Umfjöllun og viðtöl: Tindastóll 113-76 Ármann | Stólarnir ekki í vandræðum í Síkinu Arnar Skúli Atlason skrifar 13. febrúar 2026 21:45 ÍR - Tindastóll Bónus Deild Karla Haust 2025 Tindastóll og Ármann leiddu saman hesta sína í Síkinu á Sauðárkróki í kvöld þar sem Tindastóll fór með öruggan sigur 113-76 í kaflaskiptum leik. Fyrir leikinn í kvöld voru liðin að berjast á sitthvorum staðnum í deildinni. Tindastóll að berjast á toppi deildarinnar en strákarnir í Ármann eru að glíma við falldrauginn. Leikurinn hófst á miklu jafnræði. Liðinn voru að skiptast á körfum. Það voru margir tengdir í báðum liðum. Hjá Tindastól byrjaði Dedrick Basile frábærlega og var að skora þrista í öllum regnbogans litum. Hjá Ármann var Daniel Love vel tengdur sem en hann fékk hjálp frá Ingva Guðmundssyni. Það var jafnt á nánast öllum tölum og þegar liðinn gengu til búningsherbergja var staðan jöfn 54-54. Það voru Tindastóll sem áttu fyrsta höggið í seinni hálfleik og kafsigldu gestunum og komu muninum upp í 10 stig strax í upphafi. Steinar Kaldan þjálfari Ármanns tók tvö leikhlé í leikhlutanum til að stoppa blæðinguna en allt kom fyrir ekki. Daniel Love reyndi eins og hann gat að halda Ármanni í leiknum en þegar hann fékk sína 5 villu var eins og blaðran væri sprunginn hjá Ármann. Tindastóll keyrði yfir Ármann og allir leikmenn liðsins skoruðu í kvöld. Loka tölurnar í kvöld voru 113-76. Tindastóll fer með sigurinum upp í 2 sæti deildarinnar en Ármann sitja í 11 sætinu 2 stigum frá öruggusæti. Atvik leiksins Tindastóll byrja seinni hálfleikinn frábærlega og stinga af. Keyrðu upp hraðann og tóku leikinn til sín Stjörnur Hjá Tindastól var Dedrick Basile var gjörsamlega frábær í kvöld,27 stig og gjörsamlega raðaði niður þriggjastiga körfunum og endaði með 7 slíkar. Taiwo Badmus skilaði 23 stigum, Júlíus Orri skoraði 6 stig en var að finna félaga sína og endaði með 12 stoðsendingar. Basile var öflugur í liði Tindastóls í kvöldVísir/Pawel Það var minna að frétta hjá Ármann. Daniel Love var flottur með 18 stig og var eini ljósi punkturinn í Ármanns liðinu Dómararnir Þeir stóðu sig vel strákarnir í kvöld enda ekki erfiður leikur að dæma Stemmingin og umgjörð Það hefur verið betri stemning í Síkinu en í kvöld. Ekki full setið á bekkjunum og nóg pláss. En umgjörðin flott og gott að koma í Síkið þrátt fyrir það. „Bara gott að vinna og ná í sigur.“ Arnar Guðjónsson þjálfari Tindastóls var ánægður með sigurinn í kvöld. Tindastóll tók yfir í seinni hálfleik og endaði þetta í þægilegum sigri. Arnar Guðjónsson, þjálfari Tindastólsvísir/Anton „Ármann er með flott lið. Þú sérð það Hellingur af félögum sem hafa lent í vandræðum með þá. Þeir eru með menn sem geta skorað og menn sem geta farið einn á einn og við réðum illa þá í fyrri hálfleik því var jafnt í hálfleik.“ Tindastóll hafði tapað 2 leikjum í röð í deildinni en það var ekkert komið stress í Arnar og hans menn þrátt fyrir það. „Ég var búinn að gleyma því að ég væri búinn að tapa tveimur í deildinni þangað til þú minntir mig á það fyrir leik. Ég er alltaf bara grillaður í næsta leik. Ég var ekkert að herpast um út af tveimur tap leikjum í röð mér fannst bara svo ótrúlega langt síðan þessir leikir voru ég var búinn að gleyma því. Við vorum meira að reyna að ná okkur niður á jörðina eftir Brussels leikinn ef eitthvað er.“ „Ég klóra mér í hausnum yfir því hvað gerðist" Steinar Kaldal þjálfari Álftanes var ósáttur með munin á liðinu sínu milli hálfleika. Steinar Kaldal þjálfari ÁrmannsVísir/Anton „Þetta voru bara tveir gjör ólíkir hálfleikar frá okkur. Þeir spiluðu áfram eins og spiluðu í fyrri hálfleik. Við vissum svo sem að þeir kæmu agressívari heldur en í fyrri hálfleik. Við töluðum um það að halda áfram að spila boltanum í staðinn fyrir að fara í rugl. Við létum þá stjórna tempóinu í seinni hálfleik. Þeir eru með 70% þriggjastiga nýtingu í fyrri hálfleik samt erum við bara í flottum leik við þá. Þeir halda áfram að hitta í seinni hálfleik og við misstum einbeitinguna allt allt of fljótt. Við förum í einstaklingsframtök sem eru ekkert að virka og það gerðist það sem gerðist. Bara svart og hvítt hálfleikar frá okkur.“ Tindastóll náðu að þröngva Ármann út úr öllu sem þeir voru að gera í fyrri hálfleiknum og Ármann voru með enginn svör. „Ég klóra mér í hausnum yfir því hvað gerðist. Það var ekkert sem kom okkur á óvart í seinni hálfleik í þeirra leik. Við vorum alltof fljótir að fara úr okkar leik. Ég tók 2 leikhlé til að fara yfir þessa hluti en það skilaði sér ekki. Við vorum ekki nógu þroskaðir inná vellinum til að bregðast við þessu.“ Ármann eru hvergi bognir og ætla að berjast til seinasta leiks í deildinni. „Við erum með þá hugsun og það gildi í allan vetur. Við ætlum að halda því áfram. Við erum í botn leðjuslag eins og Lalli kallaði það (Lárus þjálfari Þór Þorlákshafnar) og við hlökkum til framhaldsins.“ Bónus-deild karla Tindastóll Ármann
Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 99-105 | Grindavík styrkti stöðu sína á toppi deildarinnar Körfubolti
Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 99-105 | Grindavík styrkti stöðu sína á toppi deildarinnar Körfubolti