Erlent

Blair leggur til ný hryðjuverkalög

Bretar munu leggja til nýja löggjöf í hryðjuverkamálum fyrir lok ársins. Búist er við því að hún muni fela í sér lög um að breska lögreglan geti haldið grunuðum í lengri tíma án þess að gefa út ákæru á hendur þeim.

Erlent

Bush í Víetnam

George W. Bush varð í dag annar forseti Bandaríkjanna til þess að heimsækja Víetnam eftir að Víetnamstríðinu lauk. Vonast var til þess að Bush myndi þar semja um fríverslunarsamning við Víetnama en ekkert varð úr því þar sem repúblikanar misstu yfirráð í báðum deildum þingsins þann 7. nóvember síðastliðinn.

Erlent

Ofbeldið í Darfur heldur enn áfram

Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, opnaði í Eþíópíu í dag alþjóðlega ráðstefnu um hvernig hægt er að leysa ástandið í Darfur-héraði í Súdan. Þar mun hann meðal annars mæla fyrir því að búið til verði sameinað friðargæslulið frá Sameinuðu þjóðunum og Afríkusambandinu.

Erlent

Bandaríkin í samvinnu við Indland

Bandaríska þingið byrjaði í dag að ræða frumvarp sem fjallar um sölu á kjarnorkuvirkum efnum og framleiðslutækjum til Indlands. Frumvarpið hefur verið á hakanum ansi lengi en gagnrýnendur þess eru hræddir að með því að aðstoða Indverja við að koma sér upp kjarnorkutækni muni kjarnorkuvopnakapphlaup verða raunin í Suð-Austur Asíu allri og þá sérstaklega á milli Indlands og Pakistan.

Erlent

Simpson segir hvernig hann hefði myrt

Ruðningskappinn O. J. Simpson hefur síðustu tólf árin þráfaldlega neitað því að hafa myrt eiginkonu sína og elskhuga hennar með hrottalegum hætti árið 1994. Simpson hefur þó velt því fyrir sér hvernig hann hefði myrt þau og ritað um það bók sem kemur út nú fyrir jólin. Ættingjar fórnarlambanna fordæma útgáfu bókarinnar.

Erlent

Hörð átök í Austur-Kongó

Til harðra átaka hefur komið milli stjórnarandstæðinga og lögreglu í höfuðborg Austur-Kongó í dag. Kjörstjórn landsins lýsti því yfir í morgun að Joseph Kabila, sitjandi forseti, hefði sigrað í kosningum í síðasta mánuði. Andstæðingur hans neitar að viðurkenna ósigur sinn og segir brögð hafa verið í tafli.

Erlent

Kaþólskir prestar skulu vera ógiftir

Vatíkanið staðfesti í dag að prestar kaþólsku kirkjunnar ættu að vera einhleypir á fundi sem Benedikt páfi hélt til þess að ræða óskir giftra presta sem vilja stíga í pontu á ný. Fundurinn var haldinn vegna þess að nú hefur afrískur erkibiskup stofnað nýja hreyfingu sem að leyfir þeim kaþólsku prestum sem hafa horfið úr starfi til þess að gifta sig að snúa aftur í pontu.

Erlent

Milton Friedman látinn

Milton Friedman, helsti frummælandi hins frjálsa markaðar og handhafi Nóbelsverðlauna í hagfræði árið 1976, er látinn. Talsmaður fjölskyldunnar skýrði frá þessu nú rétt í þessu.

Erlent

Franskir sósíalistar velja sér forsetaefni

Franski sósíalistaflokkurinn hélt prófkjör í dag fyrir forsetakosningarnar sem að fara þar fram á næsta ári. Talið er líklegt að konan Segolene Royal eigi eftir að bera sigur úr býtum en fyrstu tölur verða birtar á morgun.

Erlent

2000 ára gömul fisksósa

Spænskir vísindamenn eru vongóðir um að geta sett saman uppskrift að fisksósu sem auðugir Rómverjar héldu mikið uppá fyrir 2000 árum.

Erlent

Síróp á vegi gegn hálku

Norðmenn eru að byrja að sprauta sírópi á vegi sína, til þess að koma í veg fyrir hálku. Sírópið er blandað megnesíum klóríði og verndar vegina allt niður í sextíu og fimm gráðu frost.

Erlent

Simpson sagður viðurkenna morðin, í nýrri bók

O.J. Simpson hefur skrifað bók þar sem hann lýsir því hvernig hann hefði farið að því að myrða fyrrverandi eiginkonu sína og ástmann hennar, EF hann hefði gert það. Titill bókarinnar er "Ef ég gerði það, svona gerðist það." Útgefandi bókarinnar segir að hún líti á hana sem játningu.

Erlent

20 þúsund bandaríska hermenn til viðbótar til Íraks

Bush Bandaríkjaforseti leggur nú á ráðin um eitt lokaátak í Írak og hyggst senda 20 þúsund hermenn til viðbótar til að berjast fyrir friði í Írak. Ef þessi skrif breska blaðsins The Guardian reynast á rökum reist dregur það nokkuð úr vonum bandarískra fjölskyldna sem vonuðust til að fá hermennina sína heim af vígvellinum.

Erlent

Tyrkir frysta Frakka

Tyrkland hefur fryst hernaðarsamvinnu við Frakkland, en segir að það muni engin áhrif hafa í Afganistan, þar sem tyrkneskir og franskir hermenn eru hlið við hlið í gæsluliði NATO.

Erlent

Ekvador kvartar við Alþjóðaviðskiptastofnunina

Ekvador hefur lagt fram kvörtun á hendur Evrópusambandinu hjá Alþjóðaviðskiptastofnuninni vegna tolla á bananainnflutningi. Ekvador hefur löngum sagt að innflutningstollar Evrópusambandsins, sem síðan í janúar nema tæpum 16 þúsund krónum á tonnið af banönum, séu allt of háir og bitni á framleiðslu í landinu.

Erlent

Engar viðræður um lausn ísraelska hermannsins

Samningaviðræður um lausn ísraelska hermannsins Gilads Shalits, sem liðsmenn Hamas rændu í júní síðastliðnum hafa legið niðri í tvær vikur að sögn talsmanns Hamas samtakanna. Talsmaðurinn sagði að Ísraelar hefðu hafnað kröfum þeirra.

Erlent

Móðurkviður rétthærri en frystigeymsla

Írskur dómstóll úrskurðaði í gær að frosnir fósturvísar hefðu ekki sama rétt til lífs og börn sem borin eru í móðurkviði. Kona nokkur höfðaði mál gegn fyrrverandi eiginmanni sínum vegna þess að hún vildi nota fósturvísa sem höfðu orðið til meðan þau voru enn hjón.

Erlent

Íranar stíga "lokaskrefið" í kjarnorkuáætlun sinni

Forseti Írans, Mahmoud Ahmadinejad, sagði í morgun að Íranar myndu brátt "taka lokaskrefið" í kjarnorkuáætlun sinni. Hann tilgreindi ekki nánar hvað í því fælist. Vestrænir stjórnmálamenn hafa gert því í skóna að lokamarkmið Írana sé að koma sér upp kjarnorkuvopnum en forsetinn hefur ítrekað sagt að kjarnorkuáætlunin sé eingöngu í friðsamlegum tilgangi.

Erlent

Gíslar pyntaðir og drepnir í Bagdad

Mannræningjar sem rændu tugum manna úr menntamálaráðuneytinu í Bagdad á þriðjudag pyntuðu og myrtu nokkra af gíslum sínum. "Þeir sem voru drepnir voru starfsmenn ráðuneytisins og öryggisverðir," sagði Abd Dhiab, menntamálaráðherra í morgun. 70 gíslar hafa sloppið úr haldi mannræningjanna en ráðherrann sagði að um 150 manns hafi verið rænt.

Erlent

US Airways reynir fjandsamlega yfirtöku á Delta

Bandaríska flugfélagið US Airways gerði í gær fjandsamlegt yfirtökutilboð upp á rúma 560 milljarða króna í flugfélagið Delta Airlines þrátt fyrir að Delta hefði endurtekið tilkynnt að þar á bæ hefðu menn ekki áhuga á samruna. Afurð slíks samruna myndi verða eitt stærsta flugfélag í heimi.

Erlent

Abbas vill taka upp friðarviðræður við Ísrael

Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, hvatti Ísrael í gær til að halda áfram samningaviðræðum við Palestínumenn og stefna að endanlegum og varanlegum friði. Hann krafðist þess hins vegar að Ísraelsmenn kölluðu hermenn sína alfarið frá Vesturbakkanum, Gaza og Austur-Jerúsalem.

Erlent

Varað við brotthvarfi Bandaríkjamanna frá Írak

Yfirhershöfðingi Bandaríkjahers í Miðausturlöndum varaði í gær við því í gær að Bandaríkjamenn ákvæðu tafarlaust hvenær herinn yrði dreginn til baka. Hann sagði á fundi með hernaðarnefnd öldungadeildarinnar í gær að ef tilkynnt væri núna um hvenær herinn yrði dreginn til baka, þá myndi það hamla öllum störfum hersins það sem eftir er.

Erlent

Kabila sigraði í Kongó

Joseph Kabila, sitjandi forseti í Austur-Kongó, fær að halda embætti sínu í annað kjörtímabil. Hann hlaut 58% gildra atkvæða í spennuþrungnum kosningum, sem eru hinar fyrstu í landinu í meira en fjóra áratugi þar sem fleiri en einn flokkur á fulltrúa. Jean-Pierre Bemba, fyrrum uppreisnarleiðtogi, sem varð í öðru sæti, hefur hins vegar ekki viðurkennt ósigur sinn.

Erlent

Dýrkeypt að bíða lengur

Kofi Annan segir miklu ódýrara að draga nú þegar úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda heldur en að bíða þar til takast þarf á við afleiðingarnar.

Erlent

Biður Íslendinga að íhuga stöðu Ísraela

Sendiherra Ísraels segir íslenska stjórnmálamenn "einblína um of á atvikið í Beit Hanoun". Hún biður Íslendinga að setja sig í spor Ísraela og fordæma þá ekki fyrir þær aðgerðir sem þeir grípa til í því skyni að tryggja öryggi sitt.

Erlent

Segjast ekki láta kúga sig

Utanríkisráðherra Tyrklands segir að Tyrkir ætli ekki að láta kúga sig nú fremur en áður til þess að gefa eftir í Kýpurdeilunni.

Erlent