Erlent
Allt í plati Umdeildur hollenskur raunveruleikaþáttur þar sem keppt var um nýra úr dauðvona konu reyndist gabb eftir allt saman. Framleiðendur vildu vekja athygli á vandræðum líffæraþega í Hollandi. Íslenskur læknir segir þörfinni fyrir ígræðslu á Íslandi vel svarað en engu að síður séu fáeinir á biðlista hverju sinni. Erlent 2.6.2007 19:30
Ákærðir fyrir að skipuleggja hryðjuverk Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa ákært fjóra menn fyrir að hafa lagt á ráðin um hryðjuverkaárásir á John F. Kennedy flugvöll í New York. Fram kom á fréttamannafundi fyrir stundu að þrír þeirra væru í haldi en sá fjórði gengi enn laus. Erlent 2.6.2007 19:15
Mótmælt í Rostock Að minnsta kosti hundrað lögreglumenn særðust í átökum við mótmælendur í norður hluta í Þýskalands í dag. Leiðtogar átta helstu iðnríkja heims funda þar í næstu viku og vildu mótmælendur hafa áhrif á umræðuna þar. Lögregla beitti táragasi og vatnsþrýstidælum til að hafa hemil á mannfjöldanum. Erlent 2.6.2007 19:00
Stuðningmenn Chavez mótmæltu Bandaríkjunum í dag Stuðningsmenn Hugo Chavez, forseta Venesúela, fjölmenntu í miðborg Caracas, höfuðborg Venesúela, til þess að mótmæla yfirgangi og auðvaldsstefnu Bandaríkjanna í Suður-Ameríku. Þá vildu þeir líka sýna stuðning sinn við aðgerðir forsetans gegn sjónvarpsstöðvum í landinu. Chavez tók stöðina Radio Caracas Television úr loftinu þá en stöðin svaraði með því að sjónvarpa á vefsíðu YouTube í staðinn. Erlent 2.6.2007 18:00
Innanríkisráðherra Írans hvetur til tímabundinna hjónabanda Innanríkisráðherra Írans, Mostafa Pour-Mohammadi, er byrjaður á því að hvetja til tímabundinna hjónabanda. Hann ætlar þeim að leysa ýmis félagsleg vandamál í þjóðfélaginu. Samkvæmt reglum sjía greinar íslam getur fólk gift sig tímabundið, allt frá klukkutíma upp í eina öld. Karlmaður getur gift sig tímabundið eins oft og hann vill. Þrátt fyrir þetta er almennt álitið að tímabundin hjónabönd séu skálkaskjól fyrir vændi. Erlent 2.6.2007 17:48
Tugþúsundir mótmæla í Pakistan Tugir þúsunda söfnuðust saman til þess að sýna brottreknum hæstaréttadómara stuðning í Pakistan í dag. Mótmælin fóru fram í Abbotabad sem er 50 kílómetra frá höfuðborginni Islamabad. Dómarinn, Ifhikhar Mohammed Chaudry, var rekinn úr starfi af Pervez Musharraf, forseta landsins, fyrir að hafa gerst brotlegur í starfi. Musharraf sakar andstæðinga sína um að snúa brottrekstrinum upp í pólitískt hitamál. Erlent 2.6.2007 17:18
Putin segir eldflaugavarnarkerfi auka líkur á kjarnorkuátökum Vladimir Putin, forseti Rússlands, sagði í dag að eldflaugavarnarkerfi Bandaríkjamanna mundi auka líkurnar á kjarnorkuátökum í framtíðinni. Rússar hafa miklar áhyggjur af kerfinu og segja það skekkja valdajafnvægið í Evrópu. Þeir prófuðu síðan nýjar eldflaugar í vikunni og sögðu að þær kæmust í gegnum hvaða varnarkerfi sem er. Erlent 2.6.2007 16:18
Komið í veg fyrir árás á JFK Lögregla í Bandaríkjunum handtók í dag fjóra einstaklinga sem ætluðu sér að gera hryðjuverkaárás á John F. Kennedy flugvöll í New York. Einn er í Bandaríkjunum en þrír eru í haldi erlendis. WNBC skýrir frá þessu á heimasíðu sinni í dag. Erlent 2.6.2007 16:04
Fleiri en 100 lögreglumenn hafa særst í Rostock Fleiri en 100 lögreglumenn særðust í átökum við mótmælendur í Rostock í Þýskalandi í dag. Mótmælin voru vegna fyrirhugaðs fundar leiðtoga G8 ríkjanna sem verður haldinn þar í næstu viku. Talið er að lögreglumennirnir hafi særst þegar um 500 mótmælendur réðust gegn lögreglu nálægt höfninni í borginni. Fram að því höfðu mótmælin farið friðsamlega fram. Erlent 2.6.2007 15:54
Uppreisnarmenn í Nígeríu boða vopnahlé Uppreisnarmenn í Nígeríu buðu í morgun stjórnvöldum þar í landi vopnahlé í einn mánuð. Þeir ætla í viðræður við ný stjórnvöld og vonast til þess koma sínum skilaboðum á framfæri á friðsamlegan hátt. Uppreisnarmennirnir berjast fyrir auknu sjálfstæði svæða við ósa Níger en þar er mikil olía. Ættbálkum þar finnst sem að svindlað hafi verið á þeim og þeir ekki fengið nógu stóran hluta af ágóða vegna olíunnar. Erlent 2.6.2007 15:43
Vaknaði úr dái eftir 19 ár Fjölmiðlar í Póllandi skýrðu frá því í dag að 65 ára maður hefði nýverið vaknað eftir að hafa legið 19 ár í dái. Hann varð fyrir járnbrautarlest árið 1988, þegar Pólland var enn undir stjórn kommúnista. Ástandið hefur breyst mikið á þessum 19 árum og er landið nú orðið lýðræðislegt og hefur tekið upp markaðshagkerfi. Erlent 2.6.2007 14:52
2.000 óbreyttir borgarar látið lífið í maí 2.000 óbreyttir borgarar hafa látið lífið í Írak það sem af er maí. Þetta eru hæstu tölur síðan að hertar öryggisaðgerðir voru settar í gang í febrúar síðastliðnum. Vígamenn sprengdu upp brú norður af Bagdad í morgun og 10 létust og 30 særðust í árásum í Bagdad. Erlent 2.6.2007 14:19
Geta ekki tekið út peninga Milljónir viðskiptavina NatWest og Royal Bank of Scotland í Bretlandi geta ekki tekið pening út á kredit- eða debetkort sín. Ekki er vitað hvers vegna það er en svo virðist sem að heimabankar, hraðbankar og símabankar bankanna tveggja hafi hrunið seint í gærkvöldi. Viðskiptavinir bankanna geta þó notað kortin sín í verslunum. Erlent 2.6.2007 14:10
Hvetur Tyrki til þess að sýna stillingu Forsætisráðherra Íraks, Nuri al-Maliki, hvatti í dag tyrknesk stjórnvöld til þess að senda ekki hersveitir í norðurhluta Íraks en talið er að þar haldi kúrdískir aðskilnaðarsinnar sig. Al-Maliki sagði að ofbeldi væri ekki rétta leiðin til þess að takast á við vandamálin. Erlent 2.6.2007 13:53
Lögregla og mótmælendur tókust á í Rostock Lögreglu og mótmælendum í Rostock í Þýskalandi laust saman nú um hádegi. Verið er að mótmæla fyrirhuguðum G8 fundi sem fram fer í þorpi nálægt Rostock í næstu viku. Erlent 2.6.2007 13:32
Gabb í beinni útsendingu Umdeildur hollenskur raunveruleikaþáttur þar sem keppt var um nýra úr dauðvona konu reyndist gabb eftir allt saman. Þetta kom fram á lokamínútum þáttarins í hollensku sjónvarpi í gærkvöldi. Erlent 2.6.2007 12:30
G8 mótmæli í dag Mótmælendur víða að streyma nú til hafnarborgarinnar Rostock í norðurhluta Þýskalands þar sem leiðtogar átta helstu iðnríkja heims funda í næstu viku. 13 þúsund lögreglumenn eru í viðbragðsstöðu í borginni en búist er við allt að hundrað þúsund mótmælendum í dag. Mótmæli eru einnig fyrirhuguð í Lundúnum í dag og hafa mótmælendur safnast þangað í stórum hópum í morgun. Erlent 2.6.2007 12:25
Frakkar vilja senda herlið til Tsjad Frakkar íhuga nú að biðja aðildarlönd í Evrópusambandinu um að senda allt að 12.000 hermenn til Tsjad til þess að aðstoða flóttamenn frá Darfúr-héraði Súdan. Talsmaður franska utanríkisráðuneytsins staðfesti í morgun að það væri að reyna að safna utanríkisráðherrum G8 ríkjanna, auk þess kínverska, fyrir viðræður um ástandið í Darfúr. Erlent 2.6.2007 11:33
Kínverjar gera lítið úr auknum hernaðarumsvifum Kínverjar freistuðu þess að róa Bandaríkjamenn á herráðstefnu sem fram fer í Singapore í dag. Þar sagði talsmaður kínverska hersins að stækkun hans væri eingöngu í varnartilgangi og að þeir ætluðu sér ekki að ráðast gegn neinu landi. Á meðal hlustenda var Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Erlent 2.6.2007 11:13
Mótmælendur fjölmenna til Rostock vegna G8 fundar Mótmælendur komu sér fyrir í þýsku borginni Rostock í morgun til þess að mótmæla fundi G8 ríkja sem fram fer í Heiligendamm, smáþorpi rétt hjá Rostock, í byrjun næstu viku. Lögregla býst við allt að 100.000 mótmælendum en 40 samkomur á þeirra vegum verða haldnar víðsvegar um borgina um helgina. Búist er við því að mótmælin fari friðsamlega fram. Erlent 2.6.2007 10:49
Varaforsætisráðherra Kína látinn Húang Jú, varaforsætisráðherra Kína, lést í gær, sextíu og átta ára að aldri. Ekki hefur verið greint frá því formlega hvert banamein hans var en vitað er að hann hafði þjáðst af krabbameini síðan í fyrra. Erlent 2.6.2007 10:45
Kastró hefur að mestu náð sér Fídel Kastró, forseti Kúbu, hefur náð sér að mestu eftir magaaðgerði í fyrra. Þetta segir Ricardo Alarcon, þingforseti landsins. Þetta upplýsti hann í viðtali við bandaríska sjónvarpsstöð. Hann gaf þó ekkert upp um hvenær Kastró tæki aftur við stórnartaumunum. Erlent 2.6.2007 10:25
Samþykktu þingkosningar í haust Úkraínska þingið samþykkti í gær lagabreytingar sem gera það mögulegt að boða til þingkosninga í haust, nokkru fyrr en áætlað var. Viktor Júsjenkó, forseti, og Viktor Janúkóvits, forsætisráðherra, hafa samið um að kosið verði þrítugasta september næstkomandi. Ráðamennirnir hafa eldað grátt silfur síðan þeir börðust hatrammlega um forsetaembættið 2004. Erlent 2.6.2007 09:47
Hart barist í Líbanon Líbanski herinn hélt í morgun áfram árásum á palestínskar flóttamannabúðir í norðurhluta Líbanons. Stjórnvöld í Beirút vilja með aðgerðum sínum knýja fram uppgjöf liðsmanna Fatah al-Islam samtakanna sem halda til í búðunum. Samtökin eru sögð nátengd al-Kaída hryðjuverkasamtökunum. Erlent 2.6.2007 09:38
Nýrnaþátturinn var gabb Umdeildur hollenskur raunveruleikaþáttur þar sem keppt var um nýra úr dauðvona konu reyndist gabb eftir allt saman. Þetta kom fram á lokamínútum þáttarins í hollensku sjónvarpi í gærkvöldi. Sú dauðvona reyndist heilsuhraust leikkona en keppendur hins vegar raunverulegir sjúklingar. Þeir vissu þó af gabbinu áður en þeir samþykktu að taka þátt. Erlent 2.6.2007 09:37
Æ færri Danir lesa dagblöð Marktækt færri lesa dagblöð í Danmörku í dag en fyrir hálfu ári síðan. Þetta kemur fram í nýrri könnun Gallup sem skýrt var frá í dag. Þetta á við öll blöð í landinu ef undan er skilið viðskiptablaðið Börsen sem heldur sínum lesendahóp. Erlent 1.6.2007 23:19
Ófreskjan frá Alabama reyndist vera heimalningur - að nafni Fred Það vakti mikla athygli á dögunum þegar 11 ára drengur í Alabama felldi villisvín sem var það stærsta sem sögur fara af. Nú hefur hins vegar komið í ljós að villisvínið ógurlega var ekki villt, heldur var um að ræða alisvín sem kallað var Fred. Bóndi að nafni Phil Blissitt keypti grísinn árið 2004 og gaf konu sinni hann í jólagjöf. Erlent 1.6.2007 22:42
Bush krefst þess að Íran sleppi fjórum úr haldi Bush Bandaríkjaforseti krafðist þess í kvöld að írönsk strjórnvöld sleppi fólki fjórum einstaklingum sem handteknir hafa verið í Íran. Fólkið er af írönsku og bandarísku bergi brotið og hefur verið ákært í Íran fyrir að reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli. Erlent 1.6.2007 21:20
„Dr. Dauði“ laus úr fangelsi Læknirinn Jack Kevorkian, sem kallaður hefur verið „Dr. Dauði“ fyrir að hjálpa dauðvona sjúklingum að binda enda á líf sitt, er laus úr fangelsi eftir átta ára vist. Erlent 1.6.2007 21:02
Nýrnaþátturinn reyndist gabb Umdeildur hollenskur raunveruleikaþáttur hvar þáttakendur áttu að keppa um nýra úr dauðvona konu var gabb eftir allt saman. Konan er leikkona en keppendurnir eru raunverulegir nýrnasjúklingar sem vissu af gabbinu. Erlent 1.6.2007 19:56