Innlent
3 4 5 6 7 8 9 10 11 … 334 ›
Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Einn eigenda netverslunarinnar Sante segir áform ríkisins um að hefja heimsendingu á áfengi merkileg í ljósi þess að áfengislögin kveði á um að ÁTVR eigi að takmarka aðgengi að áfengi. Sama stofnun og ætli nú að hefja heimsendingar hafi í sex ár kallað heimsendingar ógn við lýðheilsu. Nú þurfi forsvarsmenn vínbúðanna að fara að ákveða hvort ÁTVR sé lýðheilsustofnun eða verslun sem keppir um viðskiptavini. Innlent 28.10.2026 12:02
Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Bandaríska sendiráðið á Íslandi hefur gefið út sérstaka öryggisviðvörun vegna fyrirhugaðra mótmæla vinafélags Íslands og Kúbu fyrir utan húsnæði þeirra. Sendiráðinu verður lokað snemma. Innlent 28.10.2026 11:42
Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Fjögurra manna hópi var snúið við á Keflavíkurflugvelli og vísað úr landi vegna gruns um að fólkið hefði verið ráðið til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi. Fjöldi virkra brotahópa á Íslandi hefur tvöfaldast á áratug og í nýrri löggæsluáætlun er lagt til að stofnuð verði ný eining innan lögreglunnar sem fari með rannsókn á skipulagðri brotastarfsemi. Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar. Innlent 28.10.2026 11:40
Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Fjögurra manna hópi var snúið við á Keflavíkurflugvelli og vísað úr landi vegna gruns um að fólkið hefði verið ráðið til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi. Einn úr hópnum var stuttu síðar handtekinn í Svíþjóð fyrir tilraun til manndráps. Innlent 28.10.2026 11:16
Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Ný löggæsluáætlun verður kynnt á sérstökum kynningarfundi í Dom Club-salnum á Hilton Reykjavík klukkan 10.30. Fundurinn verður í beinu streymi hér fyrir neðan. Innlent 28.10.2026 10:15
Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Loftslagsdagurinn fer fram í Norðurljósasal Hörpu í dag, en þetta er í fjórða sinn sem dagurinn er haldin. Dagskrá stendur milli klukkan 9 og 14 í dag og verður hægt að fylgjast með í beinu streymi. Innlent 28.10.2026 08:30
Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Fyrrverandi ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytisins stýrir sviði hjá Ríkisendurskoðun sem vinnur nú stjórnsýsluúttekt sem nær til starfa hans fyrir ráðuneytið. Ríkisendurskoðandi telur undirmenn fyrrverandi ráðuneytisstjórans hæfa til þess að fjalla um fyrri störf yfirmanns síns. Innlent 28.10.2026 08:02
Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Leigusala er heimilt að ganga á tryggingafé leigjanda síns eftir að köttur hans pissaði og skeit um alla íbúð með þeim afleiðingum að gólfefni eyðilagðist. Óháður matsmaður sagði eftir skoðun að kattahland og kattaskítur væru á gólfum og upp eftir veggjum. Innlent 28.10.2026 06:30
Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Afkomendur síðasta böðulsins á Íslandi búa enn á Illugastöðum á Vatnsnesi, á jörðinni þar sem morðin voru framin sem leiddu til þess að þau Friðrik Sigurðsson og Agnes Magnúsdóttir voru hálshöggvin á Þrístöpum í Vatnsdalshólum árið 1830. Þetta var síðasta aftaka sem fram fór á Íslandi. Innlent 28.10.2026 06:00
Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Ný yfirlýsing sem snýr að áhrifum nýrrar tækni á börn og ungmenni var undirrituð á fundi forsætisráðherra Norðurlanda í dag, þann 27. október, sem er í tengslum við árlegt þing Norðurlandaráðs sem fram fer í Helsinki þessa dagana. Kristrún Frostadóttir segir jákvætt að þjóðirnar, sem hafi oft verið frumkvöðlar þegar kemur að velferðarmálum, taki höndum saman um að bjóða tæknirisum birginn. Innlent 27.10.2026 22:02
Hildi og Inga Þór sagt upp Hildur Lillendahl Viggósdóttir verkefnastjóri er ein þeirra sem var sagt upp hjá Reykjavíkurborg í dag eftir átján ár í starfi. Þá var Inga Þór Jónssyni, verkefnastjóra á skrifstofu menningarborgar, einnig sagt upp störfum. Innlent 27.10.2026 21:54
„Skorið niður til þess eins að skera niður“ Borgarfulltrúar minnihlutans í Reykjavík gagnrýna harðlega hagræðingaraðgerðir og uppsagnir meirihlutans. Þeir saka meirihlutann um vanþekkingu, óvönduð vinnubrögð, skort á pólitískri forystu og að blekkja borgarbúa. Niðurskurðurinn sé til þess eins að haka við verkefni á verkefnalista. Innlent 27.10.2026 20:48
Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Leitinni að líkamsleifum Lúðvíks Péturssonar sem féll í sprungu í Grindavík árið 2024 er formlega lokið. Engar vísbendingar hafi fundist sem varpað gætu ljósi á hvar jarðneskar leifar Lúðvíks sé að finna. Ekki verði ráðist í frekari leitaraðgerðir. Innlent 27.10.2026 19:12
Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Sveinn R. Eyjólfsson, fyrrverandi blaðaútgefandi og einn stofnenda Vísis, Dagblaðsins, DV og Fréttablaðsins, er látinn. Hann var 88 ára. Sveinn lést laugardaginn 24. október á Landspítalanum við Hringbraut eftir skammvinn veikindi. Innlent 27.10.2026 18:59
Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg Lögreglan á stöð eitt fékk tilkynningu í dag vegna vinnuslyss í hverfi 102 þar sem kona féll úr stiga og hlaut höfuðhögg. Hún var flutt með sjúkrabíl á bráðamóttökuna til athugunar en ekki liggja frekari upplýsingar fyrir um líðan hennar að svo stöddu. Innlent 27.10.2026 18:12
„Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Kristrún Frostadóttir segist ekki gera athugasemd við að starfsbræður hennar í Noregi og í Finnlandi hafi rætt símleiðis við Vladimír Pútín Rússlandsforseta í morgun. Hún viti í grófum dráttum hvað kom fram í símtalinu og að lykilatriðið sé að samtalið sé átt á forsendum Úkraínumanna og með vitund og vilja Úkraínuforseta. Innlent 27.10.2026 18:06
Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Landris mælist áfram á stöðugum hraða við Svartsengi en jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni er áfram lítil. Kvikuhlaup sem gæti leitt til eldgoss er áfram líklegasta sviðsmyndin. Engin gögn benda til þess að eldgosahrinunni á Sundhnúksgígaröðinni sé að ljúka. Innlent 27.10.2026 17:44
„Galin vinnubrögð“ Formaður Sameykis lýsir uppsagnarhrinu dagsins hjá Reykjavíkurborg sem áfalli. Hann segir fólk enn bíða skýringa á síðustu uppsögnum og telur vinnubrögð meirihlutans galin. Innlent 27.10.2026 17:19
Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Þyrla Landhelgisgæslunnar, lögreglan á Suðurlandi og björgunarsveitir sinntu aðgerðum við Ölfusá vegna gruns um að maður hafi fallið í ána. Eftirgrennslan leiddi í ljós að maðurinn hefði ekki fallið í ána. Innlent 27.10.2026 17:08
„Hrikalegt högg“ Forstjóri Vinnumálastofnunar segir að Reykjavík verði að svara fyrir hópuppsagnir sem tilkynnt var um hjá borginni í morgun. Starfsmenn eigi væntanlega inni uppsagnarfrest og geti síðan leitað til Vinnumálastofnunar ef þörf krefur. Innlent 27.10.2026 16:11
Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór ekki fram á áframhaldandi farbann yfir manni sem handtekinn var í tengslum við umfangsmikla rannsókn á meintum fíkniefnabrotum og peningaþvætti. Ekki var talin ástæða til að meina honum að fara af landi brott en hann er búsettur í Portúgal. Innlent 27.10.2026 16:11
„Fyrst og fremst erfitt“ Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir að uppsögnum í miðlægri stjórnsýslu borgarinnar sé lokið, eftir að stöðugildum þar var fækkað um 74 í dag. Mikið verk sé þó áfram fyrir höndum við hagræðingar í rekstri borgarinnar. Innlent 27.10.2026 15:46
Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkurborgar, ræddi við fréttastofu í beinni útsendingu í ráðhúsi Reykjavíkur um uppsagnir og hagræðingar dagsins. Formaður Sameykis ræddi einnig málið og var ekki sáttur með meint samráð. Innlent 27.10.2026 14:52
Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Formleg leit að Lúðvík Péturssyni, sem féll í sprungu í Grindavík þann 24. janúar 2024, hófst í morgun. Fyrstu sigmennirnir sigu niður í sprunguna á tólfta tímanum en meðal annars verður notast við myndavélabúnað frá rústabjörgunarsveitinni til að kanna aðstæður. Innlent 27.10.2026 14:42
Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Stöðugildum hjá Reykjavíkurborg var fækkað um 74 í dag. Fimmtíu starfsmenn fá beina uppsögn. Um sé að ræða síðasta áfanga við fækkun stöðugilda. Innlent 27.10.2026 14:41
Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann Karlmaður hefur verið úrskurðaður í síbrotagæslu til 17. nóvember næstkomandi vegna gruns um að hann hafi brotið 32 sinnum af sér á tímabilinu 27. mars 2025 til 19. október síðastliðins. Hann er meðal annars grunaður um hnífstunguárás í sumar en brotaþoli í því máli bar kennsl á hann vegna áberandi húðflúrs á hálsi hans. Innlent 27.10.2026 14:40
„Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Samband sveitarfélaga á Austurlandi mótmælir fyrirhugaðri breytingu á fyrirkomulagi Loftbrúarinnar. Skerðingin sé aðför að búsetuskilyrðum á landsbyggðinni. Innlent 27.10.2026 14:11
Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Frumvarp Þorbjargar S. Gunnlaugsdóttur, dómsmálaráðherra, sem setur aukin skilyrði fyrir því að útlendingar fái dvalarleyfi á landinu var afgreitt úr ríkisstjórn í morgun. Meðal annars er þrengt að fjölskyldusameiningum með frumvarpinu. Innlent 27.10.2026 13:49
Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Íslendingar standa á tímamótum í netöryggismálum og þurfa að horfast í augu við breyttan veruleika og bregðast við að mati sviðsstjóra netöryggissviðs Fjarskiptastofu. Innlent 27.10.2026 13:30
Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Um sjötíu manns hafa verið ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti í tengslum við umfangsmikið fjársvikamál sem kom upp í nóvember í fyrra. Hundruð milljóna króna voru svikin út úr Landsbankanum með því að nýta galla hjá Reiknistofu bankanna. Innlent 27.10.2026 12:15