Erlent

Sagði hernaðinn ekki virka

Skömmu áður en George W. Bush Bandaríkjaforseti skýrði frá því að Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra myndi láta af störfum hafði Rumsfeld sagt nauðsynlegt að breyta algerlega um stefnu í Írak.

Erlent

Mannréttindasamtök ákveða

Mannréttindasamtök í Malaví og barnaverndarsamtök hafa fengið heimild til þess að taka þátt í ákvörðun um það hvort söngkonan Madonna fær að ættleiða eins árs gamlan dreng frá Malaví.

Erlent

Hefur áfrýjað dauðadómnum

Lögfræðingar Saddams Husseins áfrýjuðu í gær dauðadómnum, sem kveðinn var upp yfir honum í byrjun nóvember.Jafnframt sökuðu lögfræðingarnir dómstólinn um að tefja fyrir framgangi málsins, þar sem þeir hefðu ekki fengið afrit af dómsúrskurðinum fyrr en 23. nóvember.

Erlent

Tugir rússneskra njósnara starfa í Bretlandi -myrða og kúga

Rússneskir njósnarar, í Bretlandi, eru jafn virkir og þeir voru meðan kalda stríðið stóð sem hæst, að sögn bresku leyniþjónustunnar. Leyniþjónustan telur líklegast að launmorðingjar í þjónustu rússneskra stjórnvalda hafi myrt fyrrverandi KGB manninn Alexander Litvinov, sem lést í Lundúnum fyrir tíu dögum.

Erlent

Flugeldaverksmiðja sprakk í loft upp í Bretlandi

Að minnsta kosti tveir slökkviliðsmenn hafa farist og bæði slökkviliðsmenn og óbreyttir borgarar hafa slasast í gríðarlegum sprengingum í flugeldaverksmiðju í bæn um Lewes, í Englandi. Tugir manna hafa verið fluttir á sjúkrahús.

Erlent

Bush sammála Rumsfeld um slæmt gengi í Írak

George Bush er sammála Donald Rumsfeld um að hlutirnir gangi hvorki nógu fljótt né vel, í Írak, að sögn þjóðaröryggisráðgjafa forsetans. Stephen Hadley sagði í samtali við ABC fréttastofuna að menn gerðu sér grein fyrir því að það yrði að breyta stefnunni í Írak og að því væri unnið.

Erlent

Ekki lengur síamstvíburar

Írösku tvíburasystrunum Zöruh og Fatimu heilsast vel eftir að læknar skildu þær að með skurðaðgerð á sjúkrahúsi í Sádi-Arabíu í gær.

Erlent

Læknarnir björguðu Pinochet

Líf Augustos Pinochets, fyrrverandi einræðisherra í Chile, hefur hangið á bláþræði undanfarinn sólarhring en hann fékk alvarlegt hjartaáfall í nótt.

Erlent

Bílasalar sem kunna ekki að keyra

Bílasalar sem kunna ekki að keyra yrðu líklega ekki eftirsóttir hér á landi. Í Saudi-Arabíu er hinsvegar talsvert af þeim. Þessir bílasalar eru konur. Og þær selja bílana konum sem ekki mega keyra þá.

Erlent

Pútin vildi að Blair þaggaði niður í njósnara

Rússar reiddust mjög og kvörtuðu yfir því við bresku ríkisstjórnina, að bréf sem KGB njósnarinn Alexander Litvinenko skrifaði á banabeði sínum skyldi gert opinbert eftir að hann lést. Í bréfinu sakaði Litvinenko Vladimir Putin um að hafa myrt sig.

Erlent

Íranar þakka Rússum

Íranar fögnuðu því í dag að Rússar skuli vera andvígir þeim hörðu refsiaðgerðum sem Bandaríkjamenn og Evrópusambandið vilja beita landið vegna kjarnorkuáætlunar þess.

Erlent

Pinochet veittar nábjargirnar

Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra í Chile, er við dauðans dyr eftir alvarlegt hjartaáfall sem hann fékk í gær. Að sögn AP-fréttastofunnar hefur prestur veitt honum hinsta sakramentið.

Erlent

Rumsfeld hafði efasemdir

Nokkrum dögum áður en Donald Rumsfeld, fyrrverandi landvarnaráðherra Bandaríkjanna, sagði af sér embætti hafði hann lagt til meiriháttar breytingar á stefnunni í Írak við forsetaembættið.

Erlent

Scaramella hinn hressasti

Mario Scaramella, trúnaðarvini KGB-mannsins sáluga, Alexander Litvinenko, heilsast vel þrátt fyrir að geislavirka efnið pólóníum 210 hafi fundist í líkama hans.

Erlent

50 milljón brjálaðar bílskúrshurðir

Í Cheyenne fjalli í Kólóradó, í Bandaríkjunum, er stjórnstöð bandaríska flughersins. Þaðan er auðvitað mikið um fjarskipti og meðal annars hefur herinn sérstaka tíðni sem hann notar til þess að láta æðstu embættismenn vita ef eitthvað er í uppsiglingu.

Erlent

Mótmælin halda áfram

Mótmælendur í miðborg Beirútar, höfuðborgar Líbanons, láta engan bilbug á sér finna en þeir eyddu annarri í nótt í tjaldborg við stjórnarráðið til að þrýsta á ríkisstjórnina að segja af sér.

Erlent

Pinochet við dauðans dyr

Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra í Chile, liggur á milli heims og helju eftir að hafa fengið alvarlegt hjartaáfall í nótt.

Erlent

Blaðberaskortur

Dönsku fríblöðin sjá fram á að þurfa að flytja inn fleiri blaðbera því Danir hafa engan áhuga á starfinu. Þótt 133 atvinnuleysisþegum, sem eru fullfærir um að starfa sem blaðberar, hafi verið boðin sú vinna í Frederiksberg, tóku eingöngu fimm starfinu. Í Kaupmannahöfn töldust 270 atvinnulausir hæfir og níu þeirra tóku boðinu.

Erlent

Norðmenn ætla að veiða 1.052 hrefnur

Norsk stjórnvöld tilkynntu í síðustu viku að hrefnuveiðikvóti næsta árs verði 1.052 dýr. Þetta er jafn stór heildarkvóti og á þessu ári en ekki náðist að veiða nema um helming þess kvóta á vertíðinni sem lauk fyrir skömmu.

Erlent

Fjölmenni við útför Sean Bell

Hundruð manna söfnuðust saman í Queens í gær til að votta saklausu fórnarlambi skotárásar lögreglu virðingu sína. Hinn látni, Sean Bell 23 ára, var borinn til grafar í gær.

Erlent

Óttast að 600 manns hafi látist í skriðum

Fellibylur olli miklum aurskriðum á Filippseyjum frá fimmtudegi. Á fjórða hundrað hafa fundist látnir og rúmlega 300 er saknað. Hús fóru nánast á bólakaf í eðju. Fyrstu útfarir fórnarlambanna fóru fram strax í gær.

Erlent

Hátíðarhöldin án Kastrós

Lokadagur afmælis-hátíðar á Kúbu hófst í Havana í gær í tilefni af því að fimmtíu ár eru liðin síðan núverandi forseti landsins, Fídel Kastró, og félagar hans gerðu uppreisn á Kúbu. Hátíðarhöldin hófust án viðveru Kastrós en þegar var búið að fresta hátíðarhöldunum um tvær vikur vegna heilsufars hans.

Erlent

Mikill munur á samsetningu

Mun meiri munur er á genasamsetningu mannfólksins en áður var talið, kemur fram í nýrri breskri rannsókn sem fjallað er um á fréttavef breska ríkisútvarpsins, BBC.

Erlent

Hundrað létust í bílasprengjum

Talið er að hátt í hundrað manns hafi látist þegar bílasprengjuárás var gerð á sjíahverfi í Bagdad í gær. Árásin var gerð með því að aka þremur bílum, drekkhlöðnum sprengiefni, að vinsælu verslunarhverfi í Bagdad. Þær sprungu með örskömmu millibili og að því loknu lágu um hundrað manns í valnum. Fjölmargir særðust og voru fluttir á nærliggjandi sjúkrahús.

Erlent

Rumsfeld lagði til stórfelldar breytingar í Írak

Donald Rumsfeld, lagði til meiriháttar breytingar á stefnunni í Írak rétt áður en hann lét af embætti, að sögn bandaríska blaðsins New York Times. Hann sagði ljóst að það sem Bandaríkin væru að gera í Írak gengi ekki nógu vel.

Erlent