Erlent

Leggur mikla áherslu á auðmannaskattinn

Slær ekki af Barack Obama forseti varði verk sín á kjörtímabilinu og boðaði sérstakan auðmannaskatt sem kenndur er við Warren Buffet. Fréttablaðið/AP
Slær ekki af Barack Obama forseti varði verk sín á kjörtímabilinu og boðaði sérstakan auðmannaskatt sem kenndur er við Warren Buffet. Fréttablaðið/AP
Barack Obama Bandaríkjaforseti sagði í stefnuræðu sinni á bandaríska þinginu í fyrrinótt að hann stefndi ótrauður að því að koma á sérstökum skatti á auðmenn. Þannig yrðu þeir sem hafa heildarárslaun yfir einni milljón dala að greiða 30 prósenta skatt hið minnsta.

Laun auðmanna í Bandaríkjunum hafa verið í brennidepli upp á síðkastið eftir að í ljós kom að forsetaframbjóðandinn vellauðugi Mitt Romney hafi greitt innan við fimmtán prósent í skatt, enda falla hans tekjur undir lög um fjármagnstekjuskatt sem er mun lægri en tekjuskattur sem er jafnan um 35 prósent.

Þessi áætlun Obama er kennd við Warren Buffet, einn allra ríkasta mann heims, sem hefur kallað eftir því að fá að greiða hærra hlutfall launa sinna í skatt. Þykir honum enda skjóta skökku við að ritarinn hans greiði hærra hlutfall en hann gerir sjálfur.

Þá sló sjálfur Bill Gates á sömu strengi í viðtali við BBC í gær þar sem hann sagði að í núverandi ástandi þyrftu skattar að hækka til að hægt verði að loka fjárlagagatinu. Þeir ættu frekar að hækka hjá ríku fólki. Það væri réttlæti fólgið í því að allir færðu fórnir til að laga ástandið.

Viðbúið er að málið muni mæta harðri andstöðu repúblikana, sem hafa meirihluta í fulltrúadeild þingsins.

Annars þótti ræða forsetans bera þess keim að forsetakosningar verða haldnar næsta haust og Obama lagði mikla áherslu á það sem hafði afrekast í sinni valdatíð og að ástandið væri á uppleið.

- þj



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×