Erlent Kona nýr neytendaráðherra Danmerkur Nýr ráðherra fjölskyldu- og neytendamála, í Danmörku, verður hin 34 ára gamla Carin Christensen, sem kemur úr röðum íhaldsmanna. Christensen er sögð í miklu uppáhaldi hjá flokksforystunni, og eiga góðan frama fyrir sér í stjórnmálum. Erlent 15.12.2006 10:38 20 Hollendingar rannsakaðir vegna geislaeitrunar Erlent 15.12.2006 10:08
Kona nýr neytendaráðherra Danmerkur Nýr ráðherra fjölskyldu- og neytendamála, í Danmörku, verður hin 34 ára gamla Carin Christensen, sem kemur úr röðum íhaldsmanna. Christensen er sögð í miklu uppáhaldi hjá flokksforystunni, og eiga góðan frama fyrir sér í stjórnmálum. Erlent 15.12.2006 10:38
Íranar velja veraldlega og geistlega fulltrúa Íranar ganga í dag að kjörborðinu og velja sér fulltrúa í bæjarstjórnir og í eina áhrifamestu trúarstofnun landsins sem þekkt er undir nafninu Sérfræðingasamkoman. Erlent 15.12.2006 09:15
Árlegt nektarhlaup við Háskóla Filippseyja í dag Stúdentar við Háskóla Filippseyja í Maníla söfnuðust saman í morgun til að berja nakta skólafélaga augum en liðlega þrjátíu manns tóku þátt í árlegu nektarhlaupi skólans um háskólasvæðið. Erlent 15.12.2006 09:00
Johnson sýnir viðbrögð við snertingu og orðum Tim Johnson, öldungadeildarþingmaður demókrata í Suður-Dakóta, sýnir bæði viðbrögð við snertingu og orðum samkvæmt lækni hans en þingmaðurinn gekkst undir aðgerð á heila í gær eftir alvarlegt heilablóðfall á miðvikudag. Erlent 15.12.2006 08:45
Hamas-liðar taka sér stöðu á götum úti í Gasaborg Vopnaðir menn á vegum Hamas-samtakanna hafa tekið sér stöðu við helstu götur í Gasaborg, daginn eftir að skotið var á bílalest Isamails Haniyeh, leiðtoga samtakanna og forsætisráðherra. Erlent 15.12.2006 08:40
Byssumenn halda gíslum í olíubirgðastöð í Nígeríu Byssumenn réðust í morgun inn á olíubirgðastöð á vegum Shell í suðurhluta Nígeríu í morgun og halda nokkrum hermönnum og verkamönnum í gíslingu. Frá þessu greindu yfirvöld í landinu. Erlent 15.12.2006 08:30
Segja Castro við dauðans dyr Fidel Castro, forseti Kúbu, er mjög veikur og við dauðans dyr. Þetta segir John Negroponte, yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar, í viðtali við bandaríska blaðið Washington Post í dag. Erlent 15.12.2006 08:00
Jólapósturinn til Rússlands sjö ár á leiðinni Rússneskir bréfberar hafa hafist handa við að bera út fjögur og hálft tonn af bréfum og pökkum sem voru send frá Bandaríkjunum árið 1999. Erlent 15.12.2006 07:31
Forsetafrú Taívans á sjúkrahús eftir réttarhöld Wu Shu-chen, forsetafrú Taívans, var flutt á sjúkrahús í morgun eftir að það leið yfir hana skömmu eftir að réttarhöld yfir henni vegna fjársvika hófust. Wu, sem er í hjólastjól, hefur verið heilsutæp og var óttast að hún gæti ekki ekki verið viðstödd réttarhöldin vegna þess,en hún mætti í dómhúsið í morgun. Erlent 15.12.2006 07:27
Öryggismál á Kastrup rannsökuð í þaula Nákvæm rannsókn er hafinn á ölllum öryggismálum Kastrup flugvallar í Kaupmannahöfn, eftir tvö nýleg atvik, þar sem minnstu munaði að stórslys yrði. Í báðum tilvikum var flugvélum ekið út á flugbrautir, þar sem flugvélar voru um það bil að lenda. Erlent 15.12.2006 07:25
Hugsanlegt að vændiskonum hafi verið byrlað eitur Lögreglan í Suffolk hélt áfram leit sinni í nótt að manni sem talinn er hafa myrt fimm vændiskonur í nágrenni Ipswich. Lögreglubílar óku um stræti borgarinnar með sérstakan búnað til að bera kennsl á bílnúmer en talið er hugsanlegt að morðinginn aki bláum BMW. Erlent 15.12.2006 07:23
Saka Fatah-liða um tilræði við Haniyeh Hamas-samtökin segja liðsmenn í Fatah-hreyfingunni hafa reynt að ráða Ismail Haniyeh, forsætisráðherra palsestínsku heimastjórnarinnar, af dögum við Rafha-landamærastöðina á Gasaströndinni í gær þar sem kom til átaka milli fylkinganna. Erlent 15.12.2006 07:17
Lögreglan yfirheyrir forsætisráðherrann Víðtæk bresk lögreglurannsókn á meintum mútugreiðslum fyrir aðalstitla hefur náð til æðstu embætta. Í gær var Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, færður til viðtals hjá lögreglunni. Þó var ekki um formlega yfirheyrslu að ræða. Erlent 15.12.2006 06:30
Trúðu frétt um flæmskt sjálfstæði Stjórnmálaleiðtogar í Belgíu brugðust ókvæða við í gær eftir að í fyrrakvöld var sendur út á besta tíma á frönskumælandi rás ríkissjónvarpsins leikinn þáttur sem leit út fyrir að vera raunverulegur aukafréttatími sem skotið var inn í dagskrána. Í „fréttatímanum“ var sagt frá því að Flæmingjar í hollensku-mælandi norðurhluta landsins hefðu lýst yfir fullu sjálfstæði og konungshjónin væru flúin úr landi. Erlent 15.12.2006 06:15
Búskmennirnir í Botsvana fá að snúa aftur heim Á miðvikudaginn felldi Hæstiréttur í Botsvana þann úrskurð að búskmenn hafi fullan rétt til þess að snúa aftur til heimkynna sinna í Kalahari-eyðimörkinni. Erlent 15.12.2006 06:00
Kennsl borin á fjórðu konuna Kennsl hafa verið borin á fjórðu konuna af þeim fimm sem fundist hafa myrtar í nágrenni Ipswich í Bretlandi á síðustu dögum. Reyndist um 24 ára gamla vændiskonu að ræða, Paulu Clennel. Hún hafði í síðustu viku í viðtali við fréttamenn sagt að hún væri hrædd vegna þess hve margar vændiskonur hefðu horfið í rauða hverfi Ipswich nýverið, en neyddist þó til að halda áfram að vinna til að geta fjármagnað heróínfíkn sína. Erlent 15.12.2006 05:30
Fullur í ræðustól þings Norðmenn eru æfir yfir þingmanninum Per Sandberg, sem mætti drukkinn á þing á þriðjudagskvöld. Sandberg hafði drukkið þrjú staup af ákavíti og einn bjór áður en hann steig í ræðupúlt Stórþingsins, að því er fréttavefur Aftenposten greinir frá. Erlent 15.12.2006 05:15
Stundum má drepa án dóms Ísraelskur dómstóll kveður upp úrskurð um fyrirfram ákveðin dráp á óvinveittum Palestínumönnum. Erlent 15.12.2006 05:00
Segist vita hver eitraði fyrir sér Viktor Jústsjenko, forseti Úkraínu, sagði í gær að saksóknarar hefðu nú undir höndum næg sönnunargögn til að handtaka þá sem hefðu átt þátt í að eitra fyrir sér fyrir rúmum tveimur árum. Erlent 15.12.2006 04:30
Meirihluti demókrata í hættu Nýfenginn meirihluti demókrata í öldungadeild Bandaríkjaþings er hugsanlega í uppnámi eftir að Tim Johnson, demókrati og þingmaður í öldungadeildinni, var fluttur á sjúkrahús í gær og talinn í lífshættu. Erlent 15.12.2006 04:15
Lofaði megrunarpillur og fékk fé Yfirmaður næringarfræði innan danska Hreyfingar- og fæðuráðsins hefur gerst uppvís að því að hæla megrunarpillum frá tveimur fyrirtækjum sem greiddu honum laun á meðan. Þetta kemur fram á fréttavef Politiken í gær. Erlent 15.12.2006 03:45
Landamærastöð tekin með valdi Vopnaðir liðsmenn Hamas-samtakanna gerðu áhlaup á landamærastöðina í Rafah á Gaza-ströndinni með það fyrir augum að opna hana fyrir Ismail Haniyeh, forsætisráðherra Palestínustjórnar og eins af leiðtogum Hamas. Erlent 15.12.2006 02:00
Brást trausti neytenda Barfoed afhenti í gær Margréti drottningu bréf sem tilkynnti uppsögn hans sem fjölskyldu- og neytendaráðherra Danmerkur. Erlent 15.12.2006 01:00
Áfangi að inngöngu í NATO Atlantshafsbandalagið tók í gær Serbíu, Svartfjallaland og Bosníu-Herzegovínu inn í aðildarundirbúningsáætlun sína. Ákvörðunin er liður í víðtækari áætlun um að draga með tíð og tíma alla fyrrverandi fjendur úr upplausnarstríðum gömlu Júgóslavíu inn í raðir bandalagsins og treysta stoðir varanlegs friðar á Balkanskaga. Erlent 15.12.2006 00:30
Gifting samkynhneigðra staðfest í New Jersey Löggjafinn í bandaríska fylkinu New Jersey lögfestu í kvöld dóm hæstaréttar fylkisins frá 25. október, þess efnis að samkynhneigðir gætu staðfest sambúð sína með sömu réttindum og hjón sem eru hvort af sínu kyninu. Eining samkynhneigðra para má samt ekki kallast "hjónaband". Ekki var ákveðið hvað sambúðarformið skyldi kallað í staðinn. Erlent 14.12.2006 23:36
Alagna með eigin tónleika fyrir utan La Scala Hetjutenórinn Roberto Alagna, sem rauk af sviði La Scala óperunnar í Mílanó í vikunni eftir að baulað var á hann úr salnum, hélt sína eigin sýningu fyrir utan óperuhúsið í kvöld meðan sýningin á Aidu fór fram innandyra án hans. Hann hefur hótað að kæra Scala óperuna ef hann verði ekki tekinn inn í sýninguna á ný. Erlent 14.12.2006 23:04
Demókratinn Johnson ekki í fleiri aðgerðir Tim Johnson, öldungadeildarþingmaður demókrata, mun ekki þurfa á fleiri skurðaðgerðum að halda, að sögn skurðlæknis sem hefur annast hann frá því í gærkvöldi, þegar hann var lagður í skyndi inn á sjúkrahús með blæðingu á heila. Læknirinn gaf engar nánari upplýsingar um ástand Johnsons. Erlent 14.12.2006 22:59
Utanríkisráðherrann fékk bókmenntaverðlaun Utanríkisráðherra Finna, Erkki Tuomioja, vann í dag bókmenntaverðlaun Finna í flokki fræðibókmennta fyrir ævisögu ömmu sinnar, sem var vinstrisinnað leikskáld sem hafði leynilegt samband við stjórnvöld í Sovétríkjunum. Hún var auk þess mikils virtur stjórnmálamaður í Finnlandi og atkvæðamikil í viðskiptum. Erlent 14.12.2006 21:41
Hjálp berst ekki til nauðstaddra vegna ofbeldis Vaxandi ofbeldi í Darfur-héraði í Súdan kemur í veg fyrir að hjálparstofnanir komi hjálpargögnum til hundruða þúsunda sem þurfa á hjálpinni að halda. Leiðtogi Súdana segir friðaráætlun Sameinuðu þjóðanna óraunsæja og sagði S.þ. velkomnar í Súdan, svo lengi sem áætlunin væri raunsæ. Erlent 14.12.2006 21:00