Lífið Táraflóð Amy á brúðkaupsafmælinu Slétt ár er síðan Amy Winehouse og hinn fangelsaði Blake Fielder-Civil giftu sig á Miami. Blake fann greinilega leið til að senda eiginkonunni blóm á brúðkaupsafmælinu þó hann sitji í fangelsi. Og það hafa fleiri en eiginmaðurinn munað eftir afmælinu, því fjöldi blómavanda beið Winehouse þegar hún fór út í morgun. Hún var greinilega snortin, og háskældi yfir blómunum meðan paparassarnir sem biðu hennar smelltu af. Enda svosem kannski nóg að gráta yfir. Lífið 19.5.2008 15:53 Dópmyndband Angelinu Jolie The Sun hefur birt myndband af Angelinu Jolie í eiturlyfjagreni. Myndbandið er tekið árið 1999, þegar Angelina var 23 ára. Það sýnir leikkonuna ungu ræða fjálglega um sadó masó kynlíf og hinar ýmsu misþyrmingar á gæludýrunum sínum meðan sessunautur hennar reykir heróín. Lífið 19.5.2008 14:33 Justin Timberlake undirbýr brúðkaup Ofurtöffarinn Justin Timberlake hyggst biðja sinnar heittelskuðu, leikkonunnar Jessicu Biel. Samkvæmt heimildum The Sun er hann þegar farin að leita að hentugum stað fyrir brúðkaupið. Lífið 19.5.2008 13:41 Klæðist eins og Nick Cave í Kóreu Lífið 19.5.2008 13:06
Táraflóð Amy á brúðkaupsafmælinu Slétt ár er síðan Amy Winehouse og hinn fangelsaði Blake Fielder-Civil giftu sig á Miami. Blake fann greinilega leið til að senda eiginkonunni blóm á brúðkaupsafmælinu þó hann sitji í fangelsi. Og það hafa fleiri en eiginmaðurinn munað eftir afmælinu, því fjöldi blómavanda beið Winehouse þegar hún fór út í morgun. Hún var greinilega snortin, og háskældi yfir blómunum meðan paparassarnir sem biðu hennar smelltu af. Enda svosem kannski nóg að gráta yfir. Lífið 19.5.2008 15:53
Dópmyndband Angelinu Jolie The Sun hefur birt myndband af Angelinu Jolie í eiturlyfjagreni. Myndbandið er tekið árið 1999, þegar Angelina var 23 ára. Það sýnir leikkonuna ungu ræða fjálglega um sadó masó kynlíf og hinar ýmsu misþyrmingar á gæludýrunum sínum meðan sessunautur hennar reykir heróín. Lífið 19.5.2008 14:33
Justin Timberlake undirbýr brúðkaup Ofurtöffarinn Justin Timberlake hyggst biðja sinnar heittelskuðu, leikkonunnar Jessicu Biel. Samkvæmt heimildum The Sun er hann þegar farin að leita að hentugum stað fyrir brúðkaupið. Lífið 19.5.2008 13:41
Húsin á Hæðinni óseld Engin tilboð hafa borist í húsin við Árakur sem keppendur í Hæðinni inréttuðu, en þau fóru í sölu eftir að þáttunum lauk. Landinn er þó greinilega spenntur fyrir sköpunarverkum paranna, því hundruðir manna hafa lagt leið sína í Garðabæinn að skoða þau. Lífið 19.5.2008 11:24
Fegurðardrottningar geta ekki verið fullkomnar Ásdís Svava Hallgrímsdóttir lumar á góðum ráðum til handa verðandi fegurðardrottningum sem keppa um titilinn Ungfrú Ísland á Broadway 30. maí næstkomandi. Lífið 19.5.2008 11:21
Mariah skipuleggur nýtt brúðkaup Laumubrúðkaup Mariuh Carey og Nick Cannon á búgarði hennar í Karabíska hafinu fyrir skemmstu dugar henni engan veginn. Hún ætlar því að giftast aftur, og gera það almennilega í þetta sinn. Lífið 19.5.2008 11:05
Dýrar kóngafólksmyndir Hello tímaritið hefur keypt einkarétt á myndatökum og umfjöllun um konunglegt brúðkaup í Windsor-kastala fyrir eina milljón dollara. Um er að ræða brúðkaup elsta barnabarns Elísabetar drottingar, Peter Phillips og kanadískrar kærustu hans Autumn Kelly sem fram fór á laugardag. Peter lætur lítið fyrir sér fara í konungsfjölskyldunni og hann og Zara systir hans genga engum opinberum skyldum en þau eru börn Önnu prinsessu. Lífið 19.5.2008 09:31
Skemmti öskrandi Kínverjum Hljómsveitin Hellvar er nýkomin frá Kína þar sem hún spilaði á þrennum tónleikum. "Ég hef bara aldrei upplifað annað eins,“ segir Heiða Eiríksdóttir, söngkona Hellvars, um viðtökur Kínverja á tónleikum sveitarinnar. Lífið 19.5.2008 00:01
Kate og Lance stinga saman nefjum Nú greina bandarískir slúðurmiðlar frá því að leikkonan Kate Hudson og hjólreiðakappinn Lance Armstrong séu að stinga saman nefjum. Lífið 18.5.2008 19:06
Gifting í Simpson fjölskyldunni Stjörnuparið Ashlee Simpson og Pete Wentz giftu sig í gærkvöldi við látlausa athöfn í gærkvöldi. Simpson, sem er 23 ára, er líklega þekktust fyrir að vera litla systir söngkonunnar Jessicu Simpson en Wentz, sem er 28 ára, er bassaleikari sveitarinnar Fall Out Boy. Lífið 18.5.2008 14:22
Konunglegt brúðkaup Peter Phillips, elsta barnabarn Elísabetar drottningar, giftist í dag hinni kanadísku Autumn Kelly. Þau voru gefin saman í kapellu heilags Georgs í Windsor kastala. Lífið 17.5.2008 20:40
Sigfúsarhátíð í Þjóðarbókhlöðu Nú klukkan þrjú hófst Sigfúsarhátíð í Þjóðarbókhlöðunni í minningu Sigfúsar Daðasonar skálds en hinn 20. maí eru liðin 80 ár frá fæðingu hans. Lífið 17.5.2008 14:38
Tónleikum Sálarinnar aflýst - Leyfi lágu ekki fyrir Sökum þess að forráðamenn Ölfushallarinnar náðu ekki að afla tilskilinna leyfa verður ekkert af tónleikum sem Sálin hans Jóns míns hafði fyrirhugað að halda þar í kvöld. Lífið 17.5.2008 09:45
Fékk tvo eiginmenn í stað eins "Þú missir ekki Begga heldur færð tvo eiginmenn í staðinn," sagði Pacas við fyrrverandi konu Begga eftir að ástin kviknaði þeirra á milli . Hann ræddi opinskátt í kvennaþættinum Mér finnst á sjónvarpsstöðinni ÍNN í gærkvöldi um samband hans og Begga. Lífið 17.5.2008 08:15
Pete, Amy og gæludýrin Breskir slúðurmiðlar komust svo sannarlega í feitt þegar Amy Winehouse og Pete Doherty fóru að rugla saman reitum. The Sun segir frá myndbandi sem tekið var af parinu um daginn þar sem þau sjást leika sér að ketti og hvítum músum. Lífið 16.5.2008 21:48
Beggi og Pacas verða í Íslandi í dag í sumar Búið að semja við Begga og Pacas um fastar innkomur í Íslandi í dag í sumar. Þeir byrja í næstu viku, og ætla að fjalla um mat og drykk og skemmtilega hluti úr mannlífinu eins og þeim einum er lagið. Lífið 16.5.2008 16:55
Tilnefningar til Grímunnar kynntar Tilnefningar til Íslensku leiklistarverðlaunanna, Grímunnar, 2008 voru kynntar í Þjóðleikhúsinu í þessu. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands og verndari Grímunnar afhendir tilnefndum listamönnum viðurkenningar. Lífið 16.5.2008 15:54
Einbýlishúsið í Tjörninni til sölu Vegfarendur í miðbænum ráku margir hverjir upp stór augu þegar þeir sáu einbýlishús úti í miðri Tjörninni. Uppátækið var hluti af Listahátíð Reykjavíkur en nú er húsið komið á sölu. Það er fasteignasalan Fasteignakaup sem sér um söluna. Varað er við nágrönnum sem eru í sífelldum erjum í Ráðhúsi Reykjavíkur. Lífið 16.5.2008 15:39
Steini sigraði Cod Music Sigurvegari Þorskastríðsins 2008, tónlistakeppni útgáfufyrirtækisins Cod Music, er fundinn. Eftir tíu daga vangaveltur valdi dómnefndin Steina, tónlistamann úr Reykjavík sem hefur verið starfandi undir því nafni í nokkur ár. Hann sendi frá sér sína fyrstu plötu í fyrra. Hún hét Behold og fóru tvö lög af henni í spilun. Steini hefur verið að vinna að nýju efni síðan og má þá búast við plötu frá honum í haust. Lífið 16.5.2008 15:28
Ellen giftist unnustunni Grínistinn Ellen DeGeneres og kærastan hennar til fjölda ára, leikkonan Portia de Rossi ætla að gifta sig. Samkvæmt heimildum TMZ tilkynnti Ellen þetta við upptökur á þætti sínum í gær, þegar verið var að ræða úrskurð Kaliforníuríkis um að leyfa hjónabönd samkynhneigðra. Lífið 16.5.2008 13:45
Pandabirnir í Cannes Það er ekki oft sem bjarndýr fá að ganga eftir rauða dreglinum á kvikmyndahátíðinni í Cannes í Frakklandi, hvað þá pandabirnir með Kung Fu sem sérgrein. Lífið 16.5.2008 13:16
Mikilvægt að segja fólki ef maður elskar það, segir Krummi "Svala og þau eru öll að ná sér sem betur fer. Bílbeltin bjarga mannslífum. Þegar maður á svona nána vini og fjölskyldu þá sér maður hvað lífið er dýrmætt og fallegt," segir Krummi Björgvinsson aðspurður um líðan Svölu systur hans sem lenti í bílslysi á Reykjanesbraut við Vogaafleggjara í apríl. Lífið 16.5.2008 13:12
Lítill fréttahaukur fæddur Fréttaparinu Þóru Arnórsdóttur og Svavari Halldórssyni fæddist heilbrigð og myndarleg stúlka skömmu eftir níu í morgun. „Það er allt æðislegt, þetta er myndarstúlka og allir kátir," segir Svavar. Litla prinsessan var 17 merkur og 55 sentimetrar og heilsast móður og barni vel. Lífið 16.5.2008 12:59
Paris og Posh berjast um paparassana Ljósmyndarar london borgar unnu líklega yfirvinnu í gær. Tískudrósirnar Paris Hilton og Victoria Beckham voru báðar staddar í borginni, hver að kynna nýjasta viðskiptaævintýri sitt. Lífið 16.5.2008 11:21
Kate og Owen hætt saman enn einu sinni Það er um það bil korter síðan fréttist að Kate Hudson og Owen Wilson hefðu trúlofast sig. Skjótt skipast veður í lofti. Nú eru þau víst hætt saman enn einu sinni. Lífið 16.5.2008 10:48
Frikki mun taka alla þessa kúkalabba í fjósið, segir Sverrir "Mér sýnist þau bara vera búin að slá rækilega í gegn og meika það svo um munar," segir Sverrir Stormsker sem flutti eftirminnilega lagið Socates fyrir Íslands hönd í Eurovision árið 1988 ásamt Stefáni Hilmarssyni. Lífið 16.5.2008 09:08
Britney Spears og Mel Gibson saman í fríi Ólíklegt par er nú saman í fríi á Costa Rica. Þetta eru Britney Spears og hinn aldraði leikari Mel Gibson. Lífið 16.5.2008 07:53
Stöð 2 yfir RÚV í áhorfsmælingum „Við finnum fyrir auknum vinsældum, og ekki skemmir fyrir að lokaþáttur Hæðarinnar var í þessari viku," segir Pálmi Guðmundsson, sjónvarpsstjóri Stöðvar 2. Stöðin fór í vikunni í fyrsta sinn yfir Ríkissjónvarpið í áhorfsmælingum í aldurshópnum 12-49 ára. Lífið 15.5.2008 17:26
Reese og Jake upp að altarinu Leikararnir Reese Witherspoon og Jake Gyllenhaal eru á leið upp að altarinu ef marka má fréttir í slúðurpressunni vestanhafs. Parið hefur verið að stinga saman nefjum um nokkurt skeið. Haft er eftir vinum þeirra að sambandið sé alvarlegt, og búast megi við trúlofun innan skamms. Ein aðal ástæðan fyrir yfirvofandi hjónabandi sé þó sú að Reese sé afar íhaldssöm. Hún geti því alls ekki hugsað sér að börn hennar frá fyrra hjónabandi sjái hana „lifa í synd." Lífið 15.5.2008 16:52