Erlent
Skora á Gbagbo að víkja strax Sendinefnd Vestur-Afríkuríkja hefur skorað á Laurent Gbagbo, forseta Fílabeinsstrandarinnar, að hlíta kosningaúrslitum og víkja úr sæti nú þegar. Erlent 29.12.2010 00:45
Rússar vísa gagnrýni á bug Rússar svara þeim fullum hálsi sem hafa gagnrýnt málareksturinn gegn olíujöfrinum Mikhail Khodorkovsky, sem var fundinn sekur í vikunni um undanskot og peningaþvætti. Erlent 29.12.2010 00:30
Almenningur reiður í New York - samgöngur enn í ólagi Nítján þúsund borgarstarfsmenn New York borgar vinna að því að moka snjó, salta götur og hirða upp rusl í borginni en samgöngu hafa verið í ólagi síðan mikill snjóstormur geisaði á austurströnd Bandaríkjanna um helgina. Erlent 28.12.2010 23:07
Tekinn með kókaín í páskaeggjum rétt fyrir jól Tollverðir á alþjóðaflugvellinum í Los Angeles stöðvuðu karlmann í síðustu viku sem vakti sérstaka eftirtekt þeirra. Maðurinn var nefnilega með fáein páskaegg í fórum sínum sem tollvörðunum þótti heldur undarlegt í ljósi þess að tveir dagar voru til jóla. Í eggjunum var hvítt duft sem reyndist vera rúm sex kíló af kókaíni. Erlent 28.12.2010 09:32
Elton John orðinn pabbi Breski popparinn Elton John varð faðir í fyrsta sinn á jóladag þegar hann og eiginmaður hans, David Furnish, eignuðust son með hjálp staðgöngumóður, að því er fram kemur í frétt AP fréttaveitunnar. Erlent 28.12.2010 07:18
Fyrrverandi forsætisráðherra Króatíu verður framseldur í janúar Dómstólar í Austurríki hafa komist að þeirri niðurstöðu að fyrrverandi forsætisráðherra Króatíu þurfi að dvelja í fangelsi þar í landi þangað til hann verður framseldur til Króatíu í lok janúar. Erlent 28.12.2010 07:07
Skref aftur á bak fyrir Rússa Vestrænir þjóðarleiðtogar gagnrýna harðlega niðurstöðu rússneskra dómstóla í máli auðjöfursins Mikhail Khodorkovsky og segja málið vekja upp fjölmargar spurningar um dómskerfið í Rússlandi. Erlent 28.12.2010 07:00
Almenningssamgöngur komnar í eðlilegt horf Almenningssamgöngur til og frá austurströnd Bandaríkjanna eru komnar í eðlilegt horf eftir að mikill bylur fór þar yfir. Aflýsa þurfti um sjö þúsund flugferðum vegna veðurs í gær og fyrradag. Erlent 28.12.2010 06:58
Meintir hryðjuverkamenn áfram í haldi Níu karlmenn menn sem taldir eru hafa ætlað að ráðast á kauphöllina í London og bandaríska sendiráðið þar í borg yfir hátíðarnar hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald. Erlent 28.12.2010 06:53
IKEA blýantar í skurðaðgerðum IKEA blýantar eru betur til þess fallnir að merkja fyrir skurðum á beinum en hefðbundnir tússpennar. Þetta segja tveir skurðlæknar í jólahefti breska læknablaðsins, British Medical Journal. Erlent 28.12.2010 03:45
Ótti í sendiráði Danmerkur Sprengja var send með pósti til gríska sendiráðsins í Róm í gær. Starfsmenn sendiráðsins fundu sprengjuna áður en hún sprakk. Tveir slösuðust á aðfangadag þegar sams konar sprengjur sprungu í sendiráðum Síle og Sviss í Róm. Erlent 28.12.2010 00:30
Gæti beitt eldflaugaárásum Norður-Kórea gæti beitt eldflaugaárásum gegn skotmörkum í Suður-Kóreu á næsta ári. Sérfræðingar reikna með að stjórnvöld í Norður-Kóreu herði á hernaðarlegum ögrunum í aðdraganda valdaskipta í landinu. Erlent 28.12.2010 00:00
Ekki lokað í Guantanamo á næstunni Hinar alræmdu Guantanamo fangabúðir munu ekki loka á næstunni, samkvæmt upplýsingum sem breska blaðið Telegraph hefur frá Hvíta húsinu í Washington. Vel á annað ár er liðið frá því að Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hét því að búðirnar myndu loka innan árs. Erlent 27.12.2010 23:07
Óveður í Bandaríkjunum | Myndir Það er snjóþungt á austurströnd Bandaríkjanna. Óveður hefur geisað víða og meðal annars hafa helstu flugvellir verið lokaðir vegna óveðursins. Þúsundir manna, sem þurfa að ferðast vegna jólahátíðanna, sitja því fastir. Erlent 27.12.2010 23:00
Áttburamamman á leið á götuna Nadya Suleman, sem eignaðist áttbura fyrir tveimur árum og hlaut heimsfrægð fyrir, er í vandræðum. Hún skuldar 450 þúsund dollara í húsi sem hún flutti inn í eftir fæðinguna og fyrri eigandi ætlar að krefjast þess að hún verði borin út ásamt börnum sínum 14, en konan átti sex lítil börn áður en áttburarnir komu undir. Öll komu börnin í heiminn með aðstoð gerfifrjóvgunar. Erlent 27.12.2010 22:00
Hjólastólaþjófar gleymdu að fela slóðina - handteknir stuttu síðar Þrír sænskir þjófar voru handteknir í gær eftir að þeir höfðu brotist inn í geymslur í tveimur fjölbýlishúsum í Helsingborg í Suður Svíþjóð. Málið hefur vakið talsverða athygli því tveir þjófanna voru í hjólastólum. Erlent 27.12.2010 20:40
Nýfundin tegund var áður útbreidd í Asíu Fornmenn sem uppi voru í Síberíu fyrir meira en 30 þúsund árum blönduðust nútímamönnum. Þetta sýnir greining á erfðaefni fornmannanna og frumbyggja eyja norðaustur af Ástralíu, sem sagt er frá í nýjasta hefti vísindaritsins Nature. Erlent 27.12.2010 15:00
Endurskin á norsk hreindýr Norska vegagerðin vinnur nú að því að endurskinsmerkja hreindýr landsins svo síður verði ekið á þau. Erlent 27.12.2010 14:00
Þjófarnir elska facebook Þjófar elska Facebook. Þar finnast nefnilega mikilvægar upplýsingar um ferðalög, frítíma og vinnutíma. Það léttir óprúttnum aðilum vinnu þeirra við innbrot, segir í grein á danska vefnum business.dk. Þar er bent á að stöðufærslur á Facebook eða Twitter geti kostað fólk flatskjá, eða jafnvel hægindastóla. Erlent 27.12.2010 09:46
Khodorkovsky fundinn sekur Rússneski auðjöfurinn Mikhail Khodorkovsky var í morgun fundinn sekur um fjárdrátt af dómara í Moskvu. Khodorkovsky, sem eitt sinn var á meðal auðugustu manna heims, afplánar nú þegar átta ára fangelsisdóm fyrir fjársvik og skattaundanskot og nú gæti hann þurft að dúsa í fangelsi í sex ár til viðbótar. Erlent 27.12.2010 08:48
Forseti S-Kóreu herskár Forseti Suður Kóreu hét því í ræðu sem hann hélt í morgun að sunnanmenn myndu bregðast við af fullri hörku ef norðanmenn myndu gera aðra árás í svipuðum dúr og þegar fjórir suðurkóreumenn létust í síðasta mánuði. Erlent 27.12.2010 08:41
Allsherjarverkfall á Fílabeinsströndinni Stuðningsmenn Alessane Outtara, sigurvegara í forsetakosningum á Fílabeinsströndinni, hafa boðað til allsherjarverkfalls í landinu sínum manni til stuðnings en sitjandi forseti neitar að stíga til hliðar. Alþjóðasamfélagið hefur viðurkennt Outtara sem sigurvegara kosninganna en Laurent Ghabo segir brögð hafa verið í tafli. Erlent 27.12.2010 08:37
Snjóbylur á austurströnd Bandaríkjanna Snjóstormur skall á austurströnd Bandaríkjanna um helgina og hefur hann haft í för með sér miklar raskanir á samgöngum í landshlutanum. Um 1400 flugferðir féllu niður um jólahelgina þegar milljónir Bandaríkjamanna voru á faraldsfæti. Miklar umferðartafir hafa einnig verið auk þess sem tafir hafa orðið á lestarferðum. Í Maryland, New Jersey, Virginínu og Norður-Karólínu var neyðarástandi lýst yfir vegna veðursins og íbúar í Georgíu og Suður-Karólínu héldu hvít jól í fyrsta sinn í rúma öld. Upptök veðursins eru rakin til mikillar lægðar úti fyrir ströndum Norður Karólínu og hefur hún færst upp strandlengjuna eftir því sem liðið hefur á. Erlent 27.12.2010 08:34
Tveir látast í árás á Gasa Ísraelsmenn skutu niður tvo Palestínumenn í loftárás á Gasa, en samkvæmt ísraelska hernum ætluðu mennirnir að koma fyrir sprengjum á öryggisgirðingu á landamærunum við Ísrael. Erlent 27.12.2010 02:30
Flóttamenn flýja til Líberíu Nágrannaþjóðir Fílabeinsstrandarinnar hafa hótað að beita hervaldi gegn ríkisstjórn Gbagbo, sem heldur enn fast um stjórnartaumana þrátt fyrir að hafa tapað í nýafstöðnum kosningum. Erlent 27.12.2010 01:00
Störe heillaður af Wikileaks Jonas Gahr Störe, utanríkisráðherra Noregs, segir Wikileaks-málið vera forvitnilegt að mörgu leyti þar sem leyniskjölin gefi innsýn í samskipti milli ríkja. Erlent 27.12.2010 01:00
Lífseig amma: Var úrskurðuð látin en vaknaði á útfarastofunni Starfsfólki útfarastofu í í brasilísku borginni Belo Horizonte brá heldur betur í brún í liðinni viku þegar hin 88 ára gamla Maria das Dores da Conceicao fór að hreyfa sig í líkkistu sem hún hafði verið lögð í. Erlent 26.12.2010 22:00
Átta Bandaríkjamenn fórust í bílslysi í Egyptalandi Átta Bandaríkjamenn, sex konur og tveir karlmenn, létust og 21 slösuðust í hörðum árekstri í Egyptalandi í dag. Bandaríkjamennirnir voru farþegar í rútu sem ók á vörubíl með sandhlassi á pallnum. Erlent 26.12.2010 21:00
Átök í Nígeríu eftir mannskæða sprengingu Ofbeldi hefur brotist út í Jos í Nígeríu eftir sprengingu sem varð í þorpi nærri Jos á föstudaginn. Erlent 26.12.2010 19:46
Konungur piparsveinanna genginn út Konungur piparsveinanna og stofnandi Playboy tímaritsins, Hugh Hefner, trúlofaði sig á Jóladag. Hin heppna heitir Crystal Harris og er að sjálfsögðu fyrrverandi Playboy-módel, nánar tiltekið desemberstúlka 2009. Erlent 26.12.2010 14:49