Erlent
Nýr forsætisráðherra Hamas Erlent 13.11.2006 16:54 Kræsingar frá því 100 eftir Krist Spænskir fornleifafræðingar eru að skoða skipsflak á hafsbotni, af skipi sem notað var til þess að flytja kræsingar til auðmanna í Rómaveldi, árið eitthundrað eftir Krist. Erlent 13.11.2006 16:34 Bush fundar með íraksnefndinni um leiðir til friðar George Bush, forseti Bandaríkjanna, átti í dag fund með formönnum nefndar sem skipuð var til þess að leita leiða til að koma á friði í Írak. Nefndin var raunar skipuð fyrir sigur Demokrata í þingkosningunum í síðustu viku. Hún stefnir að því að skila skýrslu sinni til forsetans og þingsins, í næsta mánuði. Erlent 13.11.2006 15:56 Palestinskur sáttmáli undirritaður í Kaíró Erlent 13.11.2006 15:25 Bretar minnast stríðsins um Falklandseyjar Bretar ætla að efna til fjögurra daga minningarhátíðar á næsta ári í tilefni af því að tuttugu og fimm ár verða liðin frá Falklandseyjastsríðinu. Þeir segja þó að ekki verði hrósað sigri yfir Argentínumönnum, sem töpuðu stríðinu. Erlent 13.11.2006 14:51 Biður Saddam griða Erlent 13.11.2006 14:31 Pólverjar beittu Rússa neitunarvaldi hjá ESB Pólverjar beittu í dag neitunarvaldi til að koma í veg fyrir að Evrópusambandið hæfi viðræður við Rússa um breiðari samvinnu, sérstaklega í orkumálum. Vonast var til að viðræðurnar gætu hafist á fundi í Helsinki hinn 24. þessa mánaðar. Erlent 13.11.2006 14:19 « ‹ ›
Indland og Pakistan hefja friðarviðræður á ný Indverjar og Pakistanar hafa hafið friðarviðræður á ný, í fyrsta skipti eftir sprengjuárásir á lestakerfi Mumbay í júlí. Utanríkisráðherrar landanna hittast í Delhí, höfuðborg Indlands. Mjög stirt var milli landanna eftir sprengingarnar í sumar enda skellti Indland skuldinni á Pakistan, en þar á bæ neituðu menn öllum ásökunum. Erlent 14.11.2006 08:15
Rumsfeld kærður í dag Þýsk mannréttindasamtök munu í dag höfða mál í Þýskalandi með beiðni um að þýskir lögfræðingar geti rannsakað þátt Donalds Rumsfelds, fyrrverandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, í stríðsglæpum í Írak og á Kúbu. Erlent 14.11.2006 07:30
Palestínustjórn er að verða til Mohammed Shabir, sextugur háskólamaður, verður að öllum líkindum forsætisráðherra í nýrri Palestínustjórn, sem nú er í fæðingu. Tvær helstu stjórnmálahreyfingar Palestínumanna, Hamas og Fatah, hafa komið sér saman um þetta, að því er AP fréttastofan hafði eftir Moussa Abu Marzouk, yfirmanni í höfuðstöðvum Hamas í Sýrlandi. Erlent 14.11.2006 06:15
NATO-ríkin taki sig á Framkvæmdastjóri NATO skorar á aðildarríkin að verja meiru til varnarmála. Sjö af 26 ríkjum ná lágmarkinu, tveimur prósentum af landsframleiðslu. Erlent 14.11.2006 05:45
Meirihluti vill segja skilið við Georgíu Kjósendur í Suður-Ossetíu samþykktu nánast einróma í atkvæðagreiðslu á sunnudaginn að lýsa yfir formlegu sjálfstæði héraðsins, sem tilheyrir Georgíu en hefur þó notið sjálfstæðis í reynd í meira en áratug. Erlent 14.11.2006 05:30
Lífskjör næstbest á Íslandi Noregur, Ísland, Ástralía, Írland og Svíþjóð raða sér í efstu sæti lífskjaralista Sameinuðu þjóðanna (HDI), sem gefinn er út með þróunarskýrslu stofnunarinnar í ár (Human Development Report). Erlent 14.11.2006 05:15
Kókaín á þinghúsklósettum Ummerki um að kókaín hafi verið haft um hönd fundust á þremur af 30 klósettum danska þinghússins í Kristjánsborgarhöll í Kaupmannahöfn, að því er danska blaðið BT greindi frá í gær. Þingforsetinn, Christian Mejdahl, segist sleginn og að málið sé tilefni lögreglurannsóknar. Erlent 14.11.2006 04:45
Jafnaðarmenn auka fylgi sitt Rúmlega þrjátíu prósent Dana myndu kjósa Jafnaðarmannaflokkinn ef gengið yrði til kosninga nú. Er þetta mesta fylgi sem flokkurinn hefur fengið í skoðanakönnun í meira en tvö ár samkvæmt frétt Jótlandspóstsins á sunnudag. Erlent 14.11.2006 04:30
Royal og Sarkozy hnífjöfn Vart má á milli sjá hvort sósíalistinn Segolene Royal eða íhaldsmaðurinn Nicolas Sarkozy myndu hafa betur ef þau ettu kappi í forsetakosningunum í vor. Þetta sýna niðurstöður nýjustu skoðanakannana. Erlent 14.11.2006 04:30
Ákærðir fyrir að brjóta trúnað Aðalritstjóri og tveir blaðamenn danska dagblaðsins Berlingske Tidende voru í gær kallaðir fyrir rétt í Kaupmannahöfn, ákærðir fyrir að hafa á árinu 2004 birt upplýsingar úr dönskum leyniþjónustuskýrslum. Erlent 14.11.2006 04:15
Scheffer brýnir NATO-þjóðir Jaap de Hoop Scheffer, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, skoraði í gær á aðildarþjóðirnar að taka sig á og verja meira fé til varnarmála. Aðeins sjö af 26 NATO-ríkjum verja í þau fullum tveimur prósentum af landsframleiðslu, eins og NATO ætlast til að hvert og eitt þeirra geri. Erlent 14.11.2006 03:00
Skógar að stækka á ný Ný skýrsla heldur því fram að skógar séu aftur að sækja í sig veðrið. Skýrslan komst að því að aukning á skógum sé fyrir hendi í nærri öllum löndum þar sem einstaklingar hafa meira en 4.600 dollara, eða 318.000 krónur, í árstekjur hafi skógar stækkað. Erlent 13.11.2006 23:40
Minnismerki reist til heiðurs Martin Luthers King Jr. Mannréttindafrömuðir í Bandaríkjunum tóku í dag fyrstu skóflustungu að minnismerki um Martin Luther King Jr. Alls höfðu um 5.000 manns safnast saman og voru þau hvött af fyrrum aðstoðarmanni Martin Luther Kings Jr. til þess að hafa hugsjónir hans í heiðri um ókomna tíð. Erlent 13.11.2006 23:27
Bandarískir ráðamenn segja dómsyfirvöld ekki hafa lögsögu yfir Guantanamo fangelsinu Talsmenn ríkisstjórnar George W. Bush sögðu í dag að vísa yrði frá þeim málum sem fangar í Guantanamo hafa höfðað gegn bandarískum stjórnvöldum. Föngunum hefur flestum verið haldið þar án þess að þeir hafi verið ákærðir fyrir nokkuð. Erlent 13.11.2006 23:06
Ítalska ríkisstjórnin slakar á lögum um eiturlyf Ítalska ríkisstjórnin hækkaði í dag það magn af kannabisi sem löglegt er að vera með á sér án þess að vera handtekinn um helming. Samkvæmt nýju lögunum verður löglegt að vera með allt að 40 kannabisvindlinga á sér. Erlent 13.11.2006 22:30
Tony Blair hvetur til samvinnu í málefnum Mið-Austurlanda Í mikilvægri ræðu um utanríkismál sagði Tony Blair að mikilvægt væri að vinna með öllum löndum í Mið-Austurlöndum að friði og að það þýddi samstarf með Írönum og Sýrlandi. Talsmaður Blairs sagði hins vegar eftir ræðuna að þetta þýddi ekki að gefið yrði eftir í stefnu Bretlands varðandi þessi tvö ríki. Erlent 13.11.2006 22:13
Náttúrulegt verkjalyf sem er sterkara en morfín Vísindamenn hafa komist að því að mannslíkaminn framleiðir verkjalyf sem er talið töluvert sterkara en morfín. Vísindamennirnir fundu efnið, sem heitir opiorphin, í munnvatni. Erlent 13.11.2006 22:06
Utanríkisráðherra Georgíu líkir Rússum við nasista Utanríkisráðherra Georgíu, Giorgi Baramidze, bætti í dag olíu á eldinn í samskiptum þeirra við Rússa þegar hann bar meðferð Rússa á Georgíumönnum í Rússlandi við meðferð nasista á gyðingum á fjórða áratug tuttugustu aldarinnar. Erlent 13.11.2006 21:47
Líkur aukast á þátttöku SÞ í friðargæslu í Darfur Forsetinn í Súdan, Omar Hassan al-Bashir, hefur lagt fram tillögur sem útiloka ekki þáttöku friðargæsluliðs Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í úrlausn mála í Darfur. Þetta fullyrti forseti Senegal, Abdoulaye Wade, í dag. Erlent 13.11.2006 20:56
Íranir virða hótanir um efnahagsþvinganir að vettugi Íranir ætla sér að halda áfram að auðga úran þrátt fyrir hugsanlegar refsiaðgerðir af hálfu alþjóðasamfélagsins. Þeir hafa heldur ekki enn veitt eftirlitsmönnum Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA) leyfi til þess að grennslast fyrir í kjarnorkumálum þeirra. Erlent 13.11.2006 19:57
Búist við að sátt náist um tilvonandi forsætisráðherra Palestínu bráðlega Maðurinn sem Palestínumenn hafa sæst á að tilnefna sem forsætisráðherra landsins í kjölfar yfirlýsingar núverandi forsætisráðherra, Ismail Haniyeh, hefur sagt að enn hafi ekki verið talað við hann um að taka að sér embættið. Erlent 13.11.2006 19:42
Forseti danska þingsins fer fram á lögreglurannsókn Forseti danska þingsins hefur óskað eftir lögreglurannsókn vegna frétta danskra fjölmiðla um að kókaínleifar hafi fundist á þremur salernum danskra þingmanna í Kristjánsborgarhöll. Hann segir málið allt hið alvarlegasta. Erlent 13.11.2006 19:15
Bush vill beita efnahagsþvingunum gegn Írönum George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, sagði í dag að alþjóðasamfélagið þyrfti að beita Íran efnahagslegum þvingunum ef þeir héldu áfram að auðga úran gegn vilja þess. Erlent 13.11.2006 17:41
Kræsingar frá því 100 eftir Krist Spænskir fornleifafræðingar eru að skoða skipsflak á hafsbotni, af skipi sem notað var til þess að flytja kræsingar til auðmanna í Rómaveldi, árið eitthundrað eftir Krist. Erlent 13.11.2006 16:34
Bush fundar með íraksnefndinni um leiðir til friðar George Bush, forseti Bandaríkjanna, átti í dag fund með formönnum nefndar sem skipuð var til þess að leita leiða til að koma á friði í Írak. Nefndin var raunar skipuð fyrir sigur Demokrata í þingkosningunum í síðustu viku. Hún stefnir að því að skila skýrslu sinni til forsetans og þingsins, í næsta mánuði. Erlent 13.11.2006 15:56
Bretar minnast stríðsins um Falklandseyjar Bretar ætla að efna til fjögurra daga minningarhátíðar á næsta ári í tilefni af því að tuttugu og fimm ár verða liðin frá Falklandseyjastsríðinu. Þeir segja þó að ekki verði hrósað sigri yfir Argentínumönnum, sem töpuðu stríðinu. Erlent 13.11.2006 14:51
Pólverjar beittu Rússa neitunarvaldi hjá ESB Pólverjar beittu í dag neitunarvaldi til að koma í veg fyrir að Evrópusambandið hæfi viðræður við Rússa um breiðari samvinnu, sérstaklega í orkumálum. Vonast var til að viðræðurnar gætu hafist á fundi í Helsinki hinn 24. þessa mánaðar. Erlent 13.11.2006 14:19