Lífið

Brúðkaupinu aflýst

Brúðkaupi Playboy-kóngsins Hugh Hefner og fyrirsætunnar Crystal Harris hefur verið aflýst. Þessar fréttir gerði Hefner sjálfur opinberar á samskiptasíðunni Twitter með efirfarandi skilaboðum: „Brúðkaupinu er aflýst. Crystal skipti um skoðun.“

Lífið

Slapp með skrekkinn

Tveir menn voru handteknir í grennd við heimili bresku söngkonunnar Joss Stone í Devon á þriðjudag grunaðir um að hafa ætlað að ræna henni.

Lífið

Hugsaði ekki út í afleiðingarnar

Paul McCartney hefur viðurkennt að hann hafi ekki hugsað út í afleiðingarnar þegar hann lýsti því yfir fyrir fjörutíu árum að hann hygðist ekki semja fleiri lög með John Lennon.

Lífið

Ástamál Pippu í brennidepli

Breskir og bandarískir fjölmiðlar eru eins og mý á mykjuskán þegar Pippa Middleton og ástamál hennar eru annars vegar. Nýlega var greint frá því að ungfrú Middleton væri hætt með bankastarfsmanninum Alex Loudon en fjölmiðlar voru ekki lengi að þefa hana uppi á fínum veitingastað með George Percy, syni hertogans af Norðymbralandi.

Lífið

Skjaldborg festir sig í sessi

Heimildarmyndahátíðin Skjaldborg var haldin í fimmta sinn á Patreksfirði um helgina og heppnaðist vel. Jón og séra Jón eftir Steinþór Birgisson hreppti áhorfendaverðlaunin. Rúmlega þrjú hundruð gestir lögðu leið sína á heimildarmyndahátíðina Skjaldborg, sem haldin var á Patreksfirði fimmta árið í röð um hvítasunnuhelgina.

Menning

Gleðin er besta víman

Gleðin réði ríkjum á frábærum viðhafnartónleikum Páls Óskars og Sinfó á laugardagskvöldið. Þetta voru í einu orði sagt stórkostlegir tónleikar, fullkomnir. Það hafði augljóslega verið hugsað fyrir hverju einasta smáatriði og allt gekk upp: Útlit, uppsetning, hljómur, lagaval, lagaröð, söngur, hljóðfæraleikur og útsetningar. Stemningin var líka ótrúleg, gleðin skein af hverju andliti og margir tónleikagesta réðu varla við sig af hamingju.

Gagnrýni

Gunni Hans fer bakdyramegin á Grímuna

"Ef það kemur eitthvað fyndið þá verður það soðið saman á staðnum. Við erum ekkert plana það. Við erum auðvitað bara fengin til að sjá um þetta vegna vitsmuna okkar og út af því hversu glæsileg við erum,“ segir Gunnar Hansson leikari.

Lífið

Stuttmyndadagar hefjast í dag

Átján myndir eru á dagskrá hinna árlegu Stuttmyndadaga í Reykjavík, sem fara fram í Bíó Paradís í dag og á morgun. Hér gefst einstakt tækifæri til að sjá það ferskasta í grasrót íslenskra kvikmynda.

Lífið

Sum grillpartý eru skemmtilegri en önnur

Meðfylgjandi myndir voru teknar á tónleikum hljómsveitarinnar HumanWoman á Faktory síðasta sunnudag undir yfirskriftinni "Með kokteil í hönd niðr'á strönd“. Hljómsveitina HumanWoman skipa þeir Gísli Galdur og Jón Atli en sá síðarnefndi fagnaði einnig afmæli sínu þennan dag. Af því tilefni var haldin heljarinnar grillveisla þar sem gestum var boðið upp á ljúffengan Grand Orange kokteil, kjúklingaspjót og sykurpúða.

Lífið

Stuttmynd Marsibilar vekur athygli

„Þessi hátíð flokkast undir svokallaða A-hátíð, svo þetta er mikill heiður fyrir mig,“ segir Marsibil Sæmundardóttir, en hún gerði nýverið stuttmynd sem rataði á Palm Springs Internatinoal Shortfest, þriðju stærstu stuttmyndahátíð í heimi.

Lífið

Það er ekki sjón að sjá þig stelpa

Sautján ára leikkonan Taylor Momsen, sem varð heimsþekkt í sjónvarpsþáttaröðinni Gossip Girl, leggur nú áherslu á söngferil sinn með rokkbandinu The Pretty Reckless. Stelpan var í vægast sagt slæmu ástandi eins og meðfylgjandi myndir sýna þegar hún yfirgaf eftirpartý Metal Hammer Golden God tónlistarhátíðarinnar sem fram fór í London í fyrradag.

Lífið

Natalie Portman orðin mamma

Óskarsverðlaunahafinn Natalie Portman, sem varð 30 ára 9. júní síðastliðinn, eignaðist sitt fyrsta barn, dreng, með unnusta sínum Benjamin Millepied nýverið. Tímaritið People var fyrst með fréttina en ekki fylgdi sögunni hvaða dag drengurinn kom í heiminn. Parið, sem kynntist við tökur á kvikmyndinni Blak Swan tilkynnti í desember síðastliðinn að þau ættu von á barni.

Lífið

Von á nýjum þætti með Charlie Sheen

Charlie Sheen er í samningaviðræðum við sjónvarpsmenn ytra um að fara með aðalhlutverk í nýjum gamanþætti. Sheen fór með aðalhlutverkið í gamanþáttunum Two and a Half Men en var rekinn fyrr á árinu og leikarinn Ashton Kutcher ráðinn í hans stað. Samkvæmt slúðursíðunni TMZ á þátturinn að vera skrifaður sérstaklega fyrir Sheen og fer beint í almennar sýningar, án þess að gera þurfi sérstakan prufuþátt eða „pilot“.

Lífið

Svei mér þá nemendur gerast ekki fallegri

Meðfylgjandi myndir voru teknar á útskriftardegi Make up skóla Beautyworld.is þar sem nemendur undirbjuggu sig fyrir próf og myndatökur. Nemendur voru í fjórtán vikur að læra allt það nýjasta í förðun ásamt tímabila förðun, tísku og ljósmynda förðun, brúðarförðun, umhirða húðar, stíliseringu og í raun allt sem góður förðunarfræðingur þarf að vita og kunna," segir Guðrún Möller eigandi Beautyworld spurð út í námsefnið. Þær fengu ýmsa fyrirlesara til að fjalla um sögu förðunar, special effects og fleira í þeim dúr. Nýtt námskeið hefst í september."

Lífið

Grínast á kostnað Gaga

Nýjasta lag rapparans Eminem hefur farið fyrir brjóstið á aðdáendum Lady Gaga, en í laginu „A Kiss“ segir rapparinn að söngkonan sé í raun karlmaður. Hann segir þetta þó allt í gríni gert. „Stundum fæ ég bara einhvern brandara í kollinn og mig langar að deila honum með heiminum, ef þið skiljið mig,“ sagði Eminem og bætir því við að hann hafi ennþá mikið dálæti á Lady Gaga.

Lífið

Tapaði heilli hryllingsmynd

Rithöfundurinn og grínistinn Hugleikur Dagsson lenti í þeirri óskemmtilegu reynslu að brotist var inn til hans um helgina. Þjófarnir höfðu meðal annars á brott með sér tölvu sem hefur að geyma óbirt leikrit, tvær bækur og handrit að hans fyrstu hryllingsmynd.

Lífið

Nýtt andlit Vuitton

Það er engin önnur en leikkonan Angelina Jolie sem er andlit nýrrar auglýsingaherferðar tískuhúss Louis Vuitton.

Lífið

Eva verður guðmóðir

Victoria Beckham hefur beðið Evu Longoria um að vera guðmóðir ófæddrar dóttur sinnar. Beckham-hjónin eiga von á stúlku í júlí en fyrir eiga þau þrjá stráka, hinn tólf ára gamla Brooklyn, hinn átta ára Romeo og hinn sex ára Cruz. „Victoria stakk upp á þessu við David og þau vilja bæði að Eva verði guðmóðirin. Henni finnst þetta mikill heiður,“ sagði vinur hjónanna við dagblaðið The Sun.

Lífið

Coppola eins og afi minn

Hin unga Elle Fanning fer með eitt aðalhlutverkið í kvikmyndinni Super 8 sem frumsýnd var vestanhafs á dögunum. Fanning er dugleg að veita viðtöl til að kynna kvikmyndina og í einu slíku segist hún líta á leikstjórann Francis Ford Coppola sem afa sinn.

Lífið

Ertu fótósjoppuð í drasl eða bótoxuð?

Söngkona Black Eyed Peas, Fergie, 36 ára, prýðir forsíðu Allure tímaritsins og er stórglæsileg að vanda. Pressan vestan hafs veltir sér stöðugt upp úr útliti söngkonunnar sem er annað hvort fótósjoppuð með aðstoð tölvutækninnar á umræddri forsíðu eða áskrifandi að bótoxi. En andlit Fergie er verður sléttara með hverju árinu eins og sjá má í myndasafni. Ég er ung í anda og mun alltaf vera það en ég ætla mér að eldast tignarlega. Ég hef lært að elska nefið á mér í gegnum tíðina því það er sérstakt og það gerir mig einstaka og öðruvísi en aðrar konur," sagði Fergie spurð út í ellina og netið á henni í forsíðuviðtalinu.

Lífið

Í fótspor Daft Punk

Danshljómsveitin Steed Lord var aðalnúmer raftónlistarhátíðarinnar Electronica Festival sem fram fór í Istanbúl um síðustu helgi. Að auki var tónlistarmyndband sveitarinnar notað til að auglýsa hátíðina á sjónvarpsstöðinni MTV.

Lífið

Sveppi í sólarhring uppi á jökli

„Það kemur mér alltaf jafn mikið á óvart hversu mikið vesen það er að gera eina bíómynd,“ segir Sverrir Þór Sverrisson. Hann er byrjaður á þriðju Sveppa-myndinni en hinar tvær hafa slegið rækilega í gegn hjá yngstu kynslóðinni. Í síðustu mynd prófaði Sverrir að gera myndina með hinni vinsælu þrívíddar-tækni en mynd númer þrjú verður unnin á hefðbundinn hátt. „Við erum búnir með þrívíddina.“

Lífið

Skemmdu bíl öryrkja og ældu á hann líka

"Ekki nóg með að það sé búið að skemma bílinn svona þá er búið að æla á hann hérna," segir Una Nikulásdóttir í meðfylgjandi myndskeiði þegar hún lýsir skemmdarverknaði sem unninn var á bíl föður hennar, Toyotu Hiace árgerð 1998, aðfaranótt mánudags.

Lífið

Arnar Grant og Ívar í matarbisness

Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar félagarnir Arnar Grant og Ívar Guðmundsson héldu glæsilegt partý um helgina upp á efstu hæð í Turninum á Höfatorgi þar sem vinir og vandamenn komu saman til að fagna nýjustu afurð þeirra, Pakkanum, en þar bjóða þeir upp á heilan dag af hollum, næringarríkum og hitaeiningasnauðum mat. Matarpakkinn inniheldur allar máltíðir dagsins og kemur í tveimur stærðum, 1.800 og 1.500 hitaeiningum. Meistarakokkurinn Snorri Snorrason sér um matseldina fyrir Pakkann og er maturinn eingöngu unninn úr fersku hráefni. Snorri hefur viðamikla alþjóðlega reynslu af ljúffengri og hollri matargerð sem gerir matarpakkana afar fjölbreytta. Arnar og Ívar passa að öll hlutföll próteins, kolvetna og fitu séu virt svo að líkaminn fái alla þá næringu sem hann þarfnast án þess að fara umfram 1.500 eða 1.800 hitaeiningar. Arnar og Ívar segja að Pakkinn sé góð leið til að grennast og byggja upp heilsusamlegan lífsstíl. “Hver þekkir ekki að vera að hamast á fullu í ræktinni en ná ekki þeim árangri sem lagt var upp með. Það er langoftast vegna þess að ekki hefur verið hugað nægilega vel að mataræðinu. Fólk gleymir nefnilega að rétt mataræði vegur um 70% í að ná árangri í líkamsrækt. ” segja hreystikapparnir. “Við ætlum að koma góðu orði á pakkamat og í leiðinni að hjálpa Íslendingum að grennast og komast í gott form með hollu mataræði” segja félagarnir. Nánar má sjá um Pakkann á Pakkinn.is.

Lífið

Endingargóð Eitís-drottning

Með nýrómantíkur-ímyndina af Lauper pikkfasta í höfðinu var dálítið undarlegt að sjá söngkonuna frá New York brölta inn á sviðið (hugsanlega hefur hún hresst sig við með nokkrum áfengum blöndum á undan), dansa eins og Janis Joplin og syngja hreinræktaða blús-standarda af nýjustu plötu sinni, Memphis Blues, sem voru meginuppistaða prógrammsins. En röddin (og hvílík rödd!) hefur ekkert látið á sjá, frekar þroskast og eflst ef eitthvað er, og gæðir formúluna lífi.

Gagnrýni

Gospeltónleikar Bjarna Ara

Meðfylgjandi myndir voru teknar í Guðríðarkirkju á Elvis Gospel tónleikum þar sem Bjarni Arason ásamt hjómsveit fór á kostum. Bjarni flutti hvern slagarann á eftir öðrum ásamt hrynsveit og frábærum raddsöngvurum. Um var að ræða gospeltónlist úr söngbók Elvis Presley. Það var mál manna að Bjarni hafi aldrei verið betri.

Lífið