Erlent
Al-Kæda reynir að sundra Írökum Bandaríkjaforseti segir að átök sjía og súnní múslima í Írak, séu ekki borgarastríð, heldur liður í áætlunum al-Kæda um að nota ofbeldi til þess að egna fólk til átaka. Erlent 28.11.2006 09:43
Auðvelda vegabréfaáritun til BNA George Bush, forseti Bandaríkjanna, hefur lofað að gera íbúum Mið-Evrópu auðveldara að ferðast til Bandaríkjanna. Síðan hryðjuverkaárásirnar voru gerðar á Bandaríkin hefur sífellt verið að setja nýjar reglur um vegabréf, sem svo hefur verið frestað, þannig að fólk á orðið erfitt með að átta sig á hvort vegabréf þess dugi til að komast inn í landið. Erlent 28.11.2006 09:27
Guiliani vinsæll Rudolph Giuliani, fyrrverandi borgargarstjóri New York borgar og repúblikani, er vinsælasti stjórnmálamaðurinn meðal Bandaríkjamanna. Giuliani vakti mikla athygli fyrir frammistöðu sína eftir hryðjuverkaárásina á Bandaríkin þann 11. september 2001. Erlent 28.11.2006 08:44
Óttast að Tamiflu geti valdið geðsýki Tilkynnt hefur verið til lækna í Bandaríkjunum um alvarlegar geðrænar aukaverkanir hjá 120 börnum sem fengið hafa inflúensulyfið Tamiflu. Um 89 þúsund skammtar af lyfinu hafa verið keyptir hingað vegna hættu á fuglaflensu. Erlent 28.11.2006 06:15
Vill hjálpa fátækum og draga úr áhrifum Bandaríkjanna Rafael Correa, 43 ára vinstrisinnaður hagfræðingur, sigraði með glæsibrag í forsetakosningunum í Ekvador á sunnudaginn. Þegar helmingur atkvæða hafði verið talinn í gær hafði Correa fengið tvisvar sinnum fleiri atkvæði en andstæðingur hans, auðjöfurinn Alvaro Noboa. Erlent 28.11.2006 06:15
Sakaður um miðlun vændis og ofbeldi Harri Jaskari, framkvæmdastjóri Hægriflokksins í Finnlandi, getur átt margra ára fangelsisdóm yfir höfði sér ef hann verður fundinn sekur um að hafa miðlað vændi, haft í hótunum og beitt konur ofbeldi meðan hann var framkvæmdastjóri flokksins, að sögn finnlandssænska dagblaðsins Hufvudstadsbladet. Erlent 28.11.2006 06:00
Síminn var fullur af klámi Kristinu Birkeland frá Björgvin í Noregi brá heldur betur í brún þegar hún komst að því að nýi farsíminn hennar var stútfullur af klámmyndum. Erlent 28.11.2006 05:30
Hætta á þrem borgarastríðum Abdullah II Jórdaníukonungur sagði um helgina hættu á því að borgarastyrjaldir brjótist út í þremur ríkjum Mið-Austurlanda á næsta ári, og nefnir þar Írak, Líbanon og Palestínu. Erlent 28.11.2006 05:00
Töldu sig hafa ekið yfir dýr Danska lögreglan hefur haft afskipti af minnst tólf bílstjórum, sem um síðustu helgi óku yfir lík manns sem látist hafði í bílslysi á þjóðveginum skammt fyrir utan Sønderborg á Jótlandi. Frá þessu var greint í danska blaðinu Politiken. Erlent 28.11.2006 04:30
Hundruð mótmæltu lögregluofbeldi Lögregla í New York borg í Bandaríkjunum varð manni að bana og særði tvo í skothríð á laugardag. Hundruð manna komu saman á sunnudaginn til þess að mótmæla þessum verknaði lögreglunnar og kröfðust sumir þess að lögreglustjóri borgarinnar segði af sér. Erlent 28.11.2006 04:00
Fimm myrtir í veiðiferð Fimm ungir veiðimenn, sem allir voru í sömu fjölskyldu, fundust myrtir í miðhluta Grikklands á laugardag. Mennirnir, sem voru á aldrinum 17 til 33 ára, voru saman í veiðiferð þegar harmleikurinn varð. Tveir þeirra voru bræður en hinir þrír voru frændur bræðranna. Erlent 28.11.2006 03:00
Ehud Olmert hvetur til friðar Forsætisráðherra Ísraels lýsti því yfir í gær að Palestínumenn gætu myndað sjálfstætt ríki, komi þeir að samningaborðinu með Ísrael. Palestínumenn segja að um innantóm loforð sé að ræða. Erlent 28.11.2006 02:00
90 handteknir vegna mótmæla Lögreglan í Rødovre í nágrenni Kaupmannahafnar handtók 90 mótmælendur á unglingsaldri við samkomuhús trúfélagsins Faderhuset á sunnudag. Vildu ungmennin mótmæla fyrirhuguðum flutningi æskulýðsstarfs trúfélagsins í byggingu sem nú hýsir Ungdomshuset, samkomustað ungs fólks á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Erlent 28.11.2006 01:15
Öll rafmagnstæki sprungu Íbúar þorpsins Tsarev Brod í Búlgaríu lentu í þeirri óþægilegu lífsreynslu um daginn að öll rafmagnstæki þeirra sprungu. Örbylgjuofnar, brauðristar, útvörp og sjónvörp sprungu öll í einu og skelkaðir íbúar vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið. Erlent 27.11.2006 23:35
Correa nær öruggur um sigur Talið er nær öruggt að hinn vinstri sinnaði Rafael Correa muni bera sigur af hólmi í forsetakosningunum í Ekvador sem fram fóru á sunnudaginn var. Eftir að búið er að telja hluta atkvæðanna er hann með 63% fylgi og næsti andstæðingur hans aðeins með um 37%. Huga Chavez, hinn vinstri sinnaði forseti Venesúela, er mikill vinur og stuðningsmaður hans og þykir þetta sigur fyrir hann líka en vinstri sinnaðir stjórnmálamenn hafa átt góðu gengi að fagna í kosningum í Suður-Ameríku upp á síðkastið. Erlent 27.11.2006 23:17
Of þungar konur fá síður brjóstakrabbamein Ný bandarísk rannsókn hefur leitt í ljós að konur sem eru of þungar eiga minni hættu á að fá brjóstakrabbamein. Þetta á þó aðeins við fyrir tíðaskipti en eftir þau eru þyngri konur líklegri til þess að fá brjóstakrabbamein. Vísindamenn sögðust gáttaðir á þessu og að þetta gengi gegn flestum viðhorfum um góða heilsu. Þetta á við konur sem eru með yfir 30 í líkamsmassastuðul (e. Body Mass Index). Erlent 27.11.2006 22:56
Bandaríkin vilja alþjóðlegt lið friðargæsluliða til Sómalíu Bandaríkin ætla sér að koma með tillögu í öryggisráðinu um að friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna og Afríkusambandsins muni fara til Sómalíu og styðja stjórnvöld þar í baráttu sinni við íslamska uppreisnarmenn. Ástandið á svæðinu hefur verið vægast sagt erfitt og ræður stjórnin í landinu aðeins yfir borginni sem hún situr í og næsta nágrenni. Erlent 27.11.2006 22:45
Kerry ekki vinsæll meðal bandarískra kjósenda Kjósendur í Bandaríkjunum tóku nýlega þátt í könnun þar sem var metið hversu vel þeir kunnu við hugsanlega forsetaframbjóðendur árið 2008. Alls voru þeir spurðir um 20 hugsanlega frambjóðendur og varð John Kerry, sem tapaði fyrir George W. Bush í kosningunum 2004, neðstur. Erlent 27.11.2006 22:24
Spænska konungsfjölskyldan fjölgar sér Væntanlegt konungshjón Spánar, krónprinsinn Felipe og konan hans Letizia prinsessa, eiga von á sínu öðru barni en þetta staðfestu talsmenn konungsfjölskyldunnar í dag. Letizia prinsessa á von á stúlkubarni og er komin átta vikur á leið. Hún er fyrrum sjónvarpskona og á að eiga í maí á næsta ári. Erlent 27.11.2006 22:00
Íranir lofa Írökum aðstoð Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, tók í dag á móti Jalal Talabani, forseta Íraks, og hófu þeir viðræðu um ástandið í Írak og hvernig Íran gæti komið að því að bæta ástandið þar. Ahmadinejad sagði fyrir fundinn að hann myndi gera allt í sínu valdi til þess að bæta ástandið í Írak en löndin áttu í átta ára löngu stríði á níunda áratug síðustu aldar. Erlent 27.11.2006 21:27
Dómstólar staðfesta sigur Kabila Hæstiréttur Austur-Kongó hefur nú lýst Joseph Kabila forseta landsins eftir að dómstóllinn vísaði frá kærum Jean-Pierre Bemba, hans helsta andstæðings. Dómstóllinn kom saman í utanríkisráðuneyti landsins, þar sem að æstur múgur stuðningsmanna Bemba hafði kveikt í húsi hæstaréttar í mótmælum sem voru í vikunni sem leið, og var dómssalarins og kyrfilega gætt af friðargæslumönnum Sameinuðu þjóðanna sem og hermönnum Austur-Kongó. Erlent 27.11.2006 20:58
Bush í viðræðum við leiðtoga í Mið-Austurlöndum George W. Bush, Bandaríkjaforseti, mun ræða við íraska forsætisráðherrann Nuri al-Maliki um ofbeldisölduna sem er að tröllríða Írak um þessar mundir. Talsmaður Hvíta hússins viðurkenndi að ofbeldið þar í landi væri komið á nýtt stig og vísaði þar í auknar árásir og hefndarárásir trúarhópa. Þess er skemmst að minnast að bandaríska sjónvarpsstöðin NBC hefur ákveðið að kalla ástandið í Írak borgarastyrjöld. Erlent 27.11.2006 20:48
Búið að opna minnismerkið á ný Lögregla í Washington hefur aftur opnað minnismerkið um Lincoln og svæðið í kring eftir að því var lokað í dag vegna ótta um að hættuleg efni eða sprengjur væru þar. Við leit og efnagreiningu kom í ljós að ekki var um hættulegt efni að ræða. Erlent 27.11.2006 20:42
Segist vilja slíðra sverðin Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, segist reiðubúinn til viðræðna við Palestínumenn um lausn fanga og endalok hernáms heimastjórnarsvæðanna. Leiðtogar Hamas-samtakanna taka þessari útréttu sáttahönd með varúð. Erlent 27.11.2006 19:30
Borgarastyrjöld í Írak NBC fréttastöðin í Bandaríkjunum hefur ákveðið að kalla ástandið í Írak borgarastyrjöld þrátt fyrir að hvorki yfirvöld þar í landi eða Írak skilgreini það svo. Talsmenn Hvíta hússins hafa þegar mótmælt þessari skoðun stöðvarinnar. Stjórnmálafræðingar telja að þetta eigi eftir að hafa töluverð áhrif á skoðanir amerísks almennings á ástandinu í Írak. Erlent 27.11.2006 19:25
Grunsamleg efni finnast í Washington Hluta af minnismerkinu um Abraham Lincoln hefur verið lokað eftir að grunsamlegt efni fannst á svæðinu en lögreglumaður þar skýrði frá þessu í dag. Sögðust þeir vera að fylgja settum starfsreglum og að svæðið myndi sennilega aðeins vera lokað í stuttan tíma á meðan efnið yrði rannsakað. Starfsmaður bandarísku ríkisstjórnarinnar sagði að umslag með orðinu "anthrax" hefði fundist við minnismerkið. Erlent 27.11.2006 18:58
Kvörtunum Bemba vísað frá dómi Hæstiréttur Austur-Kongó úrskurðaði rétt í þessu í kvörtunum þeim sem Jean-Pierre Bemba lagði fram vegna því sem hann kallaði óreglu í lokaumferð forsetakosninga landsins sem fram fóru þann 29. október síðastliðinn. Hæstiréttur vísaði þeim öllum frá og samkvæmt því ætti ekki að vera langt þangað til Joseph Kabila, sigurvegari kosninganna, verði staðfestur af hæstarétti sem forseti landsins. Erlent 27.11.2006 18:02
837 demantar í einum hring Úkraínska skartgripahúsið Lobortas & Karpova afhjúpaði í dag gullhring með alls 837 afrískum og jakútskum demöntum og segja þeir jafnframt að þetta sé heimsmet í fjölda demanta á einum hring. Ekki hefur þó verið gefið upp hversu mikils virði hringurinn, sem kallaður er "Dans engilsins" er en hann er í einkaeign úkraínskar viðskiptakonu. Erlent 27.11.2006 17:54
Merkel endurkjörin formaður CDU Angela Merkel, kanslari Þýskalands, var í dag endurkjörin formaður Kristilegra demókrata á landsfundi þeirra í Dresden. Merkel hlaut 93 prósent atkvæða sem staðfesti stuðning flokkssystkina hennar við hana í embætti. Erlent 27.11.2006 16:57
Hvernig er veðrið í Ástralíu ? Farsími sem hvarf af skoska þinginu í janúar árið 2004 hefur verið aftengdur. Hinsvegar verður erfiðara að aftengja símreikning upp á tæpar átta milljónir króna, sem eftir stendur. Síminn var ætlaður starfsfólki til afnota um helgar og þegar það þurfti að yfirgefa skrifstofur sínar. Erlent 27.11.2006 16:47