þarna verður stórskotaliðið úr poppinu í ár,“ segir Einar Bárðarson athafna- og umboðsmaður, en 30. desember verða haldnir stórtónleikar í Háskólabíói til styrktar Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna. Þetta verður þrettánda árið í röð sem Einar heldur þessa tónleika en allt frá árinu 1998 hafa tónlistarmenn og hljómsveitir gefið vinnu sína til að safna fyrir málefnið.

Lífið

Plötusnúður í verslunarrekstri

"Okkur langaði að opna búð með venjulegum fötum á góðu verði," segir Natalie Gunnarsdóttir, en hún opnaði nýverið fataverslun ásamt vinkonu sinni, Maríu Birtu, á Laugavegi 51 sem nefnist Altari.

Tíska og hönnun

Sumir eiga bara fræga vini

Eiginkonur Simma og Jóa, Ólína Jóhanna Gísladóttir og Bryndís Björg Einarsdóttir, opnuðu í gær nýja verslun sem ber heitið Kastanía sem er á jarðhæð í glerturninum við Höfðatorg þar sem Hamborgarafabrikka Simma og Jóa er einnig staðsett. Á meðal gesta voru mörg þekkt andlit en burtséð frá því var frábær stemning í opnunininni og ekki voru veitingarnar af verri endanum eins og myndirnar sýna greinilega. http://visir.is/section/MEDIA99&fileid=CLP1063

Lífið

Tarantino grillaður

Bandaríski leikstjórinn Quentin Tarantino var vígður inn í hinn þekkta Friar"s-klúbb fyrir skömmu.

Lífið

Ræddu skilnað yfir mat

Eva Longoria og Tony Parker snæddu saman hádegismat á hótelveitingastað í Los Angeles í vikunni. Samkvæmt vefritinu UsMagazine.com er þó ekki von á því að parið hætti við skilnað sinn og taki aftur saman.

Lífið

Kings spilar á Hróarskeldu

Miðasala á Hróarskelduhátíðina í Danmörku sem verður haldin 30. júní til 3. júlí á næsta ári er hafin. Af því tilefni var tilkynnt að bandaríska rokksveitin Kings of Leon myndi stíga þar á svið. Áður höfðu metalhundarnir í Iron Maiden boðað komu sína.

Lífið

Líkamsfarða léttklæddar stúlkur

„Þetta verður rosalega mikið fyrir augað,“ segir Sólveig Birna Gísladóttir, kennari í Airbrush & Makeup School, en skólinn efnir til heljarinnar tískusýningar á skemmtistaðnum Spot í kvöld.

Lífið

Sex safaríkir safnpakkar

Sena gefur út fjölda stórra safnplatna fyrir jólin. Bubbi, Ómar Ragnars, Kristján Jóhanns, Elly Vilhjálms, Ólafur Gaukur og Spilverkið fá öll að njóta sín í stórum og veglegum umbúðum.

Lífið

Snipes í steininn

Wesley Snipes hefur verið skipað að mæta til afplánunar í fangelsi í Pennsylvaníu í næstu viku vegna skattalagabrota.

Lífið

Hendrikka Waage fagnar

Rikka og töfrahringurinn á Indlandi er önnur bók Hendrikku Waage en hún fagnaði útkomu bókarinnar í góðum félagsskap hjá útgáfunni Sölku eins og meðfylgjandi myndir sýna. Bókin fjallar um ævintýri Rikku sem ferðast með hjálp töfrahrings. Þar minnir Hendrikka lesendur á að þótt hin fjölmörgu lönd veraldar séu ólík þá búum við öll saman í þessum heimi og eigum að vera vinir; hvar sem við erum á hnettinum.

Lífið

Katie Price missir prófið

Glamúrpían Katie Price hefur verið sett í sex mánaða ökubann í Bretlandi eftir að hún játaði að hafa ekið of hratt á Land Rover-bifreið sinni.

Lífið

Raunveruleikaþáttaröð um leitina að hamingjunni

„Þetta er algjört draumaverkefni sem ég hef gengið með í maganum ansi lengi,“ segir Ásdís Olsen sálfræðingur. Hún stýrir nýrri raunveruleikaþáttaseríu sem hefur göngu sína á Stöð 2 í febrúar á næsta ári.

Lífið

Endurkoma Eminem fullkomnuð

Marshall Mathers eða Eminem er tilnefndur til tíu Grammy-verðlauna og verður að teljast sigurstranglegur í nánast öllum flokkum. Ung­stirnið Justin Bieber á sigurinn vísan í nýliðavalinu.

Lífið

Hvað með rokkara og fallegar konur?

Meðfylgjandi myndir voru teknar í útgáfupartýi sem haldið var í nýju Mótorsmiðjunni Skipholti 5 í gær þar sem útgáfu bókarinnar Zen og listin að viðhalda vélhjólum var fagnað. Þá var sérstök kynning á iPad og rafrænum bókum fyrir iPad í gegnum iTunes, en ZEN bókin, sem Sigurður A. Magnússon þýddi, er fyrsta íslenska bókin sem dreift er með rafrænum hætti á Íslandi. Eins og myndirnar sýna greinilega var góð stemning, rokk og ról og veitingar við hæfi.

Lífið

Óvænt sena í miðnætursýningu

„Í rauninni hefði þetta alveg eins getað verið planað. Samræðurnar pössuðu einhvern veginn alveg við efnivið verksins,“ segir leikarinn Stefán Hallur Stefánsson, en undarleg uppákoma átti sér stað á miðnætursýningu Mojito á laugardaginn.

Lífið

Drakk rjómaís við þorsta

Kanadíski leikarinn Ryan Gosling var á sínum tíma orðaður við hlutverk Jacks Salmon í kvikmyndinni The Lovely Bones. Leikarinn þyngdi sig talsvert fyrir hlutverkið en á endanum var Mark Wahlberg ráðinn í hans stað.

Lífið

Umdeild plata poppkóngs

Ný plata frá poppkónginum sáluga Michael Jackson kemur út á næstunni. Hún hefur fengið misjafna dóma og vakið miklar deilur.

Lífið

Borghildur býður í bíó

„Okkar hugmynd var að þegar verið væri að þróa og hanna borgarímynd væri hægt að horfa til rannsóknarinnar og vinna eftir henni,“ segir Auður Hreiðarsdóttir, nemandi í arkitektúr við Listaháskóla Íslands.

Lífið

Borðaði aðeins pasta og pitsur

Natalie Portman þurfti að fylgja ströngu mataræði meðan á tökum kvikmyndarinnar The Black Swan stóð. Leikkonan hætti þó í megrun um leið og tökum lauk.

Lífið

Hin mörgu andlit Freju

Danska fyrirsæta Freja Beha Erichsen er súpermódel okkar tíma. Hún trónir á toppnum yfir vinsælustu fyrirsætur í heimi. Freja er kamelljón þegar kemur að fyrirsætustörfunum og allt fer henni bókstaflega vel.

Tíska og hönnun

Syngur inn jólin í anda Mahaliu Jackson

„Þessir tónleikar eru farnir að skipa fastan sess í jólatónleikahaldi höfuðborgarsvæðisins. En þetta er 4 árið í röð sem þeir verða haldnir,“ segir söngkonan Esther Jökulsdóttir en hún ásamt Karlatríó og hljómsveit halda sína árlegu jólatónleika í Laugarneskirkju 17. desember kl 20:30.

Lífið

Frægir gefa gjafir

„Það væri dásamlegt ef íslenskir listamenn gætu sameinast og allir farið sama dag með fjölda pakka og sett undir tréð og glatt lítil hjörtu sem eiga um sárt að binda á Íslandi," var meðal annars það sem Tobba Marínós rithöfundur sendi á fjöldan allan af athafnafólki og listamönnum sem tóku vel í hugmyndina sem varð að veruleika þegar Egill Einarsson, Hrefna Sætran, Kalli í Baggalút, Ísgerður Gunnarsdóttir, Steindi jr og fleiri hittust í Smáralind og settu gjafir undir jólatréð þar. Skoða má frábæra stemingnu sem ríkti í hópnum í Smáralind í dag í meðfylgjandi myndasafni. Pakkajól ganga eftir sem áður út á að allir sem vettlingi geta haldið gefa eina auka jólagjöf til þeirra sem minna mega sín um jólin. Gjafirnar eru miðaðar sérstaklega fyrir börn og nauðsynlegt er að setja merkispjöld á pakkana og merkja þannig gjöfina dreng eða stúlku og aldri. Eins og áður sagði hefjast pakkajólin þennan fallega laugardag en gestir og gangandi hafa fram eftir desember til þess að lauma pakka undir tréð. Nú skulum við taka höndum saman og gefa börnunum gjafir um jólin.

Lífið

Eitruð tíska

Fataframleiðsla er langt frá því að vera hættulaus starfsemi. Oft fer þessi vinna fram í löndum utan Evrópu eða Evrópu­sambandsins. Þar er vinnuafl ódýrara og hægt að fara í kringum reglur Evrópusambandsins í eiturefnanotkun og vinnuöryggi svo ekki sé minnst á umhverfis­vernd.

Tíska og hönnun

Útgáfuhátíð Geimsteins

Elsta hljómplötuútgáfa landsins, Geimsteinn, heldur útgáfuhátíð á Nasa á laugardaginn. Þar verður öllum þeim sem gefa út á árinu hjá útgáfunni smalað saman í allsherjar veislu.

Lífið