Erlent
Vonir dvína um viðræður Palestínu, Ísraels og Bandaríkjanna Condoleeza Rice fundaði með forsætisráðherra Ísrael og forseta Palestínu í dag en sameiginlegur fundur með þeim þremur verður á morgun. Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, varði þjóðstjórn landsins og bað um biðlund en Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, hélt fast við yfirlýsingar sínar frá því í gær um að bæði Bandaríkin og Ísrael myndu hvorki viðurkenna þjóðstjórnina né vinna með henni. Erlent 18.2.2007 18:30
Internet-fíkill kærir IBM fyrir að reka sig James Pacenza var rekinn frá IBM tölvufyrirtækinu í Bandaríkjunum fyrir að fara á spjallvef klámsíðu í vinnutölvu. Fyrirtækið segir stefnu félagsins alveg skýra og að Pacensa hafi verið varaður við. James fer fram á fimm milljónir bandaríkjadala frá fyrirtækinu undir þeim formerkjum að hann sé háður internetinu og verðskuldi meðferð og samúð, frekar en að vera rekinn. Erlent 18.2.2007 17:50
Ungabarnabeinagrindur í plastpoka Lögreglan á Indlandi fann plastpoka með leifum beinagrinda að minnsta kosti sex ungabarna nýverið. Pokinn fannst við leit á lóð sjúkrahúss í bænum Ratlam á mið-Indlandi. Óttast er að beinin geti verið vísbending um ólöglegar fóstureyðingar foreldra, sem vilja velja hvort kynið þau eignast. Pokinn fannst eftir ábendingu frá heimamanni. Erlent 18.2.2007 17:00
Segulljós rannsökuð í geimferð Delta II geimflaug Nasa geimferðastofnunnarinnar tók á loft í gærkvöldi frá Canaveral höfða í Florida. Seinkun varð á geimskotinu vegna vinds. Geimferðin ber heitið "Themis" og er ætlað að fá frekari innsýn inn í hvað orsakar segulljós og þá ljósadýrð sem getur skapast í himingeimnum. Vísindamenn eru á höttunum eftir upplýsingum um hvað hrindir af stað skyndilegri birtingu ljósa. Erlent 18.2.2007 16:45
62 létust í sprengingum í Baghdad Tala látinna í tveimur bílasprengingum í Baghdad í Írak í dag heldur áfram að hækka. Nú er staðfest að 62 létust og í það minnsta 120 slösuðust. Önnur sprengjan sprakk á markaði síja í nýjum hluta höfuðborgarinnar og hin í Sadr hverfinu. Um er að ræða mannskæðustu árásir síðan á miðvikudag þegar herir Bandaríkjamanna og Íraka tóku höndum saman um að skera upp herör gegn uppreisnarmönnum í landinu. Erlent 18.2.2007 13:58
Átta bandarískir hermenn létust í Afghanistan Átta bandarískir hermenn létust og 14 slösuðust þegar herþyrla hrapaði í suðausturhluta Afghanistan. Þyrlan var af Chinook gerð. Flugmaðurinn hafði tilkynnt um vandræði í mótor. Þyrlan hrapaði í Zabul héraði við landamæri Pakistan, en þar hafa aðgerðir talibana verið áberandi upp á síðkastið. Erlent 18.2.2007 13:47
Ár svínsins gengið í garð Milljónir manna hafa verið á faraldsfæti innan Kína sem og til landsins alla þessa viku og er um að ræða eina mestu fólksflutninga á jörðinni. Ástæðan er þó ekki stríðsátök eða hungursneyð, heldur mun gleðilegri - nýja árið í kínverska tímatalinu er nefnilega gengið í garð þar í landi og nú taka við vikulöng hátíðahöld. Erlent 18.2.2007 12:40
Bretar áhyggjufullir vegna unglingadrykkju Breskir læknar vilja sérstök meðferðarúrræði fyrir börn með áfengissýki. Börn allt niður í 12 ára aldur eru greind sem alkahólistar. Þetta kemur fram í breska dagblaðinu The Independent. Vaxandi áhyggjur eru í Bretlandi vegna mikillar áfengisdrykkju. Aldrei hafa jafn margir unglingar frá tólf ára aldri þurft læknisaðstoð vegna hliðarverkana áfengisdrykkju. Erlent 18.2.2007 11:10
Hóta að sniðganga Palestínustjórn Bandaríkjamenn og Ísraelar hafa fallist á að sniðganga nýja þjóðstjórn Palestínumanna nema stjórnin viðurkenni Ísraelríki og láti af ofbeldisverkum gegn Ísraelum. Ekkert samstarf verði á milli Ísraela og Palestínumanna ef af þessu verði ekki. Þessu lýsti Ehud Olmert yfir í aðdraganda viðræðna milli hans og utanríkisráðherra Bandaríkjanna Condoleezzu Rice. Erlent 18.2.2007 10:30
Fuglaflensa staðfest í Rússlandi Tvö tilfelli fuglaflensu hafa verið staðfest í Rússlandi sem hið banvæna afbrigði H5N1. Tilfellin tvö komu upp á tveimur stöðum vestur og suður af Moskvuborg í gærkvöldi. Frekari sýni verða tekin á morgun. Rannsókn þeirra mun leiða í ljós hversu hættulegur vírusinn er. Ekki hefur verið tilkynnt um fuglaflensusmit í mönnum enn sem komið er í Rússlandi. Erlent 17.2.2007 20:15
Þúsundir Ítala mótmæltu í Vicenza Þúsundir Ítala mótmæltu stækkun bækistöðvar Bandaríska hersins í borginni Vicenza á Ítalíu í dag. Skipuleggjendur mótmælanna segja meirihluta bæjarbúa mótfallna áformum bandaríska hersins. Þeir segja Romano Prodi forsætisráðherra Ítalíu hafa hunsað mótbárur þeirra gegn stækkuninni. Erlent 17.2.2007 20:00
Öldungadeild hafnar ályktun fulltrúadeildar Öldungadeild Bandaríkjaþings neitaði í dag að samþykkja ályktun sem fordæmir ákvörðun Bush forseta um að fjölga í herliði Bandaríkjamanna í Írak. Ályktunin var samþykkt í fulltrúadeild bandaríska þingsins með 246 atkvæðum gegn 182. Þetta er í annað skiptið á hálfum mánuði sem demókrötum í öldungadeildinni mistekst að vinna á mótstöðu repúblíkana og ná viðunandi fjölda atkvæða til að koma máli í gegn. Erlent 17.2.2007 19:36
Sjö létust í eldsvoða í Pennsylvaníu Sjö manns létust, þar af sex börn, þegar kviknaði í húsi í Pennsylvaníu ríki í Bandaríkjunum. Börnin voru á aldrinum tveggja til tíu ára, en kona um tvítugt lést einnig í eldsvoðanum. Nokkrir fullorðnir komust úr húsinu þegar eldurinn kviknaði klukkan þrjú í nótt að staðartíma. Ekki er enn vitað um orsök eldsins, en húsið var timburhús í Franklin rétt við Pittsburg. Erlent 17.2.2007 16:56
Grunur um fuglaflensutilvik í grennd við Moskvu Fuglaflensu hefur orðið vart í dauðum fuglum nálægt Moskvu og kanna nú rússnesk yfirvöld hvort um sé að ræða hina banvænu veiru H5N1. Erlent 17.2.2007 16:00
Japanir hafna hjálp frá Greenpeace Japanir hafa neitað að þiggja hjálp frá einu skipi náttúruverndarsamtakanna Greenpeace fyrir japanskt hvalveiðiskip sem er laskað á sjó eftir eld. Yfirvöld á Nýjasjálandi óskuðu eftir að skip Greenpeace fengi að aðstoða hvalveiðiskipið Nisshin Maru í Suðurskautshafi. Þeir óttast að olía geti lekið frá skipinu og spillt stærstu heimkynnum Adelie mörgæsa rétt hjá. Erlent 17.2.2007 14:06
Skotinn til bana í London Rúmlega tvítugur maður var skotinn til bana í austurhluta London í morgun. Hann er síðasta fórnarlamb vaxandi byssumenningar í borginni. Tilkynning barst undir morgun um að byssuskot hefðu heyrst í Hackney hverfinu og fann lögregla lík mannsins í kjölfarið. Hann hafði verið skotinn til bana í bíl. Erlent 17.2.2007 13:51
F-16 flugmenn uppfylla ekki NATO kröfur Danskir flugmenn F-16 orustuþota uppfylla ekki kröfur NATO um að fljúga 180 flugtíma á ári. Ástæðan er skortur á flugvirkjum danska flughersins. Frá áramótum hafa 12 flugvirkjar annað hvort sagt upp störfum eða óskað eftir launalausu leyfi. Þetta kemur fram í danska blaðinu Berlingske Tidende. Flugvirkjarnir eru ósáttir við lífeyris mál. Erlent 17.2.2007 13:09
Tólf létust í sjálfsmorðsárás í miðju réttarhaldi Tólf létust, þar á meðal dómarar og lögfræðingar, í sjálfsmorðsáras í réttarsal í borginni Quetta í Suðvestur-Pakistan í morgun. Hrina sjálfsmorðssprenginga hefur átt sér stað í héraðinu undanfarnar vikur og er lögregla og her í landinu í viðbragðsstöðu. Erlent 17.2.2007 12:45
Condoleezza Rice komin í óvænta heimsókn til Bagdad Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Condoleezza Rice, er komin í óvænta heimsókn til Bagdad, höfuðborgar Íraks. Rice er á ferðalagi um Mið-Austurlönd og heimsækir meðal annars ísraelska ráðamenn í Jerúsalem. Erlent 17.2.2007 09:15
Sprengja í stúlknaskóla í Íran Sprengja sprakk í stúlknaskóla í Zahedan í Íran klukkan tíu í kvöld að staðartíma. Byssumenn skutu á fólk á svæðinu eftir að sprengjan sprakk. Þetta er önnur sprengjan í bænum á þremur dögum. Ekki er vitað hvort einhver lést eða slasaðist í tilræðinu. Öryggisverðir lokuðu götum og umkringdu hús sem þeir töldu byssumennina vera í. Erlent 16.2.2007 22:14
Ákvarðanir Bush fordæmdar Ályktun gegn fjölgun bandaríska heraflans í Írak var samþykkt í fulltrúadeild bandaríska þingsins í dag. Ályktunin fordæmir ákvarðanir forsetans um fjölgun í heraflanum í Írak. 246 þingmenn greiddu atkvæði með ályktuninni en 182 gegn. Samþykktin neyðir Bush ekki til aðgerða, en sendir skýr skilaboð um að byrja að senda bandaríska hermenn heim frá Írak. Erlent 16.2.2007 21:14
Nasistavín undir hamarinn Flaska af Nasistavíni með mynd af Hitler verður boðin upp í Plymouth í Bretlandi á næstunni. Rauðvínsflaskan “Fuhrerwein” er frá árinu 1943 og markaði 54 ára afmæli Hitlers. Á miðanum á flöskunni er mynd af Hitler í hátísku jakkafötum með bindi. Annar miði á hálsinum skartar mynd af erni sem situr ofan á hakakrossinum. Erlent 16.2.2007 20:56
Skutu sprengjuvörpum að hersveitum í Sómalíu Árásarmenn í Sómalíu skutu sprengjuvörpum að hersveitum stjórnarinnar og eþíópískum hermönnum í Mogadishu höfuðborg Sómalíu í dag. Engan sakaði í tilræðinu. Fjórir óbreyttir borgarar létust í röð sprenginga í borginni í gær. Árásin í dag er sú síðasta í röð árása öfgasinna í borginni. Erlent 16.2.2007 20:15
Hefur hikstað í þrjár vikur Bandarísk unglingsstúlka virðist hafa orðið fyrir sérlega illu umtali því undanfarnar þrjár vikur hefur hún hikstað án afláts. Stúlkan hikstar um það bil fimmtíu sinnum á mínútu og eru læknar sem hafa rannsakað hana gersamlega ráðþrota yfir þessum hamagangi. Erlent 16.2.2007 20:15
Enn logar í japanska hvalskipinu Óttast er að umhverfisslys geti verið í uppsiglingu í Suður-Íshafinu eftir að eldur kom upp í japönsku hvalveiðiskipi þar í gær. Hafsvæðið er eitt hið tærasta í heiminum og þar eru einnig varpstöðvar mörgæsa. Þrátt fyrir að ekki hafi tekist að koma böndum á eldinn hafa skipverjar ekki viljað þiggja hjálp frá umhverfisverndarsinnum á svæðinu. Erlent 16.2.2007 19:45
Fiskur á meðgöngu meinhollur Fiskneysla á meðgöngu gerir börnin bæði gáfaðri og betri í samskiptum þegar þau vaxa úr grasi. Þetta er niðurstaða könnunar sem birtist í breska læknatímaritinu Lancet í dag. Erlent 16.2.2007 19:15
Sjö al-Kaída liðar fengu lífstíðardóm Tyrkneskur dómstóll hefur dæmt sjö al-Kaída liða í lífstíðarfangelsi vegna sprenginganna í Istanbul árið 2003. Sextíu manns létust í sprengingunum sem var miðað að Bretum og gyðingum. Höfuðpaur sprenginganna Louai al Sakka var einn hinna dæmdu, en hann tryggði fjármagn fyrir bílasprengingarnar. Þær sprungu við tvö samkomuhús gyðinga, bresku ræðismannsskrifstofuna og útibú HSBC bankans. Erlent 16.2.2007 19:10
CIA-mönnum stefnt fyrir rétt Ítalskur dómari hefur stefnt 26 bandarískum mönnum fyrir rétt vegna ráns á egypskum kennimanni í Mílanó árið 2003. Flestir mannanna starfa fyrir leyniþjónustuna CIA en þeir eru sagðir hafa flutt klerkinn Osama Mustafa Hassan nauðugan í fangelsi í Egyptalandi vegna gruns um að hann tengdist hryðjuverkum. Erlent 16.2.2007 19:00
Tvíburar skýring DNA gátu Lögreglan í Shuangcheng borg í Kína var ráðþrota þegar DNA sýni leiddi í ljós að einn og sami maðurinn hafði framið glæp á tveimur stöðum á sama tíma. Rannsóknarlögreglumenn fengu tvær tilkynningar um innbrot og nauðgun frá mismunandi stöðum. Erlent 16.2.2007 18:09
Rússar boða friðarviðræður Ísraela og Palestínumanna Utanríkisráðherra Rússlands segir líklegt að Ísraelar og Palestínumenn fallist á að hefja friðarviðræður á nýjan leik, þegar leiðtogar landanna hittast hinn nítjánda þessa mánaðar. Sergei Lavrov, sagði á fundi með fréttamönnum að hann búist við því að leiðtogarnir samþykki að hefja viðræður um rammasamkomulag um endanlega lausn á deilum sínum. Erlent 16.2.2007 15:35