Erlent Fjórir í gæsluvarðhald vegna aðildar að vændi í Osló Fjórir voru úrskurðaðir í fjögurra vikna gæsluvarðhald í dómhúsinu í Osló í dag vegna gruns um aðild að skipulögðu vændi. Einn þeirra er einnig ákærður fyrir mansal. Erlent 16.5.2007 16:55 Bræðravíg Palestínumanna halda áfram Mahmoud Abbas forseti Palestínu hefur verið hvattur til að lýsa yfir neyðarástandi eftir að að minnsta kosti sextán manns féllu í innbyrðis átökum Palestínumanna í dag. Að minnsta kosti fjörutíu manns hafa fallið í bardögum síðan á föstudag. Það eru Fatah samtök Abbas og Hamas samtökin sem berast á banaspjót. Erlent 16.5.2007 16:41 Rússar vildu eyða kjarnorkuveri Ísraela Tveir ísraelskir rithöfundar halda því fram í nýrri bók að Sovétríkin hafi hrint sex daga stríðinu af stað, til þess að geta eyðilagt kjarnorkuvopnabúr Ísraels. Vopnin hafi snúist í höndum Rússa þegar Ísraelar gersigruðu heri Arabaríkjanna á ótrúlega skömmum tíma. Erlent 16.5.2007 16:09 Harry prins ekki sendur til Íraks Harry Bretaprins verður ekki sendur á vegum breska hersins til Íraks eins og til stóð. Þetta hefur Sky-sjónvarpsstöðin eftir heimildarmönnum sínum. Eftir því sem fram kemur á fréttavef Sky er ástæðan sú að hann er „segull á heilaga stríðsmenn." Erlent 16.5.2007 15:44 Hóta árásum á París Herskár íslamskur hópur hefur hótað árásum á París á næstu dögum í kjölfar þess að Nicolas Sarkozy varð forseti Frakklands. Hópurinn nefnist herdeild Abous Hafs Al-Masris og kennir sig við fyrrverandi leiðtoga al-Qaida í Afganistan. Erlent 16.5.2007 15:16 Heini fær sjónina aftur og hittir mömmu sína Hinn átta mánaða gamli blindi nashyrningur Heini hefur nú fengið hluta sjónar sinnar aftur. Fyrir tveimur vikum fór hann í augnaðgerð sem gekk vel. Mikil eftirvænting ríkti þegar hann hitti hjörð sína aftur eftir aðgerðina. Ef hún myndi hafna honum væri lífið svo gott sem búið fyrir Heini. Erlent 16.5.2007 15:12 Útlit fyrir að verkfalli flugmanna Sterling verði aflýst Verkfalli flugmanna danska lágfargjaldaflugfélagsins Sterling sem hefjast átti á morgun verður líklega aflýst eftir því sem forsvarsmenn Sterling segja. Erlent 16.5.2007 14:27 Nauðguðu, pyntuðu og myrtu heila fjölskyldu Íbúar í smábænum Kherlani á Indlandi urðu svo reiðir þegar lágstéttarfjölskylda keypti sér lóð í bænum að þeir réðust á heimili hennar. Þeir nauðguðu, misþyrmdu og myrtu alla sem þeir náðu í. Þetta gerðist í september á síðasta ári, en málið er fyrst nú komið fram í dagsljósið. Í Bhotmange fjölskyldunni voru hjón, 17 ára dóttir og tveir synir 21 og 23 ára. Yfir 100 mann réðust á heimilið. Erlent 16.5.2007 14:08 Serbar hafa tekið sig á Yfirvöld í Serbíu hafa hert leitina að Ratko Mladic, sem grunaður er um stórfellda stríðsglæpi á tímum Balkanstríðanna, og því eru góðar líkur á að undirbúningur að viðræðum um ESB-aðild landsins fari í gang á ný. Þetta sagði Olli Rehn, yfirmaður stækkunarmála Evrópusambandsins, eftir samtöl við serbneska ráðamenn í Belgrað í morgun. Erlent 16.5.2007 14:00 Skapadægur Wolfowitz nálgast Búist er við að framtíð Pauls Wolfowitz, bankastjóra Alþjóðabankans, ráðist á fundi stjórnar bankans síðar í dag. Wolfowitz hefur legið undir miklu ámæli fyrir að hygla ástkonu sinni sem vinnur við bankann og hefur þrýstingur á bankastjórnina farið sívaxandi um að segja honum upp störfum. Erlent 16.5.2007 13:30 Sarkozy orðinn forseti Nicolas Sarkozy sór embættiseið sinn sem forseti Frakklands í morgun. Í setningarræðu sinni kallaði hann eftir þjóðareiningu og boðaði breytingar á frönsku samfélagi. Búist er við að Sarkozy skipi ríkisstjórn sína í fyrsta lagi á morgun. Erlent 16.5.2007 13:09 Danir börðust í sex tíma fyrir lífi sínu Erlent 16.5.2007 11:35
Fjórir í gæsluvarðhald vegna aðildar að vændi í Osló Fjórir voru úrskurðaðir í fjögurra vikna gæsluvarðhald í dómhúsinu í Osló í dag vegna gruns um aðild að skipulögðu vændi. Einn þeirra er einnig ákærður fyrir mansal. Erlent 16.5.2007 16:55
Bræðravíg Palestínumanna halda áfram Mahmoud Abbas forseti Palestínu hefur verið hvattur til að lýsa yfir neyðarástandi eftir að að minnsta kosti sextán manns féllu í innbyrðis átökum Palestínumanna í dag. Að minnsta kosti fjörutíu manns hafa fallið í bardögum síðan á föstudag. Það eru Fatah samtök Abbas og Hamas samtökin sem berast á banaspjót. Erlent 16.5.2007 16:41
Rússar vildu eyða kjarnorkuveri Ísraela Tveir ísraelskir rithöfundar halda því fram í nýrri bók að Sovétríkin hafi hrint sex daga stríðinu af stað, til þess að geta eyðilagt kjarnorkuvopnabúr Ísraels. Vopnin hafi snúist í höndum Rússa þegar Ísraelar gersigruðu heri Arabaríkjanna á ótrúlega skömmum tíma. Erlent 16.5.2007 16:09
Harry prins ekki sendur til Íraks Harry Bretaprins verður ekki sendur á vegum breska hersins til Íraks eins og til stóð. Þetta hefur Sky-sjónvarpsstöðin eftir heimildarmönnum sínum. Eftir því sem fram kemur á fréttavef Sky er ástæðan sú að hann er „segull á heilaga stríðsmenn." Erlent 16.5.2007 15:44
Hóta árásum á París Herskár íslamskur hópur hefur hótað árásum á París á næstu dögum í kjölfar þess að Nicolas Sarkozy varð forseti Frakklands. Hópurinn nefnist herdeild Abous Hafs Al-Masris og kennir sig við fyrrverandi leiðtoga al-Qaida í Afganistan. Erlent 16.5.2007 15:16
Heini fær sjónina aftur og hittir mömmu sína Hinn átta mánaða gamli blindi nashyrningur Heini hefur nú fengið hluta sjónar sinnar aftur. Fyrir tveimur vikum fór hann í augnaðgerð sem gekk vel. Mikil eftirvænting ríkti þegar hann hitti hjörð sína aftur eftir aðgerðina. Ef hún myndi hafna honum væri lífið svo gott sem búið fyrir Heini. Erlent 16.5.2007 15:12
Útlit fyrir að verkfalli flugmanna Sterling verði aflýst Verkfalli flugmanna danska lágfargjaldaflugfélagsins Sterling sem hefjast átti á morgun verður líklega aflýst eftir því sem forsvarsmenn Sterling segja. Erlent 16.5.2007 14:27
Nauðguðu, pyntuðu og myrtu heila fjölskyldu Íbúar í smábænum Kherlani á Indlandi urðu svo reiðir þegar lágstéttarfjölskylda keypti sér lóð í bænum að þeir réðust á heimili hennar. Þeir nauðguðu, misþyrmdu og myrtu alla sem þeir náðu í. Þetta gerðist í september á síðasta ári, en málið er fyrst nú komið fram í dagsljósið. Í Bhotmange fjölskyldunni voru hjón, 17 ára dóttir og tveir synir 21 og 23 ára. Yfir 100 mann réðust á heimilið. Erlent 16.5.2007 14:08
Serbar hafa tekið sig á Yfirvöld í Serbíu hafa hert leitina að Ratko Mladic, sem grunaður er um stórfellda stríðsglæpi á tímum Balkanstríðanna, og því eru góðar líkur á að undirbúningur að viðræðum um ESB-aðild landsins fari í gang á ný. Þetta sagði Olli Rehn, yfirmaður stækkunarmála Evrópusambandsins, eftir samtöl við serbneska ráðamenn í Belgrað í morgun. Erlent 16.5.2007 14:00
Skapadægur Wolfowitz nálgast Búist er við að framtíð Pauls Wolfowitz, bankastjóra Alþjóðabankans, ráðist á fundi stjórnar bankans síðar í dag. Wolfowitz hefur legið undir miklu ámæli fyrir að hygla ástkonu sinni sem vinnur við bankann og hefur þrýstingur á bankastjórnina farið sívaxandi um að segja honum upp störfum. Erlent 16.5.2007 13:30
Sarkozy orðinn forseti Nicolas Sarkozy sór embættiseið sinn sem forseti Frakklands í morgun. Í setningarræðu sinni kallaði hann eftir þjóðareiningu og boðaði breytingar á frönsku samfélagi. Búist er við að Sarkozy skipi ríkisstjórn sína í fyrsta lagi á morgun. Erlent 16.5.2007 13:09
Sarkozy kallaði eftir samstöðu Frakka Nicolas Sarkozy, nýr forseti Frakklands, kallaði eftir samstöðu meðal frönsku þjóðarinnar í ávarpi sínu við embættistöku í Elysee-höll í morgun. Sarkozy, sem tekur við af Jacques Chirac, sagði jafnframt að breytinga væri þörf og að Frakkar þyrftu að taka meiri áhættu, en hann hefur lagt áherslu á að blása þurfi lífi í efnahagslíf landsins þar sem atvinnuleysi er átta prósent. Erlent 16.5.2007 10:59
MySpace eyðir vefsíðum kynferðisafbrotamanna Stjórnendur tengslavefsins MySpace sögðu í gær að þeir hefðu borið kennsl á og eytt vefsíðum þúsunda dæmdra kynferðisafbrotamanna. Þetta gera eigendur MySpace til þess að vernda yngri notendur. MySpace tilkynnti um þetta aðeins degi eftir að átta bandarískir saksóknarar kröfðust þess að tengslavefurinn léti af hendi upplýsingar um vefsíður kynferðisglæpamanna og eyddi þeim síðan. Samtals eru 175 milljón manns með vefsíðu á MySpace. Erlent 16.5.2007 10:35
Dýr myndi James allur Safnarar geta verið dálítið galnir. Til dæmis safnarinn sem borgaði rúmar fimm milljónir króna fyrir hnúðinn á gírstönginni af Aston Martin bílnum sem James Bond ók í Goldfinger. Myndin var frumsýnd árið 1964. Þessi gírhnúður var þeim eiginleikum gæddur að ef toppurinn á honum var opnaður var takki undir sem var notaður til þess að skjóta farþegasætinu upp úr bílnum. Alveg eins og í orrustuflugvél. Erlent 16.5.2007 10:34
Dýrasta hús Svíþjóðar til sölu Dýrasta hús Svíþjóðar er til sölu samkvæmt norrænum miðlum. Fram kemur að fyrir fjórum árum hafi það verið metið á um 100 milljónir danskra króna, jafnvirði um milljarðs íslenskra króna, en leynd hvílir yfir núverandi verði þess. Erlent 16.5.2007 10:32
Allir út að ýta - lestinni Á Indlandi er það þannig að lestarnar fá rafstraum á vissum köflum leiðarinnar. Það fleytir þeim yfir rafmagnslausu kaflana og að næsta aflgjafa. Í Bihar héraði á dögunum vildi svo til að einhver tók óvart í neyðarbremsu og lestin stoppaði rétt áður en hún komst að kafla með rafmagni. En það vill svo vel til að Indverjar eru margir og lestarnar alltaf yfirfullar. Erlent 16.5.2007 10:11
Mourinho handtekinn út af hundi Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, var handtekinn í gærkvöld eftir að hafa lent í deilum við lögreglun um hundinn sinn. Erlent 16.5.2007 09:23
Hættuástandi aflétt Sprengiefnið, sem fannst í íbúð í grennd við Sjelör stöðina í Kaupmannahöfn í morgun, reyndist eldgamalt dínamít, sem hefur jafnvel verið í íbúðinni í áratugi. Búið var að rýma hús í grendinni og loka fyrir bílaumferð þegar sprengjusérfræðingar kváðu upp þennan úrskurð og var hættuástandi aflétt. Erlent 16.5.2007 08:56
Bein útsending á Vísi: Sarkozy orðinn forseti Hægt er að fylgjast með embættistöku Nicolas Sarkozy í beinni útsendingu hér á Vísi. Athöfnin hófst klukkan níu. Hann tekur við embætti forseta Frakklands af Jacques Chirac, sem hefur verið forseti í tólf ár. Smellið á „meira“ og síðan á hlekkinn inni í fréttinni til þess að fylgjast með athöfninni. Erlent 16.5.2007 08:43
Fann lík í nýju íbúðinni Spænskur maður sem keypti sér íbúð á uppboði án þess að skoða hana fyrst fann lík fyrrum eiganda hennar í íbúðinni. Líkið hafði varðveist fullkomnlega en eigandinn, kona sem var 55 ára, lést af eðlilegum orsökum sex árum áður. Íbúðin var seld á uppboði þar sem eigandinn hætti af greiða af húsnæðisláni sínu. Erlent 16.5.2007 08:11
Selja eignir til að eiga fyrir skaðabótum Rómversk-kaþólska kirkjan í Los Angeles í Bandaríkjunum sagði í gær að hún myndi selja eignir sínar, þar á meðal aðalskrifstofu sína, til þess að geta greitt fórnarlömbum kynferðislegrar misnotkunnar presta hennar skaðabætur. Kirkjan ætlar þó ekki að leggja niður neina söfnuði. Í desember á síðasta ári greiddi kirkjan skaðabætur í 46 málum og hundruð eru enn í farveginum. Erlent 16.5.2007 07:54
Lögregla í Kaupmannahöfn finnur kíló af sprengiefni Lögregla í Kaupmannahöfn fann fyrir stundu eitt kíló af sprengiefni í íbúð á Håndelsvej 3, um 100 metra frá Sjælör stöðinni, að sögn Jótlandspóstsins. Lögregla er nú að flytja íbúa í nærliggjandi íbúðum í burtu. Tækni- og sprengjudeild lögreglu er á leiðinni á vettvang. Erlent 16.5.2007 07:53
Kína skorar á alþjóðasamfélagið að hjálpa Afríku Forsætisráðherra Kínverja, Wen Jiabao, skoraði í gær á alþjóðasamfélagið að gera meira til þess að aðstoða Afríku. Þetta sagði hann á fundi Þróunarbanka Afríku sem fram fór í Shanghai. Fleiri en 700 kínversk fyrirtæki starfa í Afríku og hafa viðskipti á milli Kína og Afríku fjórfaldast á síðastliðnum sex árum. Erlent 16.5.2007 07:04
Örlög Wolfowitz ráðast í dag Stjórn Alþjóðabankans hitti í gær PAul Wolfowitz, forseta hans. Hann er nú undir miklum þrýstingi um að segja af sér eftir að nefnd sérfræðinga á vegum bankans sagði að hann hefði gerst brotlegur við lög hans. Stjórn bankans mun ákveða örlög hans síðar í dag á öðrum fundi. Hvíta húsið styður ennþá við bakið á Wolfowitz, sem var áður aðstoðarvarnarmálaráðherra í Bandaríkjunum. Erlent 16.5.2007 07:01
Þriðja vopnahléið á Gaza rofið Vígamenn á Gaza svæðinu drápu að minnsta kosti fjóra í árás á heimili embættismanns Fatah hreyfingarinnar í nótt. Árásin batt enda á þriðja vopnahléið á jafnmörgum dögum en hún átti sér stað nokkrum klukkustundum eftir að vopnihléi var lýst yfir. Stuttu áður var sprengju varpað á skrifstofu Forseta Palestínu, Mahmoud Abbas. Þá var einnig ráðist á lögreglustöð Hamas hreyfingunnar. Erlent 16.5.2007 07:00
Sarkozy tekur við embætti í dag Jacques Chirac, forseti Frakklands, mun í dag láta af völdum og Nicolas Sarkozy, sigurvegari forsetakosninganna sem haldnar voru í mánuðinum, taka við. Erlent 16.5.2007 06:55
Mál Wolfowitz fyrir stjórn Alþjóðabankans Paul Wolfowitz bankastjóri Alþjóðabankans fundar nú með 24 manna stjórn bankans vegna ásakana gegn honum. Áður hafði stjórnin komist að niðurstöðu um að Wolfowitz hefði brotið reglur með því að stuðla að launahækkun ástkonu sinnar, sem vinnur hjá bankanum. Stjórnin hefur völd til að reka Wolfowitz, eða lýsa yfir vantrausti á hann. Erlent 15.5.2007 23:21
Yfir sextíu handteknir í Kristjaníu Átök lögreglu og mótmælenda í fríríkinu Kristjaníu héldu áfram í nótt og í morgun og þegar yfir lauk hafði lögregla handtekið á sjötta tug manna. Mótmælin hófust í gærmorgun þegar yfirvöld hófu niðurrif húss sem kallaðist Vindlakassinn. Erlent 15.5.2007 19:45
Spielberg þrýstir á Kína vegna Darfur Óskarsverðlaunahafinn og leikstjórinn Steven Spielberg hefur krafist þess að forseti Kína beiti sér fyrir því að endi verði bundinn á þjóðarmorðin í Darfur í Súdan. Í bréfi til Hu Jintao, forseta Kína, hvatti leikstjórinn Kína til að þrýsta á Afríkulandið að leyfa Sameinuðu þjóðunum að senda friðargæslusveitir til landsins. Erlent 15.5.2007 19:45