Erlent

Þriðji hver Dani haldið framhjá

Ný könnun leiðir í ljós að þriðji hver Dani hefur verið maka sínum ótrúr einhvern tímann á ævinni. Framhjáhaldið skiptist nokkuð jafnt milli kynja.

Erlent

Cain hættur við framboð

Herman Cain, einn þeirra sem hefur þótt líklegur til að hreppa útnefningu Repúplikana til framboðs í næstu forsetakosningum í Bandaríkjunum er hættur í kapphlaupinu. Þetta tilkynnti hann rétt í þessu en beðið hefur verið eftir tilkynningu hans í nokkurn tíma. Cain var nær óþekktur viðskiptamógúll sem hafði auðgast á Pizza framleiðslu áður en hann bauð sig fram. Öllum að óvörum gekk honum nokkuð vel í kapphlaupinu og hefur stundum mælst með mesta stuðninginn á meðal kjósenda. Hneykslismálin hrúguðust þó upp að lokum en hann hefur verið sakaður um kynferðislega áreitni í garð nokkurra kvenna. Þá steig kona ein fram í síðustu viku og fullyrti að hún hafi haldið við Cain, sem er giftur maður, í þrettán ár.

Erlent

Heiðursglæpum fjölgar mikið

Svokölluðum heiðursglæpum hefur fjölgað mikið í Bretlandi á síðustu misserum. Með heiðursglæpum er átt við það þegar konum og stúlkum er refsað af fjölskyldum sínum. Guardian hefur nú í fyrsta sinn birt tölur yfir heiðursglæpi sem framdir eru í Bretlandi en það voru réttindasamtök íranskra og kúrdískra kvenna sem fóru fram á að tölurnar yrðu gerðar opinberar.

Erlent

Þrjátíu og þrír fórust í bílslysi í Brasilíu

Brasilísk yfirvöld segja að þrjátíu og þrír verkamenn hafi farist þegar flutningabíll með tengivagn skall á langferðabíl sem flutti verkamenn í fylkinu Bahia í suðurhluta landsins. Lögregla segir að ökumaður flutningabílsins hafi misst stjórn á honum í beygju þegar hann var á leið niður bratta brekku nálægt bænum Miracles.

Erlent

Páfinn sleppur við sekt í Þýskalandi

Benedikt sextándi páfi mun sleppa við að greiða sekt vegna umferðarlagabrots sem hann framdi í Þýskalandi þegar hann heimsótti landið í september. Þar á bæ eru skýrar reglur um að menni verði að vera með öryggisbelti þegar þeir aka um í bíl en páfi klikkaði á því þegar hann rúntaði framhjá þúsundum manna í sérsmíðaða bílnum sem gengur oft undir nafninu „popemobile“.

Erlent

Clarkson í klandri: Sjálfselska að kasta sér fyrir lest

Jeremy Clarkson stjórnandi Top Gear á BBC er enn á ný kominn í klandur vegna ummæla sinna. Á dögunum varð allt vitlaust þegar hann sagði að réttast væri að taka þá sem tóku þátt í allsherjarverkfallinu í Bretlandi í vikunni af lífi fyrir framan fjölskyldur þeirra. Nú er hann enn á milli tanna fólks í Bretlandi eftir að hafa skrifað í pistli í The Sun að þeir sem fremji sjálfsmorð með því að henda sér fyrir lest séu sjálfselskir.

Erlent

Suu Kyi vongóð um framfarir

„Ef við höldum þessu áfram í sameiningu þá er ég sannfærð um að ekki verði hægt að snúa af braut lýðræðis,“ sagði Aung San Suu Kyi, leiðtogi lýðræðishreyfingarinnar í Búrma, eftir að hafa rætt við Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna.

Erlent

Merkel útilokar nú allar skyndilausnir

„Við erum komin á nýtt stig í samhæfingu Evrópusambandsins,“ sagði Angela Merkel Þýskalandskanslari í ræðu á þýska þinginu í gær, þar sem hún lýsti hugmyndum sínum um að styrkja efnahagssamstarf evruríkjanna.

Erlent

Forsetinn varar við sundrungu

Vinsældir Sameinaðs Rússlands, stjórnmálaflokks þeirra Vladimírs Pútín forsætisráðherra og Dmitrí Medvedev forseta, hafa dalað nokkuð í Rússlandi vegna spillingarímyndar þótt enn sé honum spáð góðum sigri í þingkosningum sem haldnar verða á morgun.

Erlent

Boðar þíðu í samskiptum Bandaríkjanna og Búrma

Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, skoraði í gær á stjórnvöld í Búrma að halda áfram úrbótum í lýðræðisátt og sleppa öllum pólitískum föngum úr haldi nú þegar. Hún boðaði í gær tilslakanir á refsiaðgerðum gegn landinu.

Erlent

Brenndist á andliti eftir aðgerð

Eldur braust út á andliti konu í Alabama þegar hún gekkst undir hefðbundna skurðaðgerð fyrr í vikunni. Læknar segjast aldrei hafa séð neitt þessu líkt.

Erlent

Svipti sig lífi - strítt vegna einhverfu

Tólf ára gamall piltur í Bretlandi svipti sig lífi eftir að hann hafði verið lagður í einelti. Stjórnendur skólans efast þó um að einelti hafi verið orsök sjálfsvígsins.

Erlent

Hundur skaut mann í rassinn

Karlmaður á fimmtugsaldri var skotinn í rassinn á fuglaveiðum á dögunum. Hið sérkennilega við málið er líklega það að skyttan reyndist vera hundur mannsins. Maðurinn var á veiðum í Utah í Bandaríkjunum ásamt félaga sínum og hundi.

Erlent

Með stóru tána í stað þumalfingurs

Það eru ekki allir sem deyja ráðalausir þegar þeir lenda í slysum. Það má með sanni segja að hinn 29 ára gamli James Byrne falli í þennan flokk eftir að hann sagaði af sér þumalputtann þegar hann var að saga við fyrir tveimur árum síðan.

Erlent