
Bíó og sjónvarp

Golden Globes tilnefningarnar tilkynntar
Rétt í þessu kom í ljós hverjir hljóta tilnefningar til Golden Globes verðlaunanna. Afhendingin fer fram þann 9. janúar en ekki verður sýnt frá hátíðinni í þetta skiptið.

Leynilögga á lista stofnanda IMDb yfir faldar perlur ársins
Col Needham, stofnandi og framkvæmdastjóri vefsíðunnar IMDb, birti í dag lista yfir þær myndir sem hann telur ekki hafa fengið þá viðurkenningu sem þær eiga skilið. Hin íslenska Leynilögga er ein þeirra.

Auddi og Gillz talsettir á japönsku og þýsku
Kvikmyndin Leynilöggan hefur heldur betur slegið í gegn hér á landi og hafa rétt tæplega 40 þúsund séð myndina í kvikmyndahúsum.

Fyrsta stiklan úr Verbúðinni: „Þetta er óður til níunda áratugarins“
Fyrsta stiklan fyrir þættina Verbúðina, úr smiðju Vesturports, hefur verið sýnd. Þættirnir verða frumsýndir á RÚV á öðrum degi jóla og eru átta í heildina. Leikstjóri þáttanna segir þá óð til níunda áratugarins.

Nýtt sýnishorn úr And Just Like That
Nýr kafli í Sex and the City ævintýrinu hefst fljótlega, þegar HBO Max byrjar að sýna „spin-off“ þættina And Just Like That. Sautján ár eru síðan þættirnir hættu í sýningu og ellefu ár eru síðan seinni Sex and the City kvikmyndin kom út.

Martin bað forstjóra HBO um hundrað þætti af Game of Thrones
George R.R. Martin, rithöfundurinn sem skrifaði Game of Thrones bókina og aðrar bækur í þeim söguheimi sem sjónvarpsþættirnir vinsælu byggja á, hafði áhyggjur af því að gera þyrfti fleiri þáttaraðir til að gera sögunni skil. Alveg eins og við hin!

Bíóin í desember: The Matrix, Spiderman og Spielberg
Það kennir ýmissa grasa í kvikmyndahúsunum í desember. Framhaldsmyndir, endurgerð, hrollvekja og sannsögulegt. Hér má lesa um það helsta sem væntanlegt er í jólamánuðinum.

Fyrsta sýnishornið úr Svörtu söndum
Á jóladag verður sýndur á Stöð 2 fyrsti þátturinn af Svörtu söndum, í leikstjórn Baldvin Z. Hér frumsýnum við fyrsta sýnishornið úr þáttunum sem framleiddir eru af Glassriver.

Væntanlegt sjónvarpsefni: Hawkeye heldur upp á jólin
Það kennir ýmissa grasa á næstu vikum þegar kemur að nýjum sjónvarpsþáttaröðum og kvikmyndum á streymisveitunum, Stöð 2 og RÚV.

Amazon og EA nálægt samkomulagi um Mass Effect þætti
Forsvarsmenn Amazon Studios eru nærri því að gera samkomulag við tölvuleikjafyrirtækið Electronic Arts um að gera sjónvarpsþætti um söguheim Mass Effect, leikjaseríunnar vinsælu.

Kvikmyndin Skjálfti fær stórkostlegar viðtökur í Tallinn
Íslenska kvikmyndin Skjálfti var frumsýnd á kvikmyndahátíð í Tallinn í Eistlandi um helgina. Fyrstu dómar eru dottnir í hús og myndin hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda.

Og Óskarinn hlýtur... Hvaða myndir eru líklegastar þetta árið?
Nú styttist í áramót og því aðeins einn og hálfur mánuður til stefnu fyrir útgáfu kvikmynda sem ætla að vera með í Óskarshítinni. Það er einmitt innan þess tímaramma sem kvikmyndaverin senda frá sér flestar þær myndir sem þau telja líklegar til afreka.

Ný stikla sýnir að Kóngulóarmannsins bíður ærið verkefni
Ný stikla fyrir stórmyndina Spider-Man: No Way Home var frumsýnd í nótt og má sjá að Kóngulóarmanninum bíður ærið verkefni við að bjarga málunum.

Ferrell og Reynolds mættu í viðtöl hvors annars
Leikararnir og vinirnir Ryan Reynolds og Will Ferrell komu þáttastjórnendunum Jimmy Fallon og Jimmy Kimmel á óvart í vikunni, þegar þeir mættu fyrir hvorn annan í viðtal. Ferrell mætti til Kimmel í stað Reynolds og Reynolds mætti í stað Ferrell til Fallon.

Stranger Things stikla: Fjörugt vorfrí í Hawkins
Netflix birti um helgina stiklu fyrir fjórðu þáttaröð Stranger Things. Eins og svo oft áður stefnir í mikil vandræði í Hawkins og mögulega í Kaliforníu.

Ertu íslensk? Ósýnilegu konurnar stíga fram
Magnea Björk Valdimarsdóttir sendi nýverið frá sér heimildamyndina Hvunndagshetjur (Are You Icelandic?). Myndin hefur m.a. unnið til verðlauna á kvikmyndahátíðum í Barcelona og París.

Verbúð verðlaunuð á Spáni
Íslenska þáttaröðin Verbúð, hlaut á dögunum dómnefndarverðlaunin á hátíðinni Serielizados Fest á Spáni. Hátt í 40 þættir og heimildarmyndir voru sýnd á hátíðinni.

RIFF býður öllum leik- og grunnskólanemum landsins kvikmyndadagskrá og kennsluefni
RIFF, Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík hefur útbúið veglega alþjóðlega kvikmyndadagskrá ásamt kennsluefni sem býðst öllum leik- og grunnskólanemum landsins út janúar á næsta ári og er skólunum að kostnaðarlausu.

Sýnishorn úr kvikmyndinni Skjálfta frumsýnt
Í dag er frumsýnt fyrsta sýnishornið í fullri lengd úr íslensku kvikmyndinni Skjálfta, sem erlendis verður kynnt undir nafninu Quake. Myndin verður heimsfrumsýnd síðar í mánuðinum en fer í sýningu hér á landi í janúar.

Vampírur bætast við söguheim Marvel
Sony birti í dag nýja stiklu kvikmyndarinnar Morbius. Hún fjallar um lækni sem glímir við alvarleg veikindi og stendur í umfangsmikilli leit að lækningu. Sú leit endar í stuttu máli á því að Dr. Michael Morbius verður að vampíru.

Disney birtir fyrstu stiklu Book of Boba Fett
Mannaveiðarinn Boba Fett ætlar að stíga í spor fyrrverandi yfirmanns síns, Jabba The Hut, og leggja undir sig undirheima stjörnuþokunnar fjarlægu sem hýsir söguheim Star Wars. Það er miðað við fyrstu stiklu þáttanna The Book of Boba Fett, sem Disney frumsýndi í dag.

Væri eyðumerkurheimur „Dune“ raunverulega lífvænlegur?
Lífsbaráttan er hörð á eyðimerkurhnettinum Arrakis sem er sögusvið stórmyndarinnar „Dune“. Fólk þarf sérstaka búninga til að lifa af þrúgandi hitann sem eirir engu. Þrátt fyrir að bókin sem myndin byggir á hafi verið skrifuð fyrir tæpri hálfri öld hafa loftslagsfræðingar komist að öfgakennt loftslag Arrakis sé nokkuð raunsætt.

Upphafsspyrna Hannesar gæti skotið honum á svið með meisturunum
Það vakti athygli bíóunnenda og fleiri þegar í ljós kom að kvikmyndin Leynilöggan rakaði inn 15,9 milljónum króna opnunarhelgina 22. til 24. október. Aðeins einu sinni áður hafði kvikmynd rofið 15 milljóna múrinn og var það fyrir fimmtán árum. Ýmislegt hefur breyst í landslaginu síðan þá, bæði hvað varðar aðsókn í bíó og verðlag í landinu.

Leynilöggan sýnd víða í Evrópu og Asíu
Framleiðslu- og dreifingarfyrirtækið Alief hefur selt sýningarrétt að Leynilöggunni í fjölmörgum löndum í Evrópu og Asíu. Leynilöggan hefur gengið fyrir fullum kvikmyndahúsum hér á landi alla vikuna og hefur hlotið mikið lof.

Geralt berst við skrímsli og menn í annarri stiklu Witcher
Netflix birti í dag aðra stiklu annarrar þáttaraðar The Witcher. Ævintýraþættirnir fjalla um stríðsmanninn Geralt of Rivia, galdrakonuna Yennifer og hina merkilegu Ciri og baráttu þeirra við skrímsli, konunga, keisara og galdrakarla.

Margrét Júlía valin besta leikkonan á alþjóðlegri kvikmyndahátíð
Kvikmyndin BIRTA fékk verðlaun á KIKIFe einni stærstu stærstu barnakvikmyndahátíð í suður Þýskalandi. Margrét Júlía Reynisdóttir var valin af dómnefnd sem besta unga leikkonan en hún er aðeins átta ára gömul.

Önnur þáttaröð Tiger King frumsýnd í nóvember
Netflix birtu stiklu úr nýrri þáttaröð Tiger King fyrr í dag. Serían er númer tvö í röðinni en sú fyrsta naut gríðarlegra vinsælda um allan heim. Til stendur að frumsýna þáttaröðina þann 17. nóvember næstkomandi.

Leynilöggan halaði inn milljónir um frumsýningarhelgina
Kvikmyndin Leynilöggan halaði inn 15,9 milljónum króna um liðna helgi sem gerir kvikmyndina að tekjuhæstu frumsýningu á íslenskri mynd frá upphafi. Mýrin í leikstjórn Baltasar Kormáks átti metið en miðar á myndina seldust fyrir 15,8 milljónir króna í október 2006.

Heimildarmyndin Kolapse heimsfrumsýnd í RIFF-Heima
Þó að RIFF-hátíðin sé búin að loka dyrum sínum í kvikmyndahúsum er hátíðin enn í gangi á vefnum. Þar má finna íslenska dagskrá til 30. október.

Þáttur fyrir alla fjölskylduna: „Þetta er vönduð vitleysa“
Þátturinn Stóra sviðið fer af stað á Stöð 2 í kvöld. Hér er á ferðinni nýr fjölskylduþáttur þar sem skemmtun og afþreying eru í aðalhlutverki. Steinunn Ólína leggur fyrir þá Auðunn Blöndal og Steinda Jr., fyndnar og fjölbreyttar áskoranir.