Erlent Lögfræðingur Saddams gengur út úr réttarsal Aðallögfræðingur Saddams Hussein gekk í dag út úr réttarsalnum eftir að hafa lagt fram lista með tólf kröfum sem hann vildi að yrði fullnægt áður en réttarhaldið myndi halda áfram. Erlent 30.10.2006 10:59 Mecom þarf að reka eittþúsund starfsmenn Breska fjölmiðlasamsteypan Mecom, sem keppti við Dagsbrún um kaup á norska fjölmiðlarisanum Orkla Media, þarf að reka minnst eittþúsund starfsmenn til þess að dæmið gangi upp, að sögn norska blaðsins Aftenposten. Erlent 30.10.2006 10:46 Höfða mál vegna síðari heimsstyrjaldarinnar Erlent 30.10.2006 10:30 Kínverjar funda með leiðtogum Suðaustur-Asíuríkja Kínverski forsætisráðherrann Wen Jiabao átti fund með leiðtogum Suðaustur-Asíuríkja í kínversku borginni Nanning í morgun. Með þessu eru Kínverjar að sýna aukin áhrif sín á svæðinu. Erlent 30.10.2006 09:56 Pakistanski herinn gerir árás á þjálfunarbúðir Al Kaída Allt að 80 íslamskir vígamenn biðu bana í árás pakistanska hersins á íslamskan skóla sem var rekinn af stuðningsmanni Talibana. Erlent 30.10.2006 09:48 Alríkislögreglan í Mexíkó bælir niður mótmæli í bænum Oaxaca Alríkislögreglan í Mexíkó gerði í gær áhlaup á búðir mótmælenda í bænum Oaxaca í Mexíkó. Erlent 30.10.2006 09:15 Lokaumferð forsetakosninga í Kongó var haldin í gær Lokaumferð forsetakosninga í Kongó var haldin í gær. Mikil spenna var í loftinu vegna hugsanlegra átaka milli stuðningsmanna frambjóðendanna, Joseph Kabila og Jean-Pierre Bemba, en kosningarnar marka endalok fjögurra ára ferlis sem á að leiða til lýðræðislegrar stjórnar. Erlent 30.10.2006 09:00 Lula da Silva ber sigur úr býtum í forsetakosningunum í Brasilíu Erlent 30.10.2006 08:30
Lögfræðingur Saddams gengur út úr réttarsal Aðallögfræðingur Saddams Hussein gekk í dag út úr réttarsalnum eftir að hafa lagt fram lista með tólf kröfum sem hann vildi að yrði fullnægt áður en réttarhaldið myndi halda áfram. Erlent 30.10.2006 10:59
Mecom þarf að reka eittþúsund starfsmenn Breska fjölmiðlasamsteypan Mecom, sem keppti við Dagsbrún um kaup á norska fjölmiðlarisanum Orkla Media, þarf að reka minnst eittþúsund starfsmenn til þess að dæmið gangi upp, að sögn norska blaðsins Aftenposten. Erlent 30.10.2006 10:46
Kínverjar funda með leiðtogum Suðaustur-Asíuríkja Kínverski forsætisráðherrann Wen Jiabao átti fund með leiðtogum Suðaustur-Asíuríkja í kínversku borginni Nanning í morgun. Með þessu eru Kínverjar að sýna aukin áhrif sín á svæðinu. Erlent 30.10.2006 09:56
Pakistanski herinn gerir árás á þjálfunarbúðir Al Kaída Allt að 80 íslamskir vígamenn biðu bana í árás pakistanska hersins á íslamskan skóla sem var rekinn af stuðningsmanni Talibana. Erlent 30.10.2006 09:48
Alríkislögreglan í Mexíkó bælir niður mótmæli í bænum Oaxaca Alríkislögreglan í Mexíkó gerði í gær áhlaup á búðir mótmælenda í bænum Oaxaca í Mexíkó. Erlent 30.10.2006 09:15
Lokaumferð forsetakosninga í Kongó var haldin í gær Lokaumferð forsetakosninga í Kongó var haldin í gær. Mikil spenna var í loftinu vegna hugsanlegra átaka milli stuðningsmanna frambjóðendanna, Joseph Kabila og Jean-Pierre Bemba, en kosningarnar marka endalok fjögurra ára ferlis sem á að leiða til lýðræðislegrar stjórnar. Erlent 30.10.2006 09:00
31 bíður bana og um 50 óbreyttir borgarar særast í sprenginu í Írak í morgun Sprengja sprakk í Sadr hverfi Bagdad í morgun. Talið er að allt að 31 manns hafi látið lífið og um 50 hafi særst samkvæmt upplýsingum frá íraska innanríkisráðuneytinu. Erlent 30.10.2006 08:15
Eitt hundrað bandarískir hermenn hafa farist í bardögum í Írak í október Alls hafa eitt hundrað bandarískir hermenn farist í Írak það sem af er október mánuði og er það mesta mannfall á einum mánuði undanfarið ár. Erlent 30.10.2006 07:45
Leiðtogi Múslíma í Nígeríu fórst í flugslysi Leiðtogi Múslíma í Nígeríu fórst í flugslysi þar dag. Flugvélin, sem var af gerðinni Boeing 737 frá nígeríska flugfélaginu ADC, hrapaði í flugtaki nærri höfuðborginni Abuja. Múslímaleiðtoginn, súltáninn Mohammadu Maccido og tveir þingmenn voru meðal þeirra rúmlega 100 sem létu lífið, en talið er að fjórir hafi komist lífs af. Erlent 29.10.2006 15:55
Bradshaw flokkar ekki ruslið sitt Ben Bradshaw umhverfisráðherra Bretlands, og einn harðasti gagnrýnandi íslenskra hvalveiða, er tekinn á beinið í Daily Mail í dag fyrir að fara ekki eftir eigin endurnýtingarreglum í sorphirðunni heima hjá sér. Blaðið birtir myndir af húsi ráðherrans, og ruslapokum þar fyrir utan, sem eiga að sýna að ráðherrann flokki ekki endurnýtinanlegt sorp frá öðru rusli. Erlent 29.10.2006 15:06
Endurkoma Schwarzeneggers Arnold Schwarzenegger tekst að snúa vonlausri stöðu sér í hag og snýr andstæðinginn auðveldlega niður. Þetta er ekki söguþráður í Hollywood kvikmynd heldur raunveruleiki ríkisstjórans Arnolds sem hefur á einu ári náð að vinna sér upp úr verulegum óvinsældum í yfirburðastöðu. Erlent 29.10.2006 13:54
Brennuvargar hvattir til að gefa sig fram Móðir eins slökkviliðsmannsins sem fórst í skógar- og kjarreldunum í Suður-Kaliforníu um helgina hvetur þá sem kveiktu eldana til að gefa sig fram við lögreglu. Fjórir slökkviliðsmenn týndu lífi í eldunum og einn liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi. Erlent 29.10.2006 12:50
Kastró á batavegi Fídel Kastró, forseti Kúbu kom fram í sjónvarpi í heimalandi sínu í gær í fyrsta sinn í rúman mánuð. Forsetinn, sem varð áttræður í ár, hefur verið að jafna sig eftir erfiða aðgerð. Hann gekk um gólf á upptökunni sem sýnd var og sagði sögur af andláti sínu stórlega ýktar. Erlent 29.10.2006 12:47
Átök á ársafmæli óeirðanna Kona á þrítugsaldri brenndist illa og þrír fengu vott af reykeitrun þegar hópur ungmenna kveikti í strætisvagni í hafnarborginni Marseilles í Frakklandi í gær. Þau ruddurst inn í vagninn, köstuðu þar frá sér flösku fullri af eldfimum vökva og kveiktu í. Konan fékk annars og þriðja stigs brunasár á höndum, fótum og andliti. Strætisvagninn eyðilagðist. Á föstudaginn var ár liðið frá miklum óeirðum í Frakklandi og var lögreglan því viðbragðsstöðu um helgina ef til átaka kæmi. Aðeins kom til smávægilegra átaka. Erlent 29.10.2006 11:15
Skattasniðganga og hugsanlegt peningaþvætti Skipulagið að baki uppkaupum Íslendinga í Danmörku, Svíþjóð og á Englandi leiðir hugan að svokallaðri skattasniðgöngu og hugsanlegu peningaþvætti, að sögn sérfræðinga sem danska Ekstra-blaðið hefur rætt við. Umfjöllun blaðsins um útrás íslenskra kaupsýslumanna hófst í útgáfu þess í morgun og verður haldið áfram næstu daga. Sigurður Einarsson, stjórnarformaður KB-banka segir umfjöllun danska Ekstra-blaðsins í dag, um málefni tengd bankanum, ekki rétta. Vinnuaðferðir bankans séu ekki öðruvísi en hjá öðrum alþjóðlegum. bönkum. Hann telur ekki ástæðu til aðgerða af hálfu bankans vegna greinarinnar. Erlent 29.10.2006 09:27
5000 egypskir öryggissveitarmenn fluttir að landamærunum að Gaza Egyptar flutti í kvöld rúmlega fimm þúsund öryggissveitarmenn að landamærunum að Gaza-svæðinu. Þetta var gert eftir að fréttir bárust af því að svo gæti farið að Ísraelar sprengdu göng sem notuð væru til að smygla vopnum inn á palestínskt landsvæði. Egyptar munu einnig hafa gripið til þessara liðsflutninga af ótta við að herskáir Palestínumenn myndi brjóta sér leið í gegnum landamæravegg milli Gaza-svæðisins og Egyptalands. Fyrir voru aðeins 750 landamæraverðir. Erlent 28.10.2006 22:26
Útlit fyrir að Gilad Shalit fái frelsi Útlit er fyrir að Gilad Shalit, ísraelski hermaðurinn sem herskáir Palestínumenn rændu í sumar, verði látinn laus á næstu dögum. Ránið á Shalit varð kveikjan að átökum Ísraela og Palestínumanna á Gaza-svæðinu í sumar. Erlent 28.10.2006 12:47
Verðlaunum heiti fyrir upplýsingar um brennuvarga Yfirvöld í Suður-Kaliforníu hafa boðið jafnvirði tæpra 35 milljóna íslenskra króna fyrir upplýsingar sem leitt geta til handtöku þeirra sem grunaðir eru um að hafa kveikt kjarr- og skógarelda sem loga í ríkinu. Fjórir slökkviliðsmenn hafa týnt lífi í baráttunni við eldana og sá fimmti liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi. Erlent 28.10.2006 12:44
Friðarviðræður hafnar í Genf Friðarviðræður milli stríðandi fylkinga á Srí Lanka hófust í morgun í Genf í Sviss. Þar munu fulltrúar stjórnvalda og uppreisnarmanna Tamíltígra reyna hvað þeir geta til að koma í veg fyrir að allsherjar borgarastyrjöld brjótist út í landinu. Erlent 28.10.2006 12:39
Kosið um stjórnarskrá Serbíu Kjósendur í Serbíu ganga í dag og á morgun að kjörborðinu í morgun til að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá landsins. Samkvæmt henni telst Kósóvó óaðskiljanlegur hluti Serbíu. Erlent 28.10.2006 12:22
7 týndu lífi þegar súrefniskútur sprakk Minnst 7 týndu lífi þegar súrefniskútur sprakk í Tiblisi, höfuðborg Georgíu í dag. Sprengingin varð á áfyllingarstöði Isani-Samgori hverfi. Byggingin, þar sem fyllt var á súrefniskúta, hrundi. Björgunarmenn eru enn að störfum í rústunum og óttast að fleiri eigi eftir að finnast látnir þar. Erlent 27.10.2006 23:45
Vilja leyfa 30 grömm af maríjúana til einkaneyslu Íbúar í Nevada-ríki í Bandaríkjunum greiða atkvæði um það í næsta mánuði hvort leyfa eigi fólki sem hefur náð 21. árs aldri að eiga allt að tæpum 30 grömmum af maríjúana og geyma það á eigin heimili. Sem stendur er Alaska eina ríkið í Bandaríkjunum sem refsar ekki þeim sem hafa maríjúana til eigin neyslu undir höndum. Erlent 27.10.2006 23:00
Djúpsteikt Coca Cola vekur lukku í Texas Tölvunarfræðingur frá Bandaríkjunum bætti á dögunum við úrval djúpsteiktra matvæla þegar hann bauð, fyrstur manna, upp á djúpsteikt Coca Cola. Erlent 27.10.2006 22:45
Bildt selur hlutabréf Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, hefur selt hlutabréf sín í fyrirtæki sem fjárfestir í rússneska orkugeiranum. Andstæðingar hans sögðu hættu á hagsmunaárekstrum ef hann héldi þeim. Bildt segist hafa selt hlutabréf sín í fyrirtækinu fyrir nokkrum vikum. Erlent 27.10.2006 21:45
Samúræji í Þýskalandi Samúræjarnir svonefndu eru sjaldséð sjón nú til dags. Einn slíkur virðist þó hafa verið á ferli um Hamborg í Þýskalandi í nótt. Sá hafði tekið sér far með neðanjarðarlest en neitaði að greiða fargjaldið. Þegar lögregla kom á vettvang dró þessi þýski samúræi upp stóreflis sverð og sveiflaði því í kringum sig af miklum móð. Erlent 27.10.2006 19:30
Úranvinnsla á öðru stigi Íranar hafa hafið annars stigs auðgun á úrani en slík vinnsla er talin færa þá nær því að geta búið til kjarnorkusprengju. Erlent 27.10.2006 19:00
Hefndum hótað Talibanar saka herlið Atlantshafsbandalagsins í Afganistan um þjóðarmorð og hóta grimmilegum hefndum vegna loftárása á saklausa hirðingja í vikunni. Erlent 27.10.2006 18:45
Pronk aftur til Súdans Sendifulltrúi Sameinuðu þjóðanna í Súdan, Jan Pronk, mun snúa aftur til höfuðborgarinnar Khartoum þrátt fyrir að stjórnvöld í Súdan vilji ekki sjá hann. Talsmaður SÞ greindi frá þessu í dag. Erlent 27.10.2006 18:02