Erlent
Klámkóngur í lífstíðar fangelsi Erlent 22.11.2006 16:35 Lítil von um björgun úr pólskri námu Vonir hafa dvínað um að hægt verði að bjarga fimmtán pólskum námumönnum, sem nú hafi verið lokaðir ofan í námu sinni í einn sólarhring. Björgunarsveitir urðu frá að hverfa, í dag, vegna mikillar hættu á annarri sprengingu. Erlent 22.11.2006 16:24 Tyrknesk yfirvöld óróleg vegna heimsóknar páfa Tyrkneska lögreglan notaði táragas til þess að dreifa hópi manna sem ruddust inn í Aya Sofya safnið í Istanbúl, til þess að mótmæla heimsókn Benediktusar páfa til landsins í næstu viku. Erlent 22.11.2006 16:14 Búast við loftárásum á Íran næsta sumar Tvær hugveitur í Bandaríkjunum telja líklegt að George Bush, forseti, muni fyrirskipa sprengjuárásir á Íran næsta sumar, til þess að koma í veg fyrir að landið komi sér upp kjarnorkusprengjum. Erlent 22.11.2006 15:34 Dýr yrðu bæði brjóstin á Janet Jackson Erlent 22.11.2006 15:15 Rússar hóta að taka rafmagnið af Azerbadjan Rússar hafa tilkynnt Azerbadjan að þeir kunni að minnka raforkusölu til landsins um áttatíu prósent á næsta ári, og einnig skera niður sölu á gasi. Erlent 22.11.2006 14:32 Hættulegasti fæðingarstaður í heimi Erlent 22.11.2006 14:22 « ‹ ›
Laxveiðileyfin hækka fyrir næsta sumar Laxveiðileyfi næsta sumar hækka um 20% hið minnsta frá því sem þau kostuðu í sumar, og dæmi eru um mun meiri hækkun. Þetta kemur fram í nýrri verðskrá Stangveiðifélags Reykjavíkur, sem hefur fjölmargar ár og veiðisvæði á leigu. Veiðin síðastliðið sumar hefur veruleg áhrif á verðlagninguna. Erlent 23.11.2006 09:00
Harðir bardagar á Sri Lanka Tamíltígrar á Sri Lanka segja að harðir bardagar eigi sér stað þessa stundina milli stjórnarhersins og uppreisnarsveitanna á einskis manns landi á austurhluta eyjunnar. Stjórnarherinn notar skriðdreka til að reyna að þoka varnarlínu tígranna til baka. Stjórnarherinn segist enn sem fyrr ekki kannast við að nein átök séu í gangi. Erlent 23.11.2006 08:45
Golfkúla á sporbaug um jörðu Þriggja gramma golfkúla er nú á sporbaug um jörðu eftir að rússneskur geimfari mundaði golfkylfuna í Alþjóðlegu geimstöðinni, í auglýsingaskyni fyrir kanadískan golfkylfuframleiðanda. Kúlan mun líklega fljúga um sporbaug í tvo til þrjá daga en á þeim tíma gæti hún náð að ferðast hátt í tvær milljónir kílómetra. Erlent 23.11.2006 08:45
Njósnaranum fyrrverandi hrakar enn Heilsu rússneska njósnarans fyrrverandi Alexanders Livtinenkos hrakaði enn í morgun eftir að eitrað var fyrir honum fyrir þremur vikum. Livtinenko hefur verið harður gagnrýnandi Pútíns Rússlandsforseta og var að rannsaka morðið á rússneskri rannsóknarblaðakonu sem meðal annars skrifaði óþægilegar fréttir um forsetann og samstarfsmenn. Erlent 23.11.2006 08:19
Síðasta líkið fundið í pólskri námu, 23 látnir Tuttugasta og þriðja og síðasta líkið fannst í morgun í pólskri kolanámu þar sem metangassprenging varð í fyrradag. Talið er að mennirnir hafi allir látist samstundis við sprenginguna. Björgunarmenn þurftu frá að hverfa á tímabili í nótt þar sem gasmengun óx og hitinn náði allt að 40 gráðum niðri í námunni. Erlent 23.11.2006 08:06
Kanada áfram eitt ríki Mikil umræða var á kanadíska þinginu í vikunni um hvað það væri að vera kanadískur. Allt síðan 1995 hafa verið öfl í hinu hálf-franska fylki Quebec sem krefjast sjálfstæðis en nýverið settu þau fram tillögu í þinginu þar sem þess var krafist að þingið viðurkenndi Quebec sem sérstaka þjóð. Erlent 22.11.2006 23:49
Sameinuðu þjóðirnar gegn ofbeldi gagnvart konum Sjóður Sameinuðu þjóðanna sem á að binda enda á ofbeldi gagnvart konum mun gefa alls 3,5 milljónir dollara, eða um 250 milljónir íslenskra króna, til verkefna sem eiga að miða að því að binda enda á ofbeldi gagnvart konum. Þetta er jafnframt stærsta upphæð sem sjóðurinn hefur deilt út. Erlent 22.11.2006 23:18
Hamas til viðræðna um fangaskipti Leiðtogi Hamas-samtakanna, Khaled Meshaal, er kominn til Kaíró, höfuðborgar Egyptalands, til þess að ræða um hugsanleg skipti á föngum við Ísraela. Talsmaður samtakanna skýrði frá þessu nú rétt í þessu. Erlent 22.11.2006 22:33
Kabila setur friðargæsluliðum úrslitakosti Forseti Austur-Kongó gaf í dag friðargæsluliðum Sameinuðu þjóðanna 48 klukkustunda frest til þess að koma vopnuðum liðsmönnum mótframbjóðanda síns, Jean-Pierre Bemba, úr höfuðborginni, Kinshasa. Ef þeir myndu ekki gera það ætlar hann sér að láta herinn sinna verkefninu. Erlent 22.11.2006 22:07
Líbanir biðja Sameinuðu þjóðirnar um aðstoð Líbanski forsætisráðherrann Fouad Siniora hefur beðið Sameinuðu þjóðirnar um aðstoð við að rannsaka morðið á iðnaðarráðherra landsins, Pierre Gemayel, sem myrtur var síðastliðinn þriðjudag. Erlent 22.11.2006 22:01
Alþjóðadómstóllinn í Haag sýnir aðbúnað fanga sinna Nýtt myndband sem alþjóðadómstólinn í Haag sendi frá sér sýnir þær aðstæður sem að fangar þar þurfa að lifa í. Dómstóllinn varð fyrir mikilli gagnrýni eftir sjálfsmorð eins fanga þar og síðan lát Slobodans Milosevic fyrr á árinu. Myndbandið var gert til þess að auka á gegnsæi innan stofnunarinnar og auka tiltrú á henni í kjölfar þessara atburða. Erlent 22.11.2006 21:30
Kristilegir demókratar með forystu eftir fyrstu tölur Hollenska ríkissjónvarpsstöðin NOS skýrði frá því í kvöld að þegar að ellefu prósent atkvæða hefðu verið talin væri stjórnarflokkur Kristilegra demókrata með forystu á aðal stjórnarandstöðuflokkinn, Verkamannaflokkinn. Bjóst sjónvarpsstöðin við því að Kristilegir demókratar eigi eftir að hljóta 41 sæti en Verkamannaflokkurinn 33. Erlent 22.11.2006 21:16
Ísraelar að hreinsa landssvæði af klasasprengjum Ísraelski herinn sagði í dag að hann myndi taka þátt í því að þjálfa friðargæsluliða Sameinuðu þjóðanna í því að hreinsa landsvæði af klasasprengjum og öðrum jarðsprengjum sem að hafa orðið eftir úr 34 daga stríði Ísraels og Hisbollah í sumar. Sprengjurnar hafa þegar valdið meira en 20 dauðsföllum og sært fleiri en 70 manns síðan að stríðinu lauk þann 14. ágúst síðastliðinn. Erlent 22.11.2006 21:08
Sprenging í efnaverksmiðju í Bandaríkjunum Sprenging varð í efnaverksmiðju í Bandaríkjunum í dag. Úr varð gríðarlegur eldur og slösuðust í hið minnsta tíu manns og talið er að nálægt hundrað heimili og byggingar hafi skemmst. Þurfti lögregla að flytja um 200 íbúa frá heimilum sínum. Erlent 22.11.2006 20:57
Pólverjar koma í veg fyrir viðræður Pólverjar héldu sig við hótanir sínar frá því í síðustu viku og beittu neitunarvaldi gegn þeirri tillögu Evrópusambandsins að viðræður yrðu hafnar við Rússa um nýjan samstarfssamning milli Evrópusambandsins og Rússlands. Erlent 22.11.2006 20:17
Ólga í listaheiminum á Ítalíu Viðræðum á milli ítalskra yfirvalda og J. Paul Getty safnsins í Los Angeles vegna 52 safngripa sem að Ítalir segja að hafi verið rænt hefur verið frestað um óákveðinn tíma þar sem safnið er aðeins tilbúið til þess að skila helmingi þeirra gripa sem rætt er um. Erlent 22.11.2006 20:14
Kristilegum demókrötum spáð sigri í Hollandi Búist er við því að flokkur Kristilegra demókrata eigi eftir að bera sigur úr býtum í þingkosningum í Hollandi sem fram fóru í dag en þó er ekki búist við því að þeir nái hreinum meirihluta á þinginu. Þetta sýna útgönguspár hollensku sjónvarpsstöðvarinnar RTL. Erlent 22.11.2006 20:01
Rottweiler hundar bíta unga konu til bana Fjórir rottweiler hundar bitu unga konu til bana í húsi nálægt París í Frakklandi í dag. Bitu þeir hana sérstaklega illa á andliti og á handleggjum samkvæmt fregnum frá lögreglu. Varð hún að skjóta hundana til bana til þess að komast að líki konunnar. Erlent 22.11.2006 19:37
Vill ekki láta farga fósturvísunum Bresk kona berst nú fyrir því að fá að halda eftir fósturvísum úr fyrra hjónabandi sínu en lögum samkvæmt á að eyða þeim. Flutningur á máli hennar hófst fyrir Mannréttindadómstól Evrópu í dag. Erlent 22.11.2006 19:15
Þjóðhátíð í skugga morðs Líbanskir stjórnmálamenn óttast að fleiri víg muni fylgja í kjölfar morðsins á Pierre Gemayel iðnaðarráðherra í gær. Þriggja daga þjóðarsorg hófst í landinu í morgun með því að þúsundir manna fylgdu kistu Gemayel um götur heimaborgar hans. Erlent 22.11.2006 18:58
Áhöfninni kennt um slysið Áhöfn rússnesku flugvélarinnar sem keyrði á vegg og brann síðan til kaldra kola eftir lendingu í sumar hefur verið kennt um atvikið. Þetta kom fram í skýrslu rannsóknarmanna sem var gefin út í dag. Alls dóu 125 manns í flugslysinu. Erlent 22.11.2006 18:08
Evrópskir bankar brutu lög um persónuvernd Eftirlitsstofnun Evrópusambandsins samþykkti í dag ályktun þar sem kom fram að belgíska bankafyrirtækið SWIFT hefði brotið lög um persónuvernd þegar það lét bandaríska fjármálaráðuneytið fá upplýsingar um millifærslur viðskipta sinna. Erlent 22.11.2006 17:44
Le Pen segist fórnarlamb samsæris Franski hægri maðurinn Jean-Marie Le Pen hefur beðið borgarstjóra Frakklands um að styðja forsetaframboð sitt, og sagði að helstu stjórnmálaflokkarnir hafi gert samsæri um að koma í veg fyrir að hann geti boðið sig fram. Erlent 22.11.2006 16:49
Lítil von um björgun úr pólskri námu Vonir hafa dvínað um að hægt verði að bjarga fimmtán pólskum námumönnum, sem nú hafi verið lokaðir ofan í námu sinni í einn sólarhring. Björgunarsveitir urðu frá að hverfa, í dag, vegna mikillar hættu á annarri sprengingu. Erlent 22.11.2006 16:24
Tyrknesk yfirvöld óróleg vegna heimsóknar páfa Tyrkneska lögreglan notaði táragas til þess að dreifa hópi manna sem ruddust inn í Aya Sofya safnið í Istanbúl, til þess að mótmæla heimsókn Benediktusar páfa til landsins í næstu viku. Erlent 22.11.2006 16:14
Búast við loftárásum á Íran næsta sumar Tvær hugveitur í Bandaríkjunum telja líklegt að George Bush, forseti, muni fyrirskipa sprengjuárásir á Íran næsta sumar, til þess að koma í veg fyrir að landið komi sér upp kjarnorkusprengjum. Erlent 22.11.2006 15:34
Rússar hóta að taka rafmagnið af Azerbadjan Rússar hafa tilkynnt Azerbadjan að þeir kunni að minnka raforkusölu til landsins um áttatíu prósent á næsta ári, og einnig skera niður sölu á gasi. Erlent 22.11.2006 14:32