Fótbolti
Doninger: Alveg sama þótt Gary öskri á mig "Ég hafði það á tilfinningunni að ég myndi hitta boltann vel og skora. Þess vegna tók ég þessa aukaspyrnu. Ég var alveg viss um að hitta á markið og það er frábært að skora sigurmark með þessum hætti. Mér var alveg sama þótt Gary (Martin) væri að öskra á mig en hann vildi að sjálfsögðu taka þetta sjálfur,“ sagði Englendingurinn Mark Doninger leikmaður ÍA eftir að hann tryggði liðinu 2-1 sigur með glæsilegu skoti beint úr aukaspyrnu á 90. mínútu gegn liði Selfoss í kvöld á Akranesvelli. Íslenski boltinn 26.7.2011 22:49
Þórður Þórðarson: Ekki komnir upp en þetta lítur óskaplega vel út „Við erum ekki komnir upp en þetta lítur óskaplega vel út,“ sagði Þórður Þórðarson þjálfari ÍA eftir 2-1 sigur liðsins gegn liði Selfoss í toppslagnum í 1. deild karla í fótbolta í kvöld. Skagamenn voru einum færri í 80 mínútur þar sem fyrirliðinn Heimir Einarsson fékk rautt spjald á 13. mínútu. Íslenski boltinn 26.7.2011 22:36
Valskonur minnkuðu forskot Stjörnunnar í tvö stig - Kristín Ýr með þrennu Valskonur unnu 4-0 sigur á Fylki í Pepsi-deild kvenna í kvöld og minnkuðu með því forskot Stjörnunnar á toppnum í tvö stig. Toppliðin mætast síðan í sannkölluðum stórleik í næstu umferð. Breiðablik tók fimmta sætið af Fylki með 3-2 sigri á KR í Kópavogi. Hólmfríður Magnúsdóttir skoraði í sínum fyrsta leik með Val eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Íslenski boltinn 26.7.2011 21:11
KA vann fallslaginn á móti HK KA-menn unnu mikilvægan 2-1 sigur á botnliði HK í 1. deild karla í fótbolta í kvöld en með þessum sigri náðu KA-menn fjögurra stiga forskot á Leikni í síðasta örugga sæti deildarinnar. Íslenski boltinn 26.7.2011 20:53
Bayern mætir Barcelona í úrslitaleik Audi-bikarsins Það verður Bayern München sem mætir Barcelona í úrslitaleik Audi-bikarsins á morgun en líkt og í fyrri undanúrslitaleiknum fyrr í dag þá þurfti vítaspyrnukeppni til þess að fá úrslit. Fótbolti 26.7.2011 20:48
Afturelding vann óvæntan sigur á Eyjakonum Afturelding fjarlægðist fallbaráttuna í Pepsi-deild kvenna í fótbolta með öðrum deildarsigri sínum í röð þegar liðið vann 2-1 sigur á spútnikliði ÍBV í Mosfellsbænum í kvöld. Íslenski boltinn 26.7.2011 20:13
Dalglish að fá tvo kornunga framherja til Liverpool Kenny Dalglish, stjóri Liverpool, er samkvæmt frétt Guardian langt kominn með að fá tvo unga framherja til liðsins. Þetta eru þeir Marco Bueno, framherji 17 ára landsliðs Mexíkó og Nacho, ungur framherji spænska liðsins Albacete. Enski boltinn 26.7.2011 19:45
Þrumufleygur Doninger tryggði Skagamönnum sigur Skagamenn eru enn taplausir eftir 14 leiki í næst efstu deild karla í fótbolta eftir 2-1 sigur gegn liði Selfoss á Akransvelli í kvöld. Mark Doninger tryggði ÍA sigur með þrumuskoti beint úr aukaspyrnu á 89. mínútu en Skagamenn léku einum færri í um 80 mínútur þar sem að Heimir Einarsson fyrirliði var rekinn af velli eftir um 13 mínútur. Íslenski boltinn 26.7.2011 19:18
Torres: Ég er ekki búinn að gleyma því hvernig maður skorar mörk Fernando Torres, spænski framherjinn hjá Chelsea, hefur ekki fundið netmöskvanna á undirbúningstímabilinu þar sem Chelsea-liðið ferðast um Asíu. Torres skoraði aðeins 1 mark í 18 leikjum á síðustu leiktíð og gagnrýnisraddirnar eru farnar að heyrast á ný enda keypti Roman Abramovich hann á 50 milljónir punda í janúar til þess að skora mörk fyrir liðið. Enski boltinn 26.7.2011 19:00
Barcelona í úrslit Audi-bikarsins - vann í vítakeppni Evrópumeistarar Barcelona tryggðu sér sæti í úrslitaleik Audi-bikarsins eftir sigur á Internacional í vítakeppni í Munchen í dag. Barcelona mætir annaðhvort Bayern Munchen eða AC Milan sem mætast í seinni undanúrslitaleiknum á eftir. Fótbolti 26.7.2011 18:20
Emmanuel og Emmanuel á leið frá Arsenal Emmanuel Eboue er á leið til tyrkneska knattspyrnuliðsins Galatasaray fyrir fjórar milljónir punda ef marka má breska fjölmiðla. Auk Eboue er nafni hans Emmanuel-Thomas orðaður við sölu til Ipswich. Enski boltinn 26.7.2011 17:30
Wenger vill styðjast við marklínutækni Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal hefur bæst í hóp þeirra sem vilja styðjast við marklínutækni í knattspyrnu. Forsvarsmenn ensku úrvalsdeildarinnar hafa lýst því yfir að mögulega verði marklínutækni tekin í notkun tímabilið 2012-2013. Enski boltinn 26.7.2011 16:45
Arnór Guðjohnsen við Aftonbladet: Veigar Páll vill fara til Rosenborg Veigar Páll Gunnarsson vill fara til Rosenborg samkvæmt frétt á vef Aftonbladet en blaðið hefur það eftir umboðsmanni Veigars Páls, Arnóri Guðjohnsen. Fótbolti 26.7.2011 15:39
Leikmaður Leicester kemur sér í klandur hjá eiginkonunni Það er óhætt að segja að skoski framherjinn Paul Gallagher hafi komið eins og stormsveipur inn í Twitter-samfélagið. Eiginkona Gallagher hvatti hann til þess að stofna aðgang að síðunni en líklegt er að hún sjái eftir því í dag. Enski boltinn 26.7.2011 14:45
Liverpool og Fiorentina komast að samkomulagi um Aquilani Umboðsmaður ítalska knattspyrnumannsins Alberto Aquilani leggur áherslu á að ekki sé frágengið að Aquilani gangi til liðs við Fiorentina. Að hans sögn hafa félögin komist að samkomulagi en Aquilani eigi þó enn eftir að semja við ítalska félagið. Enski boltinn 26.7.2011 13:30
Boateng bræður mætast í beinni í München í dag Heimamenn í Bayern München taka á móti ítölsku meisturunum AC Milan á Allianz-vellinum á Audi Cup síðdegis í dag. Í hinum leik keppninnar mætast Evrópumeistarar Barcelona og Suður-Ameríkumeistarar árið 2010 Internacional. Fótbolti 26.7.2011 12:45
Hólmfríður komin með leikheimild hjá Val - getur spilað í kvöld Landsliðskonan Hólmfríður Magnúsdóttir er komin með leikheimild og getur því spilað sinn fyrsta leik með Val í kvöld þegar Fylkir kemur í heimsókn á Vodafonevöllinn á Hlíðarenda í 11. umferð Pepsi-deildar kvenna. Íslenski boltinn 26.7.2011 12:15
Kasami gengur til liðs við Fulham Svissneski miðjumaðurinn Pajtim Kasami hefur gengið til liðs við Fulham í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Kasami kemur frá ítalska liðinu Palermo en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp. Enski boltinn 26.7.2011 10:45
Batista segir af sér sem þjálfari Argentínu Sergio Batista hefur sagt af sér sem þjálfari argentínska landsliðsins í knattspyrnu í kjölfar dapurs árangurs á heimavelli í Suður-Ameríkukeppninni. Batista hafði áður líst því yfir að hann ætlaði að halda áfram með liðið. Fótbolti 26.7.2011 10:15
Knattspyrnutímabilinu í Tyrklandi frestað um rúman mánuð Knattspyrnusamband Tyrklands ákvað á fundi sínum í gær að fresta tímabilinu þar í landi. Tyrknesk knattspyrna man fífil sinn fegurri en nokkrir tugir manna hafa verið handteknir undanfarnar vikur vegna ásakanna um hagræðingu úrslita. Fótbolti 26.7.2011 09:45
ÍBV fær miðjumann með reynslu úr Meistaradeildinni Kvennalið ÍBV í knattspyrnu hefur fengið til liðs við sig miðjumanninn Melissu Cary. Á heimasíðu ÍBV vonast Eyjamenn eftir því að Cary hjálpi ÍBV í þeim miklu hremmningum sem liðið hefur orðið fyrir undanfarið. Íslenski boltinn 26.7.2011 09:29
FH-ingar komu til baka manni færri - myndir FH-ingar unnu karaktersigur á Valsmönnum í Kaplakrikanum í gær og sáu til þess að KR-ingar verða með fjögurra stiga forskot á toppnum yfir Verslunarmannahelgina. Íslenski boltinn 26.7.2011 08:30
Forlan fetar í fótspor föður og afa Diego Forlan hefur skráð nafn sitt í sögubækurnar. Síðan hann yfirgaf herbúðir Manchester United hefur hann raðað inn mörkunum hjá félagsliðum sínum og landsliði. Hann er landsleikjahæsti Úrúgvæinn, vantar eitt mark til að verða markahæstur og hefur nú unnið Copa America líkt og faðir hans og afi. Fótbolti 26.7.2011 08:00
Erum töluvert stærri og þyngri en þær Íslenska stúlknalandsliðið í knattspyrnu skipað leikmönnum 17 ára og yngri hélt í gærkvöldi til Sviss. Fram undan er undanúrslitaleikur við Spán á fimmtudag en Spánverjar eru ríkjandi Evrópumeistarar í þessum aldursflokki. Íslenski boltinn 26.7.2011 07:00
Evra segir að Nasri verði að koma til United til að vinna eitthvað Patrice Evra hefur sagt landa sínum Samir Nasri að koma til Manchester United ætli að hann sér að vinna einhverja titla á ferlinum. Nasri á eftir eitt ár af samningi sínum hjá Arsenal sem ætlar ekki að selja hann þótt að það gæti þýtt að hann færi frítt næsta sumar. Enski boltinn 25.7.2011 23:30
Shawcross vill ekki spila fyrir Wales Ryan Shawcross leikmaður og fyrirliði Stoke City í ensku úrvalsdeildinni segist ekki hafa íhugað það að spila fyrir landslið Wales. Breytingar á reglum FIFA gera Shawcross kleift að spila fyrir Wales jafnvel þó hann sé Englendingur í húð og hár. Enski boltinn 25.7.2011 23:00
Kristján: Gerðum of mörg mistök Kristján Guðmundsson þjálfari Vals var ekki sáttur við að sjá lið sitt missa unninn leik úr höndunum eftir að FH missti leikmann af leikvelli snemma í seinni hálleik. Íslenski boltinn 25.7.2011 22:57
Gunnleifur: Hefðum unnið tveimur eða þremur færri Gunnleifur Gunnleifsson markvörður Vals lét verk fyrir brjóstið ekki trufla sig og átti góðan dag í marki FH enda nóg að gera þó FH hafi verið betri aðilinn eftir að missa leikmann af velli snemma í seinni hálfleik. Íslenski boltinn 25.7.2011 22:56
José Enrique hraunar yfir Newcastle Vinstri bakvörðurinn José Enrique leikmaður Newcastle er allt annað en sáttur við stefnu félagsins í leikmannamálum. Hann segir að með þessum hætti komist liðið aldrei í hóp bestu liða ensku úrvalsdeildarinnar. Enski boltinn 25.7.2011 22:30
Kenny Miller til liðs við Aron Einar hjá Cardiff Skoski framherjinn Kenny Miller er á leið til Cardiff í ensku Championship-deildinni. Miller kemur frá tyrkneska félaginu Bursaspor og er kaupverðið talið vera um ein milljón pund eða sem nemur tæpum 190 milljónum íslenskra króna. Enski boltinn 25.7.2011 21:15