Erlent
Hugh Hefner ekki lengi að jafna sig - tvíburar fluttir inn Svo virðist sem að Hugh Hefner, stofnandi Playboy tímaritsins, ætli ekki að eyða miklum tíma í að sleikja sárin eftir að fyrrverandi unnusta hans hætti við að giftast honum því Hefner bauð tvíburum að flytja inn á Playboy-setrið í hennar stað. Samkvæmt erlendum fjölmiðlum eru systurnar Karissa og Kristina Shannon nú þegar fluttar inn. Erlent 18.6.2011 14:00
Kvartaði sáran undan handjárnunum Dominique Strauss-Kahn, fyrrverandi framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, kvartaði sáran undan handjárnum sem honum var gert að hafa fyrir aftan bak þegar hann var handtekinn í síðasta mánuði. Hann sagði þau of þröng. Daginn eftir handtökuna bað hann um egg í fangelsinu. Þetta er meðal þess sem fram kemur í skýrslum sem hafa verið opinberaðar um handtökuna. Erlent 18.6.2011 13:02
Ófreskjan frá Kiel játar á sig fimm morð Ófreskjan frá Kiel, raðmorðinginn Hans-Jürgen S., sem var handtekinn í byrjun apríl njósnaði um ungar stúlkur í bíl sínum, beið eftir rétta tækifærinu og myrti þær síðan. Tæp 30 ár eru frá því Hans varð síðasta fórnarlambi sínu að bana. DNA sýni kom lögreglunni á sporið. Erlent 18.6.2011 11:36
Bandaríkjamenn ræða um frið við talíbana Bandaríkjamenn eiga í friðarviðræðum við talíbana í Afganistan. „Friðarviðræður eru hafnar og þeim miðar vel. Erlendar hersveitir taka þátt í viðræðunum og þá einkum Bandaríkjamenn sem leiða þær,“ sagði Hamid Karzai, forseti Afganistans, á blaðamannafundi í morgun. Erlent 18.6.2011 11:11
Skutu fyrir mistök á farþegaþotu Suður-kóreskir hermenn skutu fyrir mistök á farþegaþotu í grennd við landamæri Suður- og Norður-Kóreu í gær. Þeir töldu að um flugvél norður-kóreska hersins væri að ræða og skutu hátt í hundrað skotum að henni. Hermennirnir áttu sig síðan á því að þarna væri á ferðinni farþegaþota á leið á alþjóðaflugvöllinn í Seúl. Ekkert skotanna hitti farþegaþotuna sem kom inn til lendingar skömmu síðar. Um borð voru um 120 farþegar. Erlent 18.6.2011 09:51
Yfir tuttugu látnir eftir átök í fangelsi Hermenn hafa náð fangelsi í Vensúela undir sína stjórn eftir að óeirðir og átök glæpagengja brutust út í vikunni. Hermennirnir voru kallaðir út eftir að fangaverðir misstu stjórn á fangelsinu. Að minnsta kosti 22 eru látnir og þá eru fjölmargir særðir. Einn hermaður er meðal hinna látnu. Erlent 18.6.2011 09:47
Ætla að ná arftaka bin Ladens Bandaríkjamenn ætla að leita uppi Ayman al Zawahiri, arftaka hryðjuverkaleiðtogans Osama bin Laden, þótt Robert Gates varnarmálaráðherra segi hann ekki jafnmikilvægan. Erlent 18.6.2011 06:00
Efla þarf regluverk og eftirlit Jean-Claude Trichet, seðlabankastjóri Evrópusambandsins, hefur í liðinni viku við nokkur tækifæri rætt nauðsyn þess að gerðar verði breytingar á regluverki evrunnar. Hann segir að regluverkið, sem sett var upp seint á síðustu öld, hafi reynst veikburða og í ofanálag hafi því ekki verið fylgt nægilega vel eftir. Erlent 18.6.2011 05:00
17. júní í Álaborg Íslenskir fánar voru áberandi í sólskininu á danskri grundu í dag þar sem Íslendingafélagið í Álaborg fagnaði þjóðhátíðardeginum með pompi og prakt. Þar var farið í skrúðgöngu, blásið í blöðrur og smakkað á sætindum, alveg eins og lög gera ráð fyrir. Anton Brink, ljósmyndari Fréttablaðsins, er í Danmörku og fangaði gleðina á filmu. Erlent 17.6.2011 19:09
Kviðdómari ræddi við sakborning á Facebook Kviðdómari í Bretlandi hefur verið dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir að hafa haft samband við sakborning í gegnum Facebook. Saksóknarinn í málinu sagði að dómurinn ætti að vera öðrum kviðdómurum víti til varnaðar, en hin fertuga Joanne Fraill er sú fyrsta sem er dæmd fyrir vanvirðingu við dómstóla vegna gjörða sinna á internetinu. Hún sat í kviðdómi í fíkniefnatengdum málaferlum gegn 34 ára konu í borginni Manchester á síðasta ári. Joanne viðurkenndi að hafa haft samúð með konunni og því hafi hún haft samband við hana og sent henni skilaboð í gegnum Facebook þar sem Joanne greindi frá umræðum innan kviðdómsins. Þá viðurkenndi hún einnig að hafa flett kærasta konunnar upp á netinu, en hann var einnig sakborningur í málinu. Hvort tveggja er brot á reglum enska réttarkerfisins, og því var konan sakfelld fyrir vanvirðingu við réttinn og dæmd til átta mánaða fangelsisvistar, en hún gróf höfuðið í höndum sér og grét þegar dómurinn var kveðinn upp. Almenningur var hins vegar látinn borga brúsann, því málaferlin kostuðu um 6 milljónir punda, meira en milljarð króna, en dómarinn neyddist til að leysa kviðdóminn upp þegar upp komst um athæfi Joanne. Erlent 17.6.2011 13:33
Strauss-Kahn sagðist njóta friðhelgi Dominique Strauss-Kahn, fyrrverandi framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, reyndi að halda því fram við handtöku að hann nyti diplómatískrar friðhelgi. Hann var handtekinn er hann var að yfirgefa Bandaríkin fyrir að hafa gert tilraun til að nauðga hótelþernu í New York. Lögfræðingar Strauss-Kahn hafa hins vegar ekki gert neina tilraun til að halda fram friðhelgi umbjóðanda síns, og því er talið að yfirlýsing framkvæmdastjórans við handtöku hafi verið röng. Erlent 17.6.2011 13:15
Strauss-Kahn sagðist njóta friðhelgi Dominique Strauss-Kahn, fyrrverandi framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, reyndi að halda því fram við handtöku að hann nyti diplómatískrar friðhelgi. Hann var handtekinn er hann var að yfirgefa Bandaríkin fyrir að hafa gert tilraun til að nauðga hótelþernu í New York. Lögfræðingar Strauss-Kahn hafa hins vegar ekki gert neina tilraun til að halda fram friðhelgi umbjóðanda síns, og því er talið að yfirlýsing framkvæmdastjórans við handtöku hafi verið röng. Erlent 17.6.2011 11:21
Papandreú lofar að berjast til þrautar Vaxandi ótti er við að atburðirnir í Grikklandi muni smita út frá sér með alvarlegum afleiðingum fyrir efnahag Evrópusambandsríkjanna, einkum þó þeirra sem nota evruna. Erlent 17.6.2011 05:30
Hafa torveldað störf Wikileaks Julian Assange, stofnandi uppljóstrunarvefsins Wikileaks, segir að stofufangelsi, sem Bretar hafa haldið honum í nú um hálfs árs skeið, sé alvarlegasta hindrunin sem starfsemi Wikileaks hafi orðið fyrir, „að undanskildu ef til vill því ólöglega viðskiptabanni sem helstu fjármálastofnanir Bandaríkjanna hafa lagt á okkur“. Erlent 17.6.2011 04:00
Stöðuvatn í Argentínu fullt af ösku Nahuel Huapi stöðuvatnið í Argentínu er orðið uppfullt af ösku úr Puyehue eldfjallinu í Chile, sem nú hefur gosið látlaust í tæpar tvær vikur og sett flugsamgöngur í Suður-Ameríku og Eyjaálfu á annan endann. Erlent 17.6.2011 02:47
Harðir bardagar milli Gaddafi og uppreisnarmanna Harðir bardagar geisa milli herja Muammars Gaddafis og uppreisnarmanna sem eru smám saman að reyna að brjóta sér leið meðfram strönd Miðjarðarhafsins í átt að höfuðborginni Trípólí. Erlent 16.6.2011 18:47
Graði þingmaðurinn búinn að segja af sér Anthony Weiner, þingmaður demókrata í Bandaríkjunum, hefur sagt af sér þingmennsku eftir að upp komst um kynlífshneyksli hans fyrir nokkrum vikum. Erlent 16.6.2011 14:35
Þingkonan sem var skotin í höfuðið útskrifuð af spítala Bandaríska þingkonan Gabrielle Giffords sem skotin var í höfuðið í Arizona í janúar var útskrifuð af spítala í gær. Hún hefur dvalið á sjúkrastofnun í Houston sað undanförnu og náð merkilega miklum framförum þó enn sé nokkuð í að hún nái fullum bata. Giffords var að tala á útifundi þegar 22 ára gamall karlmaður skaut hana í höfuðið af stuttu færi. Ódæðismaðurinn myrti sex, þar af 9 ára gamla stúlku, og særði 12. Hann situr í fangelsi og bíður dóms. Erlent 16.6.2011 08:45
Klámmyndaleikkona segir þingmann ljúga Bandarískur þingmaður sem viðurkennt hefur að hafa sent myndir af sér fáklæddum til nokkurra kvenna á ekki sjö dagana sæla - því klámyndaleikkona hefur nú stigið fram og blandað sér í málið. Erlent 16.6.2011 08:26
Ráðist á höfuðstöðvar Gaddafi Harðar loftárásir voru gerðar á Trípólí, höfuðborg Líbíu, í nótt og kváðu öflugar sprengingar við í miðborginni. Þá sést reykur á allnokkrum stöðum í borginni, þar á meðal höfuðstöðvum Muammar Gaddafís. Þetta er ekki í fyrsta sem eftir að hernaður Atlantshafsbandalagsins í Líbíu hófst sem ráðist er á byggingarnar. Ekki er vitað hvort Gaddafi var staddur í höfuðstöðvunum þegar árásirnar voru gerðar. Þá sækja uppreisnarmenn í átt að höfuðborginni. Erlent 16.6.2011 08:17
Húshjálpin stal peningum af eldri konu Myndband sem sýnir húshjálp stela peningum af eldri konu hefur vakið hörð viðbrögð í Danmörku. Á myndbandinu sem sýnt var í dönskum fjölmiðlum í gær sést starfsmaðurinn taka peninga úr verski konunnar sem býr í þjónustuíbúð í suðvestur af Kaupmannahöfn. Erlent 16.6.2011 08:12
Nauðgari fékk hjartaáfall og dó Rúmlega fimmtugur bandarískur karlmaður dó á sama tíma og hann nauðgaði 77 ára konu á dögunum. Maðurinn braust inn til konunnar, ógnaði henni með eggvopni og þröngvað henni til samræðis. Það var þá sem hann lognaðist út af en konan hélt að maðurinn hefði dáið áfengisdauða. Hún komst undan og náði að kalla eftir hjálp. Þegar að var komið var maðurinn látinn. Talið er að hann hafi fengið hjartáfall. Maðurinn hafði áður hlotið dóm fyrir kynferðisbrot. Erlent 16.6.2011 08:08
Bretaprins á leið til Afganistan Harry Bretaprins er á leið til Afganistan á vegum breska hersins, að því er fram kemur á vef Sky-fréttastofunnar. Breska varnarmálaráðuneytið hefur ekki staðfest þetta. Harry er þyrluflugmaður og var síðast í Afganistan fyrir þremur árum. Þá tók hinn 26 ára gamli prins þátt í aðgerðum hersins í 10 vikur. Við heimkomuna sagðist hann gjarnan vilja fara aftur til Afganistan. Erlent 16.6.2011 08:05
Þjóðþing ríkja taka meiri þátt Þjóðþing aðildarríkjanna 27, sem mynda ESB, hafa aldrei látið jafn mikið til sín taka við stefnumótun sambandsins og árið 2010. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu framkvæmdastjórnar ESB. Erlent 16.6.2011 08:00
Tölvuþrjótar brutust inn á síðu CIA Hópur tölvuhakkara, sem kallar sig Lulz Security, réðst í gærkvöld á vefsíðu bandarísku leyniþjónustunnar CIA. Talið er að sami hópur hafi hakkað sig í fyrradag inn á vef EVE Online sem íslenska fyrirtækið CCP á og rekur. Erlent 16.6.2011 07:59
Ósáttir við flugskeytavarnir Tékknesk stjórnvöld hafa hætt samstarfi við Bandaríkin um uppsetningu geimvarna í Tékklandi, einkum vegna ágreinings um hve stórt hlutverk Tékkar eigi að hafa. Erlent 16.6.2011 04:00
Hundruð þúsunda nýrra starfa Vinnumálastofnunin í Svíþjóð gerir ráð fyrir 107 þúsundum nýrra starfa í ár og 61 þúsundi til viðbótar á næsta ári. Atvinnuleysið nú er 8,4% en því er spáð að það fari niður í 6,7% á næsta ári. Erlent 16.6.2011 02:15
Papandreou leitar á náðir íhaldsmanna Georgios Papandreou, forsætisráðherra Grikklands, hóf í gær tilraunir til að fá stærsta stjórnarandstöðuflokkinn, gríska Íhaldsflokkinn, til liðs við vinstri stjórn sína. Erlent 16.6.2011 00:15
Neita að hafa handtekið majór Yfirvöld í Pakistan segja alrangt að yfirmaður í hernum hafi verið handtekinn fyrir að veita bandarískum yfirvöldum upplýsingar um verustað Osama Bin Laden. Erlent 16.6.2011 00:00
Um tuttugu þúsund manns detta úr rúminu sínu á hverju ári Um tuttugu þúsund manns þurfa að leita sér aðstoðar á sjúkrahúsi á Englandi á ári hverju eftir að hafa dottið fram úr rúminu sínu í svefni. Um 6400 manns þurfa að leita sér aðstoðar á spítala eftir að hafa dottið úr stiga. Erlent 15.6.2011 22:45