Upp­gjör: ÍR - Þór Þ. 75-78 | Þórsarar sóttu gríðarmikilvægan sigur

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
Dachon Burke er mættur í Þorlákshöfn frá Bandaríkjunum.
Dachon Burke er mættur í Þorlákshöfn frá Bandaríkjunum. Hulda Margrét

Þór Þorlákshöfn sótti gríðarmikilvægan 75-78 sigur gegn ÍR í Skógarseli í 17. umferð Bónus deildar karla í körfubolta. Dramurinn um að komast í úrslitakeppnina lifir því enn.

Þórsarar eru enn í mikilli fallhættu en tókst með þessum sigri að skilja Ármann og ÍA eftir í fallsætunum tveimur. ÍA tapaði á sama tíma gegn Val á Hlíðarenda en Ármann á leik til góða gegn Tindastóli á morgun. 

Gestirnir frá Þorlákshöfn unnu sér upp góða forystu í fyrri hálfleik en misstu hana úr hendi sér í seinni hálfleik. Heimamönnum tókst hins vegar aldrei að stíga skrefið sem þeir þurftu til að vinna leikinn og Þór slapp að lokum með þriggja stiga sigur.

Leikurinn fór hægt af stað og fyrstu mínútur leiksins einkenndust af mistökum og færum sem fóru forgörðum. ÍR-ingar leiddu með einu stigi eftir fyrsta leikluta, 20-19, eftir afar jafnan leikhluta.

Þórsarar náðu betri takti í seinni leikhluta og náðu afar góðum tökum á varnarleiknum, liðið vann annan leikhluta, 24-14, og tókst því að byggja upp smá forskot og leiddi liðið 34-43 í hálfleik.

ÍR-ingar reyndu að saxa á muninn í þriðja leikhluta og unnu þeir hann 23-19. Munurinn því kominn niður í fimm stig og allt galopið fyrir lokaleikhlutann.

Í fjórða leikhluta jókst spennan og var munurinn fjögur stig þegar um 80 sekúndur voru eftir. Þriggja stiga karfa heimamanna á síðustu mínútu gaf liðinu von, en það dugði þó ekki til. Þór Þorlákshöfn sigraði því með þremur stigum, 75-78.

Atvik leiksins

Það var ekkert sérstakt atvik en ÍR-ingar hefðu getað komist betur inn í leikinn og gert þetta að alvöru leik hérna í lokin.

Hart barist um boltann.Hulda Margrét

Stjörnur og skúrkar

Dachon Burke nýi kaninn hjá Þór Þorlákshöfn var stigahæstur í liðinu með 23 stig, 7 fráköst og 5 stoðsendingar. Þar á eftir var Rafail með 16 stig, 7 fráköst og 4 stoðsendingar.

Burke berst við Falko.Hulda Margrét

Dimitrios Klonaras var stigahæstur hjá ÍR-ingum með 26 stig og 12 fráköst.

Klonaras öflugur fyrir heimamenn í kvöld.Hulda Margrét

Stemning og umgjörð

Stemningin var góð framan af og stuðningsmenn heimamanna létur vel í sér heyra í upphafi leiks. Það dró þó aðeins úr stúkunni þegar gestirnir náðu forskoti og afar hljóðlátt þegar Þórsarar voru líklegri að sigla sigrinum heim.

Sveinbjörn Claessen flottur á moppunni í kvöld eins og alltaf.

Dómarar

Kristinn Óskarsson, Jón Þór Eyþórsson og Sófus Máni Bender stóðu vaktina á parketinu í kvöld. Þeir voru með góð tök á leiknum og lítið um vafamál og vesen.

Viðtöl

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira