Lífið

Lifa bóhemlífi í München

„Ég seldi fyrirtækið áður en kreppan skall á en var samt enn fullur af fjöri. Ég rak auðvitað gallerí í tuttugu ár og núna fæ ég útrás fyrir sköpunargleðina fyrir framan strigann,“ segir Sævar Karl Ólason, fyrrum kaupmaður.

Lífið

Ný tónlistarhátíð haldin í vor

„Það vantar bara partí,“ segir Kristján Freyr Halldórsson hjá Kimi Records. Útgáfufyrirtækið skipuleggur í fyrsta sinn tónlistarhátíðina Reykjavík Music Mess sem verður haldin dagana 16. og 17. apríl.

Lífið

Almúgapartý á Gullöldinni í kvöld

„Þetta partý verður hreint út sagt frábært og verða heimatilbúin skemmtiatriði eins og við gerum best hérna á Gullöldinni," segir Davíð Þór Rúnarsson hjá Gullöldinni í Grafarvogi. Í kvöld verður „Almúgapartý" á Gullöldinni en hugmyndin kom eftir að grein birtist á vefnum bleikt.is um VIP-partý á Replay.

Lífið

Hræðileg æskuár

Spjallþáttadrottningin Oprah birti nýverið langt og ítarlegt sjónvarpsviðtal við leikarann David Arquette þar sem hann ræðir meðal annars um erfiða æsku sína. Systur hans tvær, leikkonurnar Rosanna og Patricia Arquette, komu einnig fram í viðtalinu og lýstu erfiðri æsku sinni.

Lífið

Eltihrellir handtekinn

Nálgunarbann hefur verið sett á brjálaðan aðdáanda leikkonunnar Sharon Stone. Maðurinn má ekki koma nær húsi leikkonunnar og þriggja barna hennar en eitt hundrað metra. Hann sást á lóð hennar fyrr í mánuðinum og í framhaldinu var hann handtekinn af lögreglu og fluttur á geðdeild.

Lífið

Verzlunarskóladama valin ungfrú Reykjavík

Verzlunarskóladaman Sigríður Dagbjört Ásgeirsdóttir var valin ungfrú Reykjavík á veitingahúsinu Broadway í gærkvöldi. Eyrún Anna Tryggvadóttir landaði öðru sæti og Hjördís Hjörleifsdóttir því þriðja. Meðfylgjandi má sjá myndir frá keppninni en gríðarlega góð stemning var á þéttsetnu veitingahúsinu eins og myndirnar sýna greinilega. Halldóra Arnardóttir var kosin vinsælasta stúlkan í hópnum og Lilja Ragna Róbertsdóttir sigraði símakosninguna.

Lífið

Dusta rykið af týndu plötunni með Fídel

Hljómsveitin Fídel þótti gríðarlega efnileg á sínum tíma og sendi frá sér magnaða plötu, áður en hún hætti skyndilega. Nú hafa meðlimir hljómsveitarinnar dustað rykið af týndum upptökum.

Lífið

Götutískan í Kaupmannahöfn

Kaupmannahafnarbúar hafa ávallt þótt vera með puttann á tískupúlsinum. Föstudagur Fréttablaðsins ákvað að nýta tækifærið og fara á stúfana með ljósmyndaranum Hildi Maríu Valgarðsdóttur og mynda smekklega borgarbúa meðan á tískuvikunni í Kaupmannahöfn stóð. Hér má sjá afraksturinn af því.

Lífið

Strákarnir látnir strippa

Lilja Katrín Gunnarsdóttir leikkona viðurkennir meðal annars í myndskeiðinu að karlleikarar þáttanna sýndu hold en ekki kvenkynsleikararnir en þar verða áhorfendur að láta ímyndunaraflið ráða ferðinni.

Lífið

Oprah með íslenska hönnun um sig miðja

Unnur Friðriksdóttir hönnuður gerir það gott í Los Angeles þar sem hún rekur fyrirtækið UNNURWEAR. Ýmsar stjórstjörnur eru í hópi viðskiptavina Unnar og nýverið bættist sjálf spjallþáttadrottningin Oprah Winfrey við.

Lífið

Ferðast um Evrópu

Rokksveitin Agent Fresco er að skipuleggja tónleikaferð um Evrópu í júní og júlí. Þetta verður fyrsti alvöru túr sveitarinnar um Evrópu en hingað til hefur hún verið úti í mesta lagi fimm daga í einu.

Lífið

Hitar upp fyrir ferðalag

Hljómsveitin Hjaltalín hitar upp fyrir væntanlega tónleikaferð sína um Evrópu með tvennum tónleikum á Rosenberg í kvöld og annað kvöld. Þetta verða fyrstu tónleikar Hjaltalín hér á landi í þrjá mánuði.

Lífið

Kvöddu látinn félaga

Meðfylgjandi myndir voru teknar á miðvikudaginn á tónleikum sem haldnir voru á vegum Extreme Chill og Weirdcore á veitingahúsinu Kaffibarnum fyrir tónlistarmanninn Bjössa Biogen, eða Sigurbjörn Þorgrímsson, en hann féll frá 8. febrúar síðastliðinn. Bjössi var vel þekktur hér á landi sem einn af frumkvöðlum í íslensku dans og raftónlistar senunni og naut mikillar virðingar sem tónlistarmaður bæði hérlendis og erlendis. Listamenn á borð við Ruxpin, Yagya, Futurergrapher, Beatmakin Troopa , AnDre, Skurken, Tanya Pollock, Frank Murder, Krummi Björgvinsson, Steve Sampling og fleiri spiluðu tónlist þetta kvöld til heiðurs Bjössa.

Lífið

Bodyguard endurgerð

Til stendur að endurgera kvikmyndina The Bodyguard, sem kom út árið 1992 með Kevin Costner og Whitney Houston í aðalhlutverkum.

Lífið

Stillimyndin hverfur af skjánum

„Ég vona að þjóðin sé sammála mér um það að við séum búin að hafa stillimyndina of lengi,“ segir Sigrún Stefánsdóttir, dagskrárstjóri Ríkissjónvarpsins.

Lífið

Vaxandi vinsældir fjárhundsins í Ameríku

„Við fáum fjölmargar fyrirspurnir um íslenska fjárhundinn – eiginlega of margar, þar sem við teljum að hundurinn sé ekki fyrir alla,“ segir Maggy Pease, forsvarsmaður ræktunarsambands íslenska fjárhundsins í Bandaríkjunum.

Lífið

Gert að laga hreiminn

Breska söngkonan Cheryl Cole hyggst hasla sér völl í bandarísku sjónvarpi sem dómari í raunveruleikaþáttaröðinni X-Factor. Hún á þó erfitt verkefni fyrir höndum.

Lífið

Hannaði hlébarðasamfestinginn sjálf

"Ég vissi á fimmtudeginum fyrir Edduverðlaunahátíðina að ég myndi mæta og hugsaði að þyrfti ég að fara upp á svið yrði ég hvort sem er allt öðruvísi en aðrir í salnum, svo ég ákvað að gera þetta bara á minn hátt," segir Bjarnheiður Hannesdóttir, sem vakið hefur athygli fyrir þröngan samfesting með hlébarðamynstri sem hún klæddist á hátíðinni.

Lífið

Vill ekki predika yfir fólki

Áttunda plata ensku söngkonunnar PJ Harvey, Let England Shake, er nýkomin út. Í textunum leitar hún í fyrsta sinn út á við í stað þess að kafa ofan í eigið tilfinningalíf.

Lífið

Syngur ekki Oasis-lög

Liam Gallagher ætlar ekki að syngja lög með fyrrverandi hljómsveit sinni Oasis á væntanlegri tónleikaferð sinni um Evrópu með nýja bandinu Beady Eye. Í viðtali við BBC sagði hann að um leið og hann myndi syngja eitt Oasis-lag yrðu mörg að fylgja í kjölfarið.

Lífið

Stelur fötum af dótturinni

Madonna er farin að færa sig upp á skaftið í samskiptum við dóttur sína með því að fá lánuð föt af henni án þess að biðja um leyfi.

Lífið

Óskar fellur fyrir kóngi

Á sunnudagskvöldið er komið að því að kvenkynsstjörnur Hollywood eyði milljónum í útlit sitt og karlarnir troði jafnvel bótoxi í ennið sitt. Það er nefnilega Óskarskvöld, mesta glamúrveisla ársins þar sem tár, gremja og gleði ráða ríkjum.

Lífið

Neeson á toppinn

Hver hefði trúað því að Liam Neeson ætti eftir að verða næsta ofurstjarna í Hollywood á sextugsaldri? Sennilega Liam Neeson en nýjasta kvikmynd hans, Unknown, settist makindalega í toppsætið í Bandaríkjunum um helgina. Neeson, sem áður fékk einungis hlutverk lífsleiðra manna eða nasistaforingja, hefur náð augum og eyrum Hollywood-framleiðenda og verður að teljast heitasta „gamalmenna“-hetjan um þessar mundir. Hefur allavega skotið Harrison Ford ref fyrir rass.

Lífið

Kröftugir tónleikar

Rokksveitin Agent Freso hélt útgáfutónleika á dögunum í tilefni fyrstu plötu sinnar, A Long Time Listening, sem kom út fyrir síðustu jól.

Lífið

Kiefer undirbýr nýja sjónvarpsseríu

Kiefer Sutherland og Charlie Sheen eiga tvennt sameiginlegt. Þeim tókst báðum næstum að rústa ferli sínum með eiturlyfjaneyslu og brennívini og var báðum bjargað af sjónvarpi. Sutherland blés miklu lífi í sinn feril sem Jack Bauer í 24 og Charlie Sheen á fyrir sínum reikningum með þáttaröðinni Two and a Half Men.

Lífið

John Grant á Airwaves

Bandaríski tónlistarmaðurinn John Grant kemur fram á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves í október. Grant náði athygli tónlistarunnenda með plötunni The Queen of Denmark á síðasta ári og var hún valin plata ársins hjá breska tónlistartímaritinu Mojo.

Lífið

Hefner í það heilaga

Hugh Hefner hefur tilkynnt að hann hyggist kvænast hinni brjóstgóðu Crystal Harris hinn 18. júní. Athöfnin fer að sjálfsögðu fram á Playboy-setrinu. Þetta kom fram í spjallþætti Piers Morgan á CNN.

Lífið