Erlent

Hlutabréf féllu hratt í Asíu

Hlutabréf í Asíu féllu hratt eftir að tilkynnt var um kjarnorkutilraun Norður Kóreumanna. Í Suður Kóreu féllu hlutabréf um rúmlega 2%á meðan Hong Kong hélt rúmlega 1% lækkun. Breska ríkisútvarpið sagði fjárfesta óttast að stjórnmálakreppa hefði mjög neikvæð áhrif á markaði í Asíu, en að viðbrögð við tilrauninni myndu ráða þar miklu um.

Erlent

30 létust í Írak

Þrjátíu manns létu lífið í bardögum sem brutust út í Suður-Írak í gær milli Bandarískra-Íraskra hermanna og öfgasinnaðra shíta. Þetta er í annað sinn á innan við tveim mánuðum sem fylkingarnar berjast.Bardagarnir brutust út eftir að Írakar og Bandaríkjamenn réðust á hús shítaklerks og stóðu fram á morgun.

Erlent

Norður Kóreumenn gerðu tilraun með kjarnavopn í morgun

Norður Kóreumenn sprengdu kjarnorkusprengju neðanjarðar í norðurhluta landsins klukkan rúmlega 1:30 að íslenskum tíma, þrátt fyrir hörð mótmæli alþjóðasamfélagsins. Norður Kóreska ríkisfréttastofan hefur tilkynnt að kjarnorkutilraunin hafi gengið vel og að ekki hafi orðið vart við leka á geislavirkum efnum.

Erlent

Andstaða við innflytjendur

Ríkisstjórnarflokkarnir í Belgíu biðu ósigur í sveitarstjórnarkosningum í gær. Sigurvegarar kosninganna voru hægri flokkar, ekki síst Flæmski hagsmunaflokkurinn sem berst hatrammlega gegn innflytjendum.

Erlent

Ætla að banna reykingar

Við höfum ákveðið að banna tóbak í opinberum byggingum, sagði Dominique de Villepin, forsætisráðherra Frakklands, í gær. Hann sagði að bannið myndi taka gildi í febrúar, og ná þá til skóla og skrifstofubygginga, en sumar tegundir af fyrirtækjarekstri verða þó undanþegnar banninu út allt næsta ár. Þar er einkum átt við veitingahús, bari og dansstaði.

Erlent

Var að ljúka grein umpyntingar í Tsjetsjeníu

Rússneska blaðakonan Anna Politskovskaja vann að grein um pyntingar og mannshvörf í Tsjetsjeníu þegar hún var myrt. Starfsfélagar hennar treysta ekki stjórnvöldum í Rússlandi og ætla sjálfir að rannsaka morð hennar.

Erlent

Stjórnin náði meirihluta

Samsteypustjórnin í Litháen náði naumlega meirihluta í þingkosningum sem haldnar voru þar á laugardag, en hún hefur til þessa verið minnihlutastjórn. Þetta er í fyrsta sinn sem ríkisstjórn í landinu fellur ekki í kosningum frá því að það varð sjálfstætt árið 1991.

Erlent

Sjávargróður truflar orkuver

Draga þurfti úr orkuframleiðslu í kjarnorkuverinu Higashidori í Japan um sextíu prósent vegna þess að sjávargróður komst í vatns­inntak á föstudaginn og olli því að skortur varð á kælivatni.

Erlent

Geislamengun loks fjarlægð

Stjórnvöld á Spáni og Bandaríkjunum hafa náð samkomulagi um að fjarlægja geislamengun úr spænska bænum Palomares fjörutíu árum eftir að fjórar bandarískar kjarnorkusprengjur féllu á svæðinu eftir árekstur tveggja bandarískra herflugvéla.

Erlent

Yfir hundrað lík hafa fundist

Leitarflokkar halda áfram að leita að líkum í Amazon frumskóginum eftir hræðilegasta flugslys Brasilíu sem átti sér stað fyrir meira en viku síðan.

Erlent

Rangar niðurstöður angra konur

Konur þjást mun meir en áður hefur verið talið, þegar þær eru kallaðar aftur í brjóstakrabbameinsskoðun vegna gruns um að æxli hafi fundist sem síðan reynist ekki á rökum reistur. Þetta kemur fram í nýrri danskri rannsókn sem fjallað er um í danska blaðinu Politiken.

Erlent

Jafnaðarmenn eru nú stærstir

Fylgi við Jafnaðarmannaflokkinn hefur aukist mjög í Danmörku undanfarin misseri eftir að hafa náð sögulegu lágmarki fyrr á árinu. Samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem dagblaðið Politiken sagði frá í gær mælist flokkurinn nú stærsti flokkur Danmerkur.

Erlent

Vill stórefla Íslandstengsl

Sendifulltrúi Taívans segir landa sína hafa áhuga á að efla tengsl við Ísland. Breyti þar engu þótt löndin eigi bágt með að vera í formlegu stjórnmálasambandi.

Erlent

Spænska veikin rannsökuð

Fuglaflensa geisar enn um heiminn og vísindamenn reyna enn árangurslítið að finna lækningu við sjúkdómnum. En nýjar rannsóknir á spænsku veikinni lofa góðu.

Erlent

Leitað að fórnarlömbum flugslys

Brasilísk stjórnvöld sendu í dag áttatíu hermenn til viðbótar til að taka þátt í leit á Amazon svæðinu að fórnarlömbum flugslys. Slysið er versta fluglslys í sögu landsins en 154 létu lífið þegar flugvéli hrapaði á svæðinu 29. september síðastliðinn.

Erlent

Múslimar reiðir Dönum

Ný Múhameðsmyndadeila gæti verið í uppsiglingu eftir að fréttir bárust af því að ungliðar í Danska þjóðarflokknum hefðu haft spámanninn að háði og spotti. Formaður flokksins segir að um saklaust grín hafi verið að ræða en múslimar í Arabaheiminum hóta aðgerðum.

Erlent

Fjórir létust í sprengingu í Bagdad

Fjórir létust og tveir særðust þegar sprengja sprakk við vegkant nálægt Tíkrit í Írak í dag. Þeir slösuðu vrou fluttir á Tæknisjúkrahúsið í Tíkrit. Sprengjan sprakk um hundrað og þrjátíu kílómetra norður af Bagdad.

Erlent

Íranar vanir hótunum

Utanríkisráðherra Írana sagði í dag Írana vana hótunum um refsiaðgerðir og að þær hefðu engin áhrif á áform þeirra um að auðga Úran.

Erlent

Harðir bardagar í Diwaniya

Bandarískar og íraskar hersveitir felldu tuttugu liðsmenn úr herflokki sjíaklerksins Muqtada al-Sadr í hörðum bardaga í borginni Diwaniya í nótt.

Erlent

Abe kominn til Kína

Shinzo Abe, forsætisráðherra Japans, er staddur í Kína í fyrstu opinberu heimsókn japansks leiðtoga þangað í fimm ár. Frá Kína mun Abe svo halda til Suður-Kóreu.

Erlent

Kalvitis lýsir yfir sigri

Ríkisstjórnin í Lettlandi hélt velli í þingkosningum sem fram fóru í landinu í gær, þeim fyrstu frá því ríkið gekk í Evrópusambandið fyrir rúmum tveimur árum.

Erlent

Hreinsunareldur endurskoðaður

Hreinsunareldurinn, staður á milli himnaríkis og helvítis, gæti brátt verið afnuminn af kaþólsku kirkjunni. Öldum saman hafa rómversk-kaþólikkar trúað því að sálir barna sem deyja áður en þau eru skírð fari í hreinsunareldinn.

Erlent

Fræg blaðakona myrt í Rússlandi

Rússnesk blaðakona, sem var þekkt fyrir harða gagnrýni sína á stjórn Pútíns Rússlandsforseta, fannst myrt í gær. Anna Politkovskaja, 48 ára og tveggja barna móðir, fannst skotin til bana í lyftu fjölbýlishúss í Moskvu með byssu og fjögur skothylki við hlið sér. Lögregla telur að morðið tengist vinnu hennar.

Erlent

Ríkisstjórn hélt líklegast velli

Lettar gengu að kjörborði í gær, í fyrsta sinn síðan þjóðin gekk í Evrópusambandið fyrir um tveimur árum. Þrátt fyrir að stjórnarandstöðuflokkur hafi naumlega verið með flest atkvæði samkvæmt útgönguspám er búist við að ríkisstjórn landsins haldi velli í kosningunum, en hún er undir forystu þjóðarflokksins.

Erlent

Aukin spenna við landamærin

Suðurkóreski herinn skaut fjörutíu viðvörunarskotum að hermönnum í Norður-Kóreu sem fóru yfir landamæri sem skilja ríkin að í gærmorgun. Búist er við að Norður-Kóreumenn sprengi kjarnorkusprengju í tilraunaskyni á allra næstu dögum, jafnvel í dag. Spenna á svæðinu hefur aukist jafnt og þétt eftir því sem nær dregur kjarnorkutilraununum.

Erlent