Lífið

Rétt missti af gullinu

Nýjasta plata rapparans Kanye West, My Beautiful Dark Twisted Fantasy, fór beint í efsta sætið á bandaríska vinsældalistanum sína fyrstu viku á lista. Þetta er fjórða plata West sem nær þessum merka áfanga. Alls seldust 496 þúsund eintök af plötunni og vantaði því aðeins fjögur þúsund upp á að hún næði gullsölu. Nýjasta platan hefur selst aðeins betur en hans síðasta, 808 and Heartbreaks, sem kom út fyrir tveimur árum. Besta árangrinum náði West með plötunni Graduation sem seldist í 957 þúsund eintökum árið 2007.

Lífið

Dönsuðu allsberir með hatt á kynfærunum

Meðfylgjandi myndir voru teknar á konukvöldi sem haldið var á skemmtistaðnum Players 3. desember síðastliðinn. Fjöldi kvenna mætti og skemmti sér konunglega. Sigríður Klingenberg stjórnaði fögnuðinum, Beggi og Pacas töfruðu fram frábæra rétti, Bjarni Töframaður spilaði réttu tónlistina, Brynja Valdís leikkona var með uppistand og jólasveinar fækkuðu fötum eins og sagði í tilkynningunni og greinilega má sjá á myndunum.

Lífið

Hjaltalín til Evrópu

Hljómsveitin Hjaltalín heldur á sunnudag í tónleikaferð til Þýskalands og Belgíu og stendur ferðin til 18. desember. Tónleikarnir verða sex talsins og verða fimm þeirra í Þýskalandi. Snorri Helgason mun hita upp á tónleikunum í Þýskalandi.

Lífið

Vill meiri illsku

Gamanleikarinn Will Ferrell er orðinn þreyttur á því að leika sömu persónurnar og vill spreyta sig á vondum körlum í auknum mæli. Hann lék hinn illa Mustafa í Austin Powers-myndunum og hafði mjög gaman af því. „Ég hef ekki fengið að prófa þetta nógu oft. Mustafa var vondur en hann var í aukahlutverki og entist ekki lengi,“ sagði Ferrell. „Illska hans fékk ekki að njóta sín nógu vel.“

Lífið

Fyrsta platan í febrúar

Ný hljómsveit Liams Gallagher, Beady Eye, gefur út sína fyrstu plötu 28. febrúar. Hún nefnist Different Gear, Still Speeding og hefur að geyma þrettán lög, þar á meðal fyrsta smáskífulagið Bring the Light. Einnig eru á plötunni lög á borð við Four Letter Word, Millionaire og Beatles and Stones. Upptökustjóri plötunnar er Steve Lilywhite, sem er þekktastur fy

Lífið

Gekkst undir höfuðaðgerð og fékk nýja sýn á lífið

Sigrún Linda Karlsdóttir listakona sem málar meðal annars myndir af stjörnumerkjunum tólf, sem skoða má á stjörnumerki.is, gekkst undir stóra höfuðaðgerð fyrir tveimur árum. Þá breyttust áherslur hennar og hún gerði sér grein fyrir því hversu fallvalt lífið er. „Ég hef haft áhuga á að teikna síðan ég man eftir mér," svarar Sigrún og heldur áfram:

Lífið

Fagna plötuútgáfu

Plötuútgáfan Record Records ætlar að fagna uppskeru ársins með veglegri tónleikaveislu á Faktorý á föstudags- og laugardagskvöld. Ensími, Bloodgroup, Of Monsters and Men og Sing For Me Sandra stíga á svið fyrra kvöldið en Agent Fresco, Moses Hightower, For a Minor Reflection og Útidúr á því síðara.

Lífið

Dóttir Jims Carrey skilin

Dóttir gamanleikarans Jims Carrey, Jane, hefur skilið við eiginmann sinn Alex Santana eftir einungis eins árs hjónaband. „Þau verða áfram vinir og munu annast í sameiningu uppeldi níu mánaðar sonar þeirra,“ sagði blaðafulltrúi leikarans. Jane Carrey, sem er 23 ára, eignaðist Jackson Riley, eina barn

Lífið

Arnaldur og Yrsa að stinga af í jólabókaflóði ársins

„Þetta er alveg magnað, við höfum prentað tíu þúsund eintök og höfum núna selt sjö þúsund. Þetta er hennar langbesta byrjun á jólabókavertíðinni og allt útlit fyrir að hún slái eigið sölumet,“ segir Pétur Már Ólafsson, útgefandi hjá Veröld.

Lífið

Langþráð vítamínsprauta

Þögnin hefur verið rofin því fyrsta plata Apparat Organ Quartet í átta ár, Pólýfónía, er loksins að koma út. Útgáfutónleikar verða á Nasa á fimmtudagskvöld þar sem öllu verður tjaldað til.

Lífið

Gerir grín að Jóni stóra

Helgi Jean Claesson hefur sent frá sér bók þar sem hinn umdeildi Jón stóri er til umfjöllunar. „Ég sá hann fyrst í ræktinni. Þá kom hugmyndin upp þegar ég sá hann tróna yfir öllum,“ segir rithöfundurinn og spéfuglinn Helgi Jean Claessen. Hann hefur gefið út sína fjórðu ádeilubók og í þetta sinn er hinn umdeildi Jón stóri, eða Jón Hilmar Hallgrímsson, í forgrunni. Jón var í fjölmiðlum fyrr á árinu í tengslum við Kúbverjamálið svokallaða.?-

Lífið

Spáir ekki í Simpson

Nick Lachey, fyrrverandi eiginmaður söngkonunnar Jessicu Simpson, er nú trúlofaður kærustu sinni, sjónvarpsstjörnunni Vanessu Minnillo. Stuttu eftir að trúlofun Lachey og Minnillo var gerð opinber lýsti Simpson því yfir að hún væri einnig trúlofuð sínum kærasta. Lachey segist þó lítið hafa velt sér upp úr þessari tilviljun.

Lífið

Ingó fluttur í fyrstu íbúðina

„Þetta leggst bara vel í mig,“ segir Ingólfur Þórarinsson, eða Ingó eins og hann er jafnan kallaður, en hann er fluttur frá Selfossi og í sína fyrstu íbúð. Fréttablaðið sagði frá því í september að Ingó væri búinn að festa kaup á íbúð í Gerðunum í Reykjavík og áætlað væri að hann myndi flytja inn í byrjun desember. Hann er nú fluttur inn og byrjaður að innrétta.

Lífið

Ellen fagnar plötuútgáfu

Söngkonan Ellen Kristjánsdóttir heldur útgáfutónleika á Kaffi Rósenberg í kvöld kl. 21. Tilefnið er útgáfa plötunnar Let Me Be There sem var tekin upp í samstarfi við gítarleikarann Pétur Hallgrímsson. Tíu lög eru á plötunni, átta eftir Pétur en hin tvö eftir Ellen. Auk þeirra tveggja spila á plötunni Jakob

Lífið

André Bachmann lagður inn á sjúkrahús

„Hann vaknaði um daginn með þvílíka magapínu sem endaði með því að hann var lagður inn,“ segir Jóhannes Bachmann, bróðir André Bachmann sem hefur skipulagt jólaball fatlaðra undanfarin ár.

Lífið

Guðmundur hannar fyrir GK

Guðmundur Jörundsson mun hanna klassísk hversdagsföt fyrir verslunina GK. Hann verður þó áfram yfirhönnuður hjá Kormáki & Skildi. Guðmundur Jörundsson fatahönnuður hefur verið ráðinn til að hanna nýja herrafatalínu fyrir tískuverslunina GK Reykjavík. Guðmundur lætur þó ekki af störfum sem yfirhönnuður Herrafataverslunar Kormáks & Skjaldar heldur mun hann sinna báðum verkefnum.

Lífið

Ástin er bara í myndböndunum

Anna Þóra Alfreðsdóttir, fyrirsæta hjá Eskimo, lék nýverið í tónlistarmyndbandi við nýtt jólalag hinnar vinsælu hljómsveitar Hurts. Þetta er í annað sinn sem Anna Þóra leikur í myndbandi með hljómsveitinni en í bæði skiptin leikur hún stúlkuna sem söngvari hljómsveitarinnar, Theo Hutchcraft, er hugfanginn af.

Lífið

Þessi köttur er algjör rúsína

Á meðfylgjandi myndum, sem teknar voru í útgáfuboði rithöfundarins Belindu Theriault sem skrifaði bók um köttinn Birtu, er kisan algjör rúsína. Það vakti mikla lukku viðstaddra þegar Birta áritaði bókina í Máli og menningu um helgina.

Lífið

Winona leikur að nýju

Winona Ryder var ein vinsælasta leikkonan í Hollywood á tíunda áratugnum og lék hún meðal annars í kvikmyndum á borð við Edward Scissorhands, Dracula og Reality Bites.

Lífið

Glee-leikarar hætta

Ryan Murphy, höfundur hinna vinsælu þátta um krakkana í Glee, hefur tilkynnt að meirihluti leikaranna muni líklegast hætta árið 2012. Ástæðan ku vera sú að persónurnar í þáttunum verða þá útskrifaðar úr menntaskóla og því þurfi aðrir leikarar að taka við.

Lífið

Jessica ekki ólétt

Slúðurmiðlar vestanhafs hafa haldið því fram að söngkonan Jessica Simpson beri barn undir belti.

Lífið

Svaf hjá þremur konum á dag

Söngvarinn Mick Hucknall hefur beðist afsökunar á framferði sínu á níunda áratugnum þegar hann svaf hjá yfir eitt þúsund konum á þriggja ára tímabili.

Lífið

Fann loks ástina

Ryan Seacrest, kynnir American Idol, bað kærustu sinnar í rómantískri ferð til Parísar fyrir stuttu. Seacrest og leikkonan Julianne Hough hafa verið saman síðan í sumar.

Lífið

Dætur í stað dóps

Shaun Ryder, fyrrverandi söngvari bresku hljómsveitarinnar Happy Mondays, þakkar tveimur dætrum sínum fyrir breyttan lífsstíl sinn.

Lífið

Brotist inní tölvu Gaga

Samkvæmt fréttamiðlum vestanhafs hafa þýskir tölvuhakkarar brotist inn í tölvur Lady Gaga, Ke$hu og annarra tónlistarmanna og leikara. Samkvæmt sömu fréttum stálu hakkararnir meðal annars nektarmyndum.

Lífið