Erlent Ban verður eftirmaður Annans Allsherjarþing Sameinuðu Þjóðanna mun hittast á morgun og skipa Ban Ki-moon utanríkisráðherra Suður Kóreu í embætti næsta aðalritara Sameinuðu Þjóðanna. Tæpir þrír mánuðir eru þangað til Ban tekur við stjórn af Kofi Annan sem lætur af störfum 1. janúar næstkomandi eftir tíu ár í embættinu. Erlent 12.10.2006 11:56 Orhan Pamuk hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Tyrkneski rithöfundurinn Orhan Pamuk hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum fyrir um klukkustund. Pamuk er fimmtíu og fjögurra ára og hefur gefið út átta skáldsögur. Verk hans hafa notið mikillar hylli bæði í heimalandinu og annars staðar, en þau hafa verið þýdd á meira en fjörutíu tungumál en þó ekki á íslensku. Erlent 12.10.2006 11:03 Samþykkti umdeilt frumvarp um þjóðarmorð Tyrkja á Armenum Neðri deild franska þingsins samþykkti í dag frumvarp sem gerir það refsivert að neita því að Armenar hafi sætt þjóðernishreinunum af hálfu Ottómanaveldis Tyrkja árið 1915. Tyrkir hafa mótmælt þessari lagasetningu hástöfum og segja að hún muni skaða samskipti þjóðanna. Erlent 12.10.2006 10:11 Drápu átta menn á sjónvarpsstöð í Bagdad Byssumenn réðust í morgun inn á sjónvarpsstöð í Bagdad og drápu átta menn sem þar voru að störfum. Írösk lögregla segir mennina hafa verið í lögreglubúningum og ekið upp að stöðinni í bílalest þar sem þeir stöðvuðu og skutu öryggisverði fyrir utan bygginguna og tæknimenn sem voru inni. Erlent 12.10.2006 09:44 Bandaríkjamenn senda öryggisráði nýja ályktun Bandaríkjamenn hafa samið ný drög að ályktun um refsiaðgerðir til öryggisráðs Sameinuðu Þjóðanna gegn Norður Kóreu eftir kjarnorkutilraun þeirra í byrjun vikunnar. Þeir vilja að ráðið greiði atkvæði um drögin fyrir morgundaginn, þrátt fyrir andstöðu Kína gegn hluta af tillögunum um efnahags-og vopnaþvinganir. Erlent 12.10.2006 08:59 Fimm manns létust í lestarslysinu Nú er ljóst að færri létust í lestarslysinu í Frakklandi í gær en talið var í fyrstu og er tala látinna fimm, en ekki tólf eins og fréttaskýrendur greindu frá í gær. Við áreksturinn lyftust sumir vagnanna upp og einn lenti ofan á öðrum með þeim afleiðingum að hann pressaðist saman. Tekist hefur að ná fjórum líkum af fimm, en ekki er ljóst hvort enn er fólk á lífi í rústunum. Erlent 12.10.2006 08:24 Þjóðþekktur hafnarboltamaður lést í flugslysi Tveir létust þegar lítil einkaflugvél flaug á fimmtíu hæða háhýsi á Manhattan í New York í gær. Báðir hinna látnu voru í flugvélinni, en annar þeirra var þjóðþekktur hafnarboltamaður hjá New York Yankees liðinu. Hann hét Cory Lidle, var með einkaflugmannspróf og hafði ítrekað fullvissað fjölmiðla um öryggi hans í flugi, en lið hans missti leikmann í flugslysi fyrir aldarfjórðungi. Erlent 12.10.2006 08:06 Flugvél flaug á byggingu í New York Lítilli einkaflugvél var flogið inn í 50 hæða háhýsi á Manhattan eyju í New York undir kvöld að íslenskum tíma. Skráður eigandi að flugvélinni er Cory Lidle, hafnaboltaleikari hjá New York Yankees. Talið er að hann hafi flogið vélinni og hafi látið lífið, ásamt flugkennara sem var með honum. Erlent 11.10.2006 19:10 Danir bíða föstudagsins með kvíða Erlent 11.10.2006 16:53 Spilaði tölvuleik með hugarorku Erlent 11.10.2006 16:36 Morðingja Lennons synjað um reynslulausn Erlent 11.10.2006 16:06 Tólf látnir í lestarslysinu í Lorraine-héraði Tólf eru látnir og um tuttugu slasaðir eftir lestarslysið í Lorraine-héraði í Frakklandi í morgun þar sem farþegarlest og flutningalest rákust saman. Áreksturinn varð í Zoufftgen, nærri landamærunum að Lúxemborg, en farþegalestin var á leið til Nancy. Erlent 11.10.2006 16:01 Engin árás á Norður-Kóreu segir Bush Erlent 11.10.2006 15:27 Yfir 650 þúsund Írakar hafa fallið Erlent 11.10.2006 15:03 Fjárlagahalli í Bandaríkjunum 17 þúsund milljarðar á þessu ári Fjárlagahalli í Bandaríkjunum á þessu fjárlagaári nemur um 248 milljörðum bandaríkjadala, jafnvirði um 17 þúsund milljarða króna. Frá þessu greindi fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna í dag. Tekjur ríkissjóðs Bandaríkjanna hafa aldrei verið meiri en á þessu ári og ekki heldur útgjöld en engu að síður er fjárlagahallinn minni en í fyrra þegar hann var 319 milljarðar bandaríkjadala, um 21.700 milljarða króna. Erlent 11.10.2006 14:24 Geislavirkir sniglar á Spáni þar sem bandarísk sprengjuflugvél fórst Erlent 11.10.2006 13:56 Sterling uppvíst að annarri gjaldtöku Flugfélagið Sterling, sem nýverið varð uppvíst að því að innheimta opinberan flugskatt af hverjum farþega í Svíþjóð án þess að skatturinn væri til, er nú uppvíst af annarri gjaldtöku án þess að viðskiptavinirnir viti af. Erlent 11.10.2006 13:15 10 létust í lestarslysi í Frakklandi Að minnsta kosti 10 manns létust og tuttugu slösuðust í lestarslysi í Frakklandi í dag þegar farþegalest lenti í árekstri við vöruflutningalest sem kom úr gagnstæðri átt. Áreksturinn varð kl. 10.45 að íslenskum tíma í Zoufftgen í Norð-austurhluta landsins. Farþegalestin var á leið frá Lúxemborg til Nancy og hafði skipt um lestarteina, þar sem verið var að gera við teinana sem lestin átti að vera á. Erlent 11.10.2006 12:16 Önnur kjarnorkusprengja Japanskir fjölmiðlar segja frá því að hugsanlega hafi önnur kjarnasprengja verið sprengd í Norður Kóreu. Stjórnvöld í Pyongyang líta svo á að aukist þrýstingur Bandaríkjamanna jafngildi það stríðsyfirlýsingu. Þeir hafa hótað frekari kjarnatilraunum, en segjast einnig tilbúnir til bæði viðræðna og átaka. Erlent 11.10.2006 11:56 Alvarlegt lestarslys í Frakklandi Að minnsta kosti níu eru látnir og um tuttugu slasaðier eftir að farþegalest og flutningalest rákust saman í norðausturhluta Frakklands nú fyrir hádegið. Fregnir af slysinu eru enn óljósar og því gæti tala látinna átt eftir að hækka. Erlent 11.10.2006 11:33 Saddam Hussein mætir aftur í dómsal Saddam Hussein, fyrrverandi forseti Íraks, sneri aftur í dómsalinn í Bagdad í dag en dómari henti honum þaðan út í gær fyrir háreysti. Hussein og sex fyrrverandi samstarfsmenn hans innan ríkisstjórnar Íraks sæta nú réttarhöldum vegna ákæru um stríðsglæpi og þjóðarmorð á Kúrdum í valdatíð Husseins. Erlent 11.10.2006 11:01 Hóta frekari tilraunasprengingum í N-Kóreu Norður-Kóreumenn hóta frekari kjarnorkutilraunum ef Bandaríkin halda herskárri stefnu sinni gagnvart landinu til streitu. Frá þessu greina japanskir fjölmiðlar og hafa eftir Kim-Yong-nam, næstráðanda við Kim Jong-il, forseta landsins, að ef Bandaríkin haldi áfram að beita Norður-Kóreu þrýstingi muni stjórnvöld í Pyongyang svara því með áþreifanlegum aðgerðum. Erlent 11.10.2006 10:06 Gulrótarsafi orsakar lömun Tveir Kanadamenn eru lamaðir eftir að drekka eitraðan gulrótardjús sem innihélt bótúlín. Þrjár tegundir af gulrótarsafans með geymslutíma í Nóvember, voru innkallaðar eftir að fjögur tilfelli komu upp í Bandaríkjunum. Þrátt fyrir það voru í það minnsta 10 verslanir í Toronto sem seldu enn gulrótarsafann. Bótúlíneitrun orsakar lömun með því að leggjast á liðamót og taugar sem senda skilaboð til vöðva. Erlent 11.10.2006 09:45 Spánn vill aukinn hlut í Airbus Spænsk stjórnvöld vilja auka eignarhlut sinn á ný í fyrirtækinu EADS, sem framleiðir Airbus flugvélarnar. Spánarstjórn vill þannig tryggja að störf við smíði hluta í vélarnar haldist áfram á Spáni. Fyrirtækið hefur síðustu misseri færst meira í einkaeign frá ríkissjóðum nokkurra Evrópulanda. Nýverið kom í ljós allt að tveggja ára töf er orðin á afgreiðslu nýju A-380 vélarinnar sem er tveggja hæða risaþota. Erlent 11.10.2006 08:15 Íranar halda sig við kjarnorkuáætlun Íranar hafa tilkynnt að þeir muni ekki hverfa frá umdeildri kjarnorkuáætlun sinni. Í gær staðfesti forseti Íran, Mahmoud Ahmadinejad, áætlunina sem hann sagði vera í friðsamlegum tilgangi. Íran hafnaði kröfum öryggisráðs Sameinuðu Þjóðanna í lok ágúst að hætta auðgun úrans eða taka afleiðingunum. Erlent 11.10.2006 08:01 Sprengjum varpað að dönsku sendiráði Bensínsprengjum var varpað að danska sendiráðinu í Teheran í Íran í gær, aðeins nokkrum dögum eftir dreifingu myndbands sem sýndi unga Dani í sumarbúðum gera grín að spámanninum Múhameð. Myndböndin voru strax gagnrýnd og fordæmd af leiðtogum í Egyptalandi og Indónesíu, og nú eykst þrýstingur íranskra lagavarða á stjórnvöld þar í landi að þau skeri á efnahagstengsl við Danmörku. Erlent 11.10.2006 07:03 Vilja refsiaðgerðir Fastaríki öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna reyna nú að koma sér saman um aðgerðir gegn Norður-Kóreu eftir tilraun þeirra síðarnefndu með kjarnorkusprengju aðfaranótt mánudags. Kínverjar virðast hafa misst þolinmæðina gagnvart Kim Jong-Il og eru reiðubúnir að samþykkja harðar refsiaðgerðir. Innrás kemur þó ekki til greina. Erlent 10.10.2006 19:13 Fjórir fórust Fjórir fórust þegar leiguflugvél frá færeyska flugfélaginu Atlantic Airways rann út af flugbrautinni í Storð í Vestur-Noregi í morgun. Sextán voru um borð og náðu hinir tólf að komast sjálfir út úr flakinu, rétt áður en það varð alelda. Erlent 10.10.2006 19:11 Opnað aftur á Heathrow Erlent 10.10.2006 16:52 Putin fordæmir morð á blaðakonu Erlent 10.10.2006 16:16 « ‹ ›
Ban verður eftirmaður Annans Allsherjarþing Sameinuðu Þjóðanna mun hittast á morgun og skipa Ban Ki-moon utanríkisráðherra Suður Kóreu í embætti næsta aðalritara Sameinuðu Þjóðanna. Tæpir þrír mánuðir eru þangað til Ban tekur við stjórn af Kofi Annan sem lætur af störfum 1. janúar næstkomandi eftir tíu ár í embættinu. Erlent 12.10.2006 11:56
Orhan Pamuk hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Tyrkneski rithöfundurinn Orhan Pamuk hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum fyrir um klukkustund. Pamuk er fimmtíu og fjögurra ára og hefur gefið út átta skáldsögur. Verk hans hafa notið mikillar hylli bæði í heimalandinu og annars staðar, en þau hafa verið þýdd á meira en fjörutíu tungumál en þó ekki á íslensku. Erlent 12.10.2006 11:03
Samþykkti umdeilt frumvarp um þjóðarmorð Tyrkja á Armenum Neðri deild franska þingsins samþykkti í dag frumvarp sem gerir það refsivert að neita því að Armenar hafi sætt þjóðernishreinunum af hálfu Ottómanaveldis Tyrkja árið 1915. Tyrkir hafa mótmælt þessari lagasetningu hástöfum og segja að hún muni skaða samskipti þjóðanna. Erlent 12.10.2006 10:11
Drápu átta menn á sjónvarpsstöð í Bagdad Byssumenn réðust í morgun inn á sjónvarpsstöð í Bagdad og drápu átta menn sem þar voru að störfum. Írösk lögregla segir mennina hafa verið í lögreglubúningum og ekið upp að stöðinni í bílalest þar sem þeir stöðvuðu og skutu öryggisverði fyrir utan bygginguna og tæknimenn sem voru inni. Erlent 12.10.2006 09:44
Bandaríkjamenn senda öryggisráði nýja ályktun Bandaríkjamenn hafa samið ný drög að ályktun um refsiaðgerðir til öryggisráðs Sameinuðu Þjóðanna gegn Norður Kóreu eftir kjarnorkutilraun þeirra í byrjun vikunnar. Þeir vilja að ráðið greiði atkvæði um drögin fyrir morgundaginn, þrátt fyrir andstöðu Kína gegn hluta af tillögunum um efnahags-og vopnaþvinganir. Erlent 12.10.2006 08:59
Fimm manns létust í lestarslysinu Nú er ljóst að færri létust í lestarslysinu í Frakklandi í gær en talið var í fyrstu og er tala látinna fimm, en ekki tólf eins og fréttaskýrendur greindu frá í gær. Við áreksturinn lyftust sumir vagnanna upp og einn lenti ofan á öðrum með þeim afleiðingum að hann pressaðist saman. Tekist hefur að ná fjórum líkum af fimm, en ekki er ljóst hvort enn er fólk á lífi í rústunum. Erlent 12.10.2006 08:24
Þjóðþekktur hafnarboltamaður lést í flugslysi Tveir létust þegar lítil einkaflugvél flaug á fimmtíu hæða háhýsi á Manhattan í New York í gær. Báðir hinna látnu voru í flugvélinni, en annar þeirra var þjóðþekktur hafnarboltamaður hjá New York Yankees liðinu. Hann hét Cory Lidle, var með einkaflugmannspróf og hafði ítrekað fullvissað fjölmiðla um öryggi hans í flugi, en lið hans missti leikmann í flugslysi fyrir aldarfjórðungi. Erlent 12.10.2006 08:06
Flugvél flaug á byggingu í New York Lítilli einkaflugvél var flogið inn í 50 hæða háhýsi á Manhattan eyju í New York undir kvöld að íslenskum tíma. Skráður eigandi að flugvélinni er Cory Lidle, hafnaboltaleikari hjá New York Yankees. Talið er að hann hafi flogið vélinni og hafi látið lífið, ásamt flugkennara sem var með honum. Erlent 11.10.2006 19:10
Tólf látnir í lestarslysinu í Lorraine-héraði Tólf eru látnir og um tuttugu slasaðir eftir lestarslysið í Lorraine-héraði í Frakklandi í morgun þar sem farþegarlest og flutningalest rákust saman. Áreksturinn varð í Zoufftgen, nærri landamærunum að Lúxemborg, en farþegalestin var á leið til Nancy. Erlent 11.10.2006 16:01
Fjárlagahalli í Bandaríkjunum 17 þúsund milljarðar á þessu ári Fjárlagahalli í Bandaríkjunum á þessu fjárlagaári nemur um 248 milljörðum bandaríkjadala, jafnvirði um 17 þúsund milljarða króna. Frá þessu greindi fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna í dag. Tekjur ríkissjóðs Bandaríkjanna hafa aldrei verið meiri en á þessu ári og ekki heldur útgjöld en engu að síður er fjárlagahallinn minni en í fyrra þegar hann var 319 milljarðar bandaríkjadala, um 21.700 milljarða króna. Erlent 11.10.2006 14:24
Sterling uppvíst að annarri gjaldtöku Flugfélagið Sterling, sem nýverið varð uppvíst að því að innheimta opinberan flugskatt af hverjum farþega í Svíþjóð án þess að skatturinn væri til, er nú uppvíst af annarri gjaldtöku án þess að viðskiptavinirnir viti af. Erlent 11.10.2006 13:15
10 létust í lestarslysi í Frakklandi Að minnsta kosti 10 manns létust og tuttugu slösuðust í lestarslysi í Frakklandi í dag þegar farþegalest lenti í árekstri við vöruflutningalest sem kom úr gagnstæðri átt. Áreksturinn varð kl. 10.45 að íslenskum tíma í Zoufftgen í Norð-austurhluta landsins. Farþegalestin var á leið frá Lúxemborg til Nancy og hafði skipt um lestarteina, þar sem verið var að gera við teinana sem lestin átti að vera á. Erlent 11.10.2006 12:16
Önnur kjarnorkusprengja Japanskir fjölmiðlar segja frá því að hugsanlega hafi önnur kjarnasprengja verið sprengd í Norður Kóreu. Stjórnvöld í Pyongyang líta svo á að aukist þrýstingur Bandaríkjamanna jafngildi það stríðsyfirlýsingu. Þeir hafa hótað frekari kjarnatilraunum, en segjast einnig tilbúnir til bæði viðræðna og átaka. Erlent 11.10.2006 11:56
Alvarlegt lestarslys í Frakklandi Að minnsta kosti níu eru látnir og um tuttugu slasaðier eftir að farþegalest og flutningalest rákust saman í norðausturhluta Frakklands nú fyrir hádegið. Fregnir af slysinu eru enn óljósar og því gæti tala látinna átt eftir að hækka. Erlent 11.10.2006 11:33
Saddam Hussein mætir aftur í dómsal Saddam Hussein, fyrrverandi forseti Íraks, sneri aftur í dómsalinn í Bagdad í dag en dómari henti honum þaðan út í gær fyrir háreysti. Hussein og sex fyrrverandi samstarfsmenn hans innan ríkisstjórnar Íraks sæta nú réttarhöldum vegna ákæru um stríðsglæpi og þjóðarmorð á Kúrdum í valdatíð Husseins. Erlent 11.10.2006 11:01
Hóta frekari tilraunasprengingum í N-Kóreu Norður-Kóreumenn hóta frekari kjarnorkutilraunum ef Bandaríkin halda herskárri stefnu sinni gagnvart landinu til streitu. Frá þessu greina japanskir fjölmiðlar og hafa eftir Kim-Yong-nam, næstráðanda við Kim Jong-il, forseta landsins, að ef Bandaríkin haldi áfram að beita Norður-Kóreu þrýstingi muni stjórnvöld í Pyongyang svara því með áþreifanlegum aðgerðum. Erlent 11.10.2006 10:06
Gulrótarsafi orsakar lömun Tveir Kanadamenn eru lamaðir eftir að drekka eitraðan gulrótardjús sem innihélt bótúlín. Þrjár tegundir af gulrótarsafans með geymslutíma í Nóvember, voru innkallaðar eftir að fjögur tilfelli komu upp í Bandaríkjunum. Þrátt fyrir það voru í það minnsta 10 verslanir í Toronto sem seldu enn gulrótarsafann. Bótúlíneitrun orsakar lömun með því að leggjast á liðamót og taugar sem senda skilaboð til vöðva. Erlent 11.10.2006 09:45
Spánn vill aukinn hlut í Airbus Spænsk stjórnvöld vilja auka eignarhlut sinn á ný í fyrirtækinu EADS, sem framleiðir Airbus flugvélarnar. Spánarstjórn vill þannig tryggja að störf við smíði hluta í vélarnar haldist áfram á Spáni. Fyrirtækið hefur síðustu misseri færst meira í einkaeign frá ríkissjóðum nokkurra Evrópulanda. Nýverið kom í ljós allt að tveggja ára töf er orðin á afgreiðslu nýju A-380 vélarinnar sem er tveggja hæða risaþota. Erlent 11.10.2006 08:15
Íranar halda sig við kjarnorkuáætlun Íranar hafa tilkynnt að þeir muni ekki hverfa frá umdeildri kjarnorkuáætlun sinni. Í gær staðfesti forseti Íran, Mahmoud Ahmadinejad, áætlunina sem hann sagði vera í friðsamlegum tilgangi. Íran hafnaði kröfum öryggisráðs Sameinuðu Þjóðanna í lok ágúst að hætta auðgun úrans eða taka afleiðingunum. Erlent 11.10.2006 08:01
Sprengjum varpað að dönsku sendiráði Bensínsprengjum var varpað að danska sendiráðinu í Teheran í Íran í gær, aðeins nokkrum dögum eftir dreifingu myndbands sem sýndi unga Dani í sumarbúðum gera grín að spámanninum Múhameð. Myndböndin voru strax gagnrýnd og fordæmd af leiðtogum í Egyptalandi og Indónesíu, og nú eykst þrýstingur íranskra lagavarða á stjórnvöld þar í landi að þau skeri á efnahagstengsl við Danmörku. Erlent 11.10.2006 07:03
Vilja refsiaðgerðir Fastaríki öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna reyna nú að koma sér saman um aðgerðir gegn Norður-Kóreu eftir tilraun þeirra síðarnefndu með kjarnorkusprengju aðfaranótt mánudags. Kínverjar virðast hafa misst þolinmæðina gagnvart Kim Jong-Il og eru reiðubúnir að samþykkja harðar refsiaðgerðir. Innrás kemur þó ekki til greina. Erlent 10.10.2006 19:13
Fjórir fórust Fjórir fórust þegar leiguflugvél frá færeyska flugfélaginu Atlantic Airways rann út af flugbrautinni í Storð í Vestur-Noregi í morgun. Sextán voru um borð og náðu hinir tólf að komast sjálfir út úr flakinu, rétt áður en það varð alelda. Erlent 10.10.2006 19:11