Erlent

Komu hjálpargögnum í búðirnar

Hjálparsamtökum tókst í gær að koma hjálpargögnum inn Nahr el-Bared flóttamannabúðirnar í Líbanon. Það er í fyrsta sinn frá því að sókn líbanska hersins gegn herskáum múslimum, sem halda þar til, hófst í síðasta mánuði. Um hundrað manns hafa fallið í átökunum aðallega almennir borgarar.

Erlent

Búist við deilum á G8 fundi

Búast má við að deilur Rússa og Bandaríkjamanna um eldflaugavarnarkerfi Bandaríkjamanna í Austur-Evrópu setji svip sinn á fund leiðtoga átta helstu iðnríkja heims sem hefst í Þýskalandi í dag. Gríðarleg öryggisgæsla er viðhöfð vegna heimsóknar helstu þjóðarleiðtoga.

Erlent

Hafna því að hafa nýtt sér fjölmiðla um of

Foreldrar bresku stúlkunnar Madeleine McCann, sem rænt var í Portúgal fyrir um mánuði, hafna því að þeir hafi nýtt sér fjölmiðla um of í leit sinni að dóttur sinni. Gerry og Kate McCann hafa undanförnu ferðast um Evrópu til að vekja athygli á leitinni að fjögurra ára dóttur þeirra sem numin var á brott í Praia da Luz þann 3. maí.

Erlent

Hengd fyrir framhjáhald

Um sexhundruð manns fylgdust með þegar þrjár konur og einn karlmaður var tekinn af lífi fyrir framhjáhald í bænum Bara í Pakistan. Það var öldungaráð þorpsins sem kvað upp dauðadóminn. Talsmaður þess Jan Gul sagði í samtali við AP fréttastofuna að refsingar í bænum færu eftir hefðum og venjum. Auk þess að halda framhjá hefði fólkið neytt áfengis.

Erlent

Reyndi að stökkva upp í bílinn til páfa

Maður nokkur reyndi að stökkva upp í bílinn hjá Benedikt páfa fyrir stundu. Hann var kominn alveg að bílnum þegar öryggisverðir réðust á hann og sneru hann niður. Ekki er enn vitað hver maðurinn er eða hvað honum gekk til.

Erlent

Þrír Finnar handteknir í Íran

Þrír Finnar eru í varðhaldi í Íran eftir að til þeirra sást á siglingu í íranskri lögsögu í Persaflóa um helgina. Utanríkisráðherra Finna segir við CNN að mennirnir hafi verið við veiðar og ekki vitað hvar þeir voru.

Erlent

Fundi Abbas og Olmerts frestað

Fyrirhugðum fundi Ehuds Olmert, forsætisráðherra Ísraels, og Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, sem fram átti að fara á morgun hefur verið frestað að beiðni Palestínumanna. Frá þessu greindi í tilkynningu frá Olmerts í dag.

Erlent

Þriggja enn saknað eftir lestarslys í Ástralíu

Björgunarmenn héldu í dag áfram að leita að fórnarlömbum í flaki lestar sem rakst á flutningabíl í Viktoríuríki í Ástralíu í gær. Ellefu hið minnsta létust og yfir 20 manns slösuðust í þessu versta lestarslysi í sögu Viktoríuríkis.

Erlent

Nota gervihnattamyndavélar til að fylgjast með Darfur

Amnesty International í Bandaríkjunum hyggst beita nýstárlegri aðferð við eftirlit með mannréttindabrotum í hinu stríðshrjáða Darfur-héraði í Súdan. Samtökin ætla að nota gervihnattamyndavélar til þess að fylgjast með þróun mála í 12 þorpum sem talin eru í sérstakri hættu.

Erlent

Castro sprækur í sjónvarpsviðtali

Það var frískur Fidel Castro sem birtist Kúbverjum í viðtali í kúbversku sjónvarpi í gærkvöld. Athygli vakti hins vegar að hann minntist ekkert á hvenær hann myndi snúa aftur í stól forseta landsins.

Erlent

Vatíkanið tekur sólarorku í sína þjónustu

Vatíkanið hyggst leggja sitt af mörkum í baráttunni við loftlagsbreytingar með því að taka sólarorkuna í sína þjónustu til húshitunar og -kælingar. Eftir því sem fram kemur á fréttavef BBC er þak einnar af byggingum Vatíkansins illa farið og því þarf að skipta um það.

Erlent

ETA aflýsir vopnahléinu

Basknesku aðskilnaðarsamtökin ETA á Spáni lýstu því yfir í gær að vopnahléinu sem komið var á fyrir ári væri aflýst.

Erlent

Leggur áherslu á loftslagsmál

Nýkjörinn forseti Frakklands, Nicolas Sarkozy, segist munu krefja Bandaríkjastjórn um nákvæma áætlun í loftslagsmálum á fundi átta stærstu iðnríkja heims í vikunni.

Erlent

Fær tveggja og hálfs árs dóm

Lewis „Scooter“ Libby, fyrrverandi ráðgjafi Dicks Cheney, varaforseta Bandaríkjanna, var í gær dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir meinsæri og hindrun á framgangi réttvísinnar.

Erlent

Hótuðu saklausum Dana dauða

Alsaklaus og grunlaus Dani fékk fjölda morðhótana í sms-skeytum um helgina fyrir að hafa ráðist á dómara í landsleik Dana og Svía í fótbolta. Frá þessu er greint á vefsíðu Ekstra Bladet. Leikurinn var í kjölfarið flautaður af.

Erlent

Meintur hryðjuverkamaður gefur sig fram

Fjórði maðurinn sem grunaður er um aðild að áformum um sprengjuárásir á John F. Kennedy alþjóðaflugvöllinnn í New York gaf sig fram við lögregluyfirvöld á eyjunni í Trínidad og Tobago í dag. Maðurinn, sem heitir Abdel Nur, segist vera hafður fyrir rangri sök og að um samsæri gegn honum sé að ræða.

Erlent

Spánverjar senda herskip til að klófesta fjársjóð

Spánverjar hafa sent herskip til að stöðva tvo bandaríska báta sem grunur leikur á að hafi innanborðs fjársjóð sem tekinn var úr gömlu spænsku skipsflaki. Telja spænsk yfirvöld að fjársjóðurinn tilheyri þeim í samræmi við alþjóðalög en hingað til hafa Bandaríkjamennirnir ekki viljað viðurkenna þá kröfu.

Erlent

Stakk dómara með hníf eftir að henni var synjað um forræði

Frakkar íhuga nú að herða öryggi í réttarsölum eftir að dómari í borginni Metz varð fyrir árás trylltrar móður. Dómarinn var nýbúinn að kveða upp úrskurð sinn í máli konunnar þegar hún réðst að honum og stakk hann þrisvar með hníf. Hann var fluttur á sjúkrahús þar sem hann gekkst undir skurðaðgerð. Líðan hans er nú stöðug og hann er ekki í lífshættu.

Erlent

Íslendingar áberandi í Stokkhólmi

Íslendingar gerðu sig gildandi á götum Stokkhólms í dag en karlalið Íslendinga og Svía í knattspyrnu mætast þar í undankeppni EM á morgun. Upphitunarhátíð var haldin á Norrmalstorgi um miðjan dag þar sem keppt var í ýmsum aflraunaþrautum. Síðdegis hófust svo tónleikar við Berzelii garð þar sem fólk fær að heyra eitthvað íslenskt. Stuðmenn, Björgvinn Halldórsson, KK og Ragnheiður Gröndal skemmta og búa landann og Svía undir tuðruspark morgundagsins.

Erlent

Megrun borgar sig

Rúmlega helmingur þeirra einstaklinga sem fara í megrun viðhalda þyngdartapinu að einhverju leyti ári eftir að megruninni lýkur samkvæmt nýrri bandarískri rannsókn. Niðurstöðurnar eru á skjön við aðrar rannsóknir sem hafa sýnt fram á hið gagnstæða. Um 59 prósent þeirra sem tóku þátt í rannsókninni voru enn undir sinni upprunalegu þyngd ári eftir að þeir hættu í megrun.

Erlent

Svört skýrsla um bráðnun

Lífsviðurværi hundruð milljóna manna er ógnað vegna snjó- og ísbráðununar af völdum hlýnunar jarðar. Að óbreyttu skerðist aðgangur fólks að drykkjarvatni um leið og sjávarborð hækkar.

Erlent

Smokkarnir voru of litlir

Meðalstærð af smokkum sem grænlenska landsstjórnin útdeildi ókeypis til þegna sinna reyndist vera of lítil fyrir grænlenska karlmenn. Forvarnarstofnunin Paarisa sendi í fyrra smokka með nafninu Torrak til allra karlmanna á Grænlandi til þess að draga úr kynsjúkdómum og óæskilegum þungunum. Og ekki vantaði að smokkunum var vel tekið.

Erlent

Dregin marga kílómetra undir sendiferðabíl

Tveir menn hafa verið handteknir í Flórída fyrir að draga konu margra kílómetra leið undir sendiferðabíl sínum. Lögreglan hafði upp á sendiferðabílnum með því að fylgja blóðslóðinni á veginum. Þegar hún fann bílinn var konan látin og mennirnir flúnir af vettvangi.

Erlent

Forsætisráðherra Dana ver tjáningarfrelsið

Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Dana, varði einstaklingsfrelsið í ræðu sem hann hélt í tilefni af Grundlovsdag, sem er í dag. Hann sagði að það væri óverjandi þegar öfgakennd trú og öfgafull þjóðerniskennd bitnaði á einstaklingfrelsi, gerði konur undirgefnar karlmönnum og hindraði framþróun í efnahags-, þjóðfélags-, og menntamálum.

Erlent