Erlent

Komu mótmælt

Tyrkneska lögreglan handtók á miðvikudag um fjörutíu menn sem mótmæltu væntanlegri komu Benedikts 16. páfa til Tyrklands með því að leggja undir sig Sofíukirkjuna í Istanbúl, eina frægustu byggingu landsins.

Erlent

"Föstudagurinn svarti" að renna upp

Bandarískir neytendur búa sig nú undir "Föstudaginn svarta" en sá dagur, dagurinn eftir að Þakkagjörðarhátíðinni lýkur þar ytra, er upphafsdagur jólaverslunar í Bandaríkjunum. Á þeim degi í fyrra streymdu tvær milljónir bandaríkjamanna í verslunarleiðangur og þá bara í Wal-Mart. Og það aðeins á fyrsta klukkutímanum sem opið var.

Erlent

Litvinenko látinn

Alexander Litvinenko, fyrrum rússneskur njósnari sem var eitrað fyrir í upphafi mánaðarins, er látinn. Frá þessu skýrði sjúkrahúsið sem hann dvaldist á nú rétt í þessu.

Erlent

Fjölskylda falsar tvo milljarða

Níu peningafalsarar voru í dag dæmdir í samtals 41 árs fangelsi fyrir að hafa ætlað að koma 14 milljónum punda, eða um tveimur milljörðum íslenskra króna, í umferð í Bretlandi. Breskir lögreglumenn segja að þetta sé stærsta peningafölsunarmál í sögu landsins og að hægt sé að rekja tvo þriðju af öllum fölsuðum seðlum sem lögreglan hefur lagt hald á á árinu til þeirra.

Erlent

Blaine laus úr enn annarri prísundinni

Töframaðurinn David Blaine losaði sig úr snúðnum sem hann hékk í yfir Times-torgi í New York á fáeinum mínútum. Alls hafði hann hangið í snúðnum í tvo daga og snerist þar í allar áttar, óvarinn fyrir veðri og vindum. Aðspurður sagði hann að þetta hefði verið merkilega erfitt.

Erlent

Hisbollah kemur í veg fyrir mótmæli

Leiðtogi Hisbollah samtakanna, Sayyed Hassan Nasrallah, biðlaði til stuðningsmanna samtakanna að hætta mótmælum sínum í Beirút í kvöld. Hann kom fram í símaviðtali á sjónvarpsstöð Hisbollah og hvatti fólk til þess að hverfa til síns heima þar sem þeir vildu engan á götum úti.

Erlent

Palestínumenn bjóða frið

Herskáir hópar Palestínumanna hafa gert Ísraelum friðartillögu. Ætla þeir sér að hætta öllum eldflaugaárásum á Ísrael gegn því að Ísraelar muni hætta öllum hernaðaraðgerðum á Gaza svæðinu og Vesturbakkanum svokallaða. Þessu skýrði talsmaður hópanna frá í dag.

Erlent

Heilsu Litvinenkos hrakar enn

Alexander Litvinenko, hinn fyrrum rússneski njósnari sem var eitrað fyrir í London fyrir þremur vikum síðan, er alvarlega veikur eftir að ástand hans versnaði til muna. Læknar hafa nú útilokað að honum hafi verið byrlað þallíum eða álíku efni. Hann fékk hjartaáfall síðastliðna nótt og er nú haldið sofandi en þrátt fyrir það er ekki talið að miklar skemmdir hafi orðið á hjarta hans.

Erlent

Með golfkylfur í geimnum

Rússneski geimfarinn Mikhail Tyurin sló í nótt lengsta golfhögg sögunnar. Það er reyndar svo langt að kúlan er enn á flugi.

Erlent

Mannskæðasta árásin hingað til

Að minnsta kosti 144 týndu lífi í sprengjuárás á fátækrahverfi sjía í Bagdad í dag. Árásin er sú mannskæðasta sem framin hefur verið í landinu frá því að Bandaríkjamenn réðust þar inn.

Erlent

Afríkuríki verða að verja sig gegn fuglaflensu

Leiðtogar Alþjóðaheilbrigðissamtakanna sögðu í dag að ríki í Afríku þyrftu að fjárfesta mikið og fljótt í forvörnum gegn fuglaflensunni. Sögðu þeir að ríkin hefðu hreinlega ekki efni á því að leiða hættuna hjá sér öllu lengur. Þetta kom fram í ræðu þeirra á ráðstefnu um heilsuþjónustu í Afríku en hún fer fram í Suður-Afríku.

Erlent

Pútin ver bann við kjötinnflutningi

Vladimir Pútin, Rússlandsforseti, hefur varið þá ákvörðun Rússa að banna allan innflutning á kjöti frá Póllandi. Bannið hefur staðið í nærri ár og eru Pólverjar hreint ekki sáttir við það. Hafa þeir meðal annars komið í veg fyrir viðræður milli Evrópusambandsins og Rússa um nýjan samstarfssamning.

Erlent

Michael Shields snýr aftur til Bretlands

Tvítugur Breti, Michael Shields, sem dæmdur var fyrir morðtilraun í Búlgaríu í fyrra snýr í dag til síns heima. Málið vakti mikla athygli þegar það kom upp en Shields var staddur í fríi í Varna í Búlgaríu í maí í fyrra og fylgdist með uppáhaldsliði sínu, Liverpool, tryggja sér Meistaradeildartitilinn í knattspyrnu.

Erlent

Fangelsi fyrir hatursraus

Breskur maður hefur verið dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi fyrir að hrækja framan í múslimakonu, og svívirða trú hennar með því að líkja henni við hryðjuverk.

Erlent

Rúmlega 140 fórust í árásinni

Tala látinna í sprengjuárásunum í Bagdad í dag er komin upp í rúmlega 140. Á þriðja hundrað eru særðir, sumir lífshættulega. Þetta er eitthvert mesta blóðbað sem orðið hefur í svona árásum í Íraksstríðinu frá upphafi.

Erlent

Eltast við þjóðarmorðingja í Rúanda

Franskur dómari hefur gefið út alþjóðlega handtökuskipun á hendur níu embættismönnum í Rúanda sem eru grunaðir um að hafa skipulagt morðið á forseta landsins árið 1994. Dauði forsetans var kveikjan að þjóðarmorðinu sem framið var í landinu.

Erlent

Dularfulla löggan

Þýsku lögregluþjónarnir héldu að þá væri að dreyma, þegar vel merktur amerískur lögreglubíll renndi fram úr þeim á hraðbrautinni. Við stýrið sat amerískur lögregluþjónn, með kaskeyti og Smith&Wesson skammbyssu.

Erlent

Orkumál í myrkri

Það varð nokkur þögn þegar ljósin slokknuðu í Brussel, á enn einum ráðherrafundi Evrópusambandsins, í dag. Eftir nokkurt þóf var ákveðið að halda fundinum áfram, við kertaljós.

Erlent

Flugvél lenti í Marseille vegna sprengjuhótunar

Flugvél á leið frá París til Fílabeinsstrandarinnar var skipað að lenda í Marseilli fyrr í dag vegna tilkynningar um að sprengja væri um borð. Vélin lenti heilu og höldnu í Marseille og farþegar fóru frá borði en sprengjusveit leitar nú að hugsanlegri sprengju.

Erlent

Þriggja daga þjóðarsorg vegna námuslyss

Nú er orðið ljóst að enginn komst lífs af þegar gassprenging varð í pólskri námu í fyrrakvöld. Búið er að finna lík þeirra tuttugu og þriggja námumanna sem fóru þangað niður.

Erlent

Byssumenn umkringja heilbrigðisráðuneytið í Írak

Vopnaðir menn réðust á heilbrigðisráðuneytið í Bagdad í morgun með sprengjuvörpum og skothríð. Varaheilbrigðisráðherra Íraks sagði í samtali við Reuters að hann sæi byssumenn fyrir utan gluggann, sem skytu á starfsfólk ráðuneytisins. Einhverjir hafa særst og verið fluttir á sjúkrahús.

Erlent

Íranar halda sínu striki með eða án aðstoðar S.þ.

Íranar sögðu í morgun að þeir vildu gjarnan þiggja aðstoð kjarnorkueftirlitsstofnunar S. þ. við gangsetningu á Arak-kjarnakljúfinum en að þeir myndu halda áætlunum sínum til streitu, sama hvort kjarnorkueftirlitsstofnunin hjálpar þeim eða ekki. Kjarnorkueftirlitsstofnun Sameinuðu þjóðanna neitaði í morgun að veita Írönum nokkra tæknilega aðstoð í kjarnorkuáætlun sinni.

Erlent

Methagnaður hjá Air France á öðrum ársfjórðungi

Stærsta flugfélag Evrópu, Air France-KLM, skilaði methagnaði á öðrum ársfjórðungi þessa rekstrarárs, eða sem nemur um 28 milljörðum íslenskra króna. Annar ársfjórðungur í rekstrarári félagsins nær frá júlí til september en hagnaðurinn á því tímabili í fyrra var um 22 milljarðar sem er um fjórðungi minni hagnaður en í ár.

Erlent

Rússar hóta Evrópusambandinu

Rússar hafa hótað að banna allan innflutning á kjöti frá ríkjum Evrópusambandsins frá og með fyrsta janúar næstkomandi, þegar Rúmenía og Búlgaría fá aðild að sambandinu. Talsmaður ESB segir að Rússar fari offari með þessari hótun sinni, og hún stefni í hættu árangri á fundi sambandsins og Rússlands í Helsinki á morgun.

Erlent

Tugþúsundir í líkfylgd í Beirút

Tugþúsundir eru samankomnir í Beirút í Líbanon, til að fylgja Pierre Gemayel fyrrverandi ráðherra til grafar, en hann var myrtur í fyrradag. Stuðningsmenn hafa hvatt almenning til að fjölmenna við jarðarförina, sem hefst klukkan 11 að íslenskum tíma.

Erlent

Líðan Litvinenkos versnar eftir hjartaáfall í nótt

Alexander Litvinenko, fyrrverandi njósnari hjá KGB sem talið er að eitrað hafi verið fyrir, fékk hjartaáfall í nótt og ástand hans er sagt mjög alvarlegt. Litvinenko hefur dvalið á University College sjúkrahúsinu í Lundúnum frá því í byrjun mánaðarins en nýjustu fregnir herma að þrír hlutir hafi fundist í meltingarvegi hans.

Erlent

Þúsundir manna flýja heimili sín í Afríku vegna flóða

Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna þurfti í gær að aðstoða þúsundir manna við að flýja frá Dadaab flóttamannabúðunum í Norðaustur-Kenía, þar sem flóð ógnuðu búðunum, eins og fleiri stöðum í Austur-Afríku. Kapphlaupið við tímann og vatnið heldur áfram því í veðurkortunum birtist áframhaldandi vætutíð.

Erlent

Vínbirgðareisurnar Evrópubúar geta haldið áfram

Evrópudómstóllinn dæmdi í morgun að fólk sem pantar áfengi í póstlista frá öðru aðildarlandi Evrópusambandsins og fær það sent heim að dyrum, skal greiða af því skatt í því landi sem pósturinn skilar pöntuninni. Ef fólkið fer hins vegar sjálft og sækir sér áfengi og flytur heim sjálft, þá greiðir það aðeins skatt í landinu þar sem áfengið er keypt.

Erlent

Tíbeti kveikti í sér

Tíbeskur maður kveikti í sjálfum sér fyrir utan hótelið sem Hu Jintao, forseti Kína dvelur á, í heimsókn sinni til Indlands.

Erlent