Lífið
Slæm fyrirmynd Ofurfyrirsætan Naomi Campbell, 40 ára, viðurkennir að hún er langt frá því að vera góð fyrirmynd því hún hefur gert of mörg mistök í gegnum tíðina. Þrátt fyrir öll mistökin leggur Naomi sig fram við að verða betri manneskja. Ég hef gert mörg mistök Allt of mörg mistök. Ég er ekki fullkomin manneskja. En ég hef lært af þessum mistökum. Flest þeirra hafa ratað í fjölmiðla og mér þykir það miður," sagði Naomi. Þess vegna verð ég taugaveikluð og stressuð þegar fólk heldur því fram að ég sé góð fyrirmynd sem ég er ekki því ég hef ekki staðið mig sem skyldi í gegnum tíðina." Ég er að reyna að bæta mig og viðurkenni mistökin sem ég hef gert en núna er ég að leggja mig fram við að lifa lífinu á réttan máta. Ég er ekki þunglynd en þegar á verð reið þá týni ég sjálfri mér og kem svo aftur þegar ég verð rólegri," sagði Naomi spurð út í reiðisköstin sem hún fær oftar en ekki og ræst á fólk. En ég ætla ekki að sökkva í sjálfsvorkunn heldur leggja mig fram við að bæta mig og halda áfram að þroskast." Lífið 29.9.2010 12:00
Saknar eiginmannsins Söng og leikkonan Hilary Duff, 23 ára, á erfitt með að vera í fjarsambandi. Hilary giftist kanadíska hokkí spilaranum Mike Comrie, 30 ára, í sumar eftir að hafa verið með honum í þrjú ár en það er bara eitt atriði sem hún er ósátt við og það er að Mike þarf að ferðast mikið tengt sportinu. Nú er hann að keppa og ég er ein eftir heima. Mér finnst það ömurlegt. Hann á eftir að ferðast töluvert á þessu ári og ég er að reyna að sætta mig við það og takast á við söknuðinn," sagð Hilary. Þrátt fyrir söknuðinn er Hilary enn í sjöunda himni eftir brúðkaupið. Hún segist ekki geta beðið eftir því að eignast barn með Mike. Hún ætlar hinsvegar að bíða með að stofna fjölskyldu því þau hafa bæði nóg að gera. Lífið 29.9.2010 11:00
250 manns á Control-hátíð Um 250 manns eru nú skráðir á alþjóðlegu ráðstefnuna You Are In Control sem fer fram í Reykjavík í fjórða sinn á föstudag og laugardag. Lífið 29.9.2010 10:30
Kynþokki kemur innan frá Pussycat Dolls söngkonan Nicole Scherzinger, 32 ára, sem er unnusta Formulu 1 hetjunnar Lewis Hamilton, 25 ára, segir að kynþokki komi innan frá. „Ég held að kynþokki komi alfarið innan frá og það er ekki hægt að búia hann til. Hann einfaldlega er," sagði Nicole í viðtali við breska OK! tímaritið. „Mér finnst ég vera kynþokkafyllst þegar ég er að sviði með Pussycat Dolls," sagði hún. Lífið 29.9.2010 09:30
Fórnar öllu fyrir draumastarfið í Bandaríkjunum „Ég er búin að skrifa undir tveggja ára samning. Ég flýg svo út á sunnudaginn og byrja á mánudaginn,“ segir markaðssérfræðingurinn Líney Inga Arnórsdóttir. Lífið 29.9.2010 09:00
Gerir mynd með John Hurt „Þetta er stuttmynd, tekin upp í Cornwall og það er reiknað með sjö dögum í tökum. Ég hef ekki sinnt stuttmyndaforminu nægjanlega vel en það er góður leikari í aðalhlutverkinu og það skiptir miklu máli,“ segir kvikmyndatökumaðurinn Karl Óskarsson. Lífið 29.9.2010 08:00
Getur einbeitt sér að drykkju á Íslandi „Mér finnst þetta frábært verkefni þannig að ég var til í að vera með frá upphafi. Ég fékk tölvupóst frá Ragga og Gunnari [Hanssonum] og var búinn að svara samdægurs,“ segir André Wickström, vinsælasti grínisti Finna. Lífið 29.9.2010 08:00
Prófmál fyrir fræga fólkið Beckham-hjónin eru ógnarstórt fyrirtæki sem byggir á fjölskylduímynd. Frétt In Touch um framhjáhald eiginmannsins er því mætt af fullri hörku. Lífið 29.9.2010 07:00
Sláturtíðað hefjast Dagana 29. september til 3. október halda Samtök listrænt ágengra tónsmiða umhverfis Reykjavík (S.L.Á.T.U.R.) hina árlegu tónlistarhátíð, Sláturtíð, í annað sinn. Um er að ræða hátíð fulla af ágengri, tilraunakenndri og uppátækjasamri tónlist sem margir bendla við framúrstefnu, hliðarstefnu eða jaðarstefnu. Lífið 29.9.2010 06:00
Hefur aldrei ljómað svona áður Leikkonan Kate Winslet, 34 ára, gæti vel hugsað sér að giftast nýja kærastanum, fyrirsætunni Louis Dowler, 34 ára. Náinn vinur Kate lét hafa eftir sér: Kate gæti vel hugsað sér að giftast honum og eignast með honum börn. Hún er hamingjusömust þegar hún er með honum. Ég hef ekki séð hana svona hamingjusama og ljómandi í mörg mörg ár." Hún hefur nú þegar boðið Louis að flytja inn til sín því hún getur ekki verið án hans í langan tíma. Kate skildi við leikstjórann Sam Mendes eftir sjö ára hjónaband í sumar. Lífið 28.9.2010 16:30
Háð varaglossi Tyra Banks, 36 ára, lætur ekki sjá sig utandyra án þess að setja á sig varagloss. Hérna áður fyrr þegar Tyra starfaði sem fyrirsæta var hún alltaf með klístraðar varir og hárið átti það til að festast í vörnunum. Þegar ég gekk um á sýningarpöllunum var ég með gloss á heilanum. Ég var alltaf að maka á mig varaglossi og það kom mér í vandræði í vinnunni," sagði Tyra sem notar ennþá gloss þrátt fyrir að það sé ekki vinsælt eins í gamla daga eins og hún orðar það. Lífið 28.9.2010 15:45
Anna Jia sigraði í Elite - myndband Leitin að Elite-stúlku Íslands fór fram á Grand hóteli á sunnudaginn var. Þar var mikið um dýrðir og mætti fjöldi fólks til að fylgjast með keppninni. Fyrirsætan Anna Jia bar sigur úr býtum og verður fulltrúi Íslands í alþjóðlegu Elite-keppninni sem fram fer í Sjanghæ 10. október næstkomandi. - sm Lífið 28.9.2010 15:15
Erfitt að vera ein Breska söngkonan Cheryl Cole, 27 ára, er hrædd við þá tilhugsun að vera einsömul en á hinn bóginn er hún mjög sátt við að hafa sparkað fótboltahetjunni sem hélt framhjá henni. Cheryl sem söng lagið Fight for This Love sem hún samdi eftir að fótboltamaðurinn Ashley Cole, 29 ára, hélt framhjá henni fyrr á þessu ári hefur slegið í gegn svo ekki sé meira sagt. Þrátt fyrir það er Cheryl ekki búin að jafna sig á skilnaðinum. Mér finnst erfitt að vera ein en ég er á góðri leið með að ná jafnvægi á ný," viðurkenndi Cheryl. Þetta var hræðilegur tími en ég veit að ég gerði rétt með því að hætta með honum. Mér fannst ég vera svikin en ég ætla að læra af reynslunni og taka því sem að höndum ber. Þessum kafla í lífi mínu er lokið." Bókin hennar, Through My Eyes, kemur út innan tíðar þar sem hún ræðir opinskátt um skilnaðinn og tíma hennar með Ashley. Lífið 28.9.2010 14:30
Hobbiti á lausu Leikarinn Elijah Wood, sem sló í gegn í kvikmyndunum Lord of the Rings, er hættur með unnustunni, Pamelu Racine. Leikarinn hætti með Pamelu eftir fimm ára samband því hann treysti sér ekki í langtíma samband. Haft er eftir vini Elijah: Hann vildi ekki byrja að búa og stofna fjölskyldu. Það síðasta sem hann ætlaði sér að gera var að særa Pamelu en hún er í sárum eftir að hann sagði henni upp." Elijah var einsamall þegar hann kynnti nýju myndina sína The Romantics á dögunum í New York og San Francisco. Lífið 28.9.2010 13:30
Clooney er kelirófa Leikarinn George Clooney og ítalska kærastan hans, Elisabetta Canalis, sáust kela á meðan þau snæddu saman á veitingahúsinu Da Giacomo í Mílano. Parið sem hefur verið saman undanfarið ár er ástfangið upp fyrir haus ef marka má heimildarmenn. Þau voru nánast ofan í hvort öðru allan tímann sem þau sátu á veitingahúsinu. George borðaði með annarri hendinni en hélt utan um Elisasbettu og strauk henni með hinni," var haft eftir heimildarmanni. Elisabetta sagði í nýlegu viðtali að George léti henni líða eins og hún væri orðin 18 ára gömul á ný en hún er 32 ára. Lífið 28.9.2010 12:30
Megrunarkúrar eru bull Leikkonan Julia Roberts, 42 ára, sem fer með aðalhlutverkið í kvikmyndinni Eat Pray Love, er slétt sama um megrunarkúra og kílóafjölda. Julia hefur að eigin sögn aldrei verið með vaxtarlag sitt á heilanum eins og svo margar Hollwyoodstjörnur og hún pælir heldur ekki í því hvernig aðrir eru vaxnir. Ég er of gömul fyrir þess háttar bull. Það er svo heimskulegt að velta sér endalaust upp úr því hvernig aðrir líta út. Einbeitum okkur frekar að þeim sem líða skort," sagði Julia. Ég er heppin að vera tiltölulega grönn en vaxtarlag mitt er alls ekki lykillinn að því sem ég er í dag. Ég hef ekki átt í erfiðleikum með þyngdina, ég veit það vel, en enginn ætti að velta sér upp úr eigin þyngd því það er svo margt annað sem er mikilvægara í lífinu." Julia á þrjú börn, tvíburana Hazel og Phinnaeus, 5 ára, og Henry, 3 ára, með eiginmanni sínum Daniel Moder. Lífið 28.9.2010 11:30
Fæðingarstaður barnsins ákveðinn Ástralska ofurfyrirsætan Miranda Kerr, 27 ára, og breski leikarinn Orlando Bloom, 33 ára, hafa ákveðið að ófætt barnið þeirri muni fæðast í Ástralíu. Miranda og Orlando giftust á laun í júlí á þessu ári eftir fjögurra vikna trúlofun og strax í kjölfar brúðkaupsins tilkynntu þau að von væri á erfingja sem væntanlegur er í heiminn í byrjun næsta árs. Ekki er vitað hvort um er að ræða dreng eða stúlku en hjónin hafa lagt sig fram um að halda því leyndu. „Þeim líður báðum vel í Ástralíu þar sem fjölskylda Miröndu tekur virkan þátt í að undirbúa komu barnsins. Orlando ætlar að bjóða sinni fjölskyldu til Ástrálíu svo hún geti tekið þátt að sama skapi þegar barnið fæðist," er haft eftir heimildarmanni. Lífið 28.9.2010 10:30
Auglýsingalög innblásin af Sigur Rós „Við fáum voðalega margar beiðnir, ég hef enga tölu á því hversu margar því þetta fer allt í gegnum umboðsmanninn okkar,“ segir Georg Holm, bassaleikari Sigur Rósar. Lífið 28.9.2010 10:00
Ástin gufaði upp Jim Carrey, 48 ára, og Jenny McCarthy, 37 ára, skildu að skiptum daginn sem þau hættu að hlæja og hafa það gaman saman. Ástin gufaði upp á milli þeirra í apríl á þesu ári eftir að þau höfðu eytt fimm árum saman. Nú hefur Jenny tjáð sig um sambandsslitin í fjölmiðlum. Hún segir að rómantíkin hafi einfaldlega horfið á örskötsstundu. Veistu! Ég get ekki útskýrt þetta almennilega. Það sem gerðist var að okkur var ekki lengur skemmt saman. Þegar það er ekki gaman lengur þarf maður að endurskoða sambandið og áherslurnar," útskýrði Jenny. Jenny tók sér góðan tíma fyrst þegar hún kynntist Jim og lagði áheruslu á að þau væru alls ekki saman af því að þau voru þekktir einstklingar heldur af því að þau voru ástfangin af hvort öðru. Það er erfitt að vera þekktur í Hollywood og verða ástfanginn. Ég passaði mig þegar ég hitti Jim. Ég fór handan egósins míns og spurði hvernig mér liði gagnvart honum í þessu umhverfi og kannaði rækilega öll mín gildi og komst að því að ég var ástfangin. Ég enda alltaf á löppunum ég er stríðsmaður inn í mér. Ég mun komast yfir þetta ég veit það." Jenny á einn son, Evan, 8 ára, með fyrrverandi eiginmanni, John Mallory Asher. Ástin gu Lífið 28.9.2010 09:15
Bubbi gerir sálarplötu „Ætli ég verði ekki bara að segja hlutina eins og þeir eru; ég hlustaði alveg gríðarlega mikið á þessa tónlist í gegnum reykingar á árunum 1974-78," segir Bubbi Morthens. Lífið 28.9.2010 09:00
Ánægður með handrit Leikaranum Zach Galifianakis finnst handritið að framhaldsmyndinni The Hangover 2 betra en handritið að fyrstu myndinni. Lífið 28.9.2010 08:45
Rúnar gefur út Fall Rúnar Þórisson, sem hefur spilað á gítar með hljómsveitinni Grafík, gefur út sólóplötuna Fall hinn 5. október næstkomandi. Lífið 28.9.2010 08:00
Opnunarhátíð Hörpu í maí Starfsemi tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu var kynnt á blaðamannafundi í gær. Fyrstu tónleikarnir verða haldnir 4. maí 2011. Hönnun og fyrirhuguð starfsemi tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu var kynnt á blaðamannafundi í húsinu í gær. Lífið 28.9.2010 07:30
Armstrong á Broadway Billie Joe Armstrong, söngvari rokksveitarinnar Green Day, kemur fram í söngleik á Broadway sem er byggður á plötu þeirra, American Idiot. Lífið 28.9.2010 07:15
Draumur að vinna heima Söngkonan úr hljómsveitinni No Doubt, Gwen Stefani, segir það erfitt að ala upp tvo syni sína á sama tíma og hún byggir upp feril sinn sem fatahönnuður. Fatalínan hennar kallast L.A.M.B. og hefur hún vakið mikla athygli. Lífið 28.9.2010 06:30
Uppselt á Airwaves Uppselt er á Iceland Airwaves-hátíðina sem verður haldin um miðjan október. Lífið 28.9.2010 06:00
Draumar rætast Leikkonan Ashley Greene, 23 ára, sem sló í gegn í Twilight myndinum sem vampíran Alice Cullenscript var aðdáandi Twilight sögunnar áður en hún var valin að leika í myndinni. Ég var búin að lesa bókina og var aðdáandi númer eitt áður en ég komst áfram í áheyrnarprufunum," viðurkenndi Ashley. Leikkonan starfaði sem fyrirsæta og reyndi fyrir sér í Hollywood sem leikkona áður en draumur hennar rættist. Ashley elskar að lesa bækur og fara á seglbretti á milli þess sem hún hefur úr nægum verkefnum að velja eftir að þátttöku hennar í Twilight ævintýrinu. Lífið 27.9.2010 17:15
Glatað deit með athyglissjúkum einkaþjálfara Leikkonan Katherine Heigl, 31 árs, segir að versta stefnumót sem hún hefur nokkurn tíman farið á var með athyglissjúkum einkaþjálfara. Umræddur þjálfari bauð Katherine út þegar hún var aðeins 18 ára gömul eftir að hún byrjaði að æfa á líkamsræktarstöðinni, þar sem hann starfaði, til að letta sig og komast í gott líkamlegt form. Á þessum tíma var ég 10 kílóum of þung og ég reyndi eins og ég gat að létta mig í ræktinni. Hann bauð mér út, bauð mér í glas og spurði hvort ég gæti fengið umboðsmanninn minn til að hjálpa honum að verða leikari," útskýrði Katherine og bætti við: Þá áttaði ég mig á því að hann hafði ekki áhuga á mér heldur umboðsmanninum mínum." Katherine, sem var þá byrjuð að leika í kvikmyndum eins og myndinni That Night, árið 1992, þar sem hún fór með aukahllutverk. Þá lék hún með engum öðrum leikaranum Steven Seagal árið 1995 í myndinni Under Siege 2: Dark Territory. Lífið 27.9.2010 16:30
Kate Moss þráir barn Á meðfylgjandi myndum má sjá bresku fyrirsætuna Kate Moss, 36 ára, sem þráir fátt annað en að eignast barn með unnusta sínum, rokkaranum Jamie Hince, 42 ára. Kate, sem er byrjuð að taka inn fólinsýru til að auka líkurnar á að verða barnshafandi, á sjö ára dóttur, Lilu Grace, með ritstjóra tímaritsins Dazed & Confused Jefferson Hack. Sagan segir að Kate og Jamie, sem hún féll fyrir árið 2007, ætli að einbeita sér að því að eignast barn áður en þau gifta sig. Lífið 27.9.2010 15:30
Heimsfræg háð baugahyljara Sjónvarpsstjarnan Kim Kardashian, 29 ára, segist ekki geta verið án baugahyljara sem hún setur undir augun áður en hún púðrar yfir andlitið. Kim, sem er talin vera ein af kynþokkafyllstu konum í Hollywood, getur að eigin sögn ekki verið án baugahyljarans. Ég elska maskarann minn en svo er ég með dökka bauga undir augunum og þess vegna er ég háð baugahyljaranum mínum. En ég er alltaf með púður og kinnalitinn minn með mér í snyrtitöskunni því ég vil vera fersk í andlitinu þegar ég fer út," sagði Kim. Kim viðurkennir að hún gengur um heima hjá sér ómáluð og þegar hún fer út fyrir hússins dyr ómáluð passar hún sig að setja á sig sólgleraugu. Til þess eru sólgleraugun! Þau eru til þess að hylgja baugana. Ef þú sérð mig í blöðunum með sólgleraugu er það yfirleitt af því að þá er ég ómáluð." Lífið 27.9.2010 14:00