Lífið
Aniston sveik vinkonu sína Leikkonan Jennifer Aniston sást nýverið á stefnumóti með óþekktum manni, sem er nú sagður vera leikari að nafni Christopher Gartin. Gartin þessi er tveggja barna faðir og fyrrum eiginmaður vinkonu Aniston, Joanne Gartin, sem er einnig góð vinkona Courteney Cox. „Þetta vekur ekki áhuga minn. En það er satt, Jennifer hefur verið vinkona mín í yfir tíu ár. Við höfum þekkt hvor aðra lengi," sagði Joanne Gartin þegar hún var spurð út í samband Aniston og fyrrum eiginmanns síns. Lífið 15.7.2010 08:30
Shiloh vill vera eins og strákarnir Leikkonan Angelina Jolie hefur verið á forsíðum ófárra tímarita undanfarið og veitt þó nokkur persónuleg viðtöl, en þetta er gert til að kynna nýjustu mynd hennar, Salt. Í nýju viðtali við tímaritið Vanity Fair ver Jolie fatastíl dóttur sinnar. Lífið 15.7.2010 08:00
Grennast saman Demi Moore og eiginmaður hennar, leikarinn Ashton Kutcher, hafa ákveðið að setja heilsuna í fyrsta sæti og eru nú á sérstökum kúr sem á að bæta heilsuna. Kúrinn samanstendur af mikilli hreyfingu og safa búnum til úr sítrónu, cayenne pipar og sýrópi. Lífið 15.7.2010 07:30
Bon Jovi meiddist á tónleikum Söngvarinn Jon Bon Jovi meiddist á kálfa á tónleikum með hljómsveit sinni Bon Jovi í heimaborg sinni New Jersey. Hann lét það ekki á sig fá og lauk tónleikunum, þrátt fyrir að hafa þurft að haltra um sviðið. Lífið 15.7.2010 07:00
Brjálaður Gibson Fleiri upptökur þar sem Mel Gibson heyrist öskra og hóta kærustu sinni, rússnesku tónlistarkonuna Oksönu Grigorievu. Eftir að upptökurnar komu fram í dagsljósið hefur leikarinn ekki átt sjö dagana sæla og hefur umboðsskrifstofa hans meðal annars sagt honum upp og búið er að fresta útgáfu nýrrar kvikmyndar hans um óákveðinn tíma. Lífið 15.7.2010 06:00
Bryndís Ásmunds í Íslandi í dag - myndband Í Íslandi í dag í kvöld verður þátturinn Núll þrír rifjaður upp sem sýndur var á Stöð 2 fyrir tæpum fimmtán árum þar sem rætt var við Bryndísi Ásmundsdóttur leikkonu. Rætt verður við Bryndísi og tekinn púlsinn á því sem hún er að gera í dag. Það er skemmtileg tilviljun að hún tók þátt í uppfærslu Rocky horror árið 1996 og leikur nú í sömu uppfærslu hjá Leikfélagi Akureyrar í haust. Ekki missa af Íslandi í dag strax að loknum fréttum Stöðvar 2. Lífið 14.7.2010 17:07
Makalaus í nýju ástarfagi í háskólanum „Ég er bæði upp með mér og einstaklega stolt yfir því að ég fái að fljóta með í fagi þar sem bókmenntadrottningar eins og Jane Austen og kóngurinn Halldór Laxness verða kennd," svarar rithöfundurinn Þorbjörg Marínósdóttir, eða Tobba eins og hún er kölluð, spurð hvernig það leggst í hana að bókin hennar Makalaus er notuð við kennslu í svokölluðu ástarfagi í Háskóla Íslands. Lífið 14.7.2010 16:30
Með komplexa yfir brosinu Leikkonan Amanda Seyfried, 24 ára, sem sló heldur betur í gegn í kvikmyndinni Mamma Mía! árið 2008, er með komplexa yfir því hvernig hún brosir. Amanda segir óskiljanlegt af hverju fólki finnst hún vera aðlaðandi en hún er óánægð með það hvernig hún brosir. Ég er ósköp venjuleg í útliti og þegar ég brosi verða varirnar á mér skrýtnar. Ég skil ekki hvernig nokkrum manni þykir ég aðlaðandi," sagði hún í nýlegu viðtali við Total Film tímaritið. Amanda er í tímabundnu fríi frá kvikmyndaleik en hún segist ekki hafa áhuga á að leika í rómantískum gamanmyndum af því að hún vill líkjast leikkonunni Meryl Streep þegar kemur að hlutverkavali. Lífið 14.7.2010 16:00
Loksins fann Aniston ástina Leikkonan Jennifer Aniston og leikarinn Chris Gartin féllu fyrir hvort öðru fyrir ekki alls löngu þegar vinkona Jennifer, leikkonan Courteney Cox, skipulagði stefnumótið en alfarið án þeirra vitneskju. Parið hefur sést saman á götum Los Angeles undanfarið og það fer ekki á milli mála að Jennifer hefur fundið ástina á ný. Courteney og eiginmaður hennar, leikarinn David Arquette, eru góðir vinir Chris. En Chris og David léku saman í kvikmyndinni Johns back árið 1996. Sagan segir að Courteney og David buðu Jennifer í mat þar sem Chris var einnig gestur. Jennifer mætti of seint í hálfgerðu stresskasti en Chris róaði hana niður með því að gefa henni vínglas, fékk hana til að hlæja, slappa aðeins af og njóta stundarinnar. Lífið 14.7.2010 15:00
Universal í Evrópu með Boðbera í sigtinu „Okkur kom þetta nú svolítið á óvart, enda við fyrst og fremst að einbeita okkur að því að koma myndinni í íslensk bíóhús," segir Hákon Einarsson, framleiðandi íslensku myndarinnar Boðbera. Lífið 14.7.2010 14:45
Ekki 100% ánægð með líkamann Leikkonan Eva Mendes, 36 ára, vill að fólk sjái hve hugrökk hún er þegar hún birtist nakin hvort sem er á hvíta tjaldinu eða ljósmyndum í stað þess að vera talin kynþokkafull. Eva er yfirleitt ofarlega á listum yfir kynþokkafyllstu konur heims en hún vill breyta viðhorfi fólks gagnvart henni. Eva biður aðdáendur sína að horfa á hana sem metnaðarfulla, klára og fyndna konu frekar en kynþokkafulla. Eva viðurkennir að hún er ekki alltaf 100% ánægð með líkama sinn en reynir eins og hún mögulega getur að fá útlitið ekki á heilann. „Ég tala við röddina innra með mér og segi við sjálfa mig: Ég veit að þú vilt segja mér að ég er alls ekki sjarmerandi en veistu ég vil ekki heyra það núna takk! Komdu aftur eftir nokkra daga til að brjóta mig niður þegar ég búin í þessari töku. Þá skal ég hleypa þér inn," sagði Eva. Evu finnst mikilvægt að konur taki sjálfa sig andlega og líkamlega í sátt. Lífið 14.7.2010 14:00
Hafnaði í 14. sæti á fyrsta heimsmeistaramóti barna Hin níu ára gamla Sesselja Sif Óðinsdóttir tók fyrir skemmstu þátt í fyrsta heimsmeistaramóti barna í fitness sem fram fór í Slóvakíu. Sesselja Sif er dóttir Kristínar Kristjánsdóttur, Íslandsmeistara kvenna í fitness, og stjúpdóttir Sigurðar Gestssonar, vaxtarræktarkappa. Lífið 14.7.2010 13:00
Opna heimasíðu um kirkjur á Íslandi Tveir bræður, þeir Andrés Ásgeir og Þórarinn Örn Andréssynir, hafa opnað heimasíðu sem inniheldur, upplýsingar, ljósmyndir og staðsetningar allra kirkna og bænahúsa á Íslandi sem eru um 360 talsins. Í tilkynningu frá þeim segir að síðan sé tengd Google maps sem auðveldi notendum að sjá staðsetningar kirknanna á mjög þægilegan og auðveldan máta. Lífið 14.7.2010 12:53
Daníel Ágúst í annarlegu ástandi - myndband Við fengum að fylgjast með gerð myndbands í gærkvöldi við nýtt lag, sem heitir Þriggja daga vakt, sem Gus Gus, Nýdönsk og Haltalín flytja saman. Kassinn sem Daníel Ágúst dansar um með á höfðinu táknar ástandið sem fólk fer í um verslunarmannahelgina. Þá snýst allt um helgina, sem er þriggja daga vakt, og svo þegar helgin er búin þá kemur fólk aftur út úr þessum kassa og lífið verður venjulegt. Á Facebook er hægt að fá svona kassa til að setja sem prófílmynd hjá sér sem táknar hvað maður ætlar að gera um verslunarmannahelgina. Þriggja daga vaktin á Facebook. Lífið 14.7.2010 12:45
Penélope Cruz gengin út Leikararnir Penélope Cruz, 36 ára, og Javier Bardem, 41 árs, eru gift. Þau hafa verið kærustupar síðan árið 2007 en undanfarin ár hafa þau lagt sig fram við að halda persónulega lífi sínu fjarri fjölmiðlum. Fjölmiðlafulltrúi leikkonunnar hefur staðfest að hún er gengin í heilagt hjónaband með Javier. Brúðkaupið fór fram fyrr í þessum mánðui á heimili vinafólks þeirra og aðeins nánustu ættingjar voru viðstaddir athöfnina. Penélope klæddist kjól eftir John Galliano. Meira fær almenningur ekki að vita. Lífið 14.7.2010 11:14
Hafði mikið fyrir því að komast í form Leikarinn Mark Wahlberg sem sat eftirminnilega fyrir í Calvin Klein nærfataauglýsingaherferð fyrir nokkrum árum viðurkennir að það er erfitt að halda líkamanum í góðu formi en honum líður best þannig. Leikarinn, sem er 39 ára gamall, hafði mikið fyrir því hér áður fyrr að lyfta lóðum og hreyfa sig til að komast í besta líkamlega ástandið hverju sinni. „Þegar ég byrjaði að æfa reyndi ég bókstaflega að lyfta allri líkamsræktarstöðinni. Ég lyfti eins þungum lóðum og ég mögulega gat á hverjum einasta degi. Í dag er ég ekki alveg eins ýktur," sagði Mark í tímaritinu Men's Fitness. „Ég hef haft mikið fyrir því að komast í þetta líkamlega form þannig að ég get alveg eins lagt eitthvað á mig til að halda því við." Við spáðum fyrir lesendum Lífsins í morgun. Vertu með í fyrramálið... Lífið 14.7.2010 09:45
Frægir Íslendingar í rassvasabók „Þessi bók er fræðandi og skemmtileg þó þú sért ekki að nota hana í leiknum Hver er maðurinn? Hún rifjar upp marga aðila sem fólk hefur gleymt en gaman er að muna aftur," segir skopmyndateiknarinn og útgefandinn Hugleikur Dagsson. Lífið 14.7.2010 08:45
Byggir danstónlistarbrú milli Reykjavíkur og Ibiza Plötusnúðurinn og eigandi Flex Music, Kristinn Bjarnason, lenti í miklu ævintýri á partíeyjunni Ibiza. Komst hann að því að mikill áhugi er þar á Íslandi. Lenti hann á fundi með áhrifamiklum mönnum sem vilja fara með Ibiza til Íslands og flytja Íslendinga út. Lífið 14.7.2010 08:00
Frumburður væntanlegur „Þetta er í fyrsta sinn sem ég virkilega þrái að eignast börn," er haft eftir Vince. Lífið 13.7.2010 18:22
Kærastarnir vildu ekki athyglina Kim Kardashian segir að ástarsambönd fortíðar hafi ekki gengið upp hjá henni því elskuhugar hennar hafi ekki kunnað við alla þá athygli sem hún fær. Kim, sem áti í ástarsambandi við íþróttamenn á borð við Reggie Bush, Miles Austin og fyrir ekki alls löngu Cristiano Ronaldo, segir að starf hennar gangi út á að vera stöðugt í sviðsljósinu. Lífið 13.7.2010 17:00
Háð SMS skilaboðum Leikkonan Leighton Meester, 24 ára, er eins og flest okkar því hún er háð því að senda og taka á móti sms skilaboðum vina og fjölskyldu og að hanga á Facebook þegar hún er ekki upptekin við að leika Blair Waldorf í Gossip Girl sjónvarpsþáttunum. Leighton Meester skrifaði eftirfarand á vefsíðu sjónvarpsþáttarins þar sem hún fer með eitt af aðalhlutverkunum: „Ég er rosalega fljót að skrifa og senda sms skeyti. Ástæðan er sú að ég sendi allt of mörg sms á daginn og næturna. Ég er háð þessu samskiptaformi." Lífið 13.7.2010 16:00
Pamela kærir sig ekki um bótox Margir muna eftir Pamelu Anderson skokka á ströndinni í Baywatch sjónvarpsþáttunum. Hún segist vilja eldast á náttúrulegan máta þegar kemur að andliti hennar. „Ég hef aldrei farið í bótox því ég er ekki hrifin af því að láta eiga við andlitið á mér. Mér líkar alls ekki við andlitslýtaaðgerðir. Þær hræða mig. Þú sérð fólk sem breytist ekkert með aldrinum og það er skrýtið. Ég ætla ekki að verða þannig," sagði Pamela. Lífið 13.7.2010 14:00
Elskar að svitna Leikkonan Eva Green, sem sumir vilja meina að hafi verið ein áhugaverðasta Bond-gella sögunnar því að hún hafði persónuleika í myndinni Casino Royale, er hrifin af því að svitna því það lætur henni líða vel. Eva leggur sig fram við að vera í góðu líkamlegu formi og hún viðurkennir að stundum nennir hún ekki í ræktina en þegar hún finnur hvernig líkaminn bregst við eftir átök er hún sannfærð um að æfingarnar gera henni gott. „Þegar ég er í London mætir einkaþjálfarinn minn heim til mín og við lyftum lóðum og hreyfum okkur. Þá svitna ég mikið og líður mjög vel eftir á," sagði Eva. Hún segir að fötin séu algjört aukaatriði þegar hún er í góðu formi. Lífið 13.7.2010 12:30
Kelly Osbourne vill leika mömmu sína Kelly Osbourne dóttir rokkarans Ozzy Osbourne og Sharon, mun að öllum líkindum leika mömmu sína í væntanlegri kvikmynd um pabba hennar Ozzy og hans skrautlega líferni. Valið stendur á milli Johnny Depp og Colin Farrell fyrir hlutverk Ozzy. „Til stendur að Colin Farrell leiki pabba. Með fullri virðingu fyrir Colin (34 ára) þá er hann allt of gamall fyrir hlutverkið," er haft eftir Kelly. Mamma hennar framleiðir myndina. Lífið 13.7.2010 11:15
Tom Hanks: Leikur sér ennþá með leikföng Leikarinn Tom Hanks, 54 ára, sem ljáir kúrekanum Vidda rödd sína í Toystory kvikmyndunum um leikföngin, segist elska að leika sér með leikföng. Foreldrar Tom skildu þegar hann var fimm ára. Þá flutti hann til föður síns og í kjölfarið ferðuðust feðgarnir meira og minna og voru síflytandi. „Ég hef mög gaman af að leika mér með leikföng og geri það nánast alltaf þegar ég hef tíma. En ég man ekki eftir að hafa gefið öðrum leikföngin mín. Þau hurfu bara flutningunum," segir Tom. Tom á fjögur börn: Colin, 32, og Elizabeth, 28, frá fyrra hónabandi þegar hann var giftur Samönthu Lewes, og Chester, 19, og Truman, 14 ára, á hann með núverandi eiginkonu sinni Ritu Wilson. Lífið 13.7.2010 10:15
Feðgarnir Herbert og Svanur með nýtt lag Feðgarnir Herbert Guðmundsson og Svanur Herbertsson, sem kalla sig Herbertson, hafa sent frá sér lagið Time. Það er fyrsta lagið af væntanlegri plötu þeirra sem er væntanleg með haustinu. Á meðal fleiri sem koma við sögu á plötunni eru Gunnlaugur Briem, Stefán Magnússon, Tryggvi Hübner og Haraldur Þorsteinsson. Í bakröddum eru reynsluboltarnir Magnús og Jóhann. Lífið 13.7.2010 09:30
Kvikmynd um ævintýraför Thors Vilhjálms frumsýnd Thor Vilhjálmsson gekk um 800 kílómetra til Santiago de Compostela á Spáni árið 2005. Ferðin var kvikmynduð og verður myndin, sem er í fimm hlutum, frumsýnd á næstunni. Thor lenti í ýmsu á ferðalaginu og var ráðlagt að vera með göngustaf til að berja frá sér villihunda. Lífið 13.7.2010 09:15
Angelina Jolie sefur ekki út af börnunum Störnuparið Angelina Jolie, 35 ára, og Brad Pitt, 46 ára, sofa lítið enda eiga þau sex börn, Maddox, 8 ára, Pax, 6 ára, Zahara, 5 ára Shiloh, 4 ára og tveggja ára tvíburana Knox og Vivienne. Angelina segist elska að vera mamma og viðurkennir að hún og Brad hafi áhuga á að stækka fölskylduna enn frekar. „Eldsnemma á morgnana erum við svo þreytt og lítum á hvort annað og hugsum með okkur hvort við eigum ekkert að fá að sofa!" sagði Angelina. Angelina elskar fjölskyldulífið og efast ekki um að hjónabandið verði farsælt. Lífið 13.7.2010 09:15
Valli Sport hættur sem umboðsmaður Haffa Haff „Þetta er mjög persónulegt mál fyrir mig því mér þykir mjög vænt um Valla. Við störfum enn saman en við höfðum bara mismunandi hugmyndir um framtíðina," segir tónlistarmaðurinn Haffi Haff. Lífið 13.7.2010 09:00
Fríir tónleikar úti á götu stöðva umferð Lady Gaga stöðvaði alla umferð í New York síðastliðinn föstudag þegar meira en 20.000 aðdáendur söngkonunnar troðfylltu göturnar til að sjá ókeypis tónleika hennar í rigningunni. Lífið 13.7.2010 08:30